Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eins og landsmenn hafa vafalaust
tekið eftir í fjölmiðlum og á sam-
félagsmiðlum undanfarna daga þá er
hafin markaðsherferð um Selfoss, þar
sem kostir bæjarins eru tíundaðir í
laglegum auglýsingum. Herferðin er
afrakstur af samstarfi sveitarfé-
lagsins Árborgar og nokkurra lykil-
fyrirtækja á Selfossi, sem ákváðu að
vinna saman að því að hafa áhrif á
ímynd bæjarins.
Vignir Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri sjálfseignarstofnunarinnar
Höfuðstaður Suðurlands ses. sem var
sérstaklega stofnuð utan um verkefn-
ið, segir að eftir að jákvæð niðurstaða
íbúakosningar um nýjan miðbæ á Sel-
fossi lá fyrir í ágúst í fyrra, þar sem
hugmyndirnar um miðbæinn voru
samþykktar með 60% atkvæða, hafi
verið farið á fullt í ákveðna greiningar
– og rannsóknarvinnu sem snéri að
vörumerkinu Selfossi.
„Stóra niðurstaðan var sú í einföldu
máli, að þú getur ekki tekið miðbæ í
einhverjum bæ og markaðssett hann
út úr heildarsamhenginu. Ekki væri
hægt að tala um miðbæ Selfoss öðru-
vísi en að ræða um Selfoss sem bæ.
Það var lykilniðurstaðan,“ segir Vign-
ir.
Fordómar til staðar
Hann segir að í þessari greining-
arvinnu hafi komið ýmislegt forvitni-
legt í ljós varðandi viðhorf fólks utan
og innan bæjarins til Selfoss. „Í ljós
kom að viðhorf þeirra sem standa ut-
an bæjarins mætti vera betra. Það
eru ákveðnir fordómar í gangi. Menn
minntust á bílaumferð, margmenni,
skyndibita og svo ákveðna fortíðar-
drauga sem ákveðin kynslóð tengir
við Selfoss, eins og aflitað hár, spoil-
era, buffalo-skó, hnakka og fleira.“
Vignir segir að viðhorf þeirra sem
búa í bænum, eða komi þangað reglu-
lega, hafi einnig verið skoðað, og þá
hafi önnur mynd komið í ljós. „Því
fólki líður ofboðslega vel, og þeir sem
eru aðfluttir tala um að þetta sé allt
öðruvísi bær en þeir héldu. Það var til
dæmis talað um að þetta væri frábær
staður til að ala upp börn. Þarna var
því komin ákveðin gjá, og við þurftum
að reyna að sýna fólki utan bæjarins
fram á hvernig bærinn raunverulega
er. Í grunninn snýst þetta um ímynd
og ásýnd og þannig verður þetta
markaðsátak til.“
Vignir segir að áætlun hafi verið
lögð fyrir nokkur lykilfyrirtæki í
bænum og svo sveitarfélagið sjálft. Á
endanum hafi allir verið tilbúnir „að
taka slaginn“ og hefja þessa vegferð.
„Það er aðdáunarvert, og ég held að
ég geti fullyrt að þetta hafi ekki verið
gert með þessum hætti áður hjá neinu
sveitarfélagi hér á landi.“
Kostnaður 30-35 milljónir
Heildarkostnaður verkefnisins er
áætlaður 30-35 milljónir króna. Fyrir-
tæki greiða 75% þeirrar upphæðar og
og Árborg um fjórðung.
„Við erum með Íslensku auglýs-
ingastofuna með okkur í þessu, en
hún vann til dæmis með Íslandsstofu
að Inspired by Iceland markaðsher-
ferðinni. Það er ekkert launungarmál
að sú herferð er ákveðin fyrirmynd
fyrir okkur, enda gott dæmi um vel
heppnað samstarf opinberra og
einkaaðila. Við erum náttúrulega á
miklu minni skala en leyfum okkur
stundum að kalla þetta Inspired by
Selfoss.“
Vignir segir að markmið herferð-
arinnar sé að skapa Selfossi jákvæð-
ari ímynd.
