Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
✝ Heiðar Krist-jánsson fæddist
26. janúar 1939 á
Hæli í Torfalækjar-
hreppi í Austur-
Húnavatnssýslu.
Hann lést 23. sept-
ember á Heilbrigð-
isstofnun Norður-
lands Blönduósi.
Foreldrar Heið-
ars voru Þorbjörg
Björnsdóttir, f. 27.
febrúar 1908, d. 30. september
2001, og Kristján Benediktsson,
bóndi á Hæli, f. 2. mars 1901, d.
28. júní 1977.
Systkini Heiðars: Elísabet
Jóna Kristjánsdóttir, verkakona
og húsmóðir í Reykjavík, f. 3.
júní 1931, gift Jósef Jónassyni
húsasmið, f. 5. október 1930.
Sigrún Kristín Kristjánsdóttir,
verkakona og húsmóðir á Akur-
eyri, f. 30. maí 1937, d. 3. janúar
1988, gift Jóni Hólmgeirssyni
húsgagnasmið, f. 15. apríl 1935.
Ingibjörg Kristjánsdóttir, verka-
kona og húsmóðir á Blönduósi, f.
26. júní 1942, gift Þóri Heiðmari
Jóhannssyni bílstjóra, f. 23. des-
ember 1941, d. 9. febrúar 2010.
Hinn 30. desember 1965
kvæntist Heiðar Kristínu Jóns-
ember 2000, Þórgunnur Una, f.
13. febrúar 2004, Heiðar Húni, f.
11. apríl 2008, og Kristín Kolka,
f. 27. maí 2015. 3) Berglind Sal-
vör Heiðarsdóttir, námsráðgjafi
í Reykjavík, f. 29. október 1972.
Maður hennar er Borgar Guð-
jónsson sölufulltrúi, f. 4. desem-
ber 1975. Börn þeirra eru Sig-
ríður Erla, f. 27. janúar 2006, og
Högni Steinþór, f. 30. október
2011. 4) Kristján Björn Heiðars-
son, verkamaður í Kópavogi, f.
4. júlí 1978. Kærasta hans er
Ingunn Þorkelsdóttir heilbrigð-
isgagnafræðingur, f. 4. júlí 1979.
Dóttir Kristjáns og Nönnu Vil-
helmsdóttur, f. 15. ágúst 1976,
er Ingunn Dýrleif, f. 7. júní 2012.
Börn Nönnu frá fyrra hjóna-
bandi eru Úlfhildur Stefanía
Jónsdóttir, f. 23. maí 2006, og
Vilhelm Bjarnar Jónsson, f. 8.
júní 2010.
Heiðar nam seinni hluta vetr-
ar við Bændaskólann á Hólum
1958. Hann tók við búskap á
Hæli og bjó þar stóru fjárbúi til
2002 er hann og Kristín settust
að á Blönduósi. Heiðar starfaði
við skólaakstur og akstur á slát-
urfé meðfram bústörfum. Eftir
búskap stundaði hann einnig
rútuakstur um skeið. Hann söng
í karlakórnum Vökumönnum á
yngri árum og síðar samkórnum
Björk og kirkjukórum Blönduós-
kirkju og Þingeyrarkirkju.
Útför Heiðars fer fram frá
Blönduóskirkju í dag, 5. október
2019, klukkan 14.
dóttur vefnaðar-
kennara, f. 1. des-
ember 1939.
Foreldrar Kristínar
voru Jón Böðvars-
son, bóndi í Grafar-
dal, f. 5. júní 1901,
d. 15. janúar 1963,
og Salvör Brands-
dóttir, f. 22. febrúar
1905, d. 14. apríl
1951.
Börn Heiðars og
Kristínar eru: 1) Bryndís Þor-
björg Heiðarsdóttir, matar-
tæknir í Kópavogi, f. 20. maí
1966. Maður hennar er Axel
Gígjar Ásgeirsson sjómaður, f.
18. apríl 1964. Börn þeirra eru
Heiðrún Kristín flugfreyja, f. 11.
nóvember 1990, Ásgeir Logi, f.
24. mars 1994, og Katrín Ósk, f.
1. október 2000. Sambýlismaður
Heiðrúnar Kristínar er Krist-
ófer Fannar Guðmundsson lög-
fræðingur, f. 16. október 1991,
og eiga þau dótturina Dalrós
Maren, f. 21. september 2017. 2)
Jón Þorvaldur Heiðarsson, lekt-
or á Akureyri, f. 21. febrúar
1968. Kona hans er Jóhanna
Hjartardóttir félagsráðgjafi, f.
