Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 23
23www.virk.is
VIRK
vinnustaður. Hluti af þessu verkefni er
einnig að aðstoða fyrirtæki við að undirbúa
vinnustaðinn og samstarfsmenn fyrir
árangursríka endurkomu einstaklinga
hvort sem þeir eru með fulla eða skerta
starfsgetu. Stefnt er að því að þetta verkefni
hefjist haustið 2015.
Kaup á úrræðum í
starfsendurhæfingu
VIRK hefur verið að efla samstarf og
eftirlit með þjónustuaðilum á sviði starfs-
endurhæfingar með það að markmiði
að gera samstarfið markvissara og
árangursríkara. Unnið er að þessu verkefni
í samstarfi við marga ólíka aðila.
Leitað var til óháðs sérfræðihóps sem
skoðaði sérstaklega kaup á sálfræði-
þjónustu á vegum VIRK. Markmið þeirrar
vinnu var að skoða hvað mætti betur fara
og tengja betur kaup sálfræðiþjónustu
til framtíðar við gagnreynda þekkingu á
þessu sviði. Hópinn skipuðu:
• Engilbert Sigurðsson prófessor
í geðlæknisfræðum, yfirlæknir
geðdeildar LSH
• Inga Hrefna Jónsdóttir
forstöðusálfræðingur Reykjalundi
• Jón Friðrik Sigurðsson prófessor við
HR og HÍ, verkefnastjóri hópsins
• Paul Salkovskis prófessor Bath
Englandi
• Ragnar P. Ólafsson lektor HÍ
• Sigrún Ólafsdóttir sálfræðingur
Niðurstöður skýrslunnar liggja fyrir þar
sem m.a. kemur fram að hægt sé að gera
enn betur í eftirfarandi þáttum:
• Markvissara mat eigi sér stað í
upphafi þjónustu á hvaða úrræði
henta einstaklingi best. Þannig
er talið að hægt sé að auka skil-
virkni þjónustunnar og bæta gæði
hennar.
• Samræma betur notkun á
mælitækjum, bæði á skimunar- og
matsstigi og í ferlinu sjálfu.
• Samræma árangursmat hjá
meðhöndlandi sálfræðingum.
• Skilgreina þarf hvert stig
þjónustunnar á markvissari
hátt, bæði í mats- og meðferðar-
ferlinu.
„Áhersla verður lögð
á að efla til muna
eftirfylgni með einstakl-
ingum með langvinna
sjúkdóma sem hafa
áhrif á starfsgetu og
möguleika þeirra á
vinnumarkaði til
framtíðar. Nýta á m.a.
þekkinguna sem
skapast hefur í IPS-
verkefninu og í
þróunarverkefninu
Virkur vinnustaður.“
Þessa dagana er einnig unnið að því að
skerpa enn frekar á faglegum kröfum í
samningum við þverfagleg starfsendur-
hæfingarúrræði. Áfram verður lögð áhersla
á einstaklingsbundna nálgun þar sem
unnið er út frá niðurstöðum úr matsferli
VIRK. Eins þarf þjónustan að innihalda
bæði einstaklingsbundin úrræði og eftir
þörfum og aðstæðum annars konar
úrræði svo sem hópfræðslu eða stuðning.
Einstaklingsbundin úrræði þurfa að vera
í umsjón fagaðila sem hafa menntun og
þekkingu á meðferðum á sviði geðrænna
og líkamlegra hindrana og hafa löggildingu
og starfsleyfi frá Landlækni.
Samstarf við
velferðarkerfið
Mikil áhersla hefur verið lögð á uppbygg-
ingu samstarfs við velferðarkerfið. Markmið
þessa er að tryggja að aðrar stofnanir hafi
gott aðgengi að þjónustu VIRK, að bæta enn
frekar upplýsingaflæði milli aðila og að sem
best samfella sé í starfsendurhæfingarferli
einstaklingsins. Í dag eru mánaðarlegir
fundir með fjölmörgum stofnunum innan
heilbrigðiskerfisins og má þar nefna geð-
deildir LSH, Grensás, Reykjalund og fjöl-
margar heilsugæslustöðvar um land allt.
Sérfræðingar í starfsendurhæfingu sem
starfa á vegum VIRK funda reglulega með
Vinnumálastofnun í Reykjavík og á Akureyri
og félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, Reykja-
ness og á Akureyri. Þar gefst þessum aðilum
tækifæri á að koma með einstaklingsmál og
fá ráðleggingar um næstu skref. Niðurstaða
fundarins getur verið að ekki sé ástæða
til að aðhafast frekar eða að skoða þurfi
nánar starfsendurhæfingarmöguleika ein-
staklingsins. Þá er einstaklingurinn boðaður
í viðtal til sérfræðings sem starfar á vegum
VIRK.
Næstu skref
Mikilvægt er að halda áfram að
byggja upp faglega þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar og efla hana enn
frekar. Ekki aðeins er árangursrík nálgun
í starfsendurhæfingu, eins og VIRK býður
upp á, ein allra arðbærasta fjárfestingin
í íslensku samfélagi, heldur er frekari
efling starfsendurhæfingar nauðsynleg
til að hægt verði að skipta úr örorkumati
í mat á starfsgetu hjá bæði lífeyrissjóðum
og opinberum aðilum.Til þess að svo geti
orðið er mikilvægt að fagleg þróun hjá VIRK
styðji við þær breytingar sem fyrirhugaðar
eru á næstu mánuðum og árum. Að því
hefur verið unnið markvisst undanfarin sex
ár og það faglega starf mun halda áfram af
fullum þunga.
Niðurstöðurnar verða nýttar til endurbóta
og þróunar í kaupum á sálfræðiþjónustu
hjá VIRK á næstu vikum og mánuðum.