Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
LAGERSALA
LÍN DESIGN
FLATAHRAUNI 31 HAFNAFIRÐI
Á MÓTI KAPLAKRIKA
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
LAUGARDAG KL. 11-17
SUNNUDAG KL. 12-17
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Líftæknifyrirtækið Alvotech
greindi frá því í vor að fyrirtækið
ætlaði að ráða 100 vísindamenn og
sérfræðinga til að taka þátt í upp-
byggingu fyrirtækisins. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Alvotech
hafa þessi áform gengið vonum
framar. Alls hafa 138 vísindamenn
og sérfræðingar verið ráðnir í há-
tæknisetur Alvotech í Vatnsmýr-
inni á þessu ári. Nú eru yfir 400
starfsmenn hjá fyrirtækinu á Ís-
landi, í Sviss og í Þýskalandi frá
um 20 þjóðlöndum.
Styrkja innviði fyrirtækisins
Hildur Hörn Daðadóttir, mann-
auðsstjóri Alvotech, segir að vel
hafi gengið að manna lausar stöður
hjá fyrirtækinu. „Til að styðja við
vöxt Alvotech og undirbúning fyrir
markaðssetningu lyfja höfum við
verið að styrkja innviði fyrir-
tækisins enn frekar. Það er
ánægjulegt að fá til liðs við okkur
svo mikið af nýjum liðsmönnum
með fjölbreyttan bakgrunn. Hluti
af nýráðningum eru aðilar með
mikla reynslu úr lyfjaiðnaði í bland
við unga og efnilega vísindamenn
og sérfræðinga,“ segir Hildur
Hörn en þau störf sem auglýst
voru í vor sneru aðallega að fólki
með háskólamenntun á sviði líf-,
raun- og lyfjavísinda eða verk-
fræði.
Starfsemi Alvotech felst í þró-
un og framleiðslu líftæknilyfja
sem eru notuð til meðferðar á erf-
iðum sjúkdómum eins og gigt,
psoriasis og krabbameini. Þróun-
ar- og framleiðslusetur fyrir-
tækisins á Íslandi er búið full-
komnum tækjum og búnaði og
hefur fyrirtækið nú þegar fengið
framleiðsluleyfi og gæðavottun.
Hátæknisetrið er hluti af Vís-
indagörðum Háskóla Íslands í
Vatnsmýrinni og er um 13 þúsund
fermetrar að stærð.
Hafa ráðið 138 manns í ár
Fjölgun Starfsmönnum Alvotech hefur fjölgað umtalsvert í ár. Myndin er
tekin þegar tíu ára afmæli Alvogen og sex ára afmæli Alvotech var fagnað.
Mikill uppgang-
ur hjá Alvotech
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta segir svolítið um markaðinn.
Fólk heldur meira að sér höndum
og velur betur,“ segir Hrefna Sif
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
miðasöluvefsins Tix.is, um sölu á
jólatónleika í ár.
Tímabil jólatónleika rennur senn
upp og nú slást tónleikahaldarar
um hylli miðakaupenda. Miðasala á
stærstu tónleikana virðist færast
framar á hverju ári og varla var
búið að hringja skólabjöllum í haust
þegar auglýsingar um jólatónleika
fóru að dynja á landsmönnum.
Framboðið virðist þó minna í ár en
í fyrra. Lausleg yfirreið Morgun-
blaðsins á miðasöluvefjum sýnir að
hægt er að velja úr 97 jóla-
tónleikum að þessu sinni. Sams
konar úttekt á sama tíma í fyrra
leiddi í ljós að 115 jólatónleikar
voru auglýstir. Þótt fleiri tónleikar
eigi eflaust eftir að bætast við virð-
ist ljóst að einhver mettun er orðin
á markaðnum. Þessi fækkun nemur
tæpum 16% milli ára.
Fer hægar af stað í ár
Einnig er áhugavert að miðasala
virðist fara hægar af stað en verið
hefur. Þannig mátti í gær ennþá
kaupa miða á átta af átján tón-
leikum Baggalúts. Síðustu ár hefur
alltaf selst fljótt
og vel upp á tón-
leika sveitar-
innar, stundum
sama dag og sala
hófst.
„Ég get ekki
neitað því að það
er líka okkar til-
finning að þetta
fari hægar af
stað í ár en áður.
Það sést til dæmis á sölunni á tón-
leika Baggalúts,“ segir Hrefna hjá
Tix.is.
Hún kveðst ekki skynja að fram-
boð á jólatónleikum hafi minnkað
þótt það kunni að vera. „En að-
sóknin er hægari. Við finnum að
það er alla jafna þannig og höfum
mælt með því við tónleikahaldara
að byrja á færri tónleikum og bæta
frekar við aukatónleikum. Maður
skynjar að það er ekkert öruggt í
þessu.“
Breytt kauphegðun
Hrefna segir að þeirrar þróunar
hafi gætt þegar í fyrra að kaup-
hegðun væri farin að breytast. Fólk
ryki ekki endilega til um leið og
miðasala væri auglýst. „Fólk er
ekkert að drífa sig. Þetta var byrj-
að í fyrra og er meira nú. Fólk bíð-
ur bara og kaupir miða stuttu fyrir
ef það eru lausir miðar.“
Færri jólatónleikar og minni sala
Alls eru 97 jólatónleikar auglýstir í ár, 16% færri en á sama tíma í fyrra Enn til miðar á tónleika
Baggalúts sem seljast jafnan hratt upp Mettun á markaði Fólk fer sér hægar nú, segir miðasali
Framboð á jóla-
tónleikum í ár
Þó færri jólatónleikar
standi landsmönnum til
boða í ár en á sama tíma
í fyrra er úrvalið samt
stórgott.
Erfi tt er að giska á fjölda
gesta á þessum
jólatónleikum en ljóst
er að þeir munu hlaupa
á tugum þúsunda.
18 Baggalútsmenn eru sem fyrr stórtækastir og hafa auglýst 18 tónleika í Háskólabíói. Nú ber þó svo við að enn eru fáanlegir
miðar á 8 þeirra en oft hefur selst upp á alla tónleikana á einum degi.
167.000.000 Meðlimir Baggalúts verða ekki á fl æðiskeri staddir eftir jólatónleikatörnina, frekar en fyrri
ár. Ef uppselt verður á alla tónleikana nemur innkoman 167 m.kr. Það er tíu millj-
ónum meira en í fyrra enda hefur miðaverð verið hækkað um rífl ega 500 krónur.
16.900 Dýrustu sætin
á jólatónleika í ár eru á The
Las Vegas Christmas Show
sem Geir Ólafsson heldur
í Gamla bíói. Það er um
tvö þúsund krónum dýrara
en á sömu tónleika í fyrra.
Dýrustu miðarnir á Jólagesti
Björgvins kosta 14.990 sem
er sama verð og í fyrra.
16% Þetta eru heldur
færri tónleikar en
á sama tíma í fyrra.
Nemur fækkunin rétt
tæpum 16% sam-
kvæmt könnun
Morgun-
blaðsins.
97 jólatónleikar verða haldnir um allt land þetta árið. Er þá miðað við þá sem eru
komnir í sölu á Tix.is og Miða.is. Viðbúið er að
enn fl eiri tónleikar verði í boði.
13 Þetta er þrett-ánda árið sem
Björgvin Halldórsson
heldur sína Jólagesta-
tónleika. Fernir tónleikar
hafa verið
auglýstir en
þeir voru alls
fi mm í fyrra.
Meðal gesta
eru GDRN,
Auður og
Birgitta
Haukdal.
Jul
det’
cool
Hrefna Sif
Jónsdóttir
Starfsmaður embættis forseta Ís-
lands gerðist sekur um „óþolandi at-
hæfi“, meðal annars kynferðislega
áreitni í opnu rými, gagnvart tveim-
ur samstarfsmönnum sínum í vinnu-
og námsferð starfsmanna embættis-
ins til Parísar 13.-16. september síð-
astliðinn.
Gripu til viðeigandi aðgerða
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
forseta Íslands sem birt var í gær í
kjölfar fréttar á vef Fréttablaðsins
þar sem greint var frá því að tvær
kvartanir hefðu borist til forseta
vegna kynferðislegrar áreitni í garð
samstarfskvenna.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
eftir heimkomu hafi embættið gripið
til viðeigandi aðgerða, m.a. með hlið-
sjón af stefnu og áætlun Stjórnar-
ráðsins gegn einelti, kynferðislegri
áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi
og annarri ótilhlýðilegri háttsemi.
Fékk skriflega áminningu
Fór starfsmaðurinn í leyfi og veitti
forsetaritari honum skriflega áminn-
ingu auk þess sem honum var gert
ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Í
yfirlýsingunni kemur jafnframt fram
að starfsmanninum hafi nú verið
heimilað að snúa aftur til starfa með
samþykki samstarfsmanna sinna
eftir að hann hafi beðið hluteigandi
afsökunar og leitað sér sérfræði-
aðstoðar.
„Þeir aðilar sem brotið var gegn –
ágætt samstarfsfólk mitt – hafa í öllu
ferlinu verið upplýstir um stöðu og
þróun mála og hafa fallist á þær
ákvarðanir sem teknar hafa verið,
án þess auðvitað að þurfa að bera að
nokkru leyti ábyrgð á brotum sem
þeir þurftu að þola,“ segir forsetinn í
yfirlýsingunni.
Í frétt mbl.is um málið kemur
fram að samkvæmt upplýsingum á
vef embættis forseta Íslands séu
starfsmenn embættisins níu talsins,
fimm karlar og fjórar konur.
Áreitti samstarfsfólk sitt
Var í vinnuferð á vegum embættis forseta Íslands
Viðkomandi hefur nú verið heimilað að snúa aftur til starfa
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir nýsköpunarráðherra kynnti í
gær nýja nýsköpunarstefnu fyrir
Ísland í Sjávarklasanum. Er stefn-
unni ætlað að gera Ísland betur í
stakk búið til að mæta áskorunum
framtíðarinnar með því að byggja
upp traustan grundvöll fyrir hug-
vitsdrifna nýsköpun á öllum svið-
um. „Nýsköpun er ekki lúxus,“ er
haft eftir ráðherranum í tilkynn-
ingu vegna þessa.
Nýsköpun í Sjávarklasa
Morgunblaðið/Eggert
Nýsköpun Vel var mætt á samkomuna þar sem nýsköpunarstefna Íslands
var kynnt í Sjávarklasanum í gær. Ráðherra var meðal ræðumanna.