Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 46
46 www.virk.is
UPPLÝSINGAR
V
IÐ
TA
L
Aukinn skilningur
á fjarveru
Fjóla Kristín Helgadóttir starfsmannastjóri IKEA
Valgerður María Friðriksdóttir aðstoðarstarfsmannastjóri
IKEA er stórt fyrirtæki á íslenskan mælikvarða og þar vinna
hátt í þrjú hundruð starfsmenn. Þær Fjóla Kristín Helgadóttir
starfsmannastjóri og Valgerður María Friðriksdóttir aðstoðar-
starfsmannastjóri bera samstarfi IKEA og þróunarverkefninu
Virkur vinnustaður góða sögu.
„Við vorum dálítið úrræðalaus í þessum efnum. Búið
var að reyna ýmislegt. Meðal annars hafði verið boðið
upp á fyrirlestra um mataræði og hreyfingu til að vekja
starfsmenn til umhugsunar. Við höfðum tekið upp
samstarf við einkareknu læknastöðina Heilsuvernd.
Starfsfólkinu var boðið upp á fríar heilsufarsmælingar
og við fengum trúnaðarlækni frá Heilsuvernd til að
koma til okkar einu sinni í viku til að ræða við starfsfólk
sem þess óskaði,“ bætir hún við.
„Þá buðum við upp á fríar bólusetningar við inflúensu
og gerum enn. Einnig buðum við starfsfólkinu fría ávexti
og „boost“, lýsi og hafragraut á morgnana í mötuneytinu
okkar og stjórnendur ræddu við starfsmenn um fjar-
vistir, ekki þó skipulega. En allt þetta breytti þó ekki
ástandinu sem að nokkru næmi. Það var eins og um
ákveðið veikindamynstur væri að ræða, sem jafnvel var
ólíkt milli deilda fyrirtækisins.“
Tilboðið kom á góðum tíma
Þær Fjóla Kristín og Valgerður María eru sammála um
að tilboð VIRK hafi hitt á einstaklega heppilegan tíma.
„Við slógum því til,“ segir Fjóla Kristín.
Eftir að hafa farið inn um starfsmanna-
inngang og fengið gestaaðgangskort er
mér vísað upp á skrifstofu starfsmanna-
stjóra. Þar ríkir bjartur einfaldleiki, aðals-
merki hins vinsæla fyrirtækis, IKEA.
„Samstarfið við VIRK hefur skilað okkur heil-
miklu. Það byrjaði með að okkur var sendur
tölvupóstur árið 2011 með tilboði um að taka
þátt í þróunarverkefninu Virkur vinnustaður. Þá
var ég aðstoðarstarfmannastjóri,“ segja Fjóla
Kristín Helgadóttir, sem nú er starfsmannastjóri
IKEA og Valgerður María Friðriksdóttir aðstoðar-
starfsmannastjóri. Þær ræddu við blaðamann
um þátttöku IKEA í umræddu þróunarverkefni og
niðurstöður þess, sem nú liggja fyrir.
„Tilboðið frá VIRK barst einmitt á þeim tíma sem
veikindi voru mjög stórt vandamál hér innanhúss
hjá okkur hér í IKEA. Þá er ég að ræða um
skammtímafjarveru, svokölluð mánudagsveikindi,
þegar fólk er fjarverandi í einn til tvo daga einu sinni
til tvisvar í mánuði,“ segir Fjóla Kristín.