Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Gamanleikurinn Sex í sveit eftir franska leikskáldið Marc Camoletti verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld í leikstjórn Bergs Þór Ingólfssonar. Verkið fjallar um hjónin Benedikt og Þór- unni sem skella sér í bústaðinn hvort með sitt leyndarmálið í farteskinu. Rúm tuttugu ár eru síðan leikritið rataði síðast á svið hjá Borgarleik- húsinu og var í framhaldinu sýnt í um þrjú ár. Því mun vera um vinsæl- asta gamanleik Leikfélags Reykja- víkur að ræða frá upphafi. Blaðamaður settist í vikunni niður með Jörundi Ragnarssyni og Sól- veigu Guðmundsdóttur sem fara með hlutverk Benedikts og Þórunnar og byrjaði að spyrja hvort það fylgdi því einhver pressa að takast á við svo vinsælt verk. „Mesta pressan felst í því að standast væntingar leikhóps- ins frá því í denn, en þau ætla að mæta á frumsýningu,“ segir Sólveig og rifjar upp að frammistaða Eddu Björgvinsdóttur í hlutverki Sollu kokks á sínum tíma sé sér enn í fersku minni. Í góðum höndum hjá Bergi En hvernig ganga æfingar? „Ég hef aldrei leikið í svona farsa áður. Þetta er rosalega mikill texti og gríðarlegur hraði sem er krefjandi bæði andlega og líkamlega,“ segir Jörundur. „Ég held að ég hafi aldrei verið jafnþreytt eftir æfingar því þetta er svo krefjandi,“ segir Sólveig. „En þetta gengur vel. Síðustu dagar höfum við fengið áhorfendur á æfing- ar og þeir virðast skemmta sér vel. Þannig að við erum mjög spennt að frumsýna,“ segir Jörundur. „Nú í lokavikunni er maður kominn á bak og getur farið að þeysa af stað, sem verður gaman,“ segir Sólveig og tek- ur fram að hún sé ekki aðeins að leika í farsa í fyrsta sinn heldur líka á stóra sviðinu. „Ég hef því þurft að tileinka mér aðra tækni í textameðferð og radd- beitingu til að láta röddina berast ásamt því að stækka allan leik,“ segir Sólveig og bætir við: „Þó að þetta sé farsi þá er maður líka alltaf að reyna að finna einhvern sannleika í því sem maður er að gera. Leikurinn þarf því að vera stór og skýr, samtímis því sem maður heldur með sínum kar- akter.“ „Ég er líka í endurmenntun eftir langt hlé frá stóra sviðinu,“ seg- ir Jörundur. „Við erum hér í mjög góðum höndum,“ segir Sólveig og vísar þar til leikstjórans, Bergs Þórs Ingólfssonar. Ekki vera fáviti „Við Bergur höfum unnið saman í næstum 20 ár,“ segir Sólveig, en meðal verkefna þeirra eru Horn á höfði og Svartlyng á vegum leikhóps- ins GRAL. „Bergur kenndi mér líka trúðatækni áður en ég fór út í nám, þannig að við erum búin að þekkjast mjög lengi,“ segir Sólveig. „Ég hef einu sinni áður unnið með honum sem leikstjóra, en það var eins ólíkt þessari sýningu og hugsast getur,“ segir Jörundur og vísar þar til Yfir- vofandi eftir Sigtrygg Magnason sem sýnt var í heimahúsi 2007. „En svo höfum við líka leikið saman. Hann er alveg stórkostlegur lista- maður,“ segir Jörundur. „Já, hann er frábær. Hann leggur svo mikla rækt við leikarana sína og er alltaf að reyna að draga fram það besta í fólki,“ segir Sólveig. „Hann hefur fullkomið jafnvægi á milli þess að gefa manni frelsi og gagnrýna á blíð- an hátt. Öll gagnrýni hans er svo uppbyggileg,“ segir Jörundur. „Hann treystir manni líka full- komlega og er alltaf tilbúinn að prófa allar hugmyndir sem maður kemur með. Á sama tíma veit hann alltaf hvað hann vill og er duglegur að velja og hafna. Það er því algjör lúxus að fá að vinna með honum,“ segir Sól- veig. Kunnið þið skýringar á vinsældum verksins? „Ég hef mikið verið að spá í per- sónur verksins sem eru allar slæmar fyrirmyndir og alls ekki gott fólk. Við höfum mjög gaman af því að sjá fólk klúðra lífi sínu og sjá hvernig við eig- um ekki að gera hlutina,“ segir Jör- undur og tekur fram að það skemmti áhorfendum að horfa á fólk reyna eftir fremsti megni að halda ákveð- inni lygi gangandi. „Það er svo gott að hlæja,“ segir Sólveig og Jörundur bætir við: „Það er gott að hlæja að