Morgunblaðið - 05.10.2019, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Við erum til staðar þegar þú
þarft á okkur að halda
551 1266
Skipulag útfarar
Dánarbússkipti
Kaupmálar
Erfðaskrár
Reiknivélar
Minn hinsti vilji
Fróðleikur
Sjá nánar á
www.utfor.is
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is
Önnumst alla þætti útfararinnar
með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Reynslumikið fagfólk
Elín Sigrún Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Ellert Ingason
Útfararþjónusta
Helga Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
Lögfræðiþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjafi
Sigrún Óskarsdóttir
Guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
utfor.is
✝ Reynir Sig-urður Gúst-
afsson fæddist 1.
desember 1938.
Hann lést á heimili
sínu 26. september
2019.
Foreldrar Reynis
voru Gústaf A.
Valdimarsson, f.
17.2. 1912, d. 7.11.
1989, rakarameist-
ari í Reykjavík, og
Helga Sigrún Zoega, f. 19.9.
1917, d. 6.1. 1989, einkaritari í
Reykjavík.
Systur Reynis eru Svala Sig-
urðsson, f. 25.12. 1939, d. 26.7.
2014; Helga Z, f. 8.5. 1959.
Reynir kvæntist 9.6. 1962
Elísabetu Árnadóttur, f. 20.2.
1943, verslunarmanni. Hún er
dóttir Árna Jóhannssonar,
verkamanns í Reykjavík, látinn,
og Ingibjargar Álfsdóttur hús-
móður, sem einnig er látin.
Þór, f. 18.2. 1963, bóndi á Höll í
Þverárhlíð, en sambýliskona
hans er Svandís Hallbjörnsdóttir
húsmóðir, börn þeirra eru Arnar,
Ingunn og Svanur.
Reynir fæddist á Laugavegi 65
í Reykjavík og ólst þar upp. Hann
gekk í Laugarnesskóla, Lindar-
götuskóla og síðan í Iðnskólann í
Reykjavík þar sem hann lauk
prófi í rafvirkjun 1958.
Reynir flutti til Grundarfjarð-
ar 1965. Þar vann hann við raf-
virkjun, línulagnir hjá Raf-
magnsveitu ríkisins og stundaði
sjómennsku. Reynir starfrækti
Rafmagnsverkstæði Grundar-
fjarðar á árunum 1970-89 er
hann stofnaði Rafmagns- og bif-
reiðaverkstæðið Rafnesti í
Grundarfirði. Reynir var lengi í
stjórn rafverktaka á Vesturlandi,
hann starfaði mikið að slysa-
varnamálum og var einn af stofn-
endum Björgunarsveitarinnar
Klakks í Grundarfirði þar sem
hann gegndi formennsku í átján
ár. Einnig var hann lengi um-
dæmis- og svæðisstjóri björg-
unarsveita á Vesturlandi.
Útför Reynis fer fram frá
Grundarfjarðarkirkju í dag, 5.
október 2019, klukkan 13.
Börn Reynis og
Elísabetar eru Árni
Ólafur, f. 19.7. 1962,
rafvirkjameistari í
Reykjavík, eigin-
kona hans er Sól-
veig Aðalbjörns-
dóttir húsmóðir,
synir þeirra eru
Engilbert Norðfjörð
og Vilhelm Norð-
fjörð. Sonur Árna
frá fyrra sambandi
er Smári. Helga Ingibjörg, f.
7.10. 1963, grunnskólakennari í
Grundarfirði, sambýlismaður
hennar er Bent Ch. Russel stýri-
maður. Anna María, f. 28.5. 1965,
fjármálastjóri hjá G.RUN Grund-
arfirði, eiginmaður hennar er
Ágúst Jónsson rafvirki og sjó-
maður, börn þeirra eru Álfheið-
ur, Laufey Lilja og Sigurður
Helgi; Reynir Freyr, f. 16.8. 1979,
dóttir hans er Ágústa Freyja.
Einnig á Reynir soninn Grétar
Reynir Gústafsson rafvirkja-
meistari verður jarðsunginn frá
Grundarfjarðarkirkju í dag.
Reynir hafði lengi glímt
lengi við erfið veikindi en er nú
laus úr því stríði. Reynir var
góður félagi og hrókur alls
fagnaðar þegar tilefni gafst.
Við unnum saman í mörg ár
og okkur varð aldrei sundur-
orða. Ég segi með stolti að við
urðum góðir vinir og Reynir
var svo sannarlega vinur vina
sinna. Hann stóð með þeim í
gegnum þykkt og þunnt. Hann
var rafvirkjameistari og af-
bragðs fagmaður, bæði vand-
virkur og fljótur að leysa öll
vandamál.
Reynir var með bíladellu
eins og margir á þeim árum.
Ég sé hann ávallt fyrir mér ak-
andi um á gulum Scout-jeppa
sem helst þurfti stiga til að
komast upp í. Hann hafði mik-
inn áhuga á útivist og björg-
unarmálum. Ég þekki ekki ná-
kvæmlega sögu Björgunar-
sveitarinnar Klakks í Grundar-
firði en veit að Reynir var þar
allt í öllum meðan heilsan
leyfði.
Reynir var mikill skapmaður
og gat hvesst sig svo um mun-
aði. Í Grundarfirði eru sunn-
anrokin orðlögð enda veður-
hæðin þar oft og iðulega sú
mesta á landinu. Þau rok blikna
þó í samanburðinum við það
þegar rafvirkjameistarinn
hvessti sig. Ef eitthvað fór í
taugarnar á Reyni reiddist
hann því meir sem málið var
auvirðilegra. Stundum er talað
um Jón og séra Jón þar sem
sérann á að vera hærra settur.
