Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Side 36
36 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
V
IÐ
TA
L
Mikilvægt að
stytta boðleiðir
Ingibjörg Kristinsdóttir náms- og starfsráðgjafi
VIRK hefur um skeið átt samstarf við Vinnu-
málastofnun. Það hefur að sögn Ingibjargar
Kristinsdóttur náms- og starfsráðgjafa hjá
Vinnumálastofnun gefið mjög góða raun.
Hún segir ánægju ríkja með samstarfið.
„Fyrir um ári var ákveðið að koma á
teymisfundum milli Vinnumálastofnunar
og VIRK. Þessir samráðsfundir hófust í
kjölfar góðs samstarfs og var markmiðið að
styrkja og formgera sambandið milli VIRK
og Vinnumálastofnunar,“ segir Ingibjörg
Kristinsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá
Vinnumálastofnun.
„Lengi hefur verið samstarf milli þessara
aðila. En þessum teymisfundum er
ætlað að stytta boðleiðir og sjá til þess að
atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá okkur
komist fyrr í ferli hjá VIRK. Flestir þessara
einstaklinga greiða í sitt stéttarfélag. En þó
eru nokkrir utan stéttarfélaga, sem hingað
til hafa haft möguleika á að komst í ferli
hjá VIRK.“
Tvö matstæki notuð
Hvaða ástæða er helst fyrir því að fólki á
skrá hjá ykkur er beint til VIRK?
„Einhvers konar heilsubrestur þarf að vera
fyrir hendi. Daglega kemur fólk í viðtöl til
ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun. Ástand
einstaklinga getur að sjálfsögðu verið mjög
mismunandi og getur bæði verið ástæða
atvinnuleysis og afleiðing þess. Þegar
vafi leikur á vinnufærni einstaklings og
ráðgjafi metur líðan hans þannig að þörf
geti verið á sértækari úrræðum, eru notuð
matstæki til að meta stöðuna, til viðbótar
við ráðgjafarviðtalið. Við notum aðallega
tvö matstæki. Annars vegar Heilsutengd
lífsgæði, en það skimar fyrir heilsufars-
og félagslegum þáttum og hins vegar
DASS, sem mælir þunglyndi, kvíða og
streitu. Þegar einstaklingur kemur ekki
vel út úr svona mati, hefur sögu sem
styður niðurstöður matsins og það er
mat einstaklings og ráðgjafa að þörf geti
verið fyrir sértækari endurhæfingarúrræði,
leggjum við mál hans fyrir á teymisfundum
með VIRK.“
Beint samband í teymisvinnu
Eru margir sem þurfa á svona aðstoð að
halda hjá ykkur?
„Hingað til hafa málefni um þrjátíu
einstaklinga farið í gegnum umfjöllun
teymisfunda VIRK og Vinnumálastofn-
unar. Margir þeirra hafa farið á fund
sálfræðings á vegum VIRK. Hann metur í
samráði við VIRK hvort þeir fari í endur-
hæfingu hjá VIRK eða hvort önnur úrræði
séu heppilegri.“
Hafa þeir einstaklingar sem hér um
ræðir fengið vinnu í framhaldi af
teymisfundunum?
„Já, einhverjir hafa fengið vinnu í fram-
haldinu og eru því afskráðir frá Vinnu-
málastofnun.“
Hvernig finnst þér að þetta samstarf
milli VIRK og Vinnumálastofnunar hafi
gengið?
„Ráðgjöfum hér hjá Vinnumálastofnun
finnst mjög gott að vera í þessu samstarfi.
Það hefur gefið afar góða raun. Mjög
gott er að geta sagt við atvinnuleitendur,
sem koma í viðtal og þurfa á sértækari
úrræðum að halda, að mál þeirra verði
tekið fyrir á teymisfundi með VIRK. Að
því loknu liggi einhver niðurstaða fyrir.
Mikilvægt er að boðleiðirnar séu styttri og
gripið sé inn í óvinnufærni sem fyrst. Þessi
teymisvinna ráðgjafa Vinnumálstofnunar
og sérfræðinga VIRK hefur skilað því. Gott
er að vera í beinu sambandi við VIRK í
þessari teymisvinnu.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir