Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Gamanleikurinn Sex í sveit eftir
franska leikskáldið Marc Camoletti
verður frumsýndur á Stóra sviði
Borgarleikhússins í kvöld í leikstjórn
Bergs Þór Ingólfssonar. Verkið
fjallar um hjónin Benedikt og Þór-
unni sem skella sér í bústaðinn hvort
með sitt leyndarmálið í farteskinu.
Rúm tuttugu ár eru síðan leikritið
rataði síðast á svið hjá Borgarleik-
húsinu og var í framhaldinu sýnt í
um þrjú ár. Því mun vera um vinsæl-
asta gamanleik Leikfélags Reykja-
víkur að ræða frá upphafi.
Blaðamaður settist í vikunni niður
með Jörundi Ragnarssyni og Sól-
veigu Guðmundsdóttur sem fara með
hlutverk Benedikts og Þórunnar og
byrjaði að spyrja hvort það fylgdi því
einhver pressa að takast á við svo
vinsælt verk. „Mesta pressan felst í
því að standast væntingar leikhóps-
ins frá því í denn, en þau ætla að
mæta á frumsýningu,“ segir Sólveig
og rifjar upp að frammistaða Eddu
Björgvinsdóttur í hlutverki Sollu
kokks á sínum tíma sé sér enn í
fersku minni.
Í góðum höndum hjá Bergi
En hvernig ganga æfingar?
„Ég hef aldrei leikið í svona farsa
áður. Þetta er rosalega mikill texti og
gríðarlegur hraði sem er krefjandi
bæði andlega og líkamlega,“ segir
Jörundur. „Ég held að ég hafi aldrei
verið jafnþreytt eftir æfingar því
þetta er svo krefjandi,“ segir Sólveig.
„En þetta gengur vel. Síðustu dagar
höfum við fengið áhorfendur á æfing-
ar og þeir virðast skemmta sér vel.
Þannig að við erum mjög spennt að
frumsýna,“ segir Jörundur. „Nú í
lokavikunni er maður kominn á bak
og getur farið að þeysa af stað, sem
verður gaman,“ segir Sólveig og tek-
ur fram að hún sé ekki aðeins að
leika í farsa í fyrsta sinn heldur líka á
stóra sviðinu.
„Ég hef því þurft að tileinka mér
aðra tækni í textameðferð og radd-
beitingu til að láta röddina berast
ásamt því að stækka allan leik,“ segir
Sólveig og bætir við: „Þó að þetta sé
farsi þá er maður líka alltaf að reyna
að finna einhvern sannleika í því sem
maður er að gera. Leikurinn þarf því
að vera stór og skýr, samtímis því
sem maður heldur með sínum kar-
akter.“ „Ég er líka í endurmenntun
eftir langt hlé frá stóra sviðinu,“ seg-
ir Jörundur. „Við erum hér í mjög
góðum höndum,“ segir Sólveig og
vísar þar til leikstjórans, Bergs Þórs
Ingólfssonar.
Ekki vera fáviti
„Við Bergur höfum unnið saman í
næstum 20 ár,“ segir Sólveig, en
meðal verkefna þeirra eru Horn á
höfði og Svartlyng á vegum leikhóps-
ins GRAL. „Bergur kenndi mér líka
trúðatækni áður en ég fór út í nám,
þannig að við erum búin að þekkjast
mjög lengi,“ segir Sólveig. „Ég hef
einu sinni áður unnið með honum
sem leikstjóra, en það var eins ólíkt
þessari sýningu og hugsast getur,“
segir Jörundur og vísar þar til Yfir-
vofandi eftir Sigtrygg Magnason
sem sýnt var í heimahúsi 2007. „En
svo höfum við líka leikið saman.
Hann er alveg stórkostlegur lista-
maður,“ segir Jörundur. „Já, hann er
frábær. Hann leggur svo mikla rækt
við leikarana sína og er alltaf að
reyna að draga fram það besta í
fólki,“ segir Sólveig. „Hann hefur
fullkomið jafnvægi á milli þess að
gefa manni frelsi og gagnrýna á blíð-
an hátt. Öll gagnrýni hans er svo
uppbyggileg,“ segir Jörundur.
„Hann treystir manni líka full-
komlega og er alltaf tilbúinn að prófa
allar hugmyndir sem maður kemur
með. Á sama tíma veit hann alltaf
hvað hann vill og er duglegur að velja
og hafna. Það er því algjör lúxus að
fá að vinna með honum,“ segir Sól-
veig.
Kunnið þið skýringar á vinsældum
verksins?
„Ég hef mikið verið að spá í per-
sónur verksins sem eru allar slæmar
fyrirmyndir og alls ekki gott fólk. Við
höfum mjög gaman af því að sjá fólk
klúðra lífi sínu og sjá hvernig við eig-
um ekki að gera hlutina,“ segir Jör-
undur og tekur fram að það skemmti
áhorfendum að horfa á fólk reyna
eftir fremsti megni að halda ákveð-
inni lygi gangandi. „Það er svo gott
að hlæja,“ segir Sólveig og Jörundur
bætir við: „Það er gott að hlæja að
fólki sem á það skilið,“ segir Jör-
undur og tekur fram að líkt og titill
verksins gefi til kynna sé verkið einn
stór kynlífsfarsi.
