Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Lækjamót 23, Sandgerði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
4 herbergja parhús með bílskúr.
Rólegt og fjölskylduvænt umhverfi
Stærð 136,3m2 Verð 35.900.000,-
Júlíus M. Steinþórsson 899-0555 Jóhannes Ellertsson 864-9677
Löggiltur fasteignasali Löggiltur fasteignasali
Í1. deild Íslandsmóts skák-félaga, sem hófst samkvæmtgamalgróinni hefð í Rima-skóla á fimmtudagskvöldi,
vakti athygli lið SSON, Skák-
samband Selfoss og nágrennis, sem
hefur fengið til liðsins fjóra rúss-
neska skákmeistara. Ljóst er að
þetta lið stefnir á sigur í deildinni en
sveitin vann b-lið TR stórt, 7½:½.
Víkingsveitin vann Skákfélag Ak-
ureyringa einnig 7½:½ og Hugins-
menn lögðu skákdeild Breiðabliks,
Bolungarvíkur og Reykjaness, 7:1.
Fjórða sveitin sem er líkleg til að
blanda sér í baráttuna, A-lið TR,
vann b-lið Víkingasveitarinnar
6½:1½.
Þó að styrkleikamunur sé tals-
verður á liðum 1. deildar bregst ekki
að óvænt úrslit sjá dagsins ljós í
hverri umferð. B-lið Víkingasveit-
arinnar tók 1½ vinning af TR-ingum
en 3. borðsmaður TR, Sulypa, og
liðsstjóri ólympíuliðs Úkraínu fékk
ekki rönd við reist þegar andstæð-
ingur hans sveiflaði riddurunum í
miðtaflinu:
Íslandsmót skákfélaga 2019; 1.
umferð:
Ólafur B. Þórsson – Oleksandr
Sulypa
Vængtafl
1. g3 d5 2. Bg2 e5 3. c4 d4 4. d3
Rc6 5. Rf3 Bb4+ 6. Bd2 a5 7. 0-0 Rf6
8. Bg5 0-0 9. e4 dxe3
Hann vill ekki leyfa Ólafi að loka
stöðunni.
10. fxe3 h6 11. Bxf6 Dxf6 12. Rc3
Bc5 13. Kh1 Dd8 14. De2 Bg4
Þessir biskupleikir svarts gefast
ekki vel en stóru mistökin koma síð-
ar.
15. h3 Bh5 16. g4 Bg6 17. Had1
He8 18. Rg1!
Það mætti kalla marga meistara
stöðubaráttunnar til vitnis um ágæti
þessa leiks. G1-reiturinn er aðeins
millilending en hugmyndin er að
leika – Be4 og stinga upp í biskupinn
á g6.
18. … Dg5 19. Hde1 Had8 20. Be4
Rb4 21. Rf3 Bxe4? 22. Rxe4 De7 23.
a3!
Lykilleikur því að riddarinn má
ekki taka peðið, 23. … Rxd3 24. Hd1
og hann sleppur ekki út.
23. … Rc6 24. g5!
Skyndilega er hvítur kominn með
óstöðvandi sókn.
24. … Hf8 25. Rh4 b6
Eða 25. … g6 26. Hf6! o.s.frv.
- Sjá stöðumynd -
26. Rf6+! Kh8 27. Dh5 De6 28.
Rf5 Re7 29. Rxg7! Dc6+ 30. e4 Rg8
31. Rf5 Hxd3 32. Rxh6 Rxf6 33.
gxf6 Hfd8 34. Rf5+ Kg8 35. Hg1+!
– og svartur gafst upp því drottn-
ingarmát á h8 blasir við.
Sveit Hugins var nálægt því að
vinna á öllum borðum en Stephan
Briem bjargaði vinningi í land úr
erfiðri stöðu á 4. borði:
Íslandsmót skákfélaga 2019:
Stephan Briem – Magnús Örn
ÚIfarsson
Síðasti leikur hvíts var 30. Bh4-f2.
Magnús hafði áður misst af góðum
leiðum en taldi sig vera að vinna með
30. … Rxf1? Svarið var óþægilegt,
31. Dg4! Hótar máti á g7 og
31. …Rxf6 strandar á 32. Dc8+ og
mátar. Hann varð að leika 31. … g6
en eftir 32. Dxd7 Hb8 kom 33. Rc8!
og svartur gafst upp vegna 33. … h5
34. De8+ Kh7 35. Df8 og mátar. Í
stað þess að taka hrókinn gat svart-
ur leikið 31. ... exd4 og haft betri
stöðu.
Keppt er í fjórum deildum og bú-
ast má við því að á bilinu 300-400
manns munu sitja að tafli í Rima-
skóla um helgina en keppni í öllum
deildum hófst í gærkvöldi.
Radjabov vann
heimsbikarmótið
Teimour Radjabov frá Aserbaíd-
sjan er sigurvegari heimsbikarmóts
FIDE sem lauk í Khanty Mansiysk í
gær. Hann vann Kínverjann Ding
Liren 6:4. Sex skákir voru tefldar
með styttri umhugsunartíma, tvær
síðustu með tímamörkunum 5 3.
Radjabov og Ding Liren hafa báð-
ir tryggt sér þátttökurétt áskor-
endamótinu sem haldið verður í
Rússlandi í mars/apríl á næsta ári.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Selfyssingar mæta
sterkir á Íslands-
mót skákfélaga
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Sterk sveit Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson sem er nýliði hjá
TR , Olexandr Sulypa og Margeir Pétursson eru á fjórum efstu borðum elsta
taflfélagsins. Páll Agnar (t.v.) gerði jafntefli við Guðmund í spennandi skák.
