Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 46
EHF-KEPPNIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FH og Selfoss verða í eldlínunni í
EHF-keppni karla í handbolta um
helgina. Íslandsmeistarar Selfoss
koma beint inn í 2. umferðina og
mæta í dag Malmö á útivelli í fyrri
leik liðanna. FH fær hins vegar
norsku deildarmeistarana í Arendal
í heimsókn í Kaplakrika kl. 17 á
morgun.
„Möguleikar okkar eru ágætir.
Við þurfum bara að mæta hrikalega
öflugir til leiks í fyrri leiknum á
heimavelli, sýna tennurnar í byrjun
og hversu sterkir við erum. Ef við
byrjum vel og eigum góðan leik eig-
um við alveg að geta unnið á heima-
velli, og svo tökum við stöðuna eftir
það,“ segir FH-ingurinn Ásbjörn
Friðriksson.
Eins og fyrr segir varð Arendal
norskur deildarmeistari á síðustu
leiktíð en liðið tapaði svo í úr-
slitaeinvígi gegn Elverum í maí. Lið-
ið féll út í 16-liða úrslitum Áskor-
endabikars Evrópu. Í haust sat
Arendal hjá í fyrstu umferð EHF-
keppninnar en liðið hefur farið illa
af stað í norsku úrvalsdeildinni og
tapað þremur af fyrstu fjórum leikj-
um sínum. Þess má geta að Nökkvi
Dan Elliðason lék með Arendal fyrri
hluta síðustu leiktíðar áður en hann
gekk í raðir Selfoss.
Vitum við hverju er að búast
„Þetta er öflugt lið með stóra og
sterka leikmenn. Þeir keyra gríðar-
lega hratt fram völlinn, hlaupa mik-
ið og leikirnir eru hraðir. Síðan hafa
þeir verið að spila 1-2 útgáfur af
varnarleik sem við höfum skoðað.
Við vitum ágætlega við hverju er að
búast. Lykilatriði fyrir okkur er
klárlega að ljúka sóknunum okkar
almennilega og ná að koma okkur í
vörnina, því þeir refsa hiklaust og
hlaupa hraðaupphlaupin grimmt.
Það ætlum við líka að gera svo að
vonandi verður þetta bara hraður og
skemmtilegur leikur,“ segir Ás-
björn.
Ásbjörn og félagar í FH voru grát-
lega nálægt því að komast í riðla-
keppni EHF-keppninnar fyrir tveim-
ur árum þegar þeir mættu Tatran
Presov frá Slóvakíu í 3. umferð:
„Við vorum gríðarlega nálægt því
að komast í riðlakeppnina, töpuðum
á einu útivallarmarki gegn Tatran
Presov sem er hörkulið og var í
Meistaradeildinni í fyrra. Það var
svekkjandi. Möguleikinn er því fyrir
hendi, en það er líka möguleiki á að
fá mjög spennandi lið strax í þriðju
umferð þegar stóru, þýsku liðin
koma inn. Það er góð gulrót en fyrst
og fremst er núna gaman að fá að
bera sig saman við virkilega gott,
norskt lið. Það yrði frábært að kom-
ast í gegnum þetta einvígi.“
Norðmennirnir refsa hiklaust
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EHF Ásbjörn Friðriksson skýtur að
marki Vise frá Belgíu í 1. umferð.
FH tekur á móti Arendal í Kaplakrika á morgun og Selfoss spilar í Malmö í dag
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Vináttulandsleikir kvenna
Frakkland – Ísland .................................. 4:0
Eugénie Le Sommer 4., 17., Delphine Casc-
arino 66., Mael Majri 85.
Bandaríkin – Suður-Kórea..................... 2:0
Allie Long 45., Mallory Pugh 76.
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Ungverjaland – Svíþjóð .......................... 0:5
Magdalena Ericsson 13., Madelen Janogy
46., 51., Sofia Jakobsson 90., Loreta Kul-
lashi 90.
Lettland – Slóvakía ................................. 1:2
Karlina Miksone 3. – Patricia Hmirová 34.,
Jana Vojteková 74.
Staðan:
Svíþjóð 2 2 0 0 9:1 6
Ísland 2 2 0 0 5:1 6
Slóvakía 2 1 0 1 2:2 3
Lettland 2 0 0 2 2:6 0
Ungverjaland 2 0 0 2 1:9 0
A-RIÐILL:
Tyrkland – Eistland ................................. 0:0
Slóvenía – Holland.................................... 2:4
Holland 9, Rússland 6, Slóvenía 3, Kós-
óvó 3, Tyrkland 1, Eistland 1.
B-RIÐILL:
Danmörk – Bosnía.................................... 2:0
Malta – Ítalía ............................................ 0:2
Danmörk 9, Ítalía 9, Bosnía 6, Ísrael 0,
Georgía 0, Malta 0.
C-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Noregur...................... 1:7
Noregur 6, Wales 4, Hvíta-Rússland 3,
Norður-Írland 1, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
Spánn – Aserbaídsjan .............................. 4:0
Tékkland 3, Spánn 3, Pólland 0, Aserba-
ídsjan 0, Moldóva 0.
E-RIÐILL:
Albanía – Portúgal ................................... 0:1
Skotland 3, Finnland 3, Portúgal 3, Alb-
anía 0, Kýpur 0.
D-RIÐILL:
Litháen – Sviss ......................................... 0:3
Sviss 6, Belgía 3, Króatía 3, Rúmenía 0,
Litháen 0.
Katar
Al-Khor – Al-Arabi.................................. 1:3
Aron Einar Gunnarsson var í liði Al-
Arabi en var borinn meiddur af velli rétt
fyrir leikslok. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Pólland
Slask Wroclaw – Jagiellonia .................. 1:1
Böðvar Böðvarsson sat allan tímann á
bekknum hjá Jagiellonia.
England
B-deild:
Birmingham – Middlesbrough................ 2:1
Þýskaland
Hertha Berlín – Fortuna Düsseldorf ..... 3:1
B-deild:
Darmstadt – Karlsruher......................... 1:1
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Frakkland
B-deild:
Valenciennes – Grenoble........................ 0:2
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
Danmörk
Nordsjælland – Lyngby .......................... 1:1
Frederik Schram var varamarkvörður hjá
Lyngby.
Holland
B-deild:
Cambuur – Excelsior .............................. 4:0
Elías Már Ómarsson kom inn á hjá Ex-
celsior á 76. mínútu.
Belgía
B-deild:
Lommel – Roeselare ............................... 2:1
Kolbeinn Þórðarson fór af velli á 85. mín-
útu hjá Lommel. Stefán Gíslason þjálfar
liðið.
Arnar Grétarsson þjálfar Roeselare.
KNATTSPYRNA
Dominos-deild karla
Þór Þ. – Stjarnan.................................. 80:92
KR – Grindavík..................................... 89:77
1. deild karla
Álftanes – Skallagrímur ...................... 90:65
Snæfell – Vestri .................................. 64:114
Sindri – Hamar ................................... 88:102
Evrópudeildin
Alba Berlín – Zenit Pétursborg......... 85:65
Martin Hermannsson skoraði sjö stig
fyrir Alba, átti níu stoðsendingar og tók tvö
fráköst en hann lék í 24 mínútur.
Svíþjóð
Borås – Wetterbygden Stars ............. 88:84
Elvar Már Friðriksson skoraði 22 stig
fyrir Borås, tók sjö fráköst og átti sex stoð-
sendingar á 28 mínútum.
KÖRFUBOLTI
Í VESTURBÆNUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Sjötta titilvörn KR í röð á Íslