Morgunblaðið - 05.10.2019, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Yfir 50 vörur
á frábæru
verði !
-skoðaðu úrvalið í
netverslun
TILBOÐSDAGAR
gilda til 11.október
FB Selfoss
Austurvegur 64a
5709840
FB Hella
Suðurlandsvegur 4
5709870
FB Hvolsvöllur
Ormsvöllur 2
5709850
Fóðurblandan hf. - www.fodur.is - 5709800
Hestafóður Sag 18 kg og kögglar Staldren og Fóðurlýsi
50 ára Siguroddur er
Reykvíkingur en býr í
Hrísdal á Snæfellsnesi.
Hann er tamninga-
maður og rekur
hrossabú ásamt konu
sinni. Hann er í lands-
liðinu í hestaíþróttum
og var m.a. Reykjavíkurmeistari í tölti í
vor.
Maki: Ásdís Ólöf Sigurðardóttir, f. 1967,
tamningamaður.
Dóttir: Guðný Margrét Siguroddsdóttir,
f. 1997, nemi í hestafræðum á Hólum.
Foreldrar: Pétur Rúnar Siguroddsson, f.
1947, trésmiður, og Guðný Margrét
Magnúsdóttir, f. 1948, fv. skrifstofukona
og organisti. Þau eru búsett í Kópavogi.
Siguroddur
Pétursson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert staðráðinn í því að koma
einhverju í framkvæmd sem tengist fjár-
málum. Fólk leitar ráða hjá þér, sem þú og
veitir, en samt hlustar það ekki á þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Kynntu þér gang mála og þú munt
sjá margt sem nýtist þér núna. Þú ert að
taka mikið framfaraskref í lífinu þessa
dagana. Láttu aðra um sín mál.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú lendir í einhverjum deilum
heima fyrir og það er mikilvægt til sátta
að þú dragir ekkert undan
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér er nauðsynlegt að brydda upp
á einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit.
Sumt er þess virði að reyna það, þó að
partur af manni sjálfum haldi að það sé
ekki hægt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Smámunasemin er alveg að fara
með þig þessa dagana. Aðalatriðið er þó
að halda sjálfum sér í jafnvægi og til-
búnum til að takast á við hlutina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt þú eigir erfitt með samskiptin
við þína nánustu, skaltu muna að sjaldan
veldur einn þá tveir deila.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í heiminum eru tvenns konar vanda-
mál, þín og þeirra. Samræður geta orðið
áreynslulausar og gefandi og samkenndin
mun gleðja þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að sjá það góða í
öðru fólki fremur en það slæma. Láttu
glósur annarra sem vind um eyru þjóta;
þær eru öfund.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt fjölskyldan eigi hug þinn
allan eru erfiðleikar annarra innan hennar
að sliga þig. Gerðu eitthvað til að breyta
því.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugsast getur að einhver láti
ummæli falla sem ná alla leið inn í kviku á
þér. Það er allt í lagi að leyfa sterkum til-
finningum að taka yfir rökhugsunina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það fer afskaplega í taugarnar
á þér að horfa upp á vinnufélagana troða
skóinn hvern af öðrum. Forðastu að vera
með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum er eins og tækifærin bíði
fólks, en stundum er eins og fólk þurfi að
hafa mikið fyrir hlutunum.
siðanefnd BÍ, siðanefnd Alþingis (er
þar enn þá), verið formaður ráð-
gjafanefndar fjármálanefndar um
hæfi stjórnarmanna fjármála-
fyrirtækja, setið í fagráði Norfa, set-
ið í fagráði Rannís, og setið í stjórn
bindindissamtakanna IOGT.
Róbert H. hefur birt nokkrar
bækur og fjölda greina í tímarit og
safnrit og einnig í dagblöð. Eftir
hann liggja meðal annars bækurnar
Frjálsir andar, Tveggja manna tal
og Plotting against a Lie.
Helstu áhugamálin sem haldist
hafa nokkuð stöðug í áranna rás eru
myndlist, ljóðlist, kvikmyndir og úti-
vist. „Ég var einn af þeim sem voru
þvingaðir til að læra kvæði utan-
bókar í barnaskóla og smám saman
fór ég að hafa ákaflega gaman af
sem í fiskvinnslu á Stokkseyri, í Þor-
lákshöfn, á Flateyri og í Sandgerði,
við skrifstofustörf hjá Brunabóta-
félagi Íslands, við garðyrkju, sorp-
hreinsun, hellulagningar og til-
raunaboranir á Nesjavöllum hjá
Reykjavíkurborg, sem næturvörður
hjá Símanum og hjá Reiknistofu
bankanna, sem afleysingamaður hjá
Póstinum, ritdómari hjá Morgun-
blaðinu, gagnfræðaskólakennari í
Hveragerði og mörg önnur störf.
Samhliða háskólakennslu hefur
Róbert sinnt ýmsum aukastörfum.
Hann hefur verið ritstjóri Skírnis –
Tímarits Hins íslenska bókmennta-
félags ásamt Jóni Karli Helgasyni,
einn af ritstjórum SATS, formaður
Félags háskólakennara, setið í fjöl-
miðlanefnd (er þar ennþá), setið í
R
óbert Hilmar Níels
Haraldsson er fæddur
5. október 1959 í
Reykjavík og ólst upp í
Reykjavík og á
Stokkseyri. Hann var eitt sumar í
sveit í Bakkakoti í Stafholtstungum,
Borgarfirði hjá Kristjáni bónda
Axelssyni og Katrínu Júlíusdóttur.
Róbert H. stundaði nám við
grunnskóla Stokkseyrar og við Hlíð-
ardalsskóla í Ölfusi. Hann lauk
landsprófi frá Vörðuskóla í Reykja-
vík, stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti, BA-prófi í
heimspeki og sálfræði frá Háskóla
Íslands, og MA og Ph.D. frá Háskól-
anum í Pittsburgh, Pennsylvaníu,
BNA.
Róbert H. hefur starfað við Há-
skóla Íslands frá 1992 sem stunda-
kennari, lektor, dósent og síðan pró-
fessor, ef frá eru talin árin 2015-2017
þegar Róbert H. var prófessor við
Colgate-háskóla í New York-ríki í
Bandaríkjunum. Frá árinu 2017 hef-
ur Róbert H. starfað sem sviðsstjóri
kennslumála við Háskóla Íslands.
„Sviðstjóri kennslusviðs – stund-
um líka nefndur kennslustjóri HÍ –
hefur yfirumsjón með margvíslegum
kennslumálum Háskólans. Þar undir
falla m.a. kennslumiðstöð, prófa-
skrifstofa, matsskrifstofa, náms og
starfsráðgjöf, nemendaskrá, þjón-
ustuborð, rafrænir kennsluhættir og
kennsluskrá. Sem kennslustjóri hef
ég ekki neina kennsluskyldu en ég
er oft beðinn um að sinna afmark-
aðri kennslu í námskeiðum í ólíkum
deildum og á þessu misseri er ég t.d.
með innlit í lagadeild, umhverfis- og
byggingarverkfræðideild, viðskipta-
fræðideild og sagnfræði- og heim-
spekideild. Sú kennsla sem ég tek að
mér í þessu starfi tengist ekki síst
þeim sviðum sem falla að rann-
sóknum mínum, t.d. um málfrelsi,
siðareglur, viðskiptasiðfræði, sam-
félagslega ábyrgð fyrirtækja og síð-
an hef ég líka haldið málstofu um
John Stuart Mill sem er sá sögulegi
heimspekingur sem ég hef mest
rannsakað og skrifað um.“
Áður en Róbert H. sneri sér að
háskólakennslu vann hann við ýmis
störf í Reykjavík og úti á landi svo
ljóðum. Sú ánægja hefur aldrei dofn-
að og í þessari afmælisviku las ég
t.d. ljóðabókina Skepnur eru vitlaus-
ar í þetta eftir Eyþór Árnason sem
Eyþór sendi einmitt frá sér árið
2018 þegar hann var kominn yfir
sextugt. Afskaplega fjölbreytilegt
verk sem ég fann ótal snertifleti
við.“
Róbert H. hefur stundað hjólreið-
ar um árabil og lagði sig sérstaklega
eftir hjólreiðum á hálendi Íslands
um nokkurra ára bil. Á síðustu árum
hafa bæst við fjölmörg ný áhugamál
svo sem sjósund í Nauthólsvík,
geimferðir (sérstaklega Apollo-
geimferðirnar), krossgátur og
bandarísk stjórnmál (ekki síst ferill
Lyndons Baines Johnson 36. forseta
Bandaríkjanna). Eiginkonan gaf
Róberti í 60 ára afmælisgjöf ferð til
Texas þar sem bókasafn LBJ í Aust-
in var heimsótt og NASA Space
Center í Houston skoðuð í krók og
kima. „Sjósund er yndislegt sport og
sama gildir um krossgátur og ég fer
yfirleitt ekki út úr húsi á laug-
ardögum fyrr en ég hef leyst kross-
gátu Moggans. Ég safna úrum, og
leita uppi vönduð en ódýr úr, og
dáist mjög að vandaðri hönnun.“
Fjölskylda
Eiginkona Róberts H. er Kolbrún
Þorbjörg Pálsdóttir, f. 22.5. 1971,
Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki og sviðsstjóri kennslumála við HÍ – 60 ára
Fjölskyldan Kolbrún Brynja, Sóley Auður, Sunna Ösp, Kolbrún Þorbjörg, Róbert H., Páll Kári og Ragnhildur.
Kennslustjóri Háskóla Íslands
Hjónin Stödd í NASA í Houston í 60 ára afmælisferð Róberts H.
Karl Hjartarson og Ragnheiður
Hrefna Gunnarsdóttir áttu 50 ára
brúðkaupsafmæli í gær. Þau gengu
í hjónaband 4. október 1969.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
30 ára María er frá
Fellabæ en býr í
Vesturbænum í
Reykjavík. Hún er með
BS-gráðu í rekstrar-
verkfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík og
er framkvæmdastjóri
Ölmu fasteignafélags.
Maki: Ellert Arnarson, f. 1987, stærð-
fræðingur og er sérfræðingur í eigna-
stýringu hjá Lífeyrissjóði versl-
unarmanna.
Sonur: Einar Örn Ellertsson, f. 2018.
Foreldrar: Einar Ólafsson, f. 1948, fyrr-
verandi skólastjóri, og Sólveig Vignis-
dóttir, f. 1949, kennari. Þau eru búsett í
Kópavogi.
María Björk
Einarsdóttir
Til hamingju með daginn