Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 21
21www.virk.is
VIRK
Heildarfjöldi raunhæfimata á árinu 2014
var 315, eða að meðaltali rúmlega 26 möt
í mánuði og hefur beiðnum það sem af
er árinu fjölgað töluvert eins og sjá má á
mynd 1.
Þegar skoðaðar eru niðurstöður úr mati
á raunhæfi starfsendurhæfingar á árinu
2014 var starfsendurhæfing metin raun-
hæf í 57% tilfella en óraunhæf í 43%
tilfella.
Endurhæfingarþungi
Unnið er að því að skilgreina betur þann
hóp sem kemur inn til VIRK m.t.t. hversu
langan tíma starfsendurhæfingin muni
taka og hvaða úrræðakaup gætu hentað
einstaklingi best. Eftir að markvissri
forvinnu lauk hjá sérfræðingum VIRK
var leitað til félags endurhæfingarlækna
með beiðni um að tilnefna aðila innan
þeirra vébanda til að taka þátt í þessari
vinnu. Auk þess var leitað til reynslumikils
félagsráðgjafa á geðdeild Landspítalans.
Vinnuhópinn skipa auk sérfræðinga frá
VIRK:
• Magnús Ólason framkvæmdastjóri
lækninga Reykjalundi
• Stefán Yngvason yfirlæknir á Grensási
• Vigdís Jónsdóttir félagsráðgjafi
geðdeild LSH
Bæði er verið að horfa til þess að ákveðnar
grunnupplýsingar um stöðu einstaklings
geti gefið mikilvægar vísbendingar um það
hvers vænta megi. Einnig er verið að skoða
möguleikann á því að ákveðin skimun sé
gerð í upphafi þjónustu. Þessi vinna er
komin vel á veg en vænta má niðurstöðu á
vormánuðum.
Þverfagleg nálgun á öllum
stigum starfsendurhæfingar-
ferils
Ráðgjafar í starfsendurhæfingu spila veiga-
mikið hlutverk í starfsendurhæfingarferli
einstaklingsins. Þeir hafa umsjón með
málum, veita ráðgjöf, hvetja einstaklinginn
áfram og draga markvisst fram styrk-
leika hans m.a. með aðferðafræði
„Áhugahvetjandi samtals“. Þeir gegna
einnig mikilvægu hlutverki í matsferli
VIRK því strax í upphafi þjónustu hefst
markviss upplýsingagjöf sem er nýtt
áfram í starfsendurhæfingarferlinu.
Á fyrsta mánuði í þjónustu hittir ráðgjafi
þverfagleg rýniteymi sem starfa á vegum
VIRK. Þar er farið yfir þau gögn sem hafa
borist og þær upplýsingar sem hafa safnast
hjá ráðgjafa. Í samvinnu við einstaklinginn
og þverfagleg rýniteymi útbýr ráðgjafi raun-
hæfa áætlun í starfsendurhæfingu. Frá og
með 1. nóvember 2014 var það verklag
innleitt að öll mál einstaklinga í þjónustu
eru einnig rýnd á 3ja mánaða fresti. Það
má því segja að þverfagleg nálgun á öllum
stigum starfsendurhæfingarferilsins sé
tryggð.
Framkvæmd og eftirfylgni áætlunar krefst
hinsvegar samvinnu við marga aðila
þ.m.t. tilvísandi lækni, atvinnurekanda,
úrræðaaðila í starfsendurhæfingu og
rýniteyma og matsteyma sem starfa á
vegum VIRK. Það má því segja að ráðgjafi
haldi í alla þræði í starfsendurhæfingarferli
einstaklingins, sé nokkurs konar „könguló
í netinu“.
Þróun á matsferli
starfsendurhæfingar
Rannsóknir benda eindregið til þess
að einstaklingsmiðuð starfsendurhæfing
skili sér í aukinni færni og betri líkamlegri
og andlegri líðan. Þannig stuðlar hún
að lægra nýgengi örorku og eykur líkur
á að einstaklingarnir verði á ný virkir
þátttakendur í samfélaginu. Ljóst er að
sá ávinningur verður meiri því fyrr sem
starfsendurhæfing hefst í veikindaferlinu.
VIRK hefur frá stofnun unnið markvisst að
og fjárfest umtalsvert í uppbyggingu þver-
faglegs starfsendurhæfingarferils sam-
tvinnuðum matsferli. Markmið þeirrar
vinnu er þróun á nýju starfsgetumati sem æ
fleiri eru sammála um að taka eigi upp hér
á landi. Ljóst er að grunnforsenda þess að
taka upp starfsgetumat í stað örorkumats
er að til staðar sé samræmdur ferill, að
öllum bjóðist skipulagður og faglegur
starfsendurhæfingarferill. Rúmlega 80
sérfræðingar hérlendis og erlendis hafa
„Ljóst er að grunn-
forsenda þess að taka
upp starfsgetumat í
stað örorkumats er að til
staðar sé samræmdur
ferill, að öllum bjóðist
skipulagður og faglegur
starfsendurhæfingar-
ferill.“
2014 2015
Fjöldi raunhæfimata janúar 2014 - mars 2015
50
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Mynd 1
Fjöldi
Jan
úa
r
Feb
rúa
r
Ma
rs
Ap
ríl Ma
í
Jún
í
Júl
í
Ok
tób
er
Ág
úst
Nó
vem
ber
Sep
tem
ber
De
sem
ber
7
18
25
42
49
12
22
24
41 43
26
34
29 29
23