Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 35
35www.virk.is
VIRK
Aukið samstarf innan
velferðarkerfisins
VIRK hefur lagt mikla áherslu á gott samstarf við alla aðila innan
velferðarkerfisins með það að markmiði að tryggja góðan og
samfelldan þjónustuferil fyrir einstaklinga.
Á undanförnum tveimur árum hefur
sérstök áhersla verið lögð á að auka
samskipti og samstarf við aðrar
stofnanir velferðarkerfisins með það að
markmiði að auka og bæta þjónustu
við einstaklinga á öllum sviðum. VIRK
leggur einnig mikla áherslu á að
leiðbeina einstaklingum um mögulegar
þjónustuleiðir innan velferðarkerfisins
hvort sem einstaklingurinn getur nýtt sér
þjónustu VIRK eða ekki. Hér að neðan má
sjá nokkur dæmi um þetta samstarf.
Ráðgjafar VIRK halda utan um endur-
hæfingaráætlanir sem eru forsenda
þess að einstaklingar geti fengið endur-
hæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun.
Læknar sem starfa á vegum TR eru
einnig í auknum mæli farnir að kalla eftir
niðurstöðum starfsgetumats hjá VIRK áður
en ákvörðun er tekin um lífeyrisgreiðslur
hjá Tryggingastofnun.
Sérfræðingar VIRK bjóða upp á fundi á
heilsugæslustöðvum um allt land. Þar gefst
heimilislæknum tækifæri til að fara yfir mál
sinna einstaklinga og gott upplýsingaflæði
er tryggt.
Ráðgjafar VIRK eru með aðsetur á Hvíta-
bandinu og á Kleppi einu sinni í viku.
Þessi viðvera hefur skipt miklu máli fyrir
einstaklinga sem glíma við langvinna og
alvarlega geðsjúkdóma og hefur orðið
til þess að tengja betur saman þjónustu
heilbrigðiskerfis og atvinnutengdrar starfs-
endurhæfingar.
Reglubundnir fundir eru milli sérfræðinga
VIRK og sérfræðinga á geðdeildum LSH –
bæði á geðdeild LSH við Hringbraut og á
Kleppi.
færar leiðir hvort heldur sem er innan
VIRK eða á vegum félagsþjónustunnar. Í
undirbúningi er samstarf af þessum toga
við fleiri sveitarfélög.
Reglulegir fundir eru með Vinnumála-
stofnun þar sem þverfagleg teymi fara yfir
mál einstaklinga og koma þeim í réttan
farveg.
Af ofangreindri upptalningu, sem er
þó ekki tæmandi, er ljóst að VIRK
gegnir í dag mikilvægu hlutverki innan
velferðarkerfisins og hefur lagt mikið afl
í að samþætta þjónustu atvinnutengdrar
starfsendurhæfingar við þjónustu annarra
stofnana. Áhersla er alltaf lögð á það
að finna einstaklingum réttan farveg í
góðu samstarfi við aðra fagaðila innan
kerfisins og þar með auka líkurnar á því
að starfsendurhæfing einstaklingsins verði
árangursrík.
VIRK hefur útvegað geðdeild LSH á
Laugarásvegi sérstakan atvinnuráðgjafa,
Hlyn Jónasson, sem hefur aðstoðað unga
einstaklinga með alvarlegar geðgreiningar
við að finna starf við hæfi. Samstarfið hefur
verið mjög gott og verkefnið skilað miklum
ávinningi en nánar er fjallað um verkefnið
hér fyrir aftan í ársritinu.
Reglulegir fundir eru milli sérfræðinga
VIRK og Reykjalundar og milli VIRK og
Grensáss þar sem markmiðið er að tryggja
samfelldan þjónustuferil fyrir einstaklinga.
VIRK vinnur markvisst með félagsþjónustu
Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðar og
Reykjanesbæjar þar sem fagaðilar
frá VIRK og félagsþjónustunni fara
sameiginlega yfir mál einstaklinga sem eru
á „gráu svæði“ með það í huga að finna
árangursríkar leiðir að vinnumarkaði. Hér
leggur VIRK t.d. til aðgengi að fagaðilum
sem geta boðið einstaklingum upp á
nánari skoðun með það í huga að finna