Morgunblaðið - 05.10.2019, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Um þessar mund-
ir eru liðin 66 ár síð-
an við Jón Ólafur
Þórðarson sáumst fyrst í Barna-
skólanum á Ísafirði þar sem við
hófum samferð okkar um lífið. Við
fylgdumst síðar að í gegnum
Gagnfræðaskólann á Ísafirði og
Menntaskólann á Akureyri, en
þaðan urðum við samstúdentar.
Eftir það skildi leiðir um stund,
en Jón Ólafur fór í lögfræði og
varð seinna fulltrúi hjá sýslu-
manni á Ísafirði og sat um nokkur
ár í bæjarstjórn Ísafjarðar fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Jón Ólafur var sérstæður mað-
ur; glaðsinna, hreinskiptinn, vafn-
ingalaus og talaði alltaf tæpi-
tungulaust; fór sínar eigin leiðir í
ýmsum efnum og kom þetta ekki
sízt fram í tali hans en við félagar
hans nefndum þetta gjarnan
Jónsólöfsku, en hann hafði nautn
af því að gefa ýmsu því sem dag-
lega kom upp á sín sérstöku nöfn.
Hann fór til dæmis ekki til Banda-
ríkjanna eða Kanada – heldur usu
og könudu, tengdasonur hans
vann ekki hjá Volkswagen heldur
fáví og bjó um skeið í úlfaborg og
Jón Ólafur
Þórðarson
✝ Jón ÓlafurÞórðarson
fæddist 16. janúar
1946. Hann varð
bráðkvaddur 23.
september 2019.
Útför hans fór
fram 4. október
2019.
svo mætti lengi
telja. Hann fór að
sama skapi ekki með
löndum fram í and-
stöðu eða stuðningi
við menn og málefni
heldur myndaði
hann sér algerlega á
eigin spýtur skoðan-
ir og hélt þeim hik-
laust fram. Hann
var sjálfstæðismað-
ur í bezta skilningi
þess orðs og nefndi Moggann allt-
af Sossann. Um miðbik ævinnar
sáumst við sjaldnar, en hittumst
alla ævi öðru hvoru og voru það
gleðistundir. Svo var það fyrir
nokkrum árum, að ég hafði frum-
kvæði að því að við sem vorum
leikfélagar á Ísafirði í fyrndinni
kæmum aftur saman og héldum
hópinn á efri árum.
Þeim sið höfum við haldið síðan
að hittast alltaf einu sinni í mán-
uði og skiptast á skoðunum og þá
gjarnan leitað uppi fiskstaði og nú
um nokkurra ára skeið hefur
Messinn á Grandanum verið okk-
ur athvarf. Það er því skarð fyrir
skildi og við söknum vinar í stað.
Við félagarnir af Messanum, ég,
Veturliði Guðnason, Magnús E.
Finnsson, Finnur Birgisson, Ólaf-
ur Karvel Pálsson og Halldór
Guðbjarnason sendum allir hug-
heilar samúðarkveðjur til Böddu
og barna hans, systkina og ann-
arra aðstandenda. Blessuð sé
minning okkar gamla félaga.
Bárður G. Halldórsson.
Tíminn er eins og fugl; fugl
sem flýgur hratt; hraðar en hönd
á festir og getur ekki stöðvað. Það
henti nú í fyrri viku þegar ég
fregnaði ótímabært og skyndilegt
fráfall vinar míns og æskufélaga,
Jóns Ólafs Þórðarsonar.
Við höfum þekkst eins lengi og
minni mitt nemur; ólumst upp á
Ísafirði og ásamt fleirum fylgd-
umst við að og hleyptum heim-
draganum áfram út í heiminn,
með þá öruggu og bjargföstu til-
finningu í brjósti að lífið væri
óbreytanlegt að því leyti að allir
værum við til staðar áfram hver
fyrir annan.
Auðvitað vissum við að óend-
anleikinn væri tálsýn og við yrð-
um hrifsaðir einn af öðrum á
brott, en það bara náði ekki upp í
hugann.
Við vorum bara sömu púkarnir
og fyrr og það var tilveran sjálf að
hittast mánaðarlega, rifja upp
gamlar minningar, karpa um hver
hefði gleymt og hver myndi best.
Það var liður í tilverunni að hitt-
ast og gleðjast.
Tilfinningin er eins og að hluti
af manni sjálfum sé horfinn nú
þegar ég horfi yfir farinn veg og
minnist Nonna og allra uppá-
tækja okkar ungra púka, ung-
linga með brilljantín í hári og síð-
ar ábyrgðarfullra ungra manna
sem festum ráð okkar hver á sinn
hátt. Tilfinningin er vond og það
er sárt að finna tómið sem hellist
yfir um leið og maður áttar sig á
að endalokin eru óumflýjanleg.
Það fyrsta sem flögraði um
huga minn þegar ég horfði yfir
okkar samvistir á okkar umliðnu
ævi var ferð okkar fjögurra vina
um miðja síðustu öld inn í Djúp.
Við vorum rétt fermdir og
höfðum tæplega hleypt heim-
draganum áður, í það minnsta
ekki einir. Já, við vildum skoða
okkur um og fara landleiðina inn í
Djúp, tjalda og vera alvöru full-
orðnir strákar við ekkert smeyk-
ir. Seyðisfjörður var áfangastað-
urinn og það var enginn skottúr.
Enginn bílvegur var kominn og
var því gripið til þess ráðs að aka
inn í Súðavík og fá bát til að skutla
okkur inn að Eyri í Seyðisfirði.
Við vorum ágætlega haldnir
með einn olíulampa sem lýsti vel
og eitt lítið varaljós. Leiðin var
löng en inni á Kleifum beið bóndi í
dyrunum. Einhver okkar hvíslaði
eftir að bóndi hafði vísað á gott
tjaldstæði í túninu: „Sáuð þið ekki
strákar að hann hafði haglabyss-
una innan við dyrnar?“ og var
ekki laust við smá titring og
spennu í röddinni.
Þessi ferð var ævintýri. Við
vorum hreinlega í Undralandi
bæði í Seyðisfirði og Hestfirði og
nutum þess að vera menn með
mönnum og bera ábyrgð á sjálf-
um okkur. Svona eftir á að hyggja
þroskuðumst við með ógnarhraða
á þessum fjórum dögum.
Það verður skarð fyrir skildi
sem ekki verður fyllt næst þegar
við félagarnir borðum saman. All-
ir eigum við eftir að sakna Jóns
Ólafs mikið. Þegar við hittumst
síðast var svo bjart yfir honum,
hann leit vel út og nýlega kominn
úr fríi. Það var ekki helgríma sem
varði hans ljómandi bros og
glampa í augum. Fjarri lagi, en
enginn má sköpum renna.
Jón Ólafur var sérstakur kar-
akter og þorði alla tíð að vera
hann sjálfur; traustur, heiðarleg-
ur og sannur vinur. Fólkinu hans
sem nú syrgir votta ég mína
dýpstu samúð.
Magnús E. Finnsson.
Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Þorbergur Þórðarsson
Elís Rúnarsson
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirð,
lést í faðmi fjölskyldunnar að kvöldi 28.
september á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Sigurlaug, Guðrún, Bjarni, Anna María
og fjölskyldur
Ástkær bróðir, frændi og mágur,
KAJ DEVANEY
Tampa, Flórída,
lést föstudaginn 27. september eftir stutt
veikindi.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Elizabeth A. Devaney
David A. Devaney
Deirdre A. Devaney David R. Scott
Christian J. Devaney
Phineas J. Scott
Ólafur W. Scott
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VALGARÐUR SIGURÐSSON
hæstaréttarlögmaður,
lést á Skjóli mánudaginn 30. september í
faðmi fjölskyldunnar. Útför hans fer fram frá
Víðistaðakirkju föstudaginn 11. október klukkan 13.
Elísabet Kristjánsdóttir
Hulda Björk Valgarðsdóttir
Kristján Valgarðsson
Pétur Valgarðsson
Sigurður Valgarðsson
tengdabörn og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
ÞORSTEINN JÓNSSON
fv. framkvæmdastjóri
lést á hjúkrunarheimilinu Höfða
fimmtudaginn 26. september.
Úförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 10. október
klukkan 13.
Margrét Þórarinsdóttir
Anna Berglind Þorsteinsd. Guðmundur Valgeirsson
Jón Ágúst Þorsteinsson Sigríður Sigurðardóttir
afa- og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Seli í Skaftafelli
sem lést 24. september verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 9. október
klukkan 13.
Kjartan Ragnarsson Sigríður Margrét Guðmundsd.
Guðmundur Örn Ragnarsson Jónína Lára Einarsdóttir
Hörður Ragnarsson Jónína Sigurlaug Marteinsd.
Inga Sigríður Ragnarsdóttir Stefan Klar
barnabörn og langömmubörn
Elsku besta Ella
okkar. Um leið og
við kveðjum þig
langar okkur að
þakka fyrir allar góðu stundirnar
á lífsleiðinni. Grunnur að vináttu
okkar var lagður í Viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands þar
sem við nokkrir félagar tókum
okkur saman sem leshóp og sem
stuðningur hvert við annað. Les-
stofan í Nóatúni var valin sem
samastaður okkar og þar áttum
við margar gleði- og gæðastund-
ir. Grunnur að ævilangri vináttu
var lagður á þessum árum. Vor-
boðinn varð til. Síðan þá hafa
makar bæst í hópinn og við höf-
Elín Magnadóttir
✝ Elín Magna-dóttir fæddist
13. júní 1964. Hún
lést 20. september
2019.
Útför Elínar fór
fram 1. október
2019.
um fylgt hvert öðru
í gegnum lífið með
gleði, virðingu og
væntumþykju að
leiðarljósi. Að
kveðja þig er eitt
það erfiðasta sem
við höfum tekist á
við og mikið skarð
er höggvið í okkar
hóp. Samverustund-
ir okkar verða ekki
fleiri að sinni en
hugur okkar mun að eilífu vera
hjá þér.
Í hjarta okkar hvílir þú, í hug-
um okkar lifir þú, í sálum okkar
rennum við saman, í verki mun-
um við framhalda umhyggju
þinni fyrir fjölskyldu þinni, ætt-
ingjum og vinum.
Hvíldu í friði, elsku besta Ella
okkar, og Guð veri með fjöl-
skyldu þinni á þessum erfiðu tím-
um.
Þínir vinir í Vorboðanum.
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar