Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Landmám eyruglu hér á landi í
kringum síðustu aldamót hefur ekki
gengið þrautalaust fyrir sig. Bæði í
ár og í fyrrasumar er talið að henni
hafi gengið erfiðlega að koma upp
ungum. Getgátur eru um að vosbúð
vegna rigninga og kulda hafi gert
eyruglu og ungum hennar erfitt fyrir
í fyrra. Í sumar
hafi þurrkar hins
vegar sett strik í
reikninginn og
haft áhrif á fæðu-
framboð.
Gunnar Þór
Hallgrímsson,
fuglafræðingur
og prófessor í
dýrafræði við Há-
skóla Íslands,
hefur síðustu tvö
ár fylgst skipulega með eyruglu og
branduglu hér á landi. Hann segir að
þessar rannsóknir séu skammt á veg
komnar og því beri að forðast full-
yrðingar um lífshætti og afkomu
þeirra. Hann dregur þó ekki dul á að
það sé spennandi verkefni að fylgjast
með þessum hljóðlátu ránfuglum.
„Ég viðurkenni fúslega að þó að ég
starfi við fuglarannsóknir og lifi og
hrærist í þessum heimi þá tekur
hjartað aukaslag þegar ég sé brand-
uglu eða eyruglu. Um snæugluna,
þann tignarlega fugl, talar fugla-
áhugafólk almennt af lotningu. Hún
er sjaldgæf á alþjóðavísu og hér-
lendis er hún á mörkunum að geta
talist varpfugl. Það eru forréttindi að
hafa tækifæri til að vinna með þessar
tegundir,“ segir Gunnar.
Ekki stórir stofnar
Um stofnstærð fyrrnefndra uglu-
tegunda liggja nákvæmar upplýs-
ingar ekki fyrir. Ef miðað er við
meðaltal síðustu tveggja ára þá voru
þekkt 10-15 óðul eyruglu á sunnan-
verðu landinu en raunveruleg stofn-
stærð er óþekkt. Branduglur eru
mun fleiri og á láglendi um allt land,
en alls gætu varppörin verið 4-500.
Óðul snæuglu áætlar Gunnar Þór, án
ábyrgðar, að geti verið teljandi á
fingrum annarrar handar.
„Landnám eyruglu er staðreynd,
en hægt er að fullyrða að hún sé
sjaldgæf hér á landi þrátt fyrir að
upplýsingar séu af skornum
skammti. Við höfum leitað hennar í
tvö ár nokkuð ítarlega og hún er ekki
orðin mjög útbreidd. Það hjálpar
okkur ekki í þessari vinnu að eyr-
uglan er mjög felugjarn fugl og get-
ur verið í námunda við bústaði eða
þar sem fólk er á ferli en verður
hennar ekki vart,“ segir Gunnar.
Aðspurður segir hann að ekki
þurfi að vera þversögn í því að vot-
viðri hafi þrengt að eyruglu sumarið
2018, en þurrkar hafi haft slæm áhrif
í sumar sem leið.
„Samkvæmt greiningum á fæðu-
leifum íslenskra eyrugla síðastliðin
tvö ár eru hagamýs uppistaðan í
vetrarfæðu þeirra, en yfir ungatím-
ann á sumrin er fæðan fjölbreyttari
og hún étur meira af fuglum, til
dæmis þresti og hrossagauka. Þær
tegundir eru háðar nægu framboði
af ánamöðkum, sem ekki er að heilsa
í miklum þurrkum, sem aftur kemur
niður á þessum fuglum og gæti síðan
komið niður á eyruglunni ef hún
treystir á þá sem fæðu,“ segir Gunn-
ar. Á liðnu sumri komu eyrugluung-
ar fram á níu óðulum en óljóst er
hversu margir ungar komust á legg.
Ekki stúfmýs og læmingjar
Gunnar segir afkomubrestinn
hafa verið skýran sumarið 2018 þeg-
ar væta og kuldi réðu ríkjum svo vik-
um skipti, en þá komu aðeins fram
ungar á þremur óðulum sem hurfu
fljótlega og hafa líklega drepist.
Hann segir að eyruglur hafi lausan
fjaðraham, ólíkt til dæmis vaðfuglum
og sjófuglum, og þoli illa langvarandi
bleytu.
