Ársrit um starfsendurhæfingu - 2015, Qupperneq 65
65www.virk.is
VIÐTAL
„ICF (International Classification of Func-
tioning) er notað sem rammi utan um
matið og niðurstöður þess. Þar er greint
hvort um sé að ræða færniskerðingu og/
eða þátttökuhindrun, ásamt því að tilgreina
vanda. ICF er alþjóðlegt flokkunarkerfi á
færni. Matskerfi sem auðveldar sérfræðing-
um sem að málum einstaklinga koma, að
tala „sama mál“. Starfsendurhæfing notar
sama ICF kjarnasett og VIRK, en auðvitað
eru til fleiri slík matstæki.
Markvisst vinnufærnimat
Í vinnufærnimatinu vinna einstaklingarnir,
að sögn Magnúsar og Ingu, ýmiss
verkefni, þar sem metnir eru þættir eins og
verkfærni, úthald, einbeiting og frumkvæði.
Auk félagslegra þátta eins og samskipta
og samvinnu, svo eitthvað sé nefnt.
Markmiðið er að greina þannig styrkleika
og starfsgetu fólks og gera atvinnuleit og
endurkomu til vinnu markvissari.
„Á Reykjalundi var í upphafi reynt að
starfshæfa ungt fólk með berkla til þess
að það kæmist aftur til vinnu. Hér eru
gamlar myndir á veggjum sem sýna fólk
að störfum við bólstrun, smíðar og fleiri
verkefni,“ segir Magnús.
„Árið 1960, þegar menn náðu tökum
á berklunum, breytist Reykjalundur í
almenna endurhæfingarstofnun smám
saman. Slíkt starf miðar að því að
auka færni fólks, þar með talið vinnu-
færni. Öll endurhæfing er í eðli sínu
starfsendurhæfing. Á árunum frá 1980 og
fram á miðjan tíunda áratuginn þróuðust
hér átta sérhæfð svið. Starfsendur-
hæfingarsviðið var það síðasta og varð
til um aldamótin. Upphaflega starfaði
starfsendurhæfingarteymið á sérstökum
samningi við Tryggingarstofnun ríkisins.
Markmiðið var að koma til heilsu þeim
sem voru að detta út af vinnumarkaði og
fyrirbyggja að þeir færu á örorku.“
Hvers vegna ákváðuð þið hér á Reykja-
lundi að fara í samstarf við VIRK?
„Hér í starfsendurhæfingunni hefur okkur
lengi fundist vanta gott mat á vinnufærni
og ýmislegt hefur verið reynt gegnum árin.
Verkefnið sem VIRK veitti stuðning var
upphaflega hugmynd þáverandi yfirlæknis
starfsendurhæfingarteymisins, Gunnars
Kr. Guðmundssonar, og VIRK studdi
hugmyndina. Þessi stuðningur gerði okkur
kleift að einbeita okkur tímabundið að
gerð matsins, sem og til kaupa á atvinnu-
tækjum, búnaði og verkfærum.“
Hversu langt er þetta verkefni komið?
„Verkefnið er nú á lokastigi. Lokaþátturinn
er að prófa matsferlið, eins og það hefur
verið skilgreint. Búið er að velja matstæki,
þróa starfsstöðvar, skilgreina störf og
verkefni, auk þess að skilgreina tíma-
ramma og ferlið í heild. Á síðasta hálfa
ári höfum við verið með tíu einstaklinga á
vinnualdri í forprófum á vinnufærnimati.
Hverju mati lýkur með skilafundi, þar
sem farið er yfir niðurstöður matsins með
einstaklingnum og ráðgjafa hans.“
Verkefnið hefur gengið vel
„Það hefur gengið mjög vel,“ segja þau
Magnús og Inga.