24. október 1972. Börn þeirra
eru Arnór Gjúki, f. 21. sept-
Elsku afi minn. Nú er komið að
því sem ég hef kviðið fyrir í mörg
ár. Síðan ég var lítil stelpa hef ég
oft hugsað um það að einn daginn
yrði komið að kveðjustund, sem
nú er orðið að veruleika.
Allar minningarnar úr sveitinni
á Hæli hellast yfir mig. Ég get
ekki lýst því hvað ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að vera jafn
mikið í sveit og ég var sem barn,
verandi borgarbarn. Allar ferð-
irnar norður þar sem ég sat óþol-
inmóð í aftursætinu og spurði aft-
ur og aftur hvort við værum nú
ekki að verða komin!
Betri og meiri bónda en þig er
erfitt að finna, en þú varst alltaf
farinn út að vinna þegar ég vakn-
aði. Ég man að oft sat ég úti í
glugga og fylgdist með þér koma
inn í kaffi, því eftir kaffi gat ég
farið með þér út í fjárhús. Hvort
sem það var að hoppa í drullupoll-
um úti á hlaði, hjálpa þér við að
gefa eða leika mér í stóra heyfjall-
inu inni í hlöðu, þá var alltaf gam-
an. Toppurinn var svo þegar ég
fékk að fara með þér í dráttarvél-
ina. Við keyrðum hring eftir
hring, þú sagðir mér margar
skemmtilegar sögur og við spjöll-
uðum um hitt og þetta, en alltaf
þurfti að gera hlé og hafa alveg
þögn þegar komu fréttir. Ætli ég
hafi það ekki frá þér að vilja helst
alltaf hlusta á fréttir og vita hvað
er að gerast í samfélaginu.
Auðkúluréttir voru svo fastur
liður öll haust, amma smurði þá
heilu kæliboxin af samlokum og
setti heitt kaffi í brúsa. Svo sat
maður drullugur upp fyrir haus
með samlokuna sína og fylgdist
með öllu. Stundum fékk ég svo að
koma með þér í stóra kindabílinn
sem flutti kindurnar á túnin við
Hæli.
Þú varst mikill dýravinur og
komst alltaf fram við dýrin af mik-
illi virðingu. Ég man eftir einu
skipti sem þú hefur skammað mig
og það var vegna þess að ég var að
stríða kind, það fannst þér ekki
sniðugt og fékk ég tiltal fyrir vik-
ið. Þú þekktir hverja einustu kind
og hjálpaðir mér alltaf reglulega
að finna mína, en ég átti mína
kind sem bar nafnið Heiðrún.
Árin liðu og þú og amma eltust,
Hæli selt árið 2002 og fannst mér
það mjög leiðinlegt og erfitt. Ég
labbaði í hvert einasta herbergi
og átti þar smá kveðjustund og
man enn vel eftir því þegar ég
keyrði frá Hæli í síðasta sinn.
Þú varst alltaf svo stoltur af því
að vera afi minn og ég skynjaði
alltaf þá væntumþykju sem þú
barst til mín þegar þú faðmaðir
mig að þér og bættir því svo alltaf
við að ég yrði nú alltaf fyrsta afa-
stelpan þín.
Árið 2017 var svo komið að því
að gera þig af langafa. Dalrós Mar-
en, litla langafastelpan þín, var svo
skírð á afmælisdaginn minn sama
ár. Ég gleymi því ekki þegar ég
labbaði að altarinu með Dalrós í
fanginu og kirkjan full af fólki.
Það fyrsta sem ég sá varst þú
grátandi, og auðvitað gat ég ekki
haldið aftur af tárunum þannig að
ég fór að gráta líka. Eftir skírnina
komstu svo til mín og sagðir
hversu stoltur þú værir að vera
orðinn langafi.
Elsku afi, takk fyrir allt sem þú
hefur gefið mér og bara ef ég gæti
upplifað einn dag í sveitinni á
Hæli með þér aftur, en það bíður
betri tíma.
Þínar fyrstu afa- og langafa-
stelpur,
Heiðrún Kristín
og Dalrós Maren.
Elsku afi minn, núna ertu kom-
inn til himna þar sem þú hvílist.
