Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
✝ Sigrún KristínValdimarsdótt-
ir fæddist á Hólma-
vík 12. mars 1940.
Hún lést 30. sept-
ember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Eybjörg
Áskelsdóttir, f. 10.
janúar 1910 á
Bassastöðum við
Steingrímsfjörð, d.
29. janúar 1992, og
Valdimar Guðmundsson, f. 16.
ágúst 1910 á Kleifum á Sel-
strönd við Steingrímsfjörð, d.
21. október 2001. Systkini Sig-
rúnar eru Guðmundur, f. 9. sept.
1932, Flosi, f. 23. des. 1933,
Bragi, f. 6. okt. 1935, Helga, f.
23. apr. 1938, Ásdís, f. 23. maí
1942, Laufey, f. 7. mars 1946,
Valdís, f. 8. maí 1951, Erna, f. 7.
mars 1954.
Sigrún giftist þann 20. sept.
1959 Sigurði Matthíasi Bene-
diktssyni, f. 29. des. 1928, d. 28.
maí 2005. Foreldrar hans voru
Ragnheiður Lýðsdóttir frá
Skriðinsenni, f. 22. júní 1895, d.
1. sept. 1983, og Benedikt G.
Grímsson, f. 17. apr. 1898, d. 21.
1981. 2) Valdís Eyrún, versl-
unarstjóri, f. 16. ágúst 1963,
börn hennar og fyrrverandi
sambýlismanns, Edvards Frið-
jónssonar, f. 13. okt. 1966, eru:
a) Eyrún, f. 22. jan. 1988, börn
hennar og sambýlismanns, Örv-
ars Jónssonar, f. 27. maí 1988,
eru Andrea Marikó, f. 9. des.
2013, og Birnir Leví, f. 30. sept.
2016. b) Friðjón, f. 25. nóv. 1993.
3) Benedikt Heiðar, rafvéla-
virki, f. 12. apr. 1968, kvæntur
Ernu Geirlaugu Árnadóttur, f.
19. mars 1975. Börn þeirra eru:
a) Eygló, f. 28. sept. 2005. b) Sig-
urður Matthías, f. 25. mars 2011.
Sigrún ólst upp á Hólmavík
og lauk þar barnaskólaprófi.
Síðar hóf hún nám í Iðnskól-
anum í Reykjavík í hárgreiðslu.
Sigrún giftist Sigurði og hófu
þau búskap á Kirkjubóli í tvíbýli
við Grím og hans konu, Krist-
jönu. Bjuggu þau þar allt til
1993 er þau flytja til Hólmavík-
ur. Nokkrum árum áður hóf hún
störf hjá Kaupfélagi Steingríms-
fjarðar á Hólmavík sem skrif-
stofukona og síðar hjá Íslands-
pósti á Hólmavík við afgreiðslu-
störf. Skömmu síðar hóf hún
nám hjá Póstskólanum og vann
hjá Póstinum allt til ársins 2007
er hún lauk starfsferli sínum.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Hólmavíkurkirkju í dag, 5. októ-
ber 2019, og hefst athöfnin
klukkan 14.
júlí 1980. Börn Sig-
rúnar og Sigurðar
eru: 1) Kristinn
Guðbjörn, bifvéla-
virki, f. 26. feb.
1960, kvæntur
Bryndísi Sveins-
dóttur, f. 3. ágúst
1962. Börn þeirra
eru: a) Erling, f. 14.
des. 1982, barn
hans og fyrrver-
andi sambýliskonu
hans, Hörpu Guðlaugsdóttur, f.
29. nóv. 1985, er Matthías Björn,
f. 7. apr. 2006. Barn Erlings og
barnsmóður, Olgu Kristínar Jó-
hannesdóttur, f. 7. des. 1983, er
Baltasar Sölvi Olguson, f. 29.
jan. 2013. Núverandi sambýlis-
kona Erlings er Helga Dögg
Lárusdóttir, f. 26. júní 1998. b)
Sigrún Björg, f. 19. mars 1992,
sambýlismaður hennar er Her-
mann Geir Karlsson, f. 28. ágúst
1986. Barn hans frá fyrri sam-
búð er Sara Sigurrós, f. 18. sept.
2007. Barn Sigrúnar og Her-
manns er Bryndís Rósa, f. 24.
sept. 2018. c) Dagrún, f. 1. maí
1995, sambýlismaður hennar er
Róbert Gunnarsson, f. 31. júlí
Núna er komið að leiðarlokum,
elsku amma í sveitinni. Eftir sitj-
um við sem elskum þig og dáum
með stórt skarð í hjartanu, eða
eins og Andrea Marikó segir að
hjartað hennar sé mjög krumpað.
Orð fá því ekki lýst hversu
þakklát ég er að hafa átt þig að
sem ömmu.
Ég tel það forréttindi að hafa
fengið að alast mikið upp í sveit-
inni hjá ykkur afa og minning-
arnar frá Kirkjubóli eru mér svo
dýrmætar. Hvort sem það var að
fara með afa upp í fjárhús eða
brasa eitthvað á dráttarvélinni.
