Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019 ✝ Heiðar Krist-jánsson fæddist 26. janúar 1939 á Hæli í Torfalækjar- hreppi í Austur- Húnavatnssýslu. Hann lést 23. sept- ember á Heilbrigð- isstofnun Norður- lands Blönduósi. Foreldrar Heið- ars voru Þorbjörg Björnsdóttir, f. 27. febrúar 1908, d. 30. september 2001, og Kristján Benediktsson, bóndi á Hæli, f. 2. mars 1901, d. 28. júní 1977. Systkini Heiðars: Elísabet Jóna Kristjánsdóttir, verkakona og húsmóðir í Reykjavík, f. 3. júní 1931, gift Jósef Jónassyni húsasmið, f. 5. október 1930. Sigrún Kristín Kristjánsdóttir, verkakona og húsmóðir á Akur- eyri, f. 30. maí 1937, d. 3. janúar 1988, gift Jóni Hólmgeirssyni húsgagnasmið, f. 15. apríl 1935. Ingibjörg Kristjánsdóttir, verka- kona og húsmóðir á Blönduósi, f. 26. júní 1942, gift Þóri Heiðmari Jóhannssyni bílstjóra, f. 23. des- ember 1941, d. 9. febrúar 2010. Hinn 30. desember 1965 kvæntist Heiðar Kristínu Jóns- ember 2000, Þórgunnur Una, f. 13. febrúar 2004, Heiðar Húni, f. 11. apríl 2008, og Kristín Kolka, f. 27. maí 2015. 3) Berglind Sal- vör Heiðarsdóttir, námsráðgjafi í Reykjavík, f. 29. október 1972. Maður hennar er Borgar Guð- jónsson sölufulltrúi, f. 4. desem- ber 1975. Börn þeirra eru Sig- ríður Erla, f. 27. janúar 2006, og Högni Steinþór, f. 30. október 2011. 4) Kristján Björn Heiðars- son, verkamaður í Kópavogi, f. 4. júlí 1978. Kærasta hans er Ingunn Þorkelsdóttir heilbrigð- isgagnafræðingur, f. 4. júlí 1979. Dóttir Kristjáns og Nönnu Vil- helmsdóttur, f. 15. ágúst 1976, er Ingunn Dýrleif, f. 7. júní 2012. Börn Nönnu frá fyrra hjóna- bandi eru Úlfhildur Stefanía Jónsdóttir, f. 23. maí 2006, og Vilhelm Bjarnar Jónsson, f. 8. júní 2010. Heiðar nam seinni hluta vetr- ar við Bændaskólann á Hólum 1958. Hann tók við búskap á Hæli og bjó þar stóru fjárbúi til 2002 er hann og Kristín settust að á Blönduósi. Heiðar starfaði við skólaakstur og akstur á slát- urfé meðfram bústörfum. Eftir búskap stundaði hann einnig rútuakstur um skeið. Hann söng í karlakórnum Vökumönnum á yngri árum og síðar samkórnum Björk og kirkjukórum Blönduós- kirkju og Þingeyrarkirkju. Útför Heiðars fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 5. október 2019, klukkan 14. dóttur vefnaðar- kennara, f. 1. des- ember 1939. Foreldrar Kristínar voru Jón Böðvars- son, bóndi í Grafar- dal, f. 5. júní 1901, d. 15. janúar 1963, og Salvör Brands- dóttir, f. 22. febrúar 1905, d. 14. apríl 1951. Börn Heiðars og Kristínar eru: 1) Bryndís Þor- björg Heiðarsdóttir, matar- tæknir í Kópavogi, f. 20. maí 1966. Maður hennar er Axel Gígjar Ásgeirsson sjómaður, f. 18. apríl 1964. Börn þeirra eru Heiðrún Kristín flugfreyja, f. 11. nóvember 1990, Ásgeir Logi, f. 24. mars 1994, og Katrín Ósk, f. 1. október 2000. Sambýlismaður Heiðrúnar Kristínar er Krist- ófer Fannar Guðmundsson lög- fræðingur, f. 16. október 1991, og eiga þau dótturina Dalrós Maren, f. 21. september 2017. 2) Jón Þorvaldur Heiðarsson, lekt- or á Akureyri, f. 21. febrúar 1968. Kona hans er Jóhanna Hjartardóttir félagsráðgjafi, f. 24. október 1972. Börn þeirra eru Arnór Gjúki, f. 21. sept- Elsku afi minn. Nú er komið að því sem ég hef kviðið fyrir í mörg ár. Síðan ég var lítil stelpa hef ég oft hugsað um það að einn daginn yrði komið að kveðjustund, sem nú er orðið að veruleika. Allar minningarnar úr sveitinni á Hæli hellast yfir mig. Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir að hafa fengið að vera jafn mikið í sveit og ég var sem barn, verandi borgarbarn. Allar ferð- irnar norður þar sem ég sat óþol- inmóð í aftursætinu og spurði aft- ur og aftur hvort við værum nú ekki að verða komin! Betri og meiri bónda en þig er erfitt að finna, en þú varst alltaf farinn út að vinna þegar ég vakn- aði. Ég man að oft sat ég úti í glugga og fylgdist með þér koma inn í kaffi, því eftir kaffi gat ég farið með þér út í fjárhús. Hvort sem það var að hoppa í drullupoll- um úti á hlaði, hjálpa þér við að gefa eða leika mér í stóra heyfjall- inu inni í hlöðu, þá var alltaf gam- an. Toppurinn var svo þegar ég fékk að fara með þér í dráttarvél- ina. Við keyrðum hring eftir hring, þú sagðir mér margar skemmtilegar sögur og við spjöll- uðum um hitt og þetta, en alltaf þurfti að gera hlé og hafa alveg þögn þegar komu fréttir. Ætli ég hafi það ekki frá þér að vilja helst alltaf hlusta á fréttir og vita hvað er að gerast í samfélaginu. Auðkúluréttir voru svo fastur liður öll haust, amma smurði þá heilu kæliboxin af samlokum og setti heitt kaffi í brúsa. Svo sat maður drullugur upp fyrir haus með samlokuna sína og fylgdist með öllu. Stundum fékk ég svo að koma með þér í stóra kindabílinn sem flutti kindurnar á túnin við Hæli. Þú varst mikill dýravinur og komst alltaf fram við dýrin af mik- illi virðingu. Ég man eftir einu skipti sem þú hefur skammað mig og það var vegna þess að ég var að stríða kind, það fannst þér ekki sniðugt og fékk ég tiltal fyrir vik- ið. Þú þekktir hverja einustu kind og hjálpaðir mér alltaf reglulega að finna mína, en ég átti mína kind sem bar nafnið Heiðrún. Árin liðu og þú og amma eltust, Hæli selt árið 2002 og fannst mér það mjög leiðinlegt og erfitt. Ég labbaði í hvert einasta herbergi og átti þar smá kveðjustund og man enn vel eftir því þegar ég keyrði frá Hæli í síðasta sinn. Þú varst alltaf svo stoltur af því að vera afi minn og ég skynjaði alltaf þá væntumþykju sem þú barst til mín þegar þú faðmaðir mig að þér og bættir því svo alltaf við að ég yrði nú alltaf fyrsta afa- stelpan þín. Árið 2017 var svo komið að því að gera þig af langafa. Dalrós Mar- en, litla langafastelpan þín, var svo skírð á afmælisdaginn minn sama ár. Ég gleymi því ekki þegar ég labbaði að altarinu með Dalrós í fanginu og kirkjan full af fólki. Það fyrsta sem ég sá varst þú grátandi, og auðvitað gat ég ekki haldið aftur af tárunum þannig að ég fór að gráta líka. Eftir skírnina komstu svo til mín og sagðir hversu stoltur þú værir að vera orðinn langafi. Elsku afi, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og bara ef ég gæti upplifað einn dag í sveitinni á Hæli með þér aftur, en það bíður betri tíma. Þínar fyrstu afa- og langafa- stelpur, Heiðrún Kristín og Dalrós Maren. Elsku afi minn, núna ertu kom- inn til himna þar sem þú hvílist. Það verður mjög skrítið að koma við á Blönduósi hjá ömmu og þú verður ekki þar. Ég man þegar ég var lítil og ég, mamma, pabbi, stundum Ásgeir og Heiðrún kom- um í helgarferð norður í heimsókn og ófáar heimsóknirnar enduðu með gráti í mér um að vilja ekki fara heim, heldur vera áfram hjá ömmu og afa á Blönduósi. Oft fékk ég að vera áfram og það var sko ekki leiðinlegt! Ég sat inni með ömmu að spila lönguvitleysu meðan þú