Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
✝ Oddur Sigfús-son fæddist á
Krossi í Fellum á
Fljótsdalshéraði 20.
október 1933. Hann
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut í Reykjavík
22. september
2019.
Oddur var sonur
hjónanna Sigfúsar
Guttormssonar, f.
1903, d. 1951, og Sólrúnar Ei-
ríksdóttur, f. 1902, d. 2000.
Oddur var annar í röð níu
systkina sem komust á legg.
Systkini hans eru Páll Hjörtur,
sem lést 2017, Guðný Sólveig,
Guttormur, Sveinn Eiríkur,
Þórey, Baldur, Jón og Odd-
björg, sem lést 2015.
Oddur ólst upp á Krossi í
urinn 1965/66 stundaði hann
nám við Meistaraskólann og
fékk meistararéttindi sem tré-
smiður. Hann starfaði í áratugi
hjá Áhaldahúsi Reykjavíkur-
borgar, þar sem honum var
meðal annars falin umsjón með
smíðahópum Vinnuskóla
Reykjavíkur tíu sumur í röð.
Oddur fór snemma að leika á
harmonikku. Hann starfaði með
Félagi harmonikkuunnenda í
Reykjavík og sat í stjórn félags-
ins. Hann söng lengi með kór
Trésmíðafélags Reykjavíkur.
Oddur var vel hagmæltur og
gaf út eina ljóðabók Vornóttin
angar. Hann hafði yndi af
ferðalögum og var víðförull
innanlands sem utan. Hann
stundaði gönguferðir og fjall-
göngur á meðan kraftar leyfðu
og var um skeið fararstjóri hjá
Ferðafélagi Íslands.
Útför Odds fer fram frá Eg-
ilsstaðakirkju í dag, 5. október
2019, og hefst klukkan 14.
Fellum, hjá for-
eldrum sínum og
systkinum. Hann
fór ungur að heim-
an til að vinna.
Fyrst var hann
vinnumaður á
Staffelli í Fellum
og svo á Lyngfelli
í Vestmannaeyjum
þar sem Guðlaug-
ur föðurbróðir
hans rak bú.
Seinna fór hann á vertíðir til
Vestmannaeyja og vann í vega-
gerð á Héraði. Hann gekk í
barnaskóla Fellamanna sem var
á Helgafelli á þessum árum.
Oddur lærði grunnatriði í tré-
smíði veturinn 1954/55 við
smíðaskólann á Hólmi í Land-
broti. Hann lauk síðar því námi
í Iðnskólanum í Reykjavík. Vet-
Oddur bróðir var tíu árum
eldri en ég. Hann var næstelstur
af níu systkinum. Hann var hand-
laginn frá fyrstu tíð. Á æskuárum
mínum var hann oft beðinn um að
laga eða smíða hluti fyrir heimilið
og fórst það vel úr hendi. Bátur
var gripur sem vantaði tilfinnan-
lega á Krossheimilið því þar eru
vötn með silungsveiði og netun-
um var ýtt út með tréspíru. Odd-
ur ákvað að smíða bát og smíðaði
hann úr tveimur bárujárnsplöt-
um. Báturinn fór í reynsluróður.
Niðurstaðan var sú að fleytan var
völt og hættuleg fyrir börn og
unglinga á bænum. Móðir okkar,
Sólrún Eiríksdóttir, kvað upp úr
með það. Oddur ákvað að betr-
umbæta bátinn, bætti bárujárns-
plötu í botninn og breikkaði hann
þar með verulega. Eftir þá breyt-
ingu var báturinn mjög stöðugur
og gagnaðist heimilinu vel. Odd-
ur hannaði og smíðaði netgirð-
ingu með steyptum staurum
kringum heimagrafreitinn á
Krossi sem ber handlagni hans
gott vitni. Seinna lærði Oddur
smíðar, varð húsgagnasmíða-
meistari og vann í Reykjavík,
lengst af hjá Reykjavíkurborg.
Oddur var músíkalskur. Hann
spilaði á harmóniku og lærði
harmónikuleik í kvöldskóla hjá
Karli Jónatanssyni. Oddur var
um árabil í Trésmíðafélagskórn-
um. Utanlandsferðir Odds urðu
margar. Meðal annars fór hann í
heimsreisu kringum jörðina með
Ingólfi Guðbrandssyni. Hann
heimsótti allar heimsálfur nema
Suður-Ameríku og Suðurskauts-
landið. Nú á vordögum talaði
hann um að kannski kæmist hann
til Suður-Ameríku.
Hvíl í friði, bróðir.
Jón.
