Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ágætlega lítur út með bókanir og
aðsókn í norðurljósaferðir í vetur.
Norðurljósin voru með öflugasta
móti um síðustu helgi og dagana
þar á undan og voru þá gerðir út
fjölmennir leiðangrar austur á
Þingvelli, að Stafnesi og í Ósa-
botna á Reykjanesi, staði þar sem
reynsla sýnir að vel sjáist til norð-
urljósa.
Fylgjast grannt með spám
„Einmitt núna er virkni norður-
ljósa lítil og svo verður fram undir
næstu mánaðamót. Við fylgjumst
grannt með norðurljósaspám Veð-
urstofunnar og
fleiri og högum
ferðum sam-
kvæmt því,“ seg-
ir Haukur Júl-
íusson hjá
Kynnisferðum –
Reykjavik Ex-
cursions.
Fyrstu norð-
urljósaferðirnar
á þessu hausti
voru farnar um
25. ágúst og svo dagana þar á eft-
ir. Bretar, Frakkar og Þjóðverjar
voru áberandi meðal farþega þá.
Fólk frá til dæmis Japan og Kína,
verður svo meira áberandi í far-
þegahópnum þegar líða tekur á
veturinn. Í Austurlöndum fjær er
trú fólks raunar sú að sjái elsk-
endur til norðurljósa boði það
gæfu og ávöxt ástar. Gifting og
norðurljósferð er vinsæl tvenna.
Þegar best lætur senda Kynn-
isferðir út 5-10 rútur í norður-
ljósaferðir og stundum fleiri.
Flestir hafa farþegar á einu kvöldi
verið um 1.300. Þá er lagt af stað
frá Reykjavík snemma kvölds og
komið aftur í bæinn um miðnæt-
urbil. Í flestum tilvikum reynist
líka norðurljós að sjá, enda hafa
leiðsögumenn og leiðangursstjórar
líka góða reynslu í því að finna
stað þar sem norðurljósin sýna sig
vel.
Ýmsir fleiri gera út norðurljósa-
leiðangra, svo sem smærri ferða-
þjónustufyrirtæki sem gera út
jeppa og bjóða upp á einkaferðir.
Á þeirra vegum var meðal annars
farið austur fyrir fjall og þótti
sérstaklega áhrifaríkt að sjá til
norðurljósa frá gömlu Þjórsár-
brúnni. Meðal annars kom Hval-
fjörðurinn sterkur inn.
Breska stúlkan beygði af
„Norðurljósaferðirnar eru
skemmtilegar,“ segir Flosi Krist-
jánsson leiðsögumaður. „Einstaka
farþegar vænta meira en þeir sjá.
Miklu fleiri eru þó heillaðir af
dýrðinni. Ég man eftir leiðangri í
fyrravetur þar sem við stóðum í
næðingskulda á biksvörtu kvöldi
austur á Bláskógaheiði þar sem
norðurljósin bókstaflega áttu
sviðið og allan himininn. Bresk
stúlka sem þarna var með í för
beygði af þegar hún sá dýrðina,
en þetta var hennar fjórða tilraun
til að sjá norðurljósin sem loksins
tókst.“
Norðurljósin verða til þegar
hraðfleygar rafeindir frá sól rek-
ast á atóm og sameindir í loft-
hjúpi jarðar, yfirleitt í um 100 km
hæð, segir á Stjörnufræðivefnum.
Algengustu litir norðurljósa eru
gulgrænn, grænn og rauður sem
súrefni gefur frá sé. Rauðleit og
fjólublá litbrigði af völdum niturs
sjást stundum. Þegar norðurljós
eru dauf greinir augað enga liti
og þá sýnast þau gráhvít. Ekki er
þó alltaf auðvelt að sjá þessa
virkni sólarinnar fyrir – þó að
sólgos og kórónuskvettur hafi
stundum fyrirboða.
Norðurljósin eru sterkt aðdráttarafl
Skoðunarferðir á áætlun í allan vetur Spáð er mikilli virkni á næturhimninum um næstu mán-
aðamót Þingvellir og Ósabotnar eru góðir útsýnisstaðir Rafeindir frá sól rekast á atóm
Ljósm/Skúli Már Gunnarsson
Ljós Norðurljósin dönsuðu á næturhimni um sl. helgi og gamla Þjórsárbrúin var skemmtileg umgjörð sýningar.
Flosi
Kristjánsson
Ráðstefna um tækifæri á sviði
endurnýjanlegrar orku,
jarðvarma, orkunýtni o.fl.,
í Póllandi, Rúmeníu og Króatíu,
sem vinnur gegn hlýnun jarðar,
á vegum Uppbyggingasjóðs EES
Margir gestir frá opinberum aðilum,
borgum og bæjum þessara landa mæta.
Ráðstefnan verður á Grand hótel
23. október, kl. 9:00 – 14:00
Dagskrá
9:00 Ávarp – Utanríkisráðuneyti og Orkustofnun
9:15 Kynning á tækifærum í
Póllandi, Rúmeníu og Króatíu
10:15 Kynning á fyrirtækjum á Íslandi
11.30 Viðræður um samstarf á milli fyrirtækja
og landa
14:00 Fundarlok
Þau fyrirtæki sem áhuga hafa á því að kynna sína
starfsemi á fundinum, eru beðin að hafa samband
við Orkustofnun, í síma 569 6000 eða með
tölvupósti os@os.is - Skráning fyrir alla er á os.is
Utanríkisráðuneytið
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Fyrirtæki til sölu
Ráðgjafar / eigendur
Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA
Gsm. 8939855
Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA
Gsm. 8939370
•Öflugt fyrirtæki í eigin húsnæði sem flytur inn rekstrar- og fjárfestingarvörur
fyrir lagera, verslanir og opinberar stofnanir. Jöfn og góð afkoma.
• Sérhæft fyrirtæki sem vinnur aukaafurðir úr fiski og selur erlendis. Velta er
um 700 mkr. og góð ebitda framlegð.
• Sérhæfð gjafavöruverslun í miðborg Reykjavíkur sem hefur gengið mjög vel.
Velta tæpar 100 mkr.
•Áhugavert fyrirtæki sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðferð á málmi og þjónar
fjölda viðskiptavina. Stöðugur og góður rekstur.
•Nokkur smáfyrirtæki í sérhæfðum rekstri eru í sölumeðferð hjá okkur.
•Veitingarekstur í einum af stærstu golfvöllum landsins. Mjög góð aðstaða og
tækjabúnaður til veitingareksturs og veisluþjónustu. Hagstætt verð.
•Veitingarekstur í tveimur af helstu mathöllum Reykjavíkur. Stöðugur rekstur
með frábæran búnað.
• Leigusamningur og innréttingar veitingastaðar við höfnina í Reykjavík.
•Áhugavert fyrirtæki í gistiþjónustu á Suðurlandi sem skilar góðum hagnaði.
• Sérhæfð sælkeraverslun á Laugavegi með mikla sérstöðu.
• Icelandic Fish & Chips í miðbæ Reykjavíkur. Góður rekstur með mikla mögu-
leika.
•Mjög arðbær verslun með ís og veitingar í Reykjanesbæ. Fyrirtæki er í eigin
húsnæði. Stöðugur hagnaður, miklir möguleikar
Fjöldi annarra viðskiptatækifæra eru í sölumeðferð hjá okkur.
Hafið samband og leitið upplýsinga.
Látið okkur vita ef fyrirtæki ykkar eru til sölu. Setjum upp fjárfestaskýrslur
með verðmati sem er byggt á þekktum verðmatsaðferðum
Sérsveit ríkislögreglustjóra réðst
inn í bakhús í Síðumúla í Reykjavík
um klukkan hálffjögur í gær og
handtók þar tvo karlmenn. Báru
sérsveitarmenn bæði skotvopn og
hlífðarskildi í aðgerðinni, en til-
kynnt var um skotvopn innandyra.
Við nánari athugun reyndist það
vera eftirlíking.
„Það kom þarna sveit alvopnaðra
lögreglumanna og réðst þarna inn.
Svo heyrðust hljóð og læti og ein-
hverjir hlupu þarna eitthvað í burtu
og löggan á eftir þeim. Öllum nær-
stöddum var nokkuð brugðið,“ seg-
ir Kristján B. Jónasson, sem varð
vitni að atburðarásinni, við mbl.is í
gærkvöld.
Tveir handteknir í aðgerð sérsveitar RLS
Rúmlega sjötug kona hefur verið
dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir til-
raun til manndráps. Dómurinn var
kveðinn upp í maí sl. en birtur á vef
dómstólanna í gær. Konan, sem bú-
sett er á Akranesi, stakk tengdason
sinn með hnífi í nóvember í fyrra.
Konan var á heimili dóttur sinnar
og tengdasonar á Akranesi þegar at-
vikið átti sér stað, en þar var hún að
passa barnabarn sitt umrætt kvöld.
Eftir að maðurinn kom heim átti kon-
an í útistöðum við hann áður en hann
fór að sofa. Maðurinn vaknaði svo við
konuna í svefnherberginu þar sem
hún var með hníf í hendi. Þegar hann
gerði svo tilraun til að koma henni út
úr herberginu réðst hún að honum
með þeim afleiðingum að hann hlaut
fjögurra sentimetra stungusár hægra
megin á brjóstkassa. Fram kom fyrir
dómi að mjög hefði blætt úr sárinu.
Í vottorði læknis kemur fram að
árásin hafi verið lífshættuleg og var
það einungis heppni að hnífurinn
gekk niður á rif og rann eftir rifj-
unum utan við brjóstholið. Er það
mat læknisins að hnífurinn hefði auð-
veldlega getað farið milli rifja og inn í
brjósthol. Slíkt hefði haft í för með
sér mun alvarlegri áverka.
Fyrir dómi neitaði konan að hafa
stungið manninn og sagði líklegast að
hann hefði gengið á hnífinn. Dóm-
urinn tók hins vegar ekki undir þá af-
stöðu konunnar og sagði framburð
hennar „fjarstæðukenndan“ og að
engin rök styddu frásögn hennar. Þá
hafði konan drukkið áður en árásin
átti sér stað og mældist með 1,94 pró-
mill í blóðinu við skoðun. Dómnum
hefur verið áfrýjað.
Eldri kona
fékk
fjögurra
ára dóm
Reyndi að drepa
tengdason sinn