fólki sem á það skilið,“ segir Jör- undur og tekur fram að líkt og titill verksins gefi til kynna sé verkið einn stór kynlífsfarsi. En er auðvelt fyrir ykkur að halda með persónum ykkar? „Það er mjög erfitt að standa með mínum. Hann er mesti skíthæll sem ég hef leikið,“ segir Jörundur og tek- ur fram að á einhverju plani hafi hann samt samúð með persónunni. „Ég held að manni verði að minnsta kosti að finnast gaman að vera við- komandi persóna,“ segir Sólveig. „Já, þótt það sé erfitt að standa með þeim siðferðislega. En það er fyndið að fá að vera svona manneskja. Þetta er ágætis áminning fyrir okkur öll um að vera ekki svona – ekki vera fá- viti og gera eins og Benedikt,“ segir Jörundur kíminn og bendir á að svo skemmtilega vilji til að hann hafi ný- verið fest kaup á listaverkið eftir Bjarna Massa sem innihaldi setn- inguna „Ekki vera fáviti“ sem kallist glettilega á við hlutverk Benedikts. Eins og fótboltaleikur Í ljósi þess hversu lengi gaman- leikir ganga iðulega verð ég að spyrja hvernig það leggist í ykkur að sýna þessa sýningu nokkrum sinnum í viku næstu mánuði? „Ég hlakka til og held að sýningin verði bara betri og betri eftir því sem við sýnum oftar,“ segir Jörundur. „Þetta er líka svo frábær hópur til að vinna með,“ segir Sólveig og tekur fram að hún hafi aðeins einu sinni sýnt sýningu þéttar en Sex í sveit. „Við sýndum Lífið – stórskemmtilegt drullumall úti í Kína samtals 30 sinn- um á tveimur vikum. Það er mesta keyrsla sem ég hef upplifað til þessa,“ segir Sólveig. „Ég er sannfærður um að það verði ógeðslega gaman að sýna þessa sýningu, enda góður andi í hópnum,“ segir Jörundur, en aðrir í leik- hópnum eru Haraldur Ari Stefáns- son, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Þetta er auðvitað einvala lið gamanleikara. Lætur keppnisskapið aldrei á sér kræla og þið keppist um hvert ykkar er fyndnast? „Nei, en þetta er vissulega eins og fótboltaleikur. Stundum þarf maður að gefa boltann til þess að einhver annar geti skorað – og þá vinna allir í liðinu,“ segir Sólveig. „Þetta er nefnilega samvinna og maður er alveg jafn ánægður ef einhver annar skorar fyrir liðið,“ segir Jörundur. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Hjónakorn Jörundur Ragnarsson og Sólveig Guðmundsdóttir í hlutverkum sínum sem Benedikt og Þórunn. „Mesti skíthæll sem ég hef leikið“  Borgarleikhúsið frumsýnir Sex í sveit  „Gott að hlæja að fólki sem á það skilið,“ segir Jörundur Ragnarsson  „Frábær hópur til að vinna með,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir um leikhópinn Camerarctica leikur verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Johannes Brahms á Sígildum sunnudögum í Hörpu á morgun kl. 16. „Á tónleikunum kallast tónlist tónskáldanna tveggja á, hljóðfæra- tónlist og aríur úr smiðju Mozarts á fyrri hluta efnisskrárinnar en eftir hlé verður fluttur hinn dáði Klarínettukvintett eftir Brahms,“ segir í tilkynningu frá Camer- arctica. Tónlistarhópinn skipa Ármann Helgason á klarínett, Hildigunnur Halldórsdóttir á fiðlu, Bryndís Pálsdóttir á fiðlu, Svava Bernharðsdóttir á víólu og Sig- urður Halldórsson á selló. Gesta- hljóðfæraleikarar eru Helga Björg Arnardóttir á klarínett og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fagott. Sérstakur heiðursgestur Camer- arctica á tónleikunum er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran. „Fluttar verða tvær glæsilegar konsert- aríur, „Chi sà, chi sà, qual sia“ kv 582 og „Vado, ma dove“ kv 583 og óperuarían „Parto, parto“ úr síð- ustu óperu Mozarts, La Clemenza di Tito, en þar sýnir Mozart snilli- gáfu sína og tvinnar leik klarínett- unnar saman við söng söngkon- unnar á einstakan hátt.“ Tónleikarnir taka u.þ.b. eina og hálfa klukkustund með hléi. Hæfileikar Tónlistarhópurinn Camerarctica kemur fram ásamt gestum. Mozart og Brahms á Sígildum sunnudögum Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.