Mig langt í fjarlægð fjallabláminn seiddi
og ferðalöngun ungum varð mér sár.
Hún seinna burt úr sveitinni mig leiddi
að sjá hvað geymdi fjarskinn
draumablár.
Oddur fór ungur til Vest-
mannaeyja og vann við bústörf
hjá Guðlaugi Guttormssyni föð-
urbróður sínum á Lyngfelli.
Þetta ferðalag og dvöl sumar-
langt opnaði honum nýjan heim.
Lán Odds var að komast í
smíðanám á Hólmi í Landbroti.
Þar lærði hann trésmíðar og
handverk af allra bestu gerð.
Þetta ár menntunar gerði hann
að úrvalstrésmið. Oddur þurfti
sinn tíma til að læra hina ýmsu
hluti en hætti aldrei fyrr en hann
hafði náð þeirri færni sem hann
sóttist eftir.
Oddur hafði góðar gáfur og
fjölbreytt áhugamál. Oddur var
músíkalskur, spilaði á harmoniku
og söng í kór Trésmíðafélags
Reykjavíkur. Hann orti ljóð og
gaf út ljóðabók sem fékk góða
dóma. Báðar vísurnar sem birt-
ast hér eftir Odd bera skáldskap
hans gott vitni. Að ferðast og
skoða lönd og álfur var hans
áhugamál og hann varð mjög
langförull. Innst inni var hann þó
náttúrubarn úr gömlu íslensku
sveitinni. Hann var þrautseigur
einfari og hafði persónuleika sem
alltaf var sjálfum sér sam-
kvæmur.
Einn þó hafi ævibraut
hér áfram keyrt í gleði og þraut.
Ég lending reyndi á réttum stað
og reið svo glaður heim í hlað.
Vertu sæll, bróðir.
Við hittumst síðar.
Baldur.
Ég vil í fáum orðum minnast
Odds frænda sem nú er farinn til
Sumarlandsins þangað sem við
förum öll að lokum. Ömmur okk-
ar Odds voru systur og á milli
Hafrafells og Kross, fæðingar-
staða okkar, var þægileg bæjar-
leið og því talsverður samgangur
milli bæja. Þær systur, ömmur
okkar Sigríður og Oddbjörg, voru
miklar sagnakonur og kunnu
ógrynni af sögum og ljóðum sem
þær miðluðu óspart til afkom-
enda. Músíkgáfa Oddbjargar
erfðist til afkomenda og held ég
að flest eða öll systkini Odds hafi
erft þá gáfu og spilað á harmón-
iku eða önnur hljóðfæri og eign-
aðist Oddur fljótlega góða harm-
óniku. Lá því leiðin oft í Kross og
var unað þar við spjall og harm-
ónikumúsík á því góða heimili.
Eftir að við Oddur lögðum leið
okkar hingað suður varð lengra á
milli samfunda eins og gengur en
er hægðist um með vinnu og ann-
að stúss fjölgaði samfundum.
Oddur komst einn vetur á skóla
að Hólmi í Landbroti og var það
síðasti vetur sem sá merki skóli
starfaði en þar öðlaðist hann
færni í ýmsum greinum. Með
harðfylgi og mikilli vinnu fyrir
sínu námi varð Oddur húsasmíða-
meistari og var gott að leita til
hans ef eitthvað bjátaði á á mínu
heimili. Hann las mikið og minnið
var með afbrigðum gott. Hann
ferðaðist mikið um heiminn og
var því fjölfróður. Einnig gekk
hann mikið hér um nágrennið og
Reykjanesið og stóran hluta há-
lendis hér sunnanlands og átti
marga góða göngu- og ferða-
félaga. Oddur var í félagi tré-
smiða og átti þar ferðafélaga og
söngfélagavini og var harmónik-
an þá oftlega með í för og söng-
urinn og dansinn dunaði þar til
sólin kom upp kl. 7 að morgni
næsta dags. Er hann sýndi einu
sinni skyggnur í Gjábakka nefndi
hann með nafni hvert einasta fjall
og fell og annað sem fyrir augu
bar.
Oddur var hagorður eins og
foreldrar hans og ætt hans er og
árið 2014 gaf hann út ljóðabókina
„Vornóttin angar“ og naut þar
aðstoðar Ragnars Inga Aðals-
steinssonar, þess ágæta manns.
Þegar aldurinn færist yfir er
ómetanlegt að eiga góða vini og
hefur Júlíus Guðmundsson og
fjölskylda reynst honum einstak-
lega vel. Einnig var hann alltaf
velkominn hjá frænda sínum Sig-
urði Kristinsyni og hans góðu
konu Guðríði Magnúsdóttur, en
þar voru vinir í garði eins og ég
og margir aðrir upplifðu á því
góða heimili á sínum tíma og er
það þakkað hér með.
