Morgunblaðið - 05.10.2019, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019 31
Tilkynningar
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 21. maí 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi tengivirkis á Hólasandi í
Skútustaðahreppi skv. 1. mgr. 41 gr. skipulaglaga nr. 123/2010.
Bygging tengivirkis á Hólasandi er hluti af framkvæmdum við Hólasandslínu 3, sem áætlað er að liggi á milli tengivirkis á Rangárvöllum
á Akureyri og fyrirhugaðs tengivirkis á Hólasandi. Jafnframt munu núverandi raflínur milli Kröflu og Þeistareykja tengjast tengivirkinu.
Hólasandslína 3 verður hluti meginflutningskerfis raforku. Tilgangur Landsnets með byggingu línunnar er að auka flutningsgetu og bæta
stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi, auka hagkvæmni í orkuvinnslunni með sterkari samtengingu virkjanasvæða og
þjóna núverandi starfsemi á Norður- og Austurlandi auk þeirrar uppbyggingar sem reikna má með á næstu áratugum. Framkvæmdirnar
eru einnig mikilvægar fyrir flutningskerfi landsins í heild sinni þar sem um er að ræða mikilvægan lið í styrkingu á veiku flutningskerfi
utan suðvesturhornsins. Línan mun bæta afhendingaröryggi raforku til notenda á Norður- og Austurlandi.
Markmiðið er að uppbyggingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma.
Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum munu liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni frá og með
föstudeginum 4. október til og með föstudeginum 15. nóvember 2019. Þá eru tillögurnar einnig aðgengilegar á heimasíðu
Skútustaðahrepps: http://www.skutustadahreppur.is undir Skipulagsauglýsingar (efst á forsíðu).
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 15. nóvember 2019. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps,
Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar
teljast þeim samþykkir.
Guðjón Vésteinsson,
Skipulagsfulltrúi Skútustaðahrepps.
Tillaga að deiliskipulagi vegna
tengivirkis á Hólasandi
Raðauglýsingar 569 1100
Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs
Starfssvið er í samræmi við skipurit sveitarfélag-
sins en undir forstöðumann eigna- og
framkvæmdasviðs heyra m.a. þessi verkefni:
• Rekstur þjónustumiðstöðvar
• Umsjón með verklegum framkvæmdum á vegum sveitar-
félagsins
• Almenn umsjón með fasteignum sveitarfélagsins
• Umsjón með fráveitukerfum og ýmsum hreinlætis- og
umhverfismálum
• Umsjón með rekstri sameiginlegra verkefna sbr.
þjónustusamninga um vatnsveitu og fasteignir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun ákjósanleg
• Þekking og reynsla af rekstri, verkstjórn og áætlanagerð
skilyrði
• Þekking og reynsla af framkvæmda- og þjónustuverkefnum
á vegum sveitarfélaga kostur
• Þekking og reynsla í verkefna- og mannauðsstjórnun kostur
• Góð þekking á upplýsingatækni og fjárhagsbókhaldi
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
Hjá Rangárþingi ytra starfa um 150 manns í allt hjá hinum ýmsu stofununum en skrifstofa sveitarfélagsins er staðsett á Hellu.
Hjá þjónustumiðstöð starfa að jafnaði 6-8 manns auk sumarstarfsfólks og vinnuskóla.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Umsókn skal senda með rafrænum hætti á agust@ry.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja
ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið. Nánari upplýsingar veitir Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri (agust@ry.is - 488 7000).
Rangárþing ytra óskar eftir að ráða forstöðumann eigna- og framkvæmdasviðs.
Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf.
Reiknað er með að ráða í starfið frá og með 1. janúar 2020.
Móttökuritari/
Gjaldkeri/
Tannréttingar
Móttökuritari /gjaldkeri óskast til starfa á
Tannlæknastofu Gísla Vilhjálmssonar í fullt
starf. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á
íslensku og ensku, ríka þjónustulund, vera
talnaglögg og geta unnið undir álagi.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendi umsóknir á
tölvupóstfangið: gisli@teinar.is.
HAGI ehf Stórhöfði 37, 110 Reykjavík
Óskum eftir að ráða duglegan og samviskusaman
starfsmann til aðstoðar á verkstæði okkar, ásamt
öðrum tilfallandi verkefnum.
Í starfinu felst m.a. aðstoð við viðgerðir og viðhald á tækjum,
aðstoð við sölumennsku í verslun okkar, ásamt öðrum tilfallandi
verkefnum.
Iðnmenntun er æskileg en ekki nauðsynleg.
Vinsamlegast sendið ítarlegar umsóknir á
póstfangið atvinna@hagi.is
Nánari upplýsingar um störfin veita Óskar eða Kristján í síma 414 3700
Aðstoðarmaður
á verkstæði
Tilboð/útboð
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra
útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar
um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og
reglugerðir um opinber innkaup.
Þarftu
að ráða?
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum
og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir
fyrirtækja og sérsníðum lausnir
sem henta hverjum viðskiptavini.