Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Stundum er látið eins og um-ræðum eigi að ljúka þegar
vísindamenn hafa tjáð sig. Í það
minnsta ef flestir þeirra virðast á
einu máli og fáir stíga fram og
viðra aðra skoð-
un. Í ritstjórnar-
grein The Wall
Street Journal í
vikunni var bent
á að ríkisvaldið
og heilbrigðis-
stofnanir hefðu
haldið því að fólki að rautt kjöt
væri slæmt fyrir heilsuna og
tengdist fjölda sjúkdóma. „En
hópur alþjóðlegra vísindamanna
sem lagði mat á meira en 130
greinar og tugi rannsókna með
tilviljanakenndum prófunum
komst að þeirri niðurstöðu að
sönnunargögnin sem tengdu rautt
kjöt við krabbamein, hjarta-
sjúkdóma og dauðsföll væru vafa-
söm,“ segir WSJ.
Þá benti blaðið á að fyrir þrjá-tíu árum hefði fólki verið
sagt að borða minni fitu, „en vís-
indamenn hafa eftir það komist
að þeirri niðurstöðu að þetta var
slæm ráðgjöf og kann að hafa
stuðlað að sykursýkisfaraldri með
því að ýta undir aukna neyslu á
kolvetnum“.
Loks kemur fram að nú hafilæknar sem vilji ýta undir
grænmetisfæði lagt fram kvörtun
hjá yfirvöldum gegn blaðinu,
Annals of Internal Medicine, sem
birti ofangreinda rannsókn um
vísindagreinarnar um rauða kjöt-
ið. Og T.H. Chan School of Public
Health í Harvark heldur því fram
að niðurstaðan kunni að „draga
úr trausti almennings á vísinda-
rannsóknum“.
En ætli traust á vísindarann-sóknum sé ekki frekar í
hættu ef reynt er að þagga niður
umræður um vísindarannsóknir.
Vísindalegar
staðreyndir?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Tækifæri og áskoranir við
uppbyggingu smávirkjana á Íslandi
Ráðstefna á Grand Hótel 17. október 2019
08:00 Skráning og morgunverður
08:30 Setning ráðstefnu
- Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
08:40 Ávarp ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
08:50 Öryggisstjórnkerfi virkjana
- Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur
hjá Mannvirkjastofnun
09:10 Umhverfismat fyrir smærri virkjanir - Jakob Gunnarsson,
sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun
09:30 Smávirkjanir og dreifikerfið
- Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóri tæknisviðs hjá RARIK
09:50 Kaffihlé
10:10 Smávirkjanir og flutningskerfið
- Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri
þróunar- og tæknisviðs
10:30 Fjármögnun smávirkjana - Aðalsteinn Þorsteinsson,
forstjóri Byggðastofnunar
10:50 Smávirkjanir í Noregi - Knut Olav Tveit,
Daglig leder, Småkraftforeningen
11:10 Hafa orkufyrirtækin áhuga á að kaupa orku
frá smávirkjunum - Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri
framleiðslu og sölu hjá HS Orku
11:30 Virkjanasaga Húsafells - Arnar Bergþórsson,
stjórnarformaður Arnarlækjar
11:50 Samantekt og fundi slitið
Fundarstjóri Erla Björk Þorgeirsdóttir verkefnisstjóri hjá Orkustofnun
Skráning á fundinn og útsending frá fundinum er á os.is
ndi
r
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meðferðartími mála hjá úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála
styttist smám saman. Hann er þó
enn um níu mánuðir. Formaður
nefndarinnar vonast til þess að
snemma á næsta ári verði málsmeð-
ferðartíminn kominn niður í sex mán-
uði.
Á þriðja fjórðungi þessa árs bárust
nefndinni 53 kærur sem er heldur
meira en barst samtals fyrstu sex
mánuði ársins. Á vef nefndarinnar
kemur fram að vegna aukningarinn-
ar séu líkur á því að kærumál ársins í
heild verði heldur fleiri en meðaltal
áranna 2012-2015. Samkvæmt því
verða kærurnar að minnsta kosti 160
talsins sem er aðeins meira en síð-
ustu tvö ár og gæti fjöldinn farið hátt
í það sem nefndin þurfti að fást við á
árinu 2016 sem var metár í sögu
hennar.
Meðalmálsmeðferðartími mála
sem nefndin afgreiddi á þriðja árs-
fjórðungi var sjö og hálfur mánuður
og þegar litið er til fyrstu þriggja
fjórðunga ársins sést að hann hefur
verið tæpir níu mánuðir. Hefur máls-
meðferðartími ekki verið styttri frá
árinu 2017. Gert er ráð fyrir að máls-
meðferðartími ársins í heild verði
ekki meiri en 290 dagar, eða nokkuð
á tíunda mánuð.
Nanna Magnadóttir, formaður úr-
skurðarnefndarinnar og forstöðu-
maður skrifstofu hennar, segir að
gott jafnvægi sé í kærum og með-
ferðartíma. Skrifstofan sé vel mönn-
uð sem og nefndin og gera megi ráð
fyrir að meðal-meðferðartími haldi
áfram að styttast, sérstaklega eftir
að lokið sé við kúf af eldri málum. Nú
eru 10 starfsmenn á skrifstofu nefnd-
arinnar, þar með taldir formaður og
varaformaður nefndarinnar sem þar
eru í fullu starfi. Að auki eru sjö
nefndarmenn í úrskurðarnefndinni.
Lögboðið er að meðferð mála taki
ekki lengri tíma en þrjá mánuði en
sex ef mál eru viðamikil. Er þá talið
frá þeim tíma sem öll gögn hafa bor-
ist nefndinni. Nanna gerir ráð fyrir
að við lok fyrsta fjórðungs næsta árs
verði mál ekki eldri en sex mánaða.
Þá verði hægt að ganga í það verk að
flokka þau í almenn mál og viðameiri
og ljúka þeim í kjölfarið á þeim tíma
sem miðað er við.
Stefnir í að hægt verði að
afgreiða kærur á hálfu ári
Úrskurðarnefnd
umhverfismála
saxar á biðlistann
Afgreiðslutími styttist
Kærufjöldi Kærufjöldi Meðalafgreiðslutími
Meðalafgreiðslu-
tími, dagar
200
150
100
50
0
600
475
350
225
100
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
*Áætlun. Heimild: uua.is.
114
128
118
175
158 153
170*
213
302
364
285 276
321
290*
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín-
um í gærmorgun að veita listakon-
unni Steinunni Þórarinsdóttur sex
milljónir króna af ráðstöfunarfé
ríkisstjórnarinnar vegna listaverks
hennar „Tákn“ sem stendur á þak-
brún Arnarhvols, húsnæðis fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins.
Þetta kemur fram á vef Stjórnar-
ráðsins. Þar segir að verkið gæti
verið uppi í eitt ár í viðbót eða til
októbermánaðar 2020.
Listaverkið er af ellefu mann-
verum í líkamsstærð og hefur hlot-
ið mikla athygli frá því það var sett
upp í maí síðastliðnum. Tengist inn-
setningin því að á árinu 2019 varp-
ar Listasafn Reykjavíkur ljósi á list
í almenningsrými, að því er segir á
vef Stjórnarráðsins.
Fær sex milljónir fyrir listaverkið „Tákn“
Ljósmynd/Stjórnarráðið
Tákn Listaverkið mun standa áfram.
Atvinna