Sveinbjörn fæddist 5. októ-
ber 1899 á Efra-Sýrlæk í Flóa.
Foreldrar hans voru hjónin
Sigurjón Einarsson og Guðrún
Ísleifsdóttir.
Sveinbjörn varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
og mag. art. í íslenskum fræð-
um frá Háskóla Íslands 1926.
Sveinbjörn var stundakenn-
ari í íslensku við ýmsa fram-
haldsskóla á námsárunum og
kenndi sænsku við Samvinnu-
skólann og þýsku við Iðnskól-
ann 1928-30. Hann var kennari
við Gagnfræðaskólann í
Reykjavík (síðar Gagnfræða-
skóla Austurbæjar) 1930-55,
þar af yfirkennari síðustu 6 ár-
in. Hann var skólastjóri sama
skóla 1956-69. Sveinbjörn var
um tíma formaður skóla-
nefndar Austurbæjarbarna-
skólans, prófdómari í íslensku
á stúdentsprófi, í landsprófs-
nefnd og í stjórn Ríkisútgáfu
námsbóka. Hann tók einnig
þátt í starfi Norræna félags-
ins.
Sveinbjörn samdi kennslu-
bækur í íslensku og bragfræði
og gaf út Númarímur og
Ljóðasafn Sigurðar Breiðfjörð.
Eiginkona Sveinbjarnar var
Soffía Ingvarsdóttir, f. 1903, d.
2000, borgarfulltrúi. Þau eign-
uðust tvær dætur.
Sveinbjörn lést 26.3. 1990.
Merkir Íslendingar
Sveinbjörn
Sigurjónsson
Þann 17. ágúst
voru liðin 200 ár frá
fæðingu Jóns Árna-
sonar, þjóðsagna-
safnara og lands-
bókavarðar. Ævi og
starfi Jóns hafa verið
gerð góð skil á þessu
ári og enn er eftir
ráðstefna Stofnunar
Árna Magnússonar
um íslenskar þjóð-
sögur í alþjóðlegu
samhengi.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar komu
fyrst út í Leipzig árin 1862 og 1864
í tveimur bindum. Það var svo á ár-
unum 1954-1961 að þjóðsögur Jóns
Árnasonar komu út í fimm bindum
auk nafnaskrár í sjötta bindinu.
Árni Böðvarsson og Bjarni Vil-
hjálmsson, miklivirkir fræðimenn í
íslenskum fræðum, önnuðust þá út-
gáfu. Báðar þessar útgáfur voru
þrekvirki og var þeim vel tekið af
lesendum.
Þann 14. september hittust börn
Árna og Bjarna og ákváðu að færa
íslensku þjóðinni að gjöf útgáfu-
réttinn að síðari útgáfunni á þjóð-
sögum Jóns Árnasonar eins og
hann er verndaður í höfundar-
lögum. Frú Vigdís Finnbogadóttir
veitti gjafabréfinu viðtöku fyrir
hönd íslensku þjóðarinnar þar sem
börn Árna og Bjarna voru komin
saman.
Mennta- og menningar-
málaráðherra, frú Lilja Dögg Al-
freðsdóttir, hefur tekið við gjafa-
bréfinu til varðveislu í ráðuneyti
sínu.
Árin Böðvarsson og Bjarni Vil-
hjálmsson eiga eftir sem áður
sæmdarréttinn að útgáfu sinni, en
hún var þeirra stolt og heiður.
Þess er óskað að Landsbókasafn
Íslands – Háskólabókasafn, Stofn-
un Árna Magnússonar á Íslandi og
aðrar þær stofnanir, sem munu
varðveita og vinna úr þessum
menningararfi, njóti stuðnings til
að menningararfurinn varðveitist í
hug íslensku þjóðarinnar.
Um Þjóðsögur
Jóns Árnasonar
Jón Árnason og
Magnús Grímsson hófu
söfnun íslenskra þjóð-
sagna um miðja 19.
öld. Þjóðernisvakning
19. aldar hafði meðal
annars í för með sér
áhuga á þeim frásögn-
um sem gengu mann
fram af manni og eng-
inn vissi höfund að og
var farið að kalla þjóð-
sögur.
Margir leikmenn og fræðimenn
um alla Evrópu hófu að safna sam-
an sögum, hver í sínu heimalandi.
Áhrifamesta safnið var án efa
safn þýsku bræðranna Grimm sem
gáfu út Grimmsævintýri á árunum
1812-1815. Árangur af söfnun Jóns
og Magnúsar leit dagsins ljós 1852 í
bókinni Íslenzk æfintýri.
Fyrir forgöngu Jóns Sigurðs-
sonar forseta og velvild Konrads
Maurers kom út í Leipzig árin 1862
og 1864 tveggja binda útgáfa þjóð-
sagnasafns sem kennt er við Jón
Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og
æfintýri. Heildarútgáfa safnsins
birtist síðan á prenti á árunum
1954-1961.
Einn merkasti þjóðsagnafræð-
ingur Evrópu á síðustu öld, írski
fræðimaðurinn Séamus Ó. Duile-
arga, lét þau ummæli falla að safn
Jóns Árnasonar væri þjóðsagnasafn
sem ætti engan sinn líka í víðri ver-
öld.
Nú er útgáfan á þessum þjóðar-
arfi þjóðareign.
Þjóðsögur
og þjóðararfur
Eftir Vilhjálm
Bjarnason
Vilhjálmur
Bjarnason
» Írski fræðimaðurinn
Séamus Ó. Duile-
arga lét þau ummæli
falla að safn Jóns Árna-
sonar væri þjóðsagna-
safn sem ætti engan
sinn líka í víðri veröld.
Höfundur var alþingismaður.