Eins og kom fram í samtali við
Bárð Guðmundsson skipulags- og
byggingarfulltrúa Árborgar, í Morg-
unblaðinu fyrir ári síðan, er áformað
að byggja um 200 íbúðir ár hvert í
bænum árin 2019 til 2021. Á næsta ári
mun hefjast uppbygging á nýju
hverfi, svokölluðu Björkurstykki, þar
sem gert er ráð fyrir skóla sem getur
tekið við allt að 700 börnum.
„Þessi herferð er fyrsta skrefið í
langtímaverkefni og leggur grunninn
fyrir komandi tíma. Jákvæðara við-
horf styrkir miklu fleiri stoðir en
möguleika til búsetu. Fleiri fjölskyld-
ur munu vonandi fara í sunnudags-
bíltúr á Selfoss, fleiri munu sækjast
eftir því að halda þar viðburði eða
árshátíðir, og svo framvegis. Að því
leyti er þetta mjög framsýnt af sveit-
arfélaginu,“ segir Vignir.
Íslenskt handverk í miðbæ
Vignir er jafnframt markaðsstjóri
Sigtúns Þróunarfélags sem annast
uppbyggingu nýs miðbæjar á Sel-
fossi. Framkvæmdir eru hafnar og er
ráðgert að endurbyggja þekkt gömul
íslensk hús „Þarna er íslenskt hand-
verk í aðalhlutverki og við leikum
okkur að spila saman nýju og gömlu á
fjölbreyttan hátt. Þetta verður ein-
stakur miðbær, með flóru verslana og
veitingastaða, sem er ekki til staðar í
dag.“
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu hefur tveggja hekt-
ara svæði í hjarta bæjarins verið helg-
að þessum framkvæmdum.
Vignir segir að fyrri áfangi miðbæj-
arins verði opnaður vorið 2021 og
framkvæmdum verði að fullu lokið
2022-2023.
„Svo er ný brú í samgönguáætlun
sem kemur eftir nokkur ár. Þjóðveg-
urinn verður færður, sem mun stór-
lega draga úr umferð um bæinn. Þeir
sem ekki eiga erindi í bæinn munu
fara framhjá. Það hægist á umferð og
fyrir vikið verður Selfoss meira aðlað-
andi fyrir íbúa og gesti.“
Vignir segir að vel hafi gengið að fá
þjónustuaðila í nýja miðbæinn, og
nokkrir séu búnir að taka frá pláss.
„Við viljum skapa sérstöðu og hafa
verslanir og þjónustu sem eru öðru-
vísi. Þessi miðbær mun laða að sér
fólk og í því felast mikil tækifæri fyrir
rekstraraðila.“
Markaðsherferð Selfoss sækir
innblástur í Inspired by Iceland
Ekki hægt að taka miðbæinn út úr heildarsamhenginu Misræmi í upplifun
Ímynd
» Hnakkar, spoilerar, aflitað
hár, hluti af ímynd sem fólk
sem ekki býr í bænum hefur af
Selfossi.
» Íbúar sjá bæinn sem fjöl-
skylduvænan og góðan bæ til
að ala upp börn í.
Selfoss Í framtíðinni verður umferð beint fram hjá bænum. Þeir sem ekki
eiga erindi geta því ekið fram hjá. Selfoss verði meira aðlaðandi fyrir vikið.
Selfoss Þrjár fjölskyldur eru í aðalhlutverki. Njörður Steinarsson og Sally
Ann Vokes og börn; Aron Hinriksson og Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir og
börn; Grímur Hergeirsson, Björk Steindórsdóttir og börn.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
STUTT
● Samkvæmt
bráðabirgðatölum
fyrir september
2019 nam fob
verðmæti vöru-
útflutnings 50,9
milljörðum króna í
mánuðinum og fob
verðmæti vöruinn-
flutnings 68,0
milljörðum króna.
Vöruviðskiptin í
september, reiknuð á fob verðmæti,
voru því óhagstæð um 17,1 milljarð
króna.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hag-
stofu Íslands.
Í september 2018 voru vöru-
viðskiptin til samanburðar óhagstæð
um 14,3 milljarða króna á gengi hvors
árs. Í september 2019 var verðmæti
vöruútflutnings 2,1 milljarði króna
hærra en í september 2018. Verðmæti
vöruinnflutnings í september 2019 var
5,0 milljörðum króna hærra en í sept-
ember 2018.