fórst á kóræfingar, að skutla, vinna í bílunum þínum og endalaust er hægt að telja áfram. Að sitja lengi og gera ekki neitt var ekki til í orðabókinni þinni. Oft fór ég með þér út í bílskúr og fékk ég að negla nagla í spýtu, sem var algjört sport. Þegar þú sast inni á skrifstofu gat ég setið tímunum saman hjá þér og spjallað um lífið og til- veruna. Það var alltaf nóg af klinki inni á skrifstofu sem ég fékk að sjálfsögðu að eiga og kaupa mér nammi fyrir. Bílferð- irnar með þér voru margar og skemmtilegar. Ég man allra helst eftir þeirri þegar þú varst að kenna mér að maður ætti að segja bless en ekki bæ. Ég lék mér að því að segja bæ og þú stoppaðir bílinn þangað til ég leiðrétti mig og sagði bless, svo var mikið hleg- ið. Það var líka mjög gaman þegar ég fékk að koma með þér að keyra skólabílinn. Eftir því sem árin liðu og þú varst greindur með krabbamein fór persónuleiki þinn að breytast mikið en eitt breyttist aldrei og það var þegar við hittumst kom alltaf bros á vör, kysst á kinnina og þú sagðir: „Hvað segir litla afa- stelpan mín?“ Hversu gömul sem ég varð var ég alltaf litla afa- stelpan þín. Nema í síðasta skipti sem ég sá þig kom ekkert bros eða neitt og þá vissi ég að eitthvað mikið væri að. Þú tókst ekki annað í mál en að sigra krabbann, sem var raunin í öll þrjú skiptin. Elsku afi minn, takk fyrir allt og að vilja gera allt fyrir okkur öll. Sjáumst síðar. Þín afastelpa, Katrín Ósk. Kæri vinur! Aðeins nokkur orð til að þakka fyrir góða vináttu og velvilja í minn garð á liðnum ár- um. Það var gott að vinna hjá þér, þú varst góður húsbóndi og alltaf tilbúinn að rétta manni hjálpar- hönd. Fjölskyldu Heiðars votta ég innilega samúð og bið Guð að blessa minningu Heiðars Krist- jánssonar. Hávarður (Hávi). Fallinn er nú frá Heiðar bóndi frá Hæli, faðir minn. Þvílíkur ástríðubóndi var hann í sinni bú- skapartíð að annað eins hefur varla sést. Fæddur rétt fyrir seinni heimsstyrjöld í janúar 1939, í fátæku landi undir danskri krúnu. Á tímum þar sem hjóna- skilnaðir tíðkuðust ekki hjá óham- ingjusömum hjónum eins og for- eldrum hans, á tímum þar sem var ekkert rafmagn, varla vegir og örfáir bílar. Hann var fimm ára þegar heimsstyrjöldinni lauk og hafði þá líklega þegar verið innprentað að hann yrði næsti bóndi á Hæli. En Ísland var ekki lengur fátækt land undir erlendum kóngi. Hann átti erfitt samband við föður sinn. Þar mættust ósættan- leg sjónarmið gamla tímans og unga framfarasinnans sem þoldi ekki hokur fortíðarinnar. Þar fór sýn mannsins sem vildi fara var- lega og skulda engum neitt gegn æskuþrótti uppbyggingarsinnans sem gat ekki hugsað sér neitt annað en að eignast bíl, taka lán, byggja upp og láta aukna fram- leiðslu með ráðdeild greiða lánin til baka. Uppbygging eða dauði. Rétt skriðinn yfir tvítugt byrjar hann að byggja upp jörðina sem var nánast húsalaus fyrir utan íbúðarhús sem hafði verið stækk- að 1954 og hann teiknað þá 15 ára gamall. Fyrst var byggð hlaða 1960, svo fjós síðan fjárhús með hlöðu. Eldri mennirnir í sveitinni höfðu í fyrstu pískrað að þetta myndi allt fara á hausinn hjá þess- um strák á Hæli. Áfram hélt upp- bygging, íbúðarhús, vélaskemma og önnur hlaða 1975. Þá var sauð- fjárbúið á Hæli orðið eitt það stærsta á landinu þrátt fyrir að Hæli væri alls ekki hentug jörð fyrir sauðfjárbú. Hæli er frábær jörð fyrir