Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Blaðsíða 37
37www.virk.is
VIÐTAL
VelVIRK er
mikilvægt úrræði
Unnur B. Árnadóttir félags- og virkniráðgjafi
VIRK á nú um stundir öflugt samstarf við Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar. Unnur B. Árnadóttir er félags- og
virkniráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
„Við hittumst fyrst í apríl 2014, teymi
frá velferðarsviði hér í Þjónustumiðstöð
Miðborgar og Hlíða og svo starfsfólk
frá VIRK. Í teyminu eru frá okkur tveir
félagsráðgjafar og frá VIRK koma læknir,
sálfræðingur og ráðgjafar.“
Hvað rædduð þið í fyrstu?
„Við lögðum upp með að þetta væri fyrir
þá einstaklinga sem væru án bótaréttar
en í atvinnuleit og væru að þiggja
fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Þetta
er í flestum tilvikum fólk sem hefur verið
lengi utan vinnumarkaðar. Og eitthvað,
sem erfitt er að skilgreina, kemur í veg
fyrir að það komist í vinnu. Við hér á
þjónustumiðstöðvunum tökum fyrst viðtal
sem við köllum eigið mat á starfsgetu.
Þar metur einstaklingurinn sjálfur eigin
starfshæfni. Á grundvelli þessa eigin mats
vísa virkniráðgjafar hér, sem um málin
fjalla, þeim svo til teymisins, sem við köllum
VelVIRK, þ.e. samstarf velferðarsviðs og
VIRK.“
Hvaða skilyrði þarf fólk að uppfylla til að
komast frá ykkur í samstarf við VIRK?
„Ef niðurstaðan úr mati virkniráðgjafa er
óskilgreindur vandi, er sem fyrr getur, hægt
að vísa einstaklingnum áfram til umrædds
teymis VelVIRK. Ef málið er tekið fyrir þar
fer það í frumgreiningu hjá teyminu. Að því
loknu er metið hvort viðkomandi fer áfram
í samstarf við VIRK eða honum er vísað
á atvinnuúrræði eða önnur viðeigandi
úrræði.“
Hvað hafa margir farið frá ykkur til VIRK?
„Tuttugu og einn einstaklingur hefur
komið í frumgreiningu inni hjá teyminu.
Þessi frumgreining getur innihaldið
nokkur viðtöl, allt upp í fimm skipti. Níu
einstaklingar hafa svo farið alla leið inn í
samstarf við VIRK.“
Góð þjónusta hjá VIRK
Hvernig hefur það gengið?
„Mjög vel. Einstaklingarnir hafa fengið
afskaplega góða þjónustu hjá VIRK og þar
með talið aðgengi að úrræðum sem VIRK
hefur upp á að bjóða en almennt býðst ekki
þeim sem eru eingöngu hjá Velferðarsviði
Reykjavíkur.“
Er einhver þessara einstaklinga
kominn á vinnumarkað?
„Enginn þeirra hefur útskrifast ennþá
af því að þetta er svo nýtt samstarf. En
sumir þeir einstaklingar sem fóru í frum-
greiningu hafa í framhaldi af því farið
út á vinnumarkaðinn með stuðningi
Velferðarsviðs og einnig nokkrir út á hinn
almenna vinnumarkað. Viðtölin hafa haft
þau áhrif að fólk fær meira sjálfstraust og
sér raunhæfari möguleika á starfi og lætur
slag standa.“
Hvernig hefur því fólki farnast sem
hefur fengið vinnu?
„Vel, en auðvitað er þetta langur gangur.
Viðkomandi einstaklingur er kannski
búinn að vera árum saman utan vinnu
eða annarrar virkni í samfélaginu. Það
gefur auga leið að hann þarf að aðlaga sig
verulega. Hann þarf að takast á við ýmsar
áskoranir. Þess vegna er þetta samstarf svo
mikilvægt. Sannarlega hefur samstarfið
við VIRK í umræddri frumgreiningu skilað
miklum árangri.“
Er þetta úrræði sem þið munuð beita í
auknum mæli?
„Já, við vonumst til að samstarfið við VIRK
haldi áfram. Það er að gefa mjög góða raun
og reynsla er að komast á það. Þess má geta
að allar þjónustumiðstöðvar í Reykjavík,
sem eru sex talsins, taka þátt í þessu
samstarfi við VIRK og bjóða einstaklingum
með óskilgreindan heilsubrest, en eru í
atvinnuleit, að taka þátt. Þess má geta að
fyrir utan þetta umrædda VelVIRK-verkefni
hafa þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur vísað
einstaklingum með læknisvottorð til VIRK,
en það er önnur saga.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir