Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Síða 15
15www.virk.is
VIRK
Árangur í þjónustu VIRK
Lögð er á það áhersla hjá VIRK að þróa
mælikvarða á árangur starfseminnar.
Starfsemin er hins vegar flókin og því
nauðsynlegt að meta mismunandi þætti
til að sjá hver raunverulegur árangur
er. Það sem skiptir auðvitað mestu máli
er hvort einstaklingur sem notið hefur
þjónustu VIRK hafi aukið starfsgetu sína
og taki virkan þátt á vinnumarkaði. Einnig
skiptir máli að auka lífsgæði og þátttöku
einstaklinga í samfélaginu.
Mynd 15 sýnir framfærslustöðu ein-
staklinga sem höfðu lokið þjónustu í
árslok 2014. Myndin sýnir stöðugildi,
þannig að ef einstaklingur fer í hálft starf
þegar þjónustu er lokið er það skráð sem
hálft stöðugildi og önnur framfærsla skráð á
móti. Eins og sjá má eru um 64% stöðugilda
þeirra sem útskrifast með framfærslu-
stöðu sem gefur til kynna starfsgetu og
virka þátttöku á vinnumarkaði, þ.e. þeir
eru annað hvort í launaðri vinnu, í virkri
atvinnuleit eða í lánshæfu námi. Ef horft
er á fjölda einstaklinga en ekki stöðugildi
þá eru um 72% þeirra einstaklinga sem
lokið hafa þjónustu hjá VIRK annað hvort
í launuðu starfi, virkri atvinnuleit eða í
lánshæfu námi við lok þjónustu. Þessi
niðurstaða er mjög góð, sérstaklega í
ljósi þess að þeir einstaklingar sem leita
til VIRK eru undantekningarlítið að glíma
við alvarlegan vanda og margir hafa verið
talsverðan tíma frá vinnumarkaði. Einnig
þarf að hafa í huga að til VIRK leitar nú
stærri hópur en áður sem hefur verið lengi
frá vinnumarkaði og glímir við flókinn og
fjölþættan vanda.
Við skoðun á upplýsingum sem þessum er
mikilvægt að hafa í huga að fyrirkomulag
framfærslukerfisins getur falið í sér ýmsa
hvata sem valda því að ekki er hægt
að meta árangur VIRK eingöngu út frá
gögnum sem þessum. Í dag útskrifast t.d.
einstaklingar frá VIRK með vinnugetu í
hálft starf en fyrirkomulag örorkulífeyris hjá
Tryggingastofnun ríkisins gerir þeim ekki
kleift að fá örorkulífeyri að hálfu leyti á móti
sinni vinnugetu. Því verður niðurstaðan oft
og tíðum sú að viðkomandi einstaklingur
fer á fullan örorkulífeyri þrátt fyrir að hafa
náð talsverðum árangri hjá VIRK í að auka
vinnugetu sína. Þannig má fullyrða að hluti
af þeim 22% sem eru með örorkulífeyri í
lok þjónustu hjá VIRK (sjá mynd 15) hefur
í raun náð þeim árangri að geta unnið að
hluta til en sækir um fullan örorkulífeyri á
meðan ekki er boðið upp á sveigjanlegra
kerfi. Á meðan bótakerfið er byggt upp
á þennan hátt þá mun sá mælikvarði
sem felst í skráningu á framfærslustöðu
einstaklinga í lok þjónustu ávallt vanmeta
árangur af starfi VIRK.
Þegar árangur af starfsendurhæfingar-
þjónustu er metinn þá skiptir miklu máli
að tekið sé mið af því hver staða ein-
staklinganna var í upphafi. Bestur árangur
næst þegar einstaklingar koma snemma
til VIRK og eru enn með vinnusamband
við vinnustað sinn við komu til ráðgjafa.
Þetta má sjá í töflu 2. Þar eru teknar
saman upplýsingar um einstaklinga sem
hafa lokið þjónustu hjá VIRK og sjá má
framfærslustöðu þeirra í lok þjónustu í
samanburði við stöðu þeirra í upphafi.
Þetta er skráð í stöðugildum. Enginn
þeirra hafði vinnugetu við komu til VIRK
en framfærslustaða þeirra var mismunandi
sem gefur til kynna mislangan tíma frá
vinnumarkaði vegna heilsubrests.
78% stöðugilda þeirra einstaklinga
sem eru enn á launum í veikindum frá
atvinnurekanda þegar þeir koma til VIRK
útskrifast frá VIRK með fulla vinnugetu
(þ.e. eru annað hvort í launaðri vinnu,
atvinnuleit eða í lánshæfu námi við útskrift).
Þetta á síðan við um 73% af þeim sem eru
Tafla 2
Laun í veikindum 71% 5% 2% 78%
Atvinnuleysisbætur 39% 30% 4% 73%
Sjúkrasjóður stéttarfélaga 45% 18% 3% 66%
Engar tekjur 45% 11% 4% 60%
Endurhæfingarlífeyrir 31% 8% 4% 43%
Fjárhagsaðstoð 37% 11% 7% 55%
Örorkulífeyrir 23% 1% 1% 25%
Framfærslustaða við
komu til ráðgjafa
Að lágm. 50% framfærslunnar
kemur frá neðangreindum
þáttum í upphafi þjónustu
Hlutfall stöðugilda við lok ráðgjafar
Í launaðri
vinnu
Í
atvinnuleit
Á
námslánum
Samt. með
vinnugetu
Mynd 15
Framfærslustaða einstaklinga í lok þjónustu VIRK
hjá 3765 einstaklingum sem höfðu lokið þjónustu í árslok 2014
Laun á vinnumarkaði
Á endurhæfingarlífeyri
Annað
Atvinnuleysisbætur
Námslán
Á örorkulífeyri
49%
9%
22%
5%
3%
12%