Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 63

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Page 63
63www.virk.is VIRK Vinnustöðvar voru settar upp í samhengi við mikilvæga þætti ICF kerfisins (International Classification of Function - alþjóðlegu flokkunarkerfi færni, fötlunar og heilsu) sem skilgreindir eru nánar í matsferli VIRK til að greina starfsgetu og gera þannig atvinnuleit og endurkomu til vinnu markvissari. Á Reykjalundi er löng hefð fyrir starfs- endurhæfingu með áherslu á atvinnu þ.e.a.s. vinnuheimilið Reykjalundur. Fag- fólk sem vinnur við starfsendurhæfingu er til staðar og þar hefur verið rekin eftirlíking af vinnustað sem sérhæfir sig í vinnu einstaklinga með skerta vinnugetu. Vegna breytinga á Reykjalundi losnaði húsnæði sem jók möguleika starfsendurhæfingar Reykjalundar til að þróast og vaxa enn frekar. Auk þess var margt til staðar á Reykjalundi sem hentar vel þeim einstaklingum sem þurfa á starfs- endurhæfingu að halda þ.e.a.s. ýmis fræðsla sem er fyrir öll svið Reykjalundar eins og t.d. Bak- og verkjaskóli, Streitu- stjórnunarnámskeið o.fl. Þríþætt verkefni Verkefnið byggir á þremur meginstoðum. Matstækin sem notuð eru á Reykjalundi sem og önnur matstæki innan starfs- endurhæfingar voru skoðuð og greint hver þeirra gætu nýst inn í vinnumatið eða þætti þess og þau tengd við notkun ICF kerfisins. Þá fólst verkefnið í þróun starfsstöðva og þróun prófunar- og þjálfunarúrræða. Skilgreind voru ákveðin störf/verkefni innan þessara stöðva sem markvisst reyna á skilgreinda færniþætti. Þannig var lagður grunnur að sex prófunarstöðvum og verkefni og verkferlar á hverri prófunarstöð skilgreindir. Eftir að búið var að meta, prófa og aðlaga þessa þætti er komið að þriðja og síðasta þættinum sem er tengingin við atvinnulífið á ný. Hann felst m.a. í að gera ferilskrá með einstaklingunum, vinnustaðaathugun, atvinnuleit, starfsumsóknum, tengingu við VIRK, Vinnumálastofnum, almenna vinnu- staði og önnur úrræði. Mikilvægt úrræði Verkefnið hefur gengið vel, miðað jafnt og þétt áfram utan árshlés vegna endurbóta á húsnæði á Reykjalundi og er nú á lokastigi. Búið er að velja matstæki, þróa starfsstöðvar, skilgreina störf og verkefni, auk þess að skilgreina tímaramma og Uppbyggingar- og þróunarverkefni VIRK og Reykjalundar ferlið í heild og lokaþátturinn, prófun matsferlis, stendur yfir. Síðasta hálfa árið hafa tíu einstaklingar í þjónustu VIRK verið í forprófum á vinnufærnimati á Reykjalundi. Hverju mati lýkur með skilafundi, þar sem farið er yfir niðurstöður matsins með einstaklingnum og ráðgjafa hans hjá VIRK. Mjög mikilvægt er fyrir VIRK að geta boðið upp á úrræði sem þetta þar sem það nýtist helst einstaklingum sem ekki eru lengur í vinnusambandi og hafa verið töluvert lengi utan vinnumarkaðar. Árið 2011 veitti VIRK Reykjalundi styrk til uppbyggingar- og þróunarverkefnis í starfsendurhæfingu með það að markmiði að þróa áfram niðurstöður úr matsferli VIRK markvisst inn í vinnuprófun.

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.