kúabú. En hann vildi ekki kýr, hann elskaði íslensku kindina. Þrátt fyrir fjölda fjár þekkti hann samt hverja kind sem hann átti með númeri eins og við þekkjum fólk með nafni. Ég veit, þið trúið þessu aldrei. En þessi búskaparástríða hafði einnig neikvæðar hliðar. Eigin- lega aldrei var rými til þess að gera nokkuð skemmtilegt með fjölskyldunni, búskapurinn var framar öllu. Hann þurfti alltaf að gera eitthvað, vinna. Það eina sem virtist geta trompað búskapinn var ef það komu gestir. Hann var alltaf félagslyndur. Hann var ekki að stinga upp á því að eyða ágóða af vel reknu búi í óþarfa svo sem ferðalag eða utanlandsferð, hvað þá skitið vídeótæki eins og allir áttu. Eitt var þó öruggt, aldrei yrðu fjárhagserfiðleikar á heim- ilinu. Ég sá strax sem ungur drengur að þetta var ekki lífið sem ég vildi. Ég ætlaði aldrei að verða bóndi og þræla alla daga, alltaf að vinna eitthvað, geta aldrei farið neitt út af heyskap. Nei takk. Sorglegt? Jú, kannski, en dæmigerð saga ís- lenskra sveita um þær mundir á sama hátt og uppbygging hans var saga hans kynslóðar sem byggði Ísland upp frá grunni eftir seinna stríð. En nú er hann farinn. Farinn úr heimi sem er óþekkjanlegur frá þeim sem hann fæddist í. Eftir stend ég, afsprengi hans og hvað geri ég? Er alltaf að hugsa um uppbyggingu í byggðum landsins. Prédika ráðdeild. Þarf líka alltaf að vera að gera eitthvað, vinna eitthvað. Pabbi, ég skil þig aðeins betur núna, takk fyrir samfylgdina og öryggið sem þú veittir mér. Jón Þorvaldur Heiðarsson. Heiðar Kristjánsson Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og tengdaömmu, AUÐBJARGAR HLÍNAR PÁLSDÓTTUR, Kambastíg 6, Sauðárkróki. Árni Indriðason Kári Heiðar Árnason Margrét Helgadóttir Hlynur Freyr Árnason Thelma Rut, Þröstur, Viktor og Gunnhildur Dís Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 9. september klukkan 13. Börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn Yndislega konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA EIRÍKSDÓTTIR, Laufskógum 21, Hveragerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn 28. september. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 14. Örn Guðmundsson börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, EINÖRU MAGNÚSDÓTTUR, Hörðukór 5, Kópavogi, áður búsettrar í Bandaríkjunum. Sérstakar þakkir fá þau sem komu að hjúkrun hennar og umönnun. Einar Ásgeirsson Ásgeir Ásgeirsson Patricia Ásgeirsson Valur Magnús Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, systur og okkar kæru DAGNÝJAR MAGNEU HARÐARDÓTTUR, Mánatúni 17, Reykjavík, áður Furulundi 19, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir alúð og góða umönnun í veikindum hennar. Bjarni Reykjalín Þorleifur Kristinn Árnason Ásta Árnadóttir Friðgeir Steinsson Kristófer Máni Friðgeirsson Jenný Kamilla Harðardóttir Oddný G. Harðardóttir Eiríkur Hermannsson Ari Theodór Jósefsson Guðbjörg Reykjalín Forup Katja Reykjalín Forup Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG STEFANÍA EIÐSDÓTTIR, Þorsteinsgötu 17, Borgarnesi, lést á Landspítalanum 29. september. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 14. Guðmundur Ingimundarson Margrét Helga Guðmundsd. Jóhannes Ellertsson Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir ömmu- og langömmubörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.