Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 50
50 www.virk.is
V
IR
K
VIRK og geðdeild LSH á Laugar-
ásvegi hafa síðan 2012 unnið
að uppbyggingu árangursríkrar
starfsendurhæfingar fyrir ungt
fólk með geðrofssjúkdóma.
Samstarfsverkefnið er grundvall-
að á IPS (Individual Placement
and Support) hugmyndafræð-
inni sem byggir á gagnreyndum
aðferðum og felur í sér að fólk
fari beint út á vinnumarkað en
njóti stuðnings og eftirfylgni frá
þverfaglegu teymi.
Rannsóknir sýna t.d. að mun betra sé
að hraða atvinnuleit í stað þess að fara
í mikla greiningarvinnu og þess vegna
m.a. er Hlynur Jónasson atvinnuráðgjafi
á vegum VIRK hluti af meðferðarteymi
einstaklingsins frá upphafi.
IPS á uppruna sinn í Bandaríkjunum, hefur
einnig verið notuð með góðum árangri í
Evrópu og VIRK og LSH Laugarási eru fyrst
til að innleiða hugmyndafræðina á Íslandi.
Hér á landi hefur verið lögð áhersla á að
sinna einstaklingum með geðrofseinkenni
á byrjunarstigi en hugmyndafræðin styður
þó almennt við einstaklinga með þyngri
geðraskanir og grundvallast á því að
heilbrigðisþjónustan, VIRK og vinnuveitendur
vinni saman að settu marki.
Mikilvægast er að hver og einn einstakling-
ur í verkefninu fái góðan og öruggan
stuðning sem miðaður er við þarfir hans
og að þeir sem fara út á vinnumarkaðinn
í kjölfar starfsendurhæfingar í IPS-verk-
efninu njóta stuðnings þverfaglegs
stuðningsteymis.
Vandað stuðningsmódel
sem virkar
Samstarf LSH Laugarási og VIRK hefur
gengið mjög vel og mikið hefur áunnist.
Sautján störf hafa orðið til, flestum ein-
staklingunum hefur gengið vel og þrettán
starfanna eru enn virk. Eitt þeirra var 6
mánaða bráðabirgðastarf og það má geta
þess að einstaklingur sem sinnti því fór í
framhaldinu í nám, lauk því og er nú kominn
í annað starf sem tengist námi hans.
IPS-verkefnið hefur breyst og þróast eftir því
sem störfunum hefur fjölgað en eftirfylgnin
og heimsóknirnar á vinnustaði eru enn einn
mikilvægasti þáttur verkefnisins. Áríðandi
er að fylgja einstaklingi eftir á vinnustað í
byrjun og styðja hann í fyrstu skrefunum
inn á vinnumarkaðinn. Þá er mikilvægt
að fræða atvinnurekendur og stjórnendur
á hverjum stað fyrir sig sem þurfa svör
við margvíslegum spurningum. Einnig er
það uppbyggilegt fyrir vinnustaðinn að
vinnufélagar séu að einhverju leyti upplýstir
um málið, eins og IPS leggur til.
Virk og LSH Laugarási hefur með IPS-
verkefninu tekist að smíða vandað
stuðningsmódel fyrir alla fagaðila sem vinna
að því sama markmiði að aðstoða ungt fólk
með þyngri geðraskanir út á vinnumarkað
á ný og leiðbeina þeim við að takast á við
áskoranir sem því fylgja og hvernig bregðast
skuli við þeim. Það að eignast starfsvettvang
og félaga er án nokkurs vafa ein sterkasta
hönd sem hægt er að hafa til að leiða sig út
í samfélagið á nýjan leik.
Það er að miklu að sækjast að fjölga störfum
á meðal ungra langveikra einstaklinga, í því
felst mikill ávinningur fyrir samfélagið í heild
og með aukinni atvinnuþátttöku leggjum við
grunninn að betra og heilbrigðara lífi þeirra
og um leið betra samfélagi.
IPS árangur
í Laugarásnum
„Það að eignast
starfsvettvang og félaga
er án nokkurs vafa ein
sterkasta hönd sem hægt
er að hafa til að leiða sig út
í samfélagið á nýjan leik.“