Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 30
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti varaseðlabankastjóra
fjármálastöðugleika laust til umsóknar
Forsætisráðherra skipar varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands til fimm ára í senn, sbr.
1. mgr. 4. gr. og ákvæði til bráðabirgða I, í lögum nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, sbr. 7. gr. laga nr. 117/2019.
Aðeins er hægt að skipa sama einstakling varaseðlabankastjóra tvisvar sinnum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á
fjármálastarfsemi auk þess að uppfylla önnur skilyrði samkvæmt 4. mgr. 4. gr. laga nr. 92/2019 og 6. gr. laga nr.
70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Að auki verða eftirfarandi hæfnisviðmið lögð til grundvallar:
• Þekking á helstu viðfangsefnum á sviði fjármálastöðugleika
• Þekking á laga- og regluumhverfi á sviði fjármálastöðugleika
• Færni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
• Reynsla af alþjóðlegu samstarfi
• Reynsla af stjórnun og hæfileikar á því sviði
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Í umsókn um embættið skal greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess sem veita skal
ítarlegar upplýsingar um menntun viðkomandi, starfsferil og reynslu.
Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvæðum laga um launa- og starfskjör varaseðlabankastjóra, sbr. 5. gr.
laga nr. 92/2019.
Fjármála- og efnahagsráðherra mun skipa þriggja manna nefnd er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni
umsækjenda um embættið. Verður einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar
háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og skal
hann vera formaður nefndarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2019. Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár til
forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins postur@for.is. Konur
jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun
í embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins.
Í forsætisráðuneytinu, 3. október 2019
Ráðgjafar okkar búa
capacent.is