Nú síðustu árin var hann bú-
settur hér í næsta húsi við mig og
því stutt að fara að koma í mat til
mín og var þá spjallað fram eftir
kvöldi því hann var biblíufróður
og ræddum við þá um mál þessa
heims og annars.
Ég þakka Oddi frænda mínum
samfylgdina á æviskeiðinu og bið
honum blessunar Guðs. Aðstand-
endum votta ég samúð mína.
Guðlaug Erla.
Síðasti jólasveinninn er kom-
inn til byggða sagði Oddur
frændi gjarnan hlákulegur, þeg-
ar hann kom í gættina á aðfanga-
dagskvöld. Þessi jólasveina-
brandari var á ýmsan hátt
viðeigandi fannst mér. Móður-
systkin mín voru einmitt eitt og
átta; þrjár systur og sex bræður,
og Oddur móðurbróður minn fór
víða (eins og jólasveinarnir) bæði
innanlands og erlendis. Hann
myndaði ferðalögin frá upphafi til
enda og endurlifði þau í frásögn-
inni þegar hann sýndi okkur hin-
um með skyggnum og stóru
tjaldi, sögustaðina sem hann
hafði heimsótt. Þegar ég var lítil
fannst mér litskæru myndirnar
frá Austurlöndum og Asíu mun
tilkomumeiri en grátónamyndir
af hálendi Íslands og botnaði
ekkert í því hvað honum Oddi
frænda mínum fannst svona
heillandi við gráa sanda og vos-
búð á íslenskum öræfum. Hann
hvatti mig til þess að fylgja i sín
fótspor og skoða heiminn, ekki
síður en til að ganga á Einhyrn-
ing, Þríhyrning og reyndar fjöllin
almennt allt í kring, eins og hann.
Oddur frændi er farinn í síð-
ustu ferðina. Ég geymi góðar
minningar um samverustundir
þar sem spjallað var um heima og
geima, þennan heim og annan,
bollalagt um næsta ferðalag eða
spáð í bolla.
Sólrún Svandal.
Allir í fjölskyldunni kölluðu
hann Odd frænda. Gott ef systk-
ini hans gerðu það ekki líka á
stundum.
Hann var bróðir pabba og ég
hef þekkt hann frá því ég var lítill
strákur. Hann bjó í áratugi í
Reykjavík en kom austur á Hér-
að á hverju sumri og stundum um
jól.
Hann var alltaf Fellamaður og
Kross var heima fyrir honum.
Þar þekkti hann hvern stein og
hverja þúfu. Þar leið honum best.
Oddur var ekki gallalaus frek-
ar en aðrir og sérstakur um
margt. Hann sættist við það í líf-
inu sem reyndist honum erfitt og
naut þess sem það gaf honum.
Ferðirnar austur voru eitt af því.
Í þessum heimsóknum hans
kynntist ég honum og okkur varð
strax vel til vina. Fyrst gekk ég
með honum um Krossland sem
lítill strákur, seinna unglingur og
loks sem fullorðinn maður. Þar
áttum við sameiginlegar rætur.
Ég bauð honum oft með mér í bíl-
túr um Fellin eða upp á Fjarð-
arheiðarbrún þar sem okkur
fannst fallegt að horfa yfir Hér-
aðið okkar.
Héraðið dró Odd alltaf til sín
og það kom best í ljós fyrir tveim-
ur árum þegar hann veiktist og
lenti á spítala í ferð sinni austur.
Hann ætlaði sér austur sama
hvað kraftar hans væru orðnir
litlir. En heim í Fellin komst
hann þó tæpt væri! Hann var
hæstánægður með að komast alla
leið en þetta varð síðasta ferðin
austur.
Oddur ferðaðist út um allan
heim og sögurnar sem hann sagði
af ferðum sínum opnuðu heiminn
fyrir mér. Það var eins og að
hlusta á ævintýri að heyra Odd
segja frá ferðum sínum. Mér
fannst stórmerkilegt, þegar ég
var að alast upp, að bróðir pabba
skyldi hafa ferðast til landa sem
ég hafði bara lesið um eða séð á
korti.
Það var betra að hafa tímann
fyrir sér þegar hringt var í Odd.
Síðast þegar við töluðum saman
bar margt á góma. Eitt af því sem
við ræddum voru eilífðarmálin.