„Svo má spyrja hvort eðlilegt sé að
eyrugla komi upp mörgum ungum á
hverju ári. Við vitum ekki nákvæm-
lega um fæðu þeirra og hér á landi
eru ekki þessir stóru nagdýrastofnar
eins og stúfmýs og læmingjar sem
eru víða hennar helsta fæða. Þessa
hópa vantar hér á landi og ef eyrugl-
an ætlar að sérhæfa sig í nagdýrum
hér þá hefur hún í raun bara haga-
músina sem eina kostinn. En hún
hefur líka þann möguleika að til-
einka sér fjölbreyttara fæðuval og
éta fugla í auknum mæli en hvernig
þessu er raunverulega háttað kemur
í ljós með áframhaldandi rann-
sóknum,“ segir Gunnar Þór.
Úhh – úhh – úhh
Á heimasíðu Náttúruminjasafns-
ins, nmsi.is, fjallar Jóhann Óli Hilm-
arsson fuglafræðingur um eyruglu.
Þar segir að eyruglan sé ánægjuleg
viðbót við fátæklega íslenska uglu-
fánu. Ástæðan fyrir fáum tegundum
af ættbálki ugla hér á landi, miðað
við grannlöndin, sé fábreytt nag-
dýrafána, en nagdýr séu alfæða
flestra ugla.
Hann segir eyruglu vera meðal-
stóra uglu, náskylda og mjög líka
branduglu. „Hún er auðgreind á
löngum fjaðraeyrum sem sjást að-
eins þegar fuglinn situr. Eyrun hafa
ekkert með heyrn fuglsins að gera,“
skrifar Jóhann Óli.
Þó svo að eyruglan sé mun laumu-
legri en branduglan er auðveldast að
staðfesta varp hennar með því að
hlusta vel eftir henni á síðkvöldum;
síðla vetrar tilkynna karlarnir yfir-
ráð sín yfir óðulum með söng: úhh –
úhh – úhh. Hljóðið sem stálpaðir
ungar gefa frá sér þegar þeir betla
mat er áberandi, sérstaklega þegar
foreldrarnir eru nærri, segir á vefn-
um.
Hjartað tekur aukaslag
Landnám eyruglu ekki þrautalaust Ánægjuleg viðbót við fátæklega íslenska uglufánu Síðustu
tvö ár eru þekkt 10-15 óðul eyruglu Fuglafræðingur segir áhugamenn tala um snæuglu af lotningu
Ljósmynd/Alex Máni Guðríðarson
Með bráð Eyrugla með hagamús í gogginum, en nagdýr eru helsta fæða hennar. Hún étur þó einnig fugla hérlendis.
Ljósmynd/Alex Máni
Eyrugla Hefur orpið hér í um 20 ár.
Gunnar Þór
Hallgrímsson
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Snæugla Sjaldgæf og tignarleg.
Ljósmynd/Alex Máni
Brandugla Finnst um allt land.
Spurður hvort varp nýrrar tegundar
hafi verið staðfest í sumar segir
Gunnar Þór svo ekki vera. Meðal
sjaldgæfra tegunda nefnir hann
grátrönu, en svo virðist sem teg-
undin hafi verið að koma sér fyrir
síðustu ár. Vart varð við varp silki-
toppu á þremur stöðum í sumar.
Varp hennar hefur verið staðfest
einu sinni áður, og þá einnig á þrem-
ur stöðum.
Fullorðnar og ungar landsvölur
hafa sést við Höfn í Hornafirði sem
bendir til varps. Hann segir að einnig
sé spurning hvort hettusöngvari hafi
orpið hér í sumar en nokkrir fuglar
sáust í skógarlundi við Skóga síð-
sumars og það gæti bent til varps.
„Í Evrópu eru margar tegundir
skógarfugla og þar á meðal tegundir
sem hafa möguleika á að flækjast
hingað og setjast hér að. Með hlýrra
veðurfari og stækkun búsvæða með
skógrækt opnast möguleikar fyrir
þessar tegundir,“ segir Gunnar.
Sóknarfæri fyrir skógarfugla
HLÝRRA VEÐURFAR OG STÆKKUN BÚSVÆÐA
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Vetur Varp silkitoppu var staðfest í
sumar, en þær hafa verið óreglulegir
gestir á landinu í mörg ár.
GRÆNT ALLA LEIÐ