Reynir tók ávallt málstað Jóns,
ekki séra Jóns. Hann var þeirr-
ar gerðar að virða þá sem
minna máttu sín en að sama
skapi ekki mikið gefinn fyrir að
láta stjórna sér og þá alveg
sérstaklega opinbera aðila.
Reynir var afskaplega vel
giftur og var Elsa hans stoð og
stytta þegar á reyndi.
Ég samhryggist konu og
börnum, vinum og vandamönn-
um en minningin um vandaðan
dreng og góðan vin lifir.
P.H.
Páll Guðfinnur Harðarson.
Elsku Reynir afi.
Þegar ég loka augunum og
hugsa aftur til æskutíma ylja
ég mér við minningar um
stundir þegar ég var sem heim-
alningur hjá ykkur ömmu. Í
mínum augum varst þú það
skemmtilegasta og mest spenn-
andi sem ég gat hugsað mér
ásamt kannski póníhestasafn-
inu mínu kæra. Borðandi afa-
skorið ristabrauð með smjöri
og smurosti eða mysingi sem
var alltaf á boðstólum, „stel-
andi“ tyggjói úr skúffunni inni
á skrifstofu og þitt hlýlega bros
og létti hlátur gerði öðrum erf-
itt fyrir að leysa þig af sem
uppáhalds.
Allra sterkasta og ljúfasta
minningin er þó bensínlyktin
úr bílskúrnum en nú þegar ég
finn bensínlykt sé ég aðeins
þitt andlit með bros á vör.
Það hafa verið forréttindi að
fá að vera barnabarnið þitt,
elsku afi minn. Takk fyrir sam-
verustundirnar í gegnum tíðina
og allt það sem þú kenndir
mér. Allt er þetta enn að venj-
ast en ég hlýja mér við að þú
ert á betri stað í dag. Einhvers
staðar á vappi skoðandi fjöll og
dali eða í slökun við rennandi
læk.
Þín dótturdóttir,
Laufey Lilja.
Reynir Sigurður
Gústafsson ✝ Gunnar Bjarna-son fæddist 18.
júlí 1931 á Þingeyri
við Dýrafjörð.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Vestfjarða 26. sept-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru Kristjana
Guðlaug Guð-
mundsdóttir, f.
25.6. 1901, d. 14.7.
1978, og Bjarni Guðbjartur Jó-
hannsson, f. 16.9. 1898, d. 12.1.
1971. Systkini Gunnars voru
fjögur talsins, þau Bryndís, Jó-
hann, Hermann og Gísli, sem er
sá eini þeirra sem lifir bróður
sinn.
Gunnar giftist Soffíu Einars-
dóttur, f 29.3. 1935, og bjuggu
þau allan sinn búskap á Þing-
eyri. Börn þeirra eru Ólöf
Soffía Gunnarsdóttir, f. 1952,
maki Magnús Ellert Þorkels-
son, f. 1953. Reynir Gunnars-
son, f. 1956, maki Sólborg Þor-
gerður Þorláksdóttir, f. 1957.
Þór Gunnarsson, f. 1958, maki
Hanna Jóna Ástvaldsdóttir, f.
1959. Brynjar Gunnarsson, f.
1960, maki Kristín
Þórunn Helgadótt-
ir, f. 1960. Barna-
börnin eru 12 og
langafabörnin 26.
Gunnar byrjaði
að vinna hjá Steini
bakara sem ungur
maður, þar á eftir
lá leiðin á sjóinn.
Hann stundaði sjó
á bátum frá Þing-
eyri, Súgundafirði
og Keflavík sem dekkmaður en
síðan sem vélamaður og vél-
stjóri eftir vélstjórnarnám á
Ísafirði. Gunnar var sjálfstæður
útgerðarmaður um tíma og átti
bátana Sleipni ÍS 46, Valdísi ÍS
72 og Búa ÍS 100 í samstarfi
við aðra. Þegar Gunnar sagði
skilið við sjóinn hóf hann störf
hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga við
ýmis störf, síðan hóf hann störf
hjá Trésmiðju Gunnars Sig-
urðssonar og að síðustu lauk
hann starfsferlinum hjá Sig-
mundi Þórðarsyni bygginga-
meistara.
Útför Gunnars fer fram frá
Þingeyrarkirkju í dag, 5. októ-
ber 2019, klukkan 14.
Elsku afi.
Minningarnar streyma fram í
hugann, hver einasta svo dýrmæt
og falleg. Þakklæti vermir hjarta
mitt. Fyrstu ár ævi minnar voruð
þið amma eitt stærsta aflið sem
mótaði mig. Á tali okkar um ver-
öldina heiðraðir þú trúgirni mína
og barnslegt sakleysi og lést fjar-
lægðir skreppa saman og leynd-
ardóma ljúkast upp.
Vegna þín mun ég ávallt elska
lyktina af gömlum bókum, ásýnd
skelja og glitsteina, hljóminn af
rennandi læk og bera ómælda
virðingu fyrir lífinu. Og ég mun
aldrei hrófla við mosa á steini.
Þú varst sterkur persónuleiki,
elsku afi, góðvild þín, umhyggja
fyrir náttúrunni og kímnigáfa
einstök. Minningin um þig verður
ávallt ljóslifandi í huga mínum og
ég mun endalaust sakna þín.
Afi minn, takk fyrir Hug-
heima.
Elsku amma Soffía, guð gefi
þér styrk í þinni sorg.
Hugrún.
Gunnar Bjarnason