Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Sumir [innskot: ég á enn erfitt með að segja „sum“] virðast halda aðkennarar reyni stöðugt að leiða nemendur sína í „málvillugildr-ur“ í prófum. Leyfum „sumum“ bara að halda það. Hitt er sanninær að það er rætt af áhuga um tungumálið í skólunum okkar og
m.a. er reynt að festa mikilvæg málfræðihugtök í sessi. Tökum dæmi úr
kennslustofu:
Kennari: „Jæja, krakkar mínir. Hvernig skýrum það með málfræði-
hugtökum þegar menn segja (blautur í) fæturnar/ (á) veturnar/ (hund-
urinn beit mig í) fingurnar?“
Eftir líflegar umræður var þetta niðurstaðan: Hér er ekki um kven-
kynsorð að ræða, heldur karlkynsorð í þolfalli fleirtölu með greini: hina
köldu fingur/ hina blautu fætur o.s.frv. [alveg eins og strákana (hina
sterku stráka)].
Einn nemendanna var ekki alveg sáttur og spurði: „Á maður þá að segja
„á næturna“?“
Umræðan fór enn á flug
og niðurstaðan var: Orðið
nótt er kvenkyns. Með greini
í þolfalli fleirtölu er það: (á)
næturnar, hinar björtu næt-
ur [alveg eins og hinar góðu
dætur (dæturnar)].
Hér var ekki reynt að leiða neinn í „málvillugildru“.
Nemendur vildu ræða meira af þessu tagi.
Kennarinn hélt þá áfram: „Beitið hugtökum til að skýra málnotkunina
sem birtist í eftirfarandi setningarliðum: vegna ósjálfbærrar landnýtingu/
vegna farþegaaukningu/ vegna styttingu vinnuviku/ vegna uppbyggingu á
Miðnesheiði [allt dæmi úr fjölmiðlum].“
Þetta var rætt og niðurstaðan var: Forsetningin „vegna“ stýrir eign-
arfalli. Eignarfall kvenkynsorða sem enda á –ing í nf.et. er –ar (stytting-
ar/uppbygging-ar o.s.frv.) en þessi ending (-ar) á í vök að verjast eins og
jöklarnir. Menn fara þó enn um Drottningarbraut á Akureyri (eingarfalls-
samsetning).
Það var létt yfir hópnum. Kennarinn ræddi misritanir um leið og hann
hamraði á hve mikilvægt væri að lesa texta vel yfir: samferða/samfeðra;
maður/ maur; dvaldist (í sveit)/kvaldist (í sveit); orð/roð; kort/krot (hann
sendi ekkjunni minningarkrot).
Kennarinn vitnaði nú í orð karlkynsþjálfara kvennaliðs eftir sigurleik:
„Við vorum aðeins of stressaðar í byrjun.“
Í lok tímans brá kennari enn á leik: Hvernig má orða [ekki „roða“] þetta
á íslensku?:
Fokk, þetta meikar ekki sens [Hver þremillinn! Þetta er alveg út í hött!]
Þeir voru alveg stökk [Þeir voru sigldir í strand]
Djísus, hvað hún er kúl [Hjálpi mér allir heilagir! Hún er aldeilis svöl,
þykir mér]
Ég er beisklí ósammála þér [Ég er þér bara öldungis ósammála]
Pabbi er gegt krittikal [Pabbi er frámunalega gagnrýninn]
Ég beilaði deitið [Ég skaut mér undan stefnumótinu]
Að lokum örlítið framburðaratriði. Getur stafarunan hér á eftir merkt
fleira en eitt? Hver er þá munurinn í framburði? [Ekki kíkja strax á svar-
ið!]
ERÞETTAEFTIRHERMAN?
Svar: Er þetta eftirherman?/ Er þetta eftir Hermann? Það er ívið meiri
áhersla á „eft“ í fyrri setningunni og „her“ í þeirri seinni.
Stressaðar í byrjun
Tungutak
Baldur Hafstað
hafstad.baldur@gmail.com
Hopp „Hver er
blautur í fæturnar?“
Síðastliðinn miðvikudag var haldin í Hörpuþriðja ráðstefnan sem Ásmundur EinarDaðason, félags- og barnamálaráðherra, hef-ur efnt til á rúmu ári um það mikla umbóta-
starf í málefnum barna, sem hann hrinti af stað í
upphafi ráðherraferils síns. Sem fyrr var fullt hús og
ráðstefnugestir að meginhluta til konur.