„Verkefninu hefur miðað jafnt og þétt
áfram, ef undan er skilið að við urðum að
gera hlé í ár meðan endurbætur á húsnæði
hér á Reykjalundi stóðu yfir,“ bætir
Magnús við. „Eftir endurbæturnar fluttum
við í stærra og betra húsæði, sem opnaði
möguleika á fjölbreyttari starfsstöðvum. Hér
eru skilgreindar sex starfsprófunarstöðvar;
tvær fyrir skrifstofustörf, stöð fyrir sauma,
tvær stöðvar með trésmíðavinnu, þar
sem til dæmis eru gerðir stólar og loks
eru gerð upp grill og reiðhjól,“ segir Inga.
Hún getur þess einnig að Reykjalundur og
Múlalundur hafi gert samkomulag sín á
millli þess efnis að í vinnufærnimatinu sé
hægt að fá að nýta aðstöðu hjá Múlalundi.
„Við höfum ekki gert það ennþá, en þessi
möguleiki er fyrir hendi. Þetta er spurning
um hvernig vinnu við erum að leita að fyrir
hvern og einn einstakling.“
Hvernig er valið inn í þetta samstarfs-
verkefni Reykjalundar og VIRK?
„Einstaklingarnir tíu, sem tekið hafa
þátt í forprófun, voru valdir af VIRK. Við
munum skoða hverjir hinna tíu nutu góðs
af vinnufærnimatinu hér, hverjir minna
– og svo framvegis. Hugmyndin er að
fara yfir niðurstöðurnar og bæta það sem
betur má fara.“
Eru þeir þátttakendur í forprófuninni allir
með vinnusamband?
„Nei, við höfum fremur fengið hingað
einstaklinga sem ekki eru lengur í vinnu-
sambandi. Hafa jafnvel verið talsvert lengi
utan vinnumarkaðar, í allt að þrjú ár.“
Áhersla á styrkleikana
Hvað þarf að skoða?
„Verkfærni, þekkingu, félagslega færni,
samskipti og fleira. Við leggjum mikla
áherslu á hvar styrkleikar fólks liggja.
Vissulega þarf að þekkja hindranir, en
mikilvægara er að finna hvernig má nýta
styrkleika fólks. Hvaða möguleika veita
þeir viðkomandi? Eitt er að hafa góða
verkþekkingu og annað að hafa úthald í
að nýta hana. Það þarf því að hyggja að
mörgum þáttum. Tölvukunnátta verður
til dæmis stöðugt mikilvægari, mörg létt
störf krefjast lágmarks tölvukunnáttu, að
geta skráð, flett upp, sent skilaboð og þess
háttar.“
Eru þeir sem eru í vinnufærnimati líka í
þolþjálfun hér á Reykjalundi?
„Nei. Mikilvægt er að skilja þarna á millli.
Megin starfsemi okkar á Reykjalundi er
starfsendurhæfing, sem er miklu stærra
dæmi. Þar sem mun fleiri aðilar koma að
meðferð hvers einstaklings.
Í starfsendurhæfingu kemur fólk sam-
kvæmt tilvísun frá heimilislækni.
Einstaklingurinn fer í skoðun og mat
hjá meðlimum teymisins. Síðan eru sett
markmið með dvölinni. Meðferðin miðast
síðan að því að ná markmiðum, til dæmis
með styrktar- eða þolþjálfun, meðferð hjá
sálfræðingi auk vinnuþjálfunar.
Hins vegar er svo vinnufærnimatið. Þá
koma einstaklingarnir frá VIRK. Þeir eru
hér hálfan daginn í vinnu í fjórar vikur, en
ekki í annarri þjálfun. Matinu lýkur alltaf
með skýrslu og skilafundi, þar sem saman
koma skjólstæðingur, ásamt iðjuþjálfa,
sjúkraþjálfara og ráðgjafa frá VIRK. Farið
„Ef fyrir hendi er verulega
skert færni, en ríkur vilji hjá
einstaklingnum til að vinna,
þá er oft hægt að finna
flöt á því.“