Það verður mjög skrítið að koma
við á Blönduósi hjá ömmu og þú
verður ekki þar. Ég man þegar ég
var lítil og ég, mamma, pabbi,
stundum Ásgeir og Heiðrún kom-
um í helgarferð norður í heimsókn
og ófáar heimsóknirnar enduðu
með gráti í mér um að vilja ekki
fara heim, heldur vera áfram hjá
ömmu og afa á Blönduósi. Oft
fékk ég að vera áfram og það var
sko ekki leiðinlegt! Ég sat inni
með ömmu að spila lönguvitleysu
meðan þú fórst á kóræfingar, að
skutla, vinna í bílunum þínum og
endalaust er hægt að telja áfram.
Að sitja lengi og gera ekki neitt
var ekki til í orðabókinni þinni.
Oft fór ég með þér út í bílskúr og
fékk ég að negla nagla í spýtu,
sem var algjört sport.
Þegar þú sast inni á skrifstofu
gat ég setið tímunum saman hjá
þér og spjallað um lífið og til-
veruna. Það var alltaf nóg af
klinki inni á skrifstofu sem ég
fékk að sjálfsögðu að eiga og
kaupa mér nammi fyrir. Bílferð-
irnar með þér voru margar og
skemmtilegar. Ég man allra helst
eftir þeirri þegar þú varst að
kenna mér að maður ætti að segja
bless en ekki bæ. Ég lék mér að
því að segja bæ og þú stoppaðir
bílinn þangað til ég leiðrétti mig
og sagði bless, svo var mikið hleg-
ið. Það var líka mjög gaman þegar
ég fékk að koma með þér að keyra
skólabílinn.
Eftir því sem árin liðu og þú
varst greindur með krabbamein
fór persónuleiki þinn að breytast
mikið en eitt breyttist aldrei og
það var þegar við hittumst kom
alltaf bros á vör, kysst á kinnina
og þú sagðir: „Hvað segir litla afa-
stelpan mín?“ Hversu gömul sem
ég varð var ég alltaf litla afa-
stelpan þín.
Nema í síðasta skipti sem ég sá
þig kom ekkert bros eða neitt og
þá vissi ég að eitthvað mikið væri
að. Þú tókst ekki annað í mál en að
sigra krabbann, sem var raunin í
öll þrjú skiptin.
Elsku afi minn, takk fyrir allt
og að vilja gera allt fyrir okkur öll.
Sjáumst síðar.
Þín afastelpa,
Katrín Ósk.
Kæri vinur! Aðeins nokkur orð
til að þakka fyrir góða vináttu og
velvilja í minn garð á liðnum ár-
um. Það var gott að vinna hjá þér,
þú varst góður húsbóndi og alltaf
tilbúinn að rétta manni hjálpar-
hönd.
Fjölskyldu Heiðars votta ég
innilega samúð og bið Guð að
blessa minningu Heiðars Krist-
jánssonar.
Hávarður (Hávi).
Fallinn er nú frá Heiðar bóndi
frá Hæli, faðir minn. Þvílíkur
ástríðubóndi var hann í sinni bú-
skapartíð að annað eins hefur
varla sést. Fæddur rétt fyrir
seinni heimsstyrjöld í janúar
1939, í fátæku landi undir danskri
krúnu. Á tímum þar sem hjóna-
skilnaðir tíðkuðust ekki hjá óham-
ingjusömum hjónum eins og for-
eldrum hans, á tímum þar sem
var ekkert rafmagn, varla vegir
og örfáir bílar.
Hann var fimm ára þegar
heimsstyrjöldinni lauk og hafði þá
líklega þegar verið innprentað að
hann yrði næsti bóndi á Hæli. En
Ísland var ekki lengur fátækt
land undir erlendum kóngi.
Hann átti erfitt samband við
föður sinn. Þar mættust ósættan-
leg sjónarmið gamla tímans og
unga framfarasinnans sem þoldi
ekki hokur fortíðarinnar. Þar fór
sýn mannsins sem vildi fara var-
lega og skulda engum neitt gegn
æskuþrótti uppbyggingarsinnans
sem gat ekki hugsað sér neitt
annað en að eignast bíl, taka lán,
byggja upp og láta aukna fram-
leiðslu með ráðdeild greiða lánin
til baka. Uppbygging eða dauði.