Hann sagðist fullviss um að til-
veran héldi áfram eftir þessa sem
við vorum þá báðir hluti af. Hvert
sem Oddur frændi er kominn
núna er ég viss um að hann mun
njóta ferðalagsins. Kannski fer
hann til Suður-Ameríku og Suð-
urskautslandsins.
Að leiðarlokum þakka ég sam-
verustundir sem gáfu mér mikið,
samtöl sem stóðu oft lengi, enda-
lausan fróðleik og góð ráð en
Oddur átti nóg af þeim. Farðu
vel, frændi!
Sigfús Guttormsson
frá Krossi.
Vinur minn, Oddur Sigfússon
frá Krossi í Fellum, er látinn.
Hann var orðinn heilsutæpur,
kominn á níræðisaldur og slitinn
eftir langan vinnudag. Og nú hef-
ur hann fengið hvíld.
Oddur fór ungur að heiman,
lærði trésmíði og fluttist til
Reykjavíkur, þar sem hann starf-
aði við smíðar og sinnti fjöl-
breyttum áhugamálum. Hann
var hæfileikaríkur, lék á harmón-
iku og söng í kór, auk þess sem
hann var afbragðsvel hagorður
og skemmti samferðafólki sínum
með hnyttnum og skemmtilegum
vísum.
Það var í gegnum kveðskapinn
sem ég kynntist Oddi fyrst eitt-
hvað að ráði, við þá báðir orðnir
nokkuð fullorðnir. Það kom mér
dálítið á óvart hvað hann hafði
næma skynjun fyrir brag. Hon-
um var lagið að setja saman
kvæði á þann hátt að hrynjandin
minnti á tónlist. Hjá honum fóru
saman brag- og tóneyra eins og
heyra má í mörgum ljóðum hans.
Auk þess tókst honum öðrum
betur, einkum þegar hann fékkst
við alvarlegri mál, að snerta til-
finningar lesandans og hrífa
hann með sér. Sum kvæði Odds
eru svo sterk og grípandi að það
verður ekki betur gert. Og svo
gat hann verið meinfyndinn og
skemmtilegur. Hann orti um allt
sem fyrir varð, breytti í ljóðlínur
öllu því sem mætti honum á lífs-
leiðinni, allt var unnið af ná-
kvæmni og trúmennsku við brag-
inn.
Ég kveð þennan félaga minn í
kveðskapnum með þakklæti og
hlýhug. Megi öðlingurinn Oddur
frá Krossi hvíla í friði.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Oddur Sigfússon
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
SONJA ÁSBJÖRNSDÓTTIR,
Gunnlaugsgötu 18, Borgarnesi,
lést þriðjudaginn 1. október.
Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju
laugardaginn 12. október klukkan 14. Blóm og kransar
vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja minnast hennar láti
Brákarhlíð njóta þess.
Örn R. Símonarson
Unnur Hafdís Arnardóttir Bjarni Knútsson
Ragnheiður Harpa Arnard. Guðjón Kristjánsson
Jónína Erna Arnardóttir Vífill Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HARALDUR SVEINSSON,
Efstaleiti 12, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 9. október
klukkan 11.
Agnes Jóhannsdóttir
Soffía Haraldsdóttir
Ásdís Haraldsdóttir
Jóhann Haraldsson Gréta Pape
Sveinn Haraldsson
Haraldur Agnes Civelek Edda Civelek
Marta Eiríksdóttir Benoit Branger
Agnes Jónasdóttir
Daníel Jóhannsson Amber Allen
Alexander Jóhannsson
og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
JAKOBÍNA PÁLSDÓTTIR JÓNSDÓTTIR
frá Bíldudal,
lést föstudaginn 27. september á
Landspítalanum Hringbraut í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá
Bíldudalskirkju laugardaginn 12. október klukkan 14.
Sigurþór Lúðvík Sigurðsson
Jón Arnar Sigurþórsson Margrét Katrín Guðnadóttir
Ólafur Hrafn Sigurþórsson Ragnheiður Gunnarsdóttir
Elías Sigurþórsson Ásdís Helgadóttir
barnabörn og systkini
Ástkær eiginkona mín og móðir,
HRÖNN GARÐARSDÓTTIR
heimilislæknir,
lést á Landspítalanum 24. september.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju
mánudaginn 7. október klukkan 13.00.
Minningarathöfn verður haldin í Egilsstaðakirkju fimmtudaginn
10. október klukkan 14.00.
Þeir sem vilja minnast Hrannar er bent á að hafa samband við
Rebekkustúku nr. 15, Björk á Egilsstöðum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Páll Rúnarsson
Garðar Páll Pálsson