Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 50

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 50
50 www.virk.is V IR K VIRK og geðdeild LSH á Laugar- ásvegi hafa síðan 2012 unnið að uppbyggingu árangursríkrar starfsendurhæfingar fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóma. Samstarfsverkefnið er grundvall- að á IPS (Individual Placement and Support) hugmyndafræð- inni sem byggir á gagnreyndum aðferðum og felur í sér að fólk fari beint út á vinnumarkað en njóti stuðnings og eftirfylgni frá þverfaglegu teymi. Rannsóknir sýna t.d. að mun betra sé að hraða atvinnuleit í stað þess að fara í mikla greiningarvinnu og þess vegna m.a. er Hlynur Jónasson atvinnuráðgjafi á vegum VIRK hluti af meðferðarteymi einstaklingsins frá upphafi. IPS á uppruna sinn í Bandaríkjunum, hefur einnig verið notuð með góðum árangri í Evrópu og VIRK og LSH Laugarási eru fyrst til að innleiða hugmyndafræðina á Íslandi. Hér á landi hefur verið lögð áhersla á að sinna einstaklingum með geðrofseinkenni á byrjunarstigi en hugmyndafræðin styður þó almennt við einstaklinga með þyngri geðraskanir og grundvallast á því að heilbrigðisþjónustan, VIRK og vinnuveitendur vinni saman að settu marki. Mikilvægast er að hver og einn einstakling- ur í verkefninu fái góðan og öruggan stuðning sem miðaður er við þarfir hans og að þeir sem fara út á vinnumarkaðinn í kjölfar starfsendurhæfingar í IPS-verk- efninu njóta stuðnings þverfaglegs stuðningsteymis. Vandað stuðningsmódel sem virkar Samstarf LSH Laugarási og VIRK hefur gengið mjög vel og mikið hefur áunnist. Sautján störf hafa orðið til, flestum ein- staklingunum hefur gengið vel og þrettán starfanna eru enn virk. Eitt þeirra var 6 mánaða bráðabirgðastarf og það má geta þess að einstaklingur sem sinnti því fór í framhaldinu í nám, lauk því og er nú kominn í annað starf sem tengist námi hans. IPS-verkefnið hefur breyst og þróast eftir því sem störfunum hefur fjölgað en eftirfylgnin og heimsóknirnar á vinnustaði eru enn einn mikilvægasti þáttur verkefnisins. Áríðandi er að fylgja einstaklingi eftir á vinnustað í byrjun og styðja hann í fyrstu skrefunum inn á vinnumarkaðinn. Þá er mikilvægt að fræða atvinnurekendur og stjórnendur á hverjum stað fyrir sig sem þurfa svör við margvíslegum spurningum. Einnig er það uppbyggilegt fyrir vinnustaðinn að vinnufélagar séu að einhverju leyti upplýstir um málið, eins og IPS leggur til. Virk og LSH Laugarási hefur með IPS- verkefninu tekist að smíða vandað stuðningsmódel fyrir alla fagaðila sem vinna að því sama markmiði að aðstoða ungt fólk með þyngri geðraskanir út á vinnumarkað á ný og leiðbeina þeim við að takast á við áskoranir sem því fylgja og hvernig bregðast skuli við þeim. Það að eignast starfsvettvang og félaga er án nokkurs vafa ein sterkasta hönd sem hægt er að hafa til að leiða sig út í samfélagið á nýjan leik. Það er að miklu að sækjast að fjölga störfum á meðal ungra langveikra einstaklinga, í því felst mikill ávinningur fyrir samfélagið í heild og með aukinni atvinnuþátttöku leggjum við grunninn að betra og heilbrigðara lífi þeirra og um leið betra samfélagi. IPS árangur í Laugarásnum „Það að eignast starfsvettvang og félaga er án nokkurs vafa ein sterkasta hönd sem hægt er að hafa til að leiða sig út í samfélagið á nýjan leik.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.