Eða fá að sniglast með þér í eld-
húsinu og gefa heimalningunum.
Þú hafðir svo mikla þolinmæði
fyrir öllum uppátækjunum í mér
og þér fannst til dæmis ekkert
mál að splæsa smá hráefnum úr
eldhúsinu í drullukökur úti í
garði.
Allar okkar samverustundir
voru okkur svo dýrmætar hvort
sem það var heima hjá mömmu
þegar þú komst í bæjarferð eða
heima hjá þér í Lækjartúninu.
En þangað elskuðum við að koma
og eyða tíma með þér. Ég er svo
þakklát fyrir að börnin mín hafi
fengið að kynnast þér og hversu
einstök amma þú varst. Þið
Andrea Marikó urðuð svo miklar
perluvinkonur og er það okkur
ómetanlegt. Mér finnst svo skrít-
ið að eiga ekki eftir að skjótast
aðeins í sveitina til að hitta þig
eða hringja í þig og spjalla um
daginn og veginn.
En einhvern veginn tókst okk-
ur alltaf að tala saman svo tím-
unum skipti í hverri viku. Að öllu
sem þú hefur kennt mér mun ég
búa ævilangt.
Elsku amma, góða ferð til afa.
Ég er sannfærð um að hann hafi
tekið vel á móti þér. Við elskum
þig og söknum þín svo sárt. Við
munum ávallt búa að yndislegum
og ógleymanlegum minningum
um þig.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson)
Þín
Eyrún og fjölskylda.
Sigrún Kristín
Valdimarsdóttir
Í dag kveðjum við
Einar Ármannsson,
sem varð bráð-
kvaddur langt um
aldur fram.
Leiðir okkar Einars lágu sam-
an er hann byrjaði að gera hosur
sínar grænar fyrir Ásdísi systur
minni. Hann birtist reyndar ekki á
grænum hosum, heldur á rauðum
Saab og það fór ekki á milli mála
er hann mætti fyrir utan B-götu 3,
tvígengisvélin í Sabinum sá til
þess að hann þurfti ekki að flauta
til að láta Ásdísi vita að hann væri
mættur. Og síðan hurfu þau á
brott í reykjarmekki malargöt-
unnar. En fljótlega rann upp sú
stund að meiri alvara var komin í
þeirra samband og nú var Sabin-
um lagt fyrir utan og Einar tók
skrefið inn fyrir þröskuldinn á B-
götu 3 og í 45 ár fetuðu þau sömu
leiðina. Þau voru samhent og dug-
leg að skapa gott heimili, reistu
sér hús í Básahrauni 9 og allmörg-
um árum síðar byggðu þau stærra
hús í Básahrauni 3. Fljótlega er
þau hófu búskap fæddist þeirra
fyrsta barn, Una Björg, nokkrum
Einar Ármannsson
✝ Einar Ár-mannsson
fæddist 16. maí
1953. Hann lést 17.
september 2019.
Einar var jarð-
sunginn 4. október
2019.
árum síðar fæddist
Ármann og allmörg-
um árum síðar kom
Emil Karel í heim-
inn. Öll börnin hafa
reynst mikið dugn-
aðar- og mannkosta-
fólk, sem hefur geng-
ið vel í námi, starfi og
í einkalífi.
Er þau Ásdís
kynntust var Einar
að hefja sinn sjó-
mannsferil sem háseti. Leið hans
lá síðan í Stýrimannaskólann og
var hann æ síðan stýrimaður og
skipstjóri. Einar var lengi stýri-
maður og afleysingaskipstjóri hjá
Jóa Alfreðs, Erlingi Ævari og
Denna. Hann var einnig skipstjóri
á Skálafelli um tíma. Einar var
góður sjómaður, athugull, verk-
laginn, duglegur og með mikla
samskiptafærni. Sjómannsferill
Einars spannaði 34 ár og hafa ófá-
ir sennilega róið jafn lengi úr
Höfninni eins og hann. Er Einar
kom í land hóf hann störf hjá Lýsi
og þar líkaði honum vel að vinna,
var ánægður með starfið, sam-
starfsfélaga og stjórnendur.
Einn var sá staður sem var hon-
um kærastur, en það var Hamar 3,
jörð fjölskyldunnar. Hvergi leið
Einari betur en þar. Hann nefndi
það oft hvílík forréttindi og ríki-
dæmi það væri að eiga slíkan stað,
til að hvíla lúin bein og gleðjast
með sínu fólki.
Einar var einstakur félagi,
hann var vel heima í mörgu, minn-
ugur á menn og málefni og hafði
gaman af að ræða landsmálin –
kratahugsjón hans hvarf aldrei,
þó svo að hún hafi gefið eftir í þeim
stjórnmálaflokkum sem tóku við
af gamla Alþýðuflokknum – hans
kratahjarta spilltist aldrei.
Einar var dagfarsprúður mað-
ur, lagði gott til allra og var dreng-
ur góður.