Undir verkefnastjórn Ernu Kristínar Blöndal, sem
í upphafi var ráðin til þessa verks, en er nú
skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, er verkið
komið á það stig að lagasmíð er að hefjast og gera
má ráð fyrir að lagafrumvörp verði lögð fram á vor-
þingi.
Hér er um að ræða mestu byltingu í velferðar-
málum, sem ráðizt hefur verið í á lýðveldistímanum
og líklegt að í framtíðinni verði því líkt við þá þjóð-
félagsbyltingu sem varð á fjórða áratug síðustu aldar
með almannatryggingum.
Að þessu máli koma þrír aðrir ráðherrar ásamt
Ásmundi Einari, þ.e. Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráðherra,
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra og Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra, en þær
töluðu allar á ráðstefnunni.
Jafnframt var snemma í þessu ferli skipuð þver-
pólitísk nefnd, skipuð þingmönnum frá öllum flokk-
um og tók Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Sam-
fylkingar, sem sæti á í þeirri nefnd, þátt í um-
ræðunum í gær. Hér er því um að ræða málefni, sem
ætla má að víðtæk samstaða verði um á Alþingi.
Ung stúlka, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, 17
ára gömul, sem kynnt var sem aðgerðasinni og nem-
andi, flutti opnunarávarp sem vakti mikla athygli og
kallaði fram þá hugsun að þarna kynni að hafa talað
einn af leiðtogum framtíðarinnar á Íslandi. Ræða
hennar svo og lokaávarp Unu Hildardóttur,
formanns Landssambands ungmennafélaga, og þátt-
taka nokkurra nemenda úr Vogaskóla í dagskrá ráð-
stefnunnar, sýndi viðleitni af hálfu ráðherrans til
þess að opna fulltrúum framtíðarinnar leið inn í það
undirbúningsstarf sem nú stendur á ákveðnum tíma-
mótum.
Á þeim þremur ráðstefnum sem hafa verið haldnar
frá vori 2018 hafa ráðstefnugestir fyrst og fremst
verið fagfólk sem með ýmsum hætti kemur að mál-
efnum barna. Þetta skiptir máli vegna þess að þar
með hefur það fólk sem starfar að þessum mikilvægu
málum verið haft með í ráðum frá upphafi enda fáir
sem þekkja betur þau vandamál sem hér eru á ferð.
Meðal ræðumanna á ráðstefnunni var Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður
Sambands ísl. sveitarfélaga, og í því felst að sveitar-
félögin hafa líka verið með í ráðum.
Það má því segja að mynduð hafi verið mikil breið-
fylking um þetta mál, sem ætti að duga til þess að
það verði til lykta leitt á farsælan hátt.
Grunnhugsunin er snemmtæk íhlutun en í þeim
orðum felst að í stað þess að láta vandamál sem upp
koma í lífi barna afskiptalaus framan af ævi, þar til
þau hin sömu verði sum hver viðfangsefni félags-
þjónustu og annarra opinberra stofnana síðar á
ævinni, verði tekið á þeim strax í upphafi.
Slíkum aðgerðum fylgir eins konar „menningar-
bylting“ vegna þess að hluti af henni er samfélagsleg
endurskoðun á gildismati okkar tíma. Allt í einu
opnast augu okkar fyrir því að leikskólakennarinn og
grunnskólakennarinn eru mikilvægustu starfsmenn
skólakerfisins og að launakjör hljóti að taka mið af
því breytta gildismati.
Vandamálin í lífi ungs fólks í dag eru svo mikil og
flókin og steðja að úr svo mörgum áttum að við get-
um ekki látið eins og þau séu ekki til staðar. Þau
geta snúizt um áreiti tengt hinum nýju
samfélagsmiðlum, neyzlu fíkniefna og
fleiru en ekki sízt aðstæðum í æsku. Það
er mikil ókyrrð í kringum börn og ung-
linga, sem leiðir af vandamálum hinna
fullorðnu, hvort sem er vegna skilnaða, áfengissýki,
sjúkdóma af margvíslegu tagi, ofbeldis á heimilum
eða annars konar böls sem hrjáir mannfólkið.
En þau eru líka átakanleg vegna þess að lífið er
allt undir. Aðstæður í æsku móta allt líf fólks og
hafa of oft þær afleiðingar að einstaklingurinn fær
aldrei tækifæri til að njóta hæfileika sinna.
Á ráðstefnunni í gær kom fram að 90 börn eru á
biðlista hjá Bugl. Það er auðvitað óverjandi staða.
