Morgunblaðið - 05.10.2019, Síða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Fyrir hrein eyru
EINFÖLD OG ÁHRIFARÍK LEIÐ TIL AÐ
MÝKJAOGFJARLÆGJAEYRNAMERGÁ
NÁTTÚRULEGANHÁTTMEÐÓLÍFUOLÍU
fæst í öllum helstu apótekum
Nú líður að því að
senn verði kosið um
sameiningu sveitar-
félaganna Borgarfjarð-
arhrepps, Djúpavogs-
hrepps, Fljótsdals-
héraðs og Seyðis-
fjarðarkaupstaðar en
kosning mun fara fram
laugardaginn 26. októ-
ber nk.
Sitt sýnist þó hverj-
um um það hvort þessi sameining-
arkostur sé vænlegur og í ljósi þess
þótti mér rétt að fara yfir feril þessa
máls og meginniðurstöður í stuttu
máli.
Upphafið má rekja til fundar er
fram fór á Egilsstöðum fyrir tveimur
árum. Þá komu saman fulltrúar sex
sveitarfélaga á Austurlandi sem hafa
haft samstarf um brunavarnir og fé-
lagsþjónustu. Ýmislegt var þarna
rætt, allt frá því að auka samstarfið í
að sveitarfélögin sameinuðust. Úr
varð að myndaður var starfshópur
fulltrúa sveitarfélaganna sex, sem
var falið að koma með tillögur um
þróun frekara samstarfs. Niður-
staðan varð sú að rétt væri að gera
íbúakönnun varðandi vilja til samein-
ingar. Í mars 2018 var slík könnun
gerð og var niðurstaðan sú að afstaða
íbúa til sameiningar var jákvæð í
fjórum sveitarfélaganna en hjá
tveimur var slíku hafnað.
Að afloknum sveitarstjórnarkosn-
ingum komu fulltrúar þessara fjög-
urra sveitarfélaga saman til fundar í
september 2018 þar sem umræðu-
efnið var grundvöllur sameiningar-
viðræðna og hvernig að slíku skyldi
staðið. Strax á fyrsta fundi var rætt
mikilvægi þess að standa vörð um
stöðu og áhrifavald einstakra bæjar-
kjarna. Niðurstaða þessa fyrsta
fundar var að fá utanaðkomandi ráð-
gjafa (RHA) til að vinna tillögu að
ferillýsingu verkefnisins.
Að fenginni ferillýsingu var sam-
þykkt af öllum sveitarfélögunum að
um formlegt sameiningarferli yrði að
ræða, þ.e. ekki könnunarviðræður
heldur ferli sem lyki með kosningu
íbúanna. Formleg samstarfsnefnd
hóf störf í nóvember og réð hún í des-
ember til starfa verkefnisstjóra, RR-
rágjöf, til að leiða vinnuna.
Þegar í upphafi lá fyrir að sam-
starfsnefndin kæmi með virkum
hætti að verkefninu í stað þess að
fela framkvæmd þess aðkeyptri ráð-
gjöf. Samstarfsnefndin hefur því
fundað með reglubundnum hætti og
haldið 22 formlega fundi. Myndaðir
voru sex starfshópar um málaflokka
skipaðir starfsfólki, kjörnum fulltrú-
um og fulltrúum félagasamtaka sem
skiluðu af sér í lok febrúar. Í mars
var unnið úr hugmyndum starfshópa
og fundað með ráðherrum, embætt-
ismönnum og þingflokkum. Í apríl
voru haldnir íbúafundir
þar sem hugmyndir
voru kynntar og óskað
eftir afstöðu íbúa. Um-
ræddir fundir voru
bæði vel sóttir og íbúar
tóku þar virkan þátt.
Ábendingar komu fram
sem nýttust við endan-
lega útfærslu sam-
starfsnefndar á til-
lögum er kynntar voru
sveitarstjórnum í júní.
Tillaga um kjördag var
þá samþykkt af öllum
sveitarfélögunum.
Kynning á tillögum sem kosið
verður um fer fram á íbúafundum 7.-
10. október auk þess að nálgast má
þær á heimasíðu verkefnisins
(svausturland.is).
Eitt af því sem ég tel að hafi verið
farsælt fyrir verkefnið er samsetning
samstarfsnefndarinnar en óhætt er
að segja að erfitt sé að líkja henni við
svo kallaðan hallelújakór. Skoðanir
hafa verið skiptar og hefur það leitt
af sér að steinum hefur verið við velt
og málin rædd í þaula. Ég er því
þeirrar trúar að þær tillögur er
nefndin hefur orðið sammála um séu
til þess fallnar að skila okkur öflugu
samfélagi til framtíðar.