Þegar boðið var upp á drykk
sagði Einar gjarnan: „bara lítið.“
Þessi orð lifa og Einar mun ávallt
vera með okkur og er við hellum í
glas og skálum munum við segja:
„bara lítið.“
Blessuð sé minning Einars Ár-
mannssonar.
Þorsteinn Garðarsson.
Minningar eru svo dýrmætar,
þess vegna leitar hugurinn í þær
þegar eitthvað dynur á í lífinu eins
og núna þegar við kveðjum Einar.
Engjavegur 3, indíánatjald úti í
garði, bogi og örvarnar sem mað-
ur fékk ekki að snerta en höfðu
gríðarlegt aðdráttarafl. Unglings-
árin, Ásdís kemur inn í fjölskyld-
una, börnin koma eitt af öðru,
heimsókn til okkar í Odense, fisk-
ur og humar frá Einari frænda
sem var besti matur í heimi, af-
mæli og veislur í Þorlákshöfn þar
sem Ásdís töfraði fram veislurétti
eins og henni er einni lagið. Seinni
árin höfum við svo hist reglulega
öll systkinin og afkomendur og
passað upp á það að hlúa að fjöl-
skylduböndunum hjá okkur sem
er svo dýrmætt, hefur Laufey sér-
staklega passað upp á það þegar
hún kemur til landsins.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra. Þar sem englarnir
syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Ásdís, Una Björg, Ár-
mann, Emil Karel og fjölskyldur
innilegar samúðarkveðjur.
Við kveðjum þig, elsku bróðir,
mágur og frændi með þökk fyrir
allt.
Freydís, Helgi og fjölskylda.
Það er með miklum trega og
söknuði að við vinirnir úr sauma-
klúbbnum eða Áttunni eins og við
köllum gjarnan hópinn okkar sitj-
um saman og minnumst hans Ein-
ars með þessum fátæklegu orðum.
En við höfðum verið saman á Tene
þar sem Einar lést langt um aldur
fram.
Margs er að minnast eftir rösk-
lega 40 ára vináttu. Útileguferðir,
til að byrja með í tjöldum þegar
börnin okkar voru ung og upp í
hjólhýsaferðir seinni árin. Það
þarf ekki að fara mörgum orðum
um að oft var glatt á hjalla og
margt brallað, farið í leiki, sungið
og sagðar sögur en þar naut Einar
sín vel og sagði skemmtilega frá,
hátt og snjallt. Einar kom gjarnan
eins og stormsveipur með
skemmtilegar athugasemdir og sá
spaugilegu hliðarnar á málum. Í
þessum góða vinahópi hefur sú
hefð skapast að fara í bústað í að-
draganda jóla og föndra eitthvert
jóladót ásamt ýmislegri annarri
iðju og þarf ekki að fara mörgum
orðum um að Einar var hrókur
alls fagnaðar eins og honum ein-
um var lagið.
En eins og áður sagði var hóp-
urinn að fagna 40 ára afmæli
saumaklúbbsins á Tene þar sem
Einar lést.
Elsku Einar, þín mun verða
sárt saknað og tómlegt verður þar
sem þín nýtur ekki við. Takk fyrir
samverustundirnar, þær hefðu átt
að vera miklu fleiri.
Elsku Ásdís, Una Björg, Ár-
mann, Emil Karel og aðrir að-
standendur. Okkar innilegustu
samúðarkveðjur
Gunnar, Valgerður, Sigurður,
Jónína, Jón Davíð og Rut.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
SIGURLAUG INGVARSDÓTTIR
frá Bakka,
Melavegi 18, Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga 27. september.
Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn
11. október klukkan 15.
Ragnar Gunnlaugsson
Gunnlaugur A. Ragnarsson
Ingvar Friðrik Ragnarsson Malin Persson
Dagný Sigurlaug Ragnarsd. Örn Óli Andrésson
Anna Heiða Ragnarsdóttir
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÁSGEIRSSON
vélvirkjameistari,
Ásakór 1,
lést á líknardeild Landspítalans
29. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
10. október klukkan 13.
Erna Reynisdóttir
Guðmundur I. Guðmundsson
Helga Björt Guðmundsdóttir Emil Örn Valgarðsson
Guðmundur H. Pálsson Sif Björk Hilmarsdóttir
Linda Pálsdóttir Ólafur Helgi Þorgrímsson
Hermann Örn Pálsson Rakel Ósk Guðbjartsdóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓRA JAKOBSDÓTTIR GUÐJOHNSEN
grasafræðingur,
Reynimel 78a,
lést laugardaginn 28. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 11. október klukkan 15.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Brynhildur Bergþórsdóttir
Ásdís Bergþórsdóttir
Anna Bergþórsdóttir Christopher Nandrea
Auður Ákadóttir Sigursteinn J. Gunnarsson
Ólafur Ásdísarson
Brynja og Vaka Björg
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
DR. HALLDÓR I. ELÍASSON
stærðfræðingur,
prófessor emerítus
við Háskóla Íslands,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
1. október. Hann verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 10. október klukkan 11.
Björg Cortes Stefánsdóttir
Stefán V. Halldórsson
Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson
Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li
og barnabörn