Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 30
       atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Forsætisráðuneytið auglýsir embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika laust til umsóknar Forsætisráðherra skipar varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 4. gr. og ákvæði til bráðabirgða I, í lögum nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2019. Aðeins er hægt að skipa sama einstakling varaseðlabankastjóra tvisvar sinnum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi auk þess að uppfylla önnur skilyrði samkvæmt 4. mgr. 4. gr. laga nr. 92/2019 og 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Að auki verða eftirfarandi hæfnisviðmið lögð til grundvallar: • Þekking á helstu viðfangsefnum á sviði fjármálastöðugleika • Þekking á laga- og regluumhverfi á sviði fjármálastöðugleika • Færni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi • Reynsla af stjórnun og hæfileikar á því sviði • Hæfni í mannlegum samskiptum Í umsókn um embættið skal greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess sem veita skal ítarlegar upplýsingar um menntun viðkomandi, starfsferil og reynslu. Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvæðum laga um launa- og starfskjör varaseðlabankastjóra, sbr. 5. gr. laga nr. 92/2019. Fjármála- og efnahagsráðherra mun skipa þriggja manna nefnd er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda um embættið. Verður einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2019. Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins postur@for.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins. Í forsætisráðuneytinu, 3. október 2019 Ráðgjafar okkar búa                   capacent.is      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.