Í vinnu samstarfsnefndar kom
snemma upp sú áhersla að koma yrði
í veg fyrir að áhrifamáttur minni
kjarna hyrfi við sameiningu inn í
stærri heild. Þetta er eitt af því sem
gagnrýnt hefur verið varðandi sam-
einingu sveitarfélaga. Án þess að ég
fari að útlista það nánar hér þá tel ég
að sú hugmynd er lýtur að heima-
stjórnum muni bæði tryggja áhrifa-
mátt nærsamfélagsins sem og ein-
falda og auka skilvirkni stjórn-
sýslunnar.
Áhersla hefur verið á það lögð að
greina fjármál sameinaðs sveitar-
félags. Unnið hefur verið með fyrir-
liggjandi áætlanir og við þær hefur
verið bætt bæði viðhalds- og fram-
kvæmdaþáttum sem þörf er á en
haldið hefur verið utan áætlana þar
sem sveitarfélögin hafa ekki treyst
sér til að ráðast í þau. Niðurstaðan er
fjárhagslega sjálfbært og öflugt
sveitarfélag sem á innan við 10 árum
á að geta uppfyllt þær framkvæmda-
kröfur er fram hafa komið.
Fram hafa komið athugasemdir
varðandi það m.a. að skuldir per íbúa
í einstökum sveitarfélögum muni
aukast frá því sem nú er. Þessu er
ekki hafnað en bent á að í sameinuðu
sveitarfélagi verður hægt að byggja
upp öflugt framtíðarsamfélag án
þess að til viðbótarskuldsetningar,
þjónustuskerðingar eða tekjurösk-
unar komi. Sameinað sveitarfélag
mun standast öll þau fjárhagslegu
viðmið sem til staðar eru í dag, auk
þeirra sem hugmyndir eru um, og
mun geta sinnt nauðsynlegri upp-
byggingu í öllum kjörnum þess.
Eitt af því sem velt hefur verið upp
er hvers vegna sé verið að stíga þetta
skref í stað þess að sameina öll sveit-
arfélög á Austurlandi í eitt. Ég er al-
veg sammála því að til lengri tíma lit-
ið þá muni verða farsælt að sameina
öll sveitarfélög á Austurlandi í eitt.
En við megum hins vegar ekki láta
þá framtíðarsýn koma í veg fyrir það
að við stígum nú það framfaraskref
sem í boði er og er til þess fallið að
efla slagkraft svæðisins sem við bú-
um á og þjónustuna við íbúa þess.
Sameining sveitar-
félaga á Austurlandi
Eftir Björn
Ingimarsson » Í vinnu samstarfs-
nefndar kom
snemma upp sú áhersla
að koma yrði í veg fyrir
að áhrifamáttur minni
kjarna hyrfi við samein-
ingu inn í stærri heild.
Björn Ingimarsson
Höfundur er bæjarstjóri Fljótsdals-
héraðs og formaður samstarfs-
nefndar.
bjorni@egilsstadir.is
Kæra Lilja Alfreðs-
dóttir.
Menntakerfi dans-
listarinnar í landinu
hefur að miklu leyti
verið haldið uppi af
einkaskólum og hafa
frumkvöðlar í íslensk-
um listdansi lyft grett-
istaki við að koma list-
greininni á þann stað
sem hún er í dag.
Framþróun og gróska hefur ein-
kennt atvinnuumhverfi danslist-
arinnar hérlendis á undanförnum
árum en þær tengjast jákvæðri
skólaþróun og uppbyggingu í skóla-
starfi listdansskólanna. Árið 2006
leit aðalnámsskrá í listdansi dagsins
ljós og þrír af listdansskólum borg-
arinnar hlutu starfsleyfi frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu sem
viðurkenndir listdansskólar á fram-
haldsskólastigi en það eru Danslist-
arskóli JSB, Klassíski listdansskól-
inn og Listdansskóli Íslands. Það
sama ár stofnaði Listaháskóli Ís-
lands samtímadansbraut á há-
skólastigi og hefur gróska og at-
vinnumennska í íslenskri danslist
farið mjög vaxandi í kjölfarið.
Fjárhagslegur stuðningur frá rík-
inu með listdansnáminu hefur verið
takmarkaður og er mikið misræmi í
því hvernig ríkið stendur að upp-
byggingu listnáms í landinu.