Vöruviðskipti óhagstæð
í september um 17,1 ma.
Skip Innflutningur
var mikill.
● Krónan styrktist
um 2,5% í sept-
ember gagnvart
evru og stóð í 135
kr. í lok mánaðar-
ins í samanburði
við 138,4 kr. í lok
ágúst samkvæmt
Hagsjá Landsbank-
ans. Velta á
gjaldeyrismarkaði
jókst lítillega á milli
mánaða í september og var 16,2 ma. kr.
í samanburði við 14,2 ma. í ágúst.
Seðlabankinn greip inn í þann 16. sept-
ember og keypti evrur fyrir 2 ma.
Styrktist krónan um 1,2% þann dag.
Krónan styrktist í sept-
ember gagnvart evru
Gengi SÍ keypti
evrur fyrir 2 ma.
Aron Þórður Albertsson
skrifar frá Beijing
aronthordur@mbl.is
Netsölurisinn Alibaba Group Holding
hyggst á næstu árum einbeita sér í
auknum mæli að því að byggja fyrir-
tækið upp á alþjóðavísu. Þá verði
minni áhersla lögð á markaðssetn-
ingu á kínverskri grundu enda býr
fyrirtækið nú að gríðarlega stórum
viðskiptavinahópi þar í landi. Þetta
var meðal þess sem fram kom í til-
kynningu sem Alibaba sendi frá sér á
mánudag skömmu áður en fyrirtækið
hóf fjárfestakynningu sína í
Hangzhou í austurhluta Kína. Yfirlýs-
ingin var í takti við það sem Zhang
Yong, forstjóri Alibaba, hafði gefið út
á tuttugu ára afmæli fyrirtækisins 11.
september sl. Það var jafnframt
fyrsta yfirlýsing hans í starfi en hann
tók við sem forstjóri Alibaba 10. sept-
ember sl. af Jack Ma Yun.
„Sú staðreynd að Alibaba setur al-
þjóðavæðingu framar eftirspurn inn-
anlands sýnir að fyrirtækið er tilbúið
að veðja á meiri vöxt á alþjóðavísu en
innanlands. Það verður þó að teljast
eðlilegt enda er sá markaður alltaf að
færast nær því að vera mettur,“ sagði
Li Yi, sérfræðingur í félagsvísindum
hjá Internet Research Center of the
Shanghai Academy of Social
Sciences, þegar kínverskir fjölmiðla-
menn inntu hann eftir viðbrögðum.
Í umræddri tilkynningu var farið
ítarlega í saumana á markmiðum Ali-
baba til skamms og langs tíma. Óhætt
er að segja að fyrirtækið stefni á gíf-
urlegan vöxt á næstu árum, en meðal
þess sem fram kemur þar er að fyrir-
tækið stefni á selja vörur fyrir sam-
tals um 1,4 trilljónir bandaríkjadala á
næstu fimm árum. Þannig muni fyrir-
tækið jafnframt halda áfram að
stækka að því er fram kemur í fram-
angreindri tilkynningu. Þá gera
stjórnendur Alibaba aukinheldur ráð
fyrir því að undir lok árs 2036 verði
viðskiptavinir þess á heimsvísu orðnir
tveir milljarðar ásamt því sem starfs-
mannafjöldi fyrirtækisins verði alls
um 100 milljónir talsins.
Viðskiptavinir tveir milljarðar árið 2036 og starfsmenn 100 milljónir
Alibaba hyggst sækja
fram á alþjóðamarkaði
5. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.6 124.18 123.89
Sterlingspund 151.92 152.66 152.29
Kanadadalur 92.66 93.2 92.93
Dönsk króna 18.125 18.231 18.178
Norsk króna 13.505 13.585 13.545
Sænsk króna 12.484 12.558 12.521
Svissn. franki 123.5 124.2 123.85
Japanskt jen 1.1536 1.1604 1.157
SDR 168.64 169.64 169.14
Evra 135.32 136.08 135.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.7336
Hrávöruverð
Gull 1504.0 ($/únsa)
Ál 1696.0 ($/tonn) LME
Hráolía 57.54 ($/fatið) Brent
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.