Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 44

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2014, Page 44
44 www.virk.is P A LL B O R Ð S U M R Æ Ð U R móti krónu og og sér ekki tilgang með því að leggja meira á sig. Ef fjárhagslegur hvati er ekki til staðar er vonlaust fyrir okkur, sem vinnum að starfsendurhæfingu, að koma fólki aftur í vinnu. Við tölum um að meta þurfi styrkleika fólks, en þar kemur til ákveðinn hagsmunaárekstur. Öryrkjabandalagið vill auðvitað að fólkið þess hafi grunnlífeyri og ég er sammála því að fólk þarf ákveðinn grunnlífeyri til að fleyta sér áfram. Fólk hefur misjafnlega mikla starfsgetu, einkum þeir sem eiga við geðræn vandamál að stríða sem geta breyst með tímanum. Þessi hópur þarf fjárhagslega hvatningu. Salóme: Ég þori að fullyrða að læknar hafa ekki óskað eftir því sjálfir að alltaf þurfi að ráðfæra sig við þá vegna útgáfu veikindavottorða til að framvísa í vinnu eða námi. Vottorðafarganið er ótrúlegt og kemur eiginlega eins og holskefla til lækna. Flestir heimilislæknar mundu fagna því að losna við stóran hluta af þessu. Eilíf vottorðaskrif eru líka til komin vegna krafna samfélagsins; það þarf að votta hina ýmsu krankleika, veikindi eða starfsgetu í prósentum. Þessar kröfur eru oft á tíðum settar í hendur lækna sem hafa ekki möguleika á að sannreyna málið á neinn hátt. Þurfum að finna kerfi sem hvetur einstaklinginn áfram Júlíus: Grunnurinn að okkar starfsemi er mat á tilteknum þáttum, svo sem heilsufari eða starfsgetu. Kerfið kallar á að grunnurinn sé alltaf læknisfræðilegur. Við sjáum líka fjölda fólks sem glímir við félagsleg vandamál og annað sem á ekkert skylt við sjúkdóma eða slys. Til lausnar á þessum vanda mætti sjá fyrir sér markvissari greiningu á vandanum í upphafi hjá einhvers konar „Hjálpargátt ríkisins“; er vandinn læknisfræðilegur, félagslegur eða er um atvinnuleysi að ræða? Einstaklingnum væri síðan vísað í réttan farveg, en þetta vantar í okkar kerfi og því endar fólk sem á í vanda oftar en ekki hjá læknum. Þá er það oft búið að greina sig sjálft sem sjúklinga eða öryrkja. Það þarf að samþætta greininguna og auka samvinnu ólíkra aðila; Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða, heilsugæslunnar, sjúkrasjóða og ýmissa annarra aðila sem koma að þessum málaflokki. Salóme: Þá kemur fólk ekki til læknis vegna veikinda, heldur er tilgangurinn að fá vottorð fyrir vinnuveitanda. Hluti af hinum kerfislæga vanda sem fylgir því að komast úr veikindum til vinnu er uppbygging bótakerfisins. Sumir eru í fyrstu á launum hjá vinnuveitanda eftir að veikindi koma upp og hafa samviskubit yfir því. Fólk finnur til skyldurækni og hugsar: „Vinnuveitandinn þarf að borga mér og ég get ekkert gert. Hann þarf að ráða annan í minn stað.“ Samviskusemi af þessu tagi stendur fólki oft fyrir þrifum. Þessi einstaklingur gengur svo hugsanlega inn í bótakerfi tengt fyrri vinnu. En ekki eru allir með vinnusögu og þeir einstaklingar búa ekki við sömu réttindi og hinir sem hafa stundað vinnu. Þetta þykir mér ákveðið óréttlæti í okkar samfélagi og í raun átakanlegt að fólk sem hefur aldrei haft heilsu til fullrar vinnu gangi ekki að sömu bótum og möguleikum og hinir. Elín Ebba: Ég tel mjög mikilvægt að gerð sé áætlun sem myndi fylgja hverjum einstaklingi sem af einhverjum orsökum er ekki í skóla eða vinnu. Megináherslan getur verið á læknisfræðilega greiningu, sem liggur þá beint við að læknir stýri, en áherslan getur líka legið annars staðar. Við sendum fólk í dýr úrræði án þess að til sé heildaráætlun eða vitneskja um hvað hefur verið reynt áður. Þess vegna væri mjög gott að ná því í gegn að hverjum og einum fylgdi einstaklingsáætlun, svo að þegar viðkomandi færi til næsta meðferðaraðila væri hægt að sjá hvaða markmið hann hefur sett sér. Það er gríðarlega mikilvægt að við sem vinnum í þessum málaflokki séum í takt við það sem einstaklingurinn vill líka vegna þess að sumir ætla sér ekki aftur út á vinnumarkaðinn. Til þess að fá fjárhagslegan stuðning, til dæmis endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun eða úrræði í gegnum VIRK, þarf fólk að segjast vilja fara í vinnu, en við vitum að það er ekki alltaf tilfellið. Ég tel best að fólk geti verið heiðarlegt og að við getum unnið heiðarlega með því. Mín skoðun er að við þurfum að skipta út núverandi örorkumatskerfi, því það virkar ekki. Við þurfum að meta hvað fólk getur og hafa öryggisnet til að tryggja fólki framfærslu þegar það getur ekki unnið. Við verðum líka að komast að samkomulagi við Öryrkjabandalagið og ná lendingu svo að við vinnum ekki gegn hagsmunum þess. Við erum að reyna að finna hvata fyrir fólk til að koma sér áfram. Til dæmis er miklu hagstæðara fyrir einstæða móður með börn að vera á bótum en að vinna láglaunastarf. Við þurfum að skapa umbunarkerfi þar sem einstaklingurinn er hvattur áfram, en þarna þurfa ríkið, Tryggingastofnun, Vinnumálastofnun og VIRK að koma sér saman um verkaskiptingu. „Sumir hafa unnið sér inn rétt til atvinnuleysis- bóta, en mín skoðun er að þegar fólk fær greitt úr sameiginlegum sjóðum eigi það að gera eitthvað í staðinn. Sem betur fer er verið að gera eitthvað í þessum efnum, en með því að greiða ungu fólki bætur fyrir að gera ekki neitt erum við að búa til framtíðaröryrkja.“

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.