Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
EINUNGIS 24 SÆTI Í ÞESSARI FERÐ
5.-15. APRÍL 2020
PÝRAMÍDARNIR, KAÍRÓ&
SIGLING Á NÍL
EGYPTALAND
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki var metuppskera af kartöflum í
sumar, eins og útlit var fyrir um
tíma. Á Suðurlandi var góð meðal-
uppskera og meðaluppskera á Norð-
urlandi.
Kartöflubændur hafa flestir lokið
uppskerustörfum og eru að ganga
frá tækjum fyrir veturinn og flokka
kartöflur og tína til fyrir markaðinn,
eins og ávallt á þessum tíma árs.
Rættist úr fyrir norðan
„Uppskeran er örugglega í góðu
meðallagi,“ segir Óskar Kristinsson
kartöflubóndi sem er með garða í
Dísukoti í Þykkvabæ. Hann segir að
þótt sumarið hafi verið hlýtt og gott
hafi ekki verið margt undir grösum
gullauga sem er uppistaðan í fram-
leiðslunni. Telur hann að þurrkar í
vor og fyrrihluta sumars ráði
nokkru um það. Hins vegar hafi ver-
ið mikið undir grösum rauðra ís-
lenskra og fleiri tegunda.
Telur Óskar að uppskeran hafi
verið góð á öllu Suðurlandi og í
Hornafirði.
Bergvin Jóhannsson, kartöflu-
bóndi á Áshóli í Eyjafirði, talar um
ágætt meðalár. Þótt kalt hafi verið í
sumar hafi góður september bjargað
miklu því þá hafi kartöflurnar vaxið
vel. Reiknast honum til að upp-
skeran sé 10- til 12-föld miðað við
það magn sem sett var niður og er
hann ánægður með þann árangur.
Gæti náð saman
Óskar Kristinsson segir að salan
hafi farið ágætlega af stað í sumar.
Heldur dragi úr sölu á haustin þegar
fólk er að taka upp kartöflur úr eigin
görðum. Hann gerir ráð fyrir því að
uppskeran endist fram á næsta sum-
ar, jafnvel alveg þangað til ný upp-
skera kemur á markað.
Góð meðaluppskera í ár
Minna var undir gullaugagrösunum en búist var við
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bændur Sigrún Leifsdóttir og Óskar
Kristinsson, ánægð með uppskeru.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Veðurofsinn sem reið yfir suðvest-
anvert landið í gær og nótt hafði
víða áhrif á ferðalög fólks.
Þannig varð mikil röskun á flug-
ferðum til og frá Keflavíkurflugvelli
síðdegis í gær vegna veðurs en öll-
um ferðum frá flugvellinum var af-
lýst seinnipartinn. Greint var frá því
á mbl.is að síðasta vél frá
Keflavíkurflugvelli hefði farið til
Kaupmannahafnar kl. 14.31 í gær.
Icelandair aflýsti öllum flug-
ferðum sínum, alls fjórtán talsins.
1.700-1.800 þurftu gistingu
Fjöldi farþega þurfti að bíða um
nokkurt skeið í flugvélum Icelandair
á flugvellinum en að sögn Ásdísar
Ýrar Pétursdóttur, upplýsingafull-
trúa Icelandair, var búið að koma
öllum farþegum úr vélunum klukk-
an korter yfir níu í gærkvöldi. Til
þess voru notaðir stigabílar þar sem
allar landgöngubrýr voru teknar úr
notkun af öryggisástæðum.
Sagði hún að 1.700-1.800 farþeg-
anna þyrftu hótelgistingu vegna
flugferðanna sem var aflýst og að
flugfélagið ynni hörðum höndum að
því að finna gististaði fyrir þá. Sagði
hún í samtali við Morgunblaðið um
klukkan 22 í gær að um 80% væru
þegar komin með gistingu en flug-
félagið væri enn að leysa málin fyrir
þá sem hefðu verið með síðustu vél-
unum.
Tvær vélar til Egilsstaða
Ásdís sagði jafnframt að það
gætu orðið einhverjar raskanir
snemma í dag ef veðrið gengi ekki
niður.
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, sagði í samtali við
Morgunblaðið rétt fyrir klukkan 20 í
gær að vindhraði væri vel yfir þeim
50 hnútum sem miðað er við þegar
landgöngubrýr eru notaðar.
Hann greindi frá því að tvær vél-
ar flugfélagsins Wizz Air sem áttu
að lenda á Keflavíkurflugvelli seinni
partinn hefðu tekið ákvörðun um að
lenda á Egilsstaðaflugvelli í staðinn
vegna veðurs.
Gamli Herjólfur í notkun
Veður setti einnig strik í reikn-
inginn hjá þeim sem fóru sjóleiðina
til og frá Vestmannaeyjum í gær.
Gamli Herjólfur var tekinn aftur í
notkun í fyrradag í stað þess nýja
vegna veðurs og mun hann sigla til
Þorlákshafnar þar til annað verður
tilkynnt, samkvæmt upplýsingum
frá skrifstofu Herjólfs. Telur starfs-
fólk Herjólfs líklegt að nýi Herjólfur
verði tekinn í notkun fljótlega eftir
helgi.
Ágætisveður um kaffileytið
Gul viðvörun frá Veðurstofu Ís-
lands var í gildi í gær fyrir Faxaflóa,
á Suðurlandi og miðhálendinu.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur
hjá Veðurstofunni, staðfesti að vind-
ur hefði verið bundinn við suðvest-
urhornið í gær og yrði fram á nótt.
Mikill vindur var að hans sögn undir
fjöllum á Suðvesturlandi, svo sem
undir Eyjafjöllum, Ingólfsfjalli,
Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Afar
vindasamt var einnig á Reykjanes-
braut þar sem meðalvindur fór upp í
24,9 m/s og 38 m/s í hviðum.
Dregur úr vindi um hádegi
Óli Þór sagði að búast mætti við
að skilin bæru vindinn hægt áfram
til norðausturs yfir landið. Veðurspá
benti þó til þess að ekki myndi
draga almennilega úr vindi á Suð-
vesturlandi fyrr en um hádegi í dag.
Bjóst hann við að á suðvesturhorn-
inu yrði komið ágætisveður um
kaffileytið og að stytta myndi upp
upp úr hádegi vestast á landinu.
Davíð Már Bjarnason, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar, greindi
mbl.is frá því að dagurinn hefði ver-
ið merkilega rólegur miðað við veð-
ur og vinda. Björgunarsveitir hefðu
aðeins verið kallaðar út í tvígang um
hálfsjöleytið í gær. Tengdust bæði
atvikin þökum sem gerðu sig líkleg
til að fjúka, annað í Reykjanesbæ og
hitt í Grindavík.
Samgöngur
víða úr skorðum
vegna veðurofsa
Öllum flugferðum frá Keflavík aflýst
í gær Tvær vélar lentu á Egilsstöðum
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Stormur Áhöfn Sigurðar VE15 lét óveðrið ekki stoppa sig á leið frá Vestmannaeyjum seinnipartinn í gær.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Óveður Taka þurfti allar landgöngubrýr úr notkun á Keflavíkurflugvelli í gær vegna vindhraða. Fjölmargir farþegar sátu fastir um borð í flugvélum Icelandair áður en þeir voru fluttir frá borði.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Bið Fjöldi farþega komst hvorki lönd né strönd vegna óveðursins í gær.