Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 6
6 www.virk.is
V
IR
K
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK
Í haust verða liðin sex ár frá því að VIRK hóf að
veita þjónustu á sviði starfsendurhæfingar í sam-
starfi við stéttarfélög um allt land. Á þessum tíma
hefur VIRK þróast úr því að vera hugmynd á blaði
í stofnun sem hefur veitt um 8000 einstaklingum
hér á landi vandaða og flókna þjónustu og náð
þeim árangri að mikill meirihluti þeirra einstaklinga
sem ljúka þjónustu hjá VIRK taka virkan þátt á
vinnumarkaði. Starfsemi VIRK stuðlar þannig
bæði að betra lífi einstaklinga, öflugra atvinnulífi
og betra samfélagi fyrir okkur öll.
ársins 2020. Á mynd 2 er að finna myndræna
uppsetningu á skipuriti VIRK eins og það lítur út í
byrjun árs 2015.
Starfsmenn og ráðgjafar VIRK
Starfsmenn á skrifstofu VIRK eru nú 30 talsins í um
27 stöðugildum. Um er að ræða fjölbreyttan hóp
sérfræðinga og skrifstofufólks með margvíslega
þekkingu og reynslu. Meirihluti starfsmanna VIRK
eða tæplega 80% er með háskólamenntun. Hjá
VIRK starfa t.d. sérfræðingar með menntun á sviði
sjúkraþjálfunar, lækninga, iðjuþjálfunar, sálfræði,
hjúkrunar, félagsráðgjafar, lýðheilsufræða, kennslu,
fjármála og stjórnunar. Mjög margir starfsmanna
VIRK hafa meistaragráðu í sínu fagi. Sérfræðingar
á skrifstofu VIRK sjá um að skipuleggja starfið,
veita ráðgjöfum og þverfaglegum teymum aðstoð
Síðastliðið ár var viðburðaríkt og erilsamt hjá VIRK.
Fleiri einstaklingar nýttu sér þjónustuna en áður og
talsverð aukning var í hópi þeirra sem hafa verið
lengi frá vinnumarkaði og þurfa talsvert mikla
þjónustu til að ná árangri í sinni starfsendurhæfingu.
Í takt við þetta hafa átt sér stað talsverðar breytingar
á vinnuferlum og þjónustu þar sem tekið er mið af
bæði reynslu og þekkingu innan VIRK og á öðrum
stöðum hérlendis og erlendis.
VIRK starfar í samræmi við kjarasamninga,
skipulagsskrá og lög nr. 60/2012 um atvinnu-
tengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfs-
endurhæfingarsjóða. Hlutverk, framtíðarsýn og
gildi VIRK eru skýr en eðlilega einnig í sífelldri
þróun og endurskoðun í takt við aukna þekkingu og
reynslu. Á mynd 1 má sjá skilgreiningu á hlutverki
VIRK, gildum og helstu þáttum framtíðarsýnar til
Árangur
og velferð