Í pistli Morgunblaðsins fimmtu-
daginn 3. október ferð þú, mennta-
málaráðherra, fögrum orðum um
starf tónlistarskólanna í landinu og
er það frábært. Við getum sann-
arlega verið stolt af tónlistarlífinu í
landinu og hvernig staðið er að tón-
listarkennslu sem er skv. aðalnáms-
skrá í tónlist.
Listdansskólar hafa lagt sig fram
af miklum metnaði við að framfylgja
aðalnámsskrá í list-
dansi fyrir grunn- og
framhaldsskólastig á
undanförum árum en
nú er svo komið að
fjárhagslegt þanþol
listdansskólanna er
hreinlega á þrotum.
Mennta- og menning-
armálaráðuneytið
sendir árlega út til-
kynningar til listdans-
skólanna um að til
standi að breyta
rekstrarfyrirkomulagi námsins til
betri vegar en ekkert gerist. Enginn
lagarammi hefur verið útbúinn utan
um listdansnám skv. aðalnámsskrá
líkt og til er um aðrar listgreinar
(t.d. tónlistarnám) og gætir því mik-
ils misréttis með listnámi í fjárveit-
inum frá ríkinu.
Misrétti í fjárveitingum ríkisins
Misrétti í fjárveitingum ríkisins,
sumt listnám fer í fjárhagslegt út-
boð annað ekki. Listdansbraut MH
er námsbraut til stúdentsprófs. Bók-
námshluti náms er kenndur í MH en
verknámið er kennt í samstarfi við
viðurkennda listdansskóla. Námið
lýtur öðrum lögmálum en aðrar
stúdentsbrautir framhaldsskólanna
því nú vill ríkið setja verklega þátt
námsins í útboð! Tekið skal fram að
útboðið á bara við um verknám á
sviði danslistar en ekki er fyrir
hugað að bjóða út listnám í öðrum
listnámsbrautum framhaldsskól-
anna. Sem sagt, útboð á eingöngu
við um listdansnám skv. aðalnáms-
skrá en ekki annað listnám sem
kennt er skv. aðalnámsskrá. Vægast
sagt mjög undarleg menntastefna í
listum sem menntamálaráðherra og
menntamálaráðuneytið ber ábyrgð á
og hreykir sér af.
Hvernig væri að styðja betur við
listnám með því setja lög um listnám
í landinu sem ná til allra listgreina?
Lög er styðja við jafnrétti til list-
náms? Útboð á listdansnámi á fram-
haldsskólastigi er fáranleg hugmynd
og vona ég innilega að ráðherra af-
stýri þeim gjörningi. Kallað er eftir
lögum um listdanskennslu í landinu,
það er óverjandi að setja listdans-
nám skv. aðalnámsskrá í verkkaup
og opinbert útboð. Listdansnámið er
hluti af íslensku menntakerfi og
undirstaða fyrir atvinnulíf danslistar
í landinu.
Útboð á listnámi –
ekki öllu en bara sumu?
Eftir Irmu
Gunnarsdóttur
»Útboð á listdans-
námi á framhalds-
skólastigi er fáránleg
hugmynd og vona ég
innilega að ráðherra af-
stýri þeim gjörningi.
Irmu Gunnarsdóttur
Höfundur er formaður Félags
íslenskra listdansara.
Matthías segir í dagbók sinni 1998:
Ingibjörg Thors, sem var óvenju-
leg kona og vel gerð og svo raunsæ
að hún gat talað um Ólaf Thors eins
og hvern annan ef því var að skipta,
sagði einu sinni við mig um Ólaf:
Maðurinn var einhvers konar
séní.
Það má vel vera. En hitt er víst að
hann var öðrum mönnum heilsteypt-
ari og svo mikill leiðtogi fjöldahreyf-
ingar sjálfstæðismanna að leitun er
á öðru eins í lýðræðislegu samfélagi.
Þetta blasir auðvitað við þegar farið
er í saumana á ævisögu Ólafs Thors.
Í Ólafs sögu:
Jóhannes Nordal telur að Ólafur
Thors hafi haft áhyggjur af því þeg-
ar hann þurfti að láta sverfa til stáls
gegn öðru fólki í stjórnmálum. Þá
hafi hann farið með áhyggjurnar
heim. Viðbrögð hans hafi ekki alltaf
blasað við á yfirborðinu. Hann tók
allt, sem hann fjallaði um, föstum
tökum. Ég tel hann mesta stjórn-
málamann sem ég hef átt samstarf
við, segir dr. Jóhannes, og þann
stjórnmálamanninn, sem mér þótti
vænst um sem manneskju.
Auðunn vestfirski.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Afmæli Sjálfstæðisflokksins:
Enn af Ólafi Thors
Allt um
sjávarútveg