Rétt skriðinn yfir tvítugt byrjar
hann að byggja upp jörðina sem
var nánast húsalaus fyrir utan
íbúðarhús sem hafði verið stækk-
að 1954 og hann teiknað þá 15 ára
gamall. Fyrst var byggð hlaða
1960, svo fjós síðan fjárhús með
hlöðu. Eldri mennirnir í sveitinni
höfðu í fyrstu pískrað að þetta
myndi allt fara á hausinn hjá þess-
um strák á Hæli. Áfram hélt upp-
bygging, íbúðarhús, vélaskemma
og önnur hlaða 1975. Þá var sauð-
fjárbúið á Hæli orðið eitt það
stærsta á landinu þrátt fyrir að
Hæli væri alls ekki hentug jörð
fyrir sauðfjárbú. Hæli er frábær
jörð fyrir kúabú. En hann vildi
ekki kýr, hann elskaði íslensku
kindina. Þrátt fyrir fjölda fjár
þekkti hann samt hverja kind sem
hann átti með númeri eins og við
þekkjum fólk með nafni. Ég veit,
þið trúið þessu aldrei.
En þessi búskaparástríða hafði
einnig neikvæðar hliðar. Eigin-
lega aldrei var rými til þess að
gera nokkuð skemmtilegt með
fjölskyldunni, búskapurinn var
framar öllu. Hann þurfti alltaf að
gera eitthvað, vinna. Það eina sem
virtist geta trompað búskapinn
var ef það komu gestir. Hann var
alltaf félagslyndur. Hann var ekki
að stinga upp á því að eyða ágóða
af vel reknu búi í óþarfa svo sem
ferðalag eða utanlandsferð, hvað
þá skitið vídeótæki eins og allir
áttu. Eitt var þó öruggt, aldrei
yrðu fjárhagserfiðleikar á heim-
ilinu.
Ég sá strax sem ungur drengur
að þetta var ekki lífið sem ég vildi.
Ég ætlaði aldrei að verða bóndi og
þræla alla daga, alltaf að vinna
eitthvað, geta aldrei farið neitt út
af heyskap. Nei takk. Sorglegt?
Jú, kannski, en dæmigerð saga ís-
lenskra sveita um þær mundir á
sama hátt og uppbygging hans
var saga hans kynslóðar sem
byggði Ísland upp frá grunni eftir
seinna stríð.
En nú er hann farinn. Farinn
úr heimi sem er óþekkjanlegur
frá þeim sem hann fæddist í. Eftir
stend ég, afsprengi hans og hvað
geri ég? Er alltaf að hugsa um
uppbyggingu í byggðum landsins.
Prédika ráðdeild. Þarf líka alltaf
að vera að gera eitthvað, vinna
eitthvað.
Pabbi, ég skil þig aðeins betur
núna, takk fyrir samfylgdina og
öryggið sem þú veittir mér.
Jón Þorvaldur Heiðarsson.
Heiðar
Kristjánsson
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og tengdaömmu,
AUÐBJARGAR HLÍNAR PÁLSDÓTTUR,
Kambastíg 6, Sauðárkróki.
Árni Indriðason
Kári Heiðar Árnason Margrét Helgadóttir
Hlynur Freyr Árnason
Thelma Rut, Þröstur, Viktor og Gunnhildur Dís
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
sunnudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
9. september klukkan 13.
Börn, tengdabörn
barnabörn og barnabarnabörn
Yndislega konan mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVAVA EIRÍKSDÓTTIR,
Laufskógum 21, Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
laugardaginn 28. september. Útförin fer
fram frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 14.
Örn Guðmundsson
börn, tengdabörn
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
EINÖRU MAGNÚSDÓTTUR,
Hörðukór 5, Kópavogi,
áður búsettrar í Bandaríkjunum.
Sérstakar þakkir fá þau sem komu að hjúkrun hennar og
umönnun.
Einar Ásgeirsson
Ásgeir Ásgeirsson Patricia Ásgeirsson
Valur Magnús Valtýsson Inga Dóra Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu,
systur og okkar kæru
DAGNÝJAR MAGNEU
HARÐARDÓTTUR,
Mánatúni 17, Reykjavík,
áður Furulundi 19, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir alúð og góða umönnun í
veikindum hennar.
Bjarni Reykjalín
Þorleifur Kristinn Árnason
Ásta Árnadóttir Friðgeir Steinsson
Kristófer Máni Friðgeirsson
Jenný Kamilla Harðardóttir
Oddný G. Harðardóttir Eiríkur Hermannsson
Ari Theodór Jósefsson
Guðbjörg Reykjalín Forup Katja Reykjalín Forup
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG STEFANÍA EIÐSDÓTTIR,
Þorsteinsgötu 17, Borgarnesi,
lést á Landspítalanum 29. september.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 9. október klukkan 14.
Guðmundur Ingimundarson
Margrét Helga Guðmundsd. Jóhannes Ellertsson
Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir
ömmu- og langömmubörn