Í ræðu menntamálaráðherra kom fram að orða-
forði barna er nú minni en hann var upp úr aldamót-
unum síðustu. Hvernig má það vera? Hvað veldur?
Það er rétt sem Lilja Dögg sagði, að starf kennarans
er mikilvægasta starf þjóðfélagsins. En það er stað-
reynd að við sem samfélag höfum ekki metið það
þannig.
Ásmundur Einar talaði um skugga barnæskunnar
á ráðstefnunni. Þetta orðaval ráðherrans er sláandi.
Auðvitað viljum við öll eiga fyrst og fremst góðar
minningar frá æskudögum en það er harður veru-
leiki að skuggar barnæskunnar geta fylgt okkur alla
ævi. Fyrr á tíð ríkti þögn um þá skugga enda börn-
um kennt að þegja um þá. Það var á þeim tímum,
þegar „bælda kynslóðin“, sem Brynja heitin Bene-
diktsdóttir, leikstjóri, kallaði svo í samtölum okkar
tveggja fyrir nokkrum áratugum um okkar kynslóð,
réð ríkjum.
En nú er margt að opnast – þó ekki allt.
Eitt af því sem er að opnast eru umræður um
börn og hlutskipti þeirra. Og það verkefni sem Ás-
mundur Einar Daðason setti af stað um breytingar í
þágu barna, er líklegt til að opna samfélagið enn
meira.
Ekki veitir af.
Draugar fortíðarinnar eru enn til staðar.
Breytingar í þágu barna
… og „skuggar
barnæskunnar“
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Snorri Sturluson var frjálslynduríhaldsmaður, eins og við mynd-
um kalla það. Fimm helstu stjórn-
málahugmyndir hans getur að líta í
Heimskringlu og Eglu.
Hin fyrsta er, að konungsvald sé
ekki af náð Guðs, heldur með sam-
þykki alþýðu. Haraldur hárfagri
lagði að vísu Noreg undir sig með
hernaði og sló síðan eign sinni á allar
jarðir, en sonur hans, Hákon Að-
alsteinsfóstri, bað bændur að taka
sig til konungs og hét þeim á móti að
skila þeim jörðum. Síðari konungar
þurftu að fara sama bónarveg að al-
þýðu.
Önnur hugmyndin er, að með sam-
þykkinu sé kominn á sáttmáli kon-
ungs og alþýðu, og ef konungur rýfur
hann, þá má alþýða rísa upp gegn
honum. Þetta sést best á frægri ræðu
Þórgnýs lögmanns gegn Svíakon-
ungi, en einnig á lýsingu Snorra á
sinnaskiptum Magnúsar góða.
Hin þriðja er, að konungar séu
misjafnir. Góðu konungarnir eru
friðsamir og virða landslög. Vondu
konungarnir leggja á þunga skatta til
að geta stundað hernað. Þetta sést
ekki aðeins á samanburði Haraldar
hárfagra og Hákonar Aðalsteins-
fóstra, heldur líka á mannjöfnuði Sig-
urðar Jórsalafara og Eysteins og
raunar miklu víðar í Heimskringlu og
ekki síður í Eglu.
Af þeirri staðreynd, að konungar
séu misjafnir, dregur Snorri þá
ályktun, sem hann leggur í munn
Einari Þveræingi, að best sé að hafa
engan konung. Íslendingar miðalda
deildu þeirri merkilegu hugmynd að-
eins með einni annarri Evrópuþjóð,
Svisslendingum.
Fimmta stjórnmálahugmyndin er í
rökréttu framhaldi af því. „En ef
landsmenn vilja halda frelsi sínu, því
er þeir hafa haft, síðan er land þetta
byggðist, þá mun sá til vera að ljá
konungi einskis fangstaðar á.“ Ís-
lendingar skuli vera vinir Noregs-
konungs, flytja honum drápur og
skrifa um hann sögur, en þeir skuli
ekki vera þegnar hans í sama skiln-
ingi og Norðmenn.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Stjórnmálahugmyndir
Snorra Sturlusonar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Böðvar Bergsson
Sími: 569 1126, bodvar@mbl.is
Norðurslóðir
The Arctic Circle
Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. október
The Arctic Circle ráðstefnan er
haldin í Hörpu 10. – 13. október.
Blaðinu er einnig dreift þar.
Blaðið kemur út með íslenskum
og enskum texta.
Umsjón: Ragnar Axelsson ljósmyndari
og Orri Páll Ormarsson blaðamaður.
SÉRBLAÐ