En er auðvelt fyrir ykkur að halda
með persónum ykkar?
„Það er mjög erfitt að standa með
mínum. Hann er mesti skíthæll sem
ég hef leikið,“ segir Jörundur og tek-
ur fram að á einhverju plani hafi
hann samt samúð með persónunni.
„Ég held að manni verði að minnsta
kosti að finnast gaman að vera við-
komandi persóna,“ segir Sólveig.
„Já, þótt það sé erfitt að standa með
þeim siðferðislega. En það er fyndið
að fá að vera svona manneskja. Þetta
er ágætis áminning fyrir okkur öll
um að vera ekki svona – ekki vera fá-
viti og gera eins og Benedikt,“ segir
Jörundur kíminn og bendir á að svo
skemmtilega vilji til að hann hafi ný-
verið fest kaup á listaverkið eftir
Bjarna Massa sem innihaldi setn-
inguna „Ekki vera fáviti“ sem kallist
glettilega á við hlutverk Benedikts.
Eins og fótboltaleikur
Í ljósi þess hversu lengi gaman-
leikir ganga iðulega verð ég að
spyrja hvernig það leggist í ykkur að
sýna þessa sýningu nokkrum sinnum
í viku næstu mánuði?
„Ég hlakka til og held að sýningin
verði bara betri og betri eftir því sem
við sýnum oftar,“ segir Jörundur.
„Þetta er líka svo frábær hópur til að
vinna með,“ segir Sólveig og tekur
fram að hún hafi aðeins einu sinni
sýnt sýningu þéttar en Sex í sveit.
„Við sýndum Lífið – stórskemmtilegt
drullumall úti í Kína samtals 30 sinn-
um á tveimur vikum. Það er mesta
keyrsla sem ég hef upplifað til
þessa,“ segir Sólveig.
„Ég er sannfærður um að það
verði ógeðslega gaman að sýna þessa
sýningu, enda góður andi í hópnum,“
segir Jörundur, en aðrir í leik-
hópnum eru Haraldur Ari Stefáns-
son, Katrín Halldóra Sigurðardóttir,
Sigurður Þór Óskarsson og Vala
Kristín Eiríksdóttir.
Þetta er auðvitað einvala lið
gamanleikara. Lætur keppnisskapið
aldrei á sér kræla og þið keppist um
hvert ykkar er fyndnast?
„Nei, en þetta er vissulega eins og
fótboltaleikur. Stundum þarf maður
að gefa boltann til þess að einhver
annar geti skorað – og þá vinna allir í
liðinu,“ segir Sólveig. „Þetta er
nefnilega samvinna og maður er
alveg jafn ánægður ef einhver annar
skorar fyrir liðið,“ segir Jörundur.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Hjónakorn Jörundur Ragnarsson og Sólveig Guðmundsdóttir í hlutverkum sínum sem Benedikt og Þórunn.
„Mesti skíthæll sem ég hef leikið“
Borgarleikhúsið frumsýnir Sex í sveit „Gott að hlæja að fólki sem á það skilið,“ segir Jörundur
Ragnarsson „Frábær hópur til að vinna með,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir um leikhópinn
Camerarctica leikur verk eftir
Wolfgang Amadeus Mozart og
Johannes Brahms á Sígildum
sunnudögum í Hörpu á morgun kl.
16. „Á tónleikunum kallast tónlist
tónskáldanna tveggja á, hljóðfæra-
tónlist og aríur úr smiðju Mozarts á
fyrri hluta efnisskrárinnar en eftir
hlé verður fluttur hinn dáði
Klarínettukvintett eftir Brahms,“
segir í tilkynningu frá Camer-
arctica. Tónlistarhópinn skipa
Ármann Helgason á klarínett,
Hildigunnur Halldórsdóttir á fiðlu,
Bryndís Pálsdóttir á fiðlu, Svava
Bernharðsdóttir á víólu og Sig-
urður Halldórsson á selló. Gesta-
hljóðfæraleikarar eru Helga Björg
Arnardóttir á klarínett og Kristín
Mjöll Jakobsdóttir á fagott.
Sérstakur heiðursgestur Camer-
arctica á tónleikunum er Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópran. „Fluttar
verða tvær glæsilegar konsert-
aríur, „Chi sà, chi sà, qual sia“ kv
582 og „Vado, ma dove“ kv 583 og
óperuarían „Parto, parto“ úr síð-
ustu óperu Mozarts, La Clemenza
di Tito, en þar sýnir Mozart snilli-
gáfu sína og tvinnar leik klarínett-
unnar saman við söng söngkon-
unnar á einstakan hátt.“
Tónleikarnir taka u.þ.b. eina og
hálfa klukkustund með hléi.
Hæfileikar Tónlistarhópurinn Camerarctica kemur fram ásamt gestum.
Mozart og Brahms á
Sígildum sunnudögum
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum