Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Síða 36

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Síða 36
36 www.virk.is UPPLÝSINGAR V IÐ TA L Mikilvægt að stytta boðleiðir Ingibjörg Kristinsdóttir náms- og starfsráðgjafi VIRK hefur um skeið átt samstarf við Vinnu- málastofnun. Það hefur að sögn Ingibjargar Kristinsdóttur náms- og starfsráðgjafa hjá Vinnumálastofnun gefið mjög góða raun. Hún segir ánægju ríkja með samstarfið. „Fyrir um ári var ákveðið að koma á teymisfundum milli Vinnumálastofnunar og VIRK. Þessir samráðsfundir hófust í kjölfar góðs samstarfs og var markmiðið að styrkja og formgera sambandið milli VIRK og Vinnumálastofnunar,“ segir Ingibjörg Kristinsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun. „Lengi hefur verið samstarf milli þessara aðila. En þessum teymisfundum er ætlað að stytta boðleiðir og sjá til þess að atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá okkur komist fyrr í ferli hjá VIRK. Flestir þessara einstaklinga greiða í sitt stéttarfélag. En þó eru nokkrir utan stéttarfélaga, sem hingað til hafa haft möguleika á að komst í ferli hjá VIRK.“ Tvö matstæki notuð Hvaða ástæða er helst fyrir því að fólki á skrá hjá ykkur er beint til VIRK? „Einhvers konar heilsubrestur þarf að vera fyrir hendi. Daglega kemur fólk í viðtöl til ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun. Ástand einstaklinga getur að sjálfsögðu verið mjög mismunandi og getur bæði verið ástæða atvinnuleysis og afleiðing þess. Þegar vafi leikur á vinnufærni einstaklings og ráðgjafi metur líðan hans þannig að þörf geti verið á sértækari úrræðum, eru notuð matstæki til að meta stöðuna, til viðbótar við ráðgjafarviðtalið. Við notum aðallega tvö matstæki. Annars vegar Heilsutengd lífsgæði, en það skimar fyrir heilsufars- og félagslegum þáttum og hins vegar DASS, sem mælir þunglyndi, kvíða og streitu. Þegar einstaklingur kemur ekki vel út úr svona mati, hefur sögu sem styður niðurstöður matsins og það er mat einstaklings og ráðgjafa að þörf geti verið fyrir sértækari endurhæfingarúrræði, leggjum við mál hans fyrir á teymisfundum með VIRK.“ Beint samband í teymisvinnu Eru margir sem þurfa á svona aðstoð að halda hjá ykkur? „Hingað til hafa málefni um þrjátíu einstaklinga farið í gegnum umfjöllun teymisfunda VIRK og Vinnumálastofn- unar. Margir þeirra hafa farið á fund sálfræðings á vegum VIRK. Hann metur í samráði við VIRK hvort þeir fari í endur- hæfingu hjá VIRK eða hvort önnur úrræði séu heppilegri.“ Hafa þeir einstaklingar sem hér um ræðir fengið vinnu í framhaldi af teymisfundunum? „Já, einhverjir hafa fengið vinnu í fram- haldinu og eru því afskráðir frá Vinnu- málastofnun.“ Hvernig finnst þér að þetta samstarf milli VIRK og Vinnumálastofnunar hafi gengið? „Ráðgjöfum hér hjá Vinnumálastofnun finnst mjög gott að vera í þessu samstarfi. Það hefur gefið afar góða raun. Mjög gott er að geta sagt við atvinnuleitendur, sem koma í viðtal og þurfa á sértækari úrræðum að halda, að mál þeirra verði tekið fyrir á teymisfundi með VIRK. Að því loknu liggi einhver niðurstaða fyrir. Mikilvægt er að boðleiðirnar séu styttri og gripið sé inn í óvinnufærni sem fyrst. Þessi teymisvinna ráðgjafa Vinnumálstofnunar og sérfræðinga VIRK hefur skilað því. Gott er að vera í beinu sambandi við VIRK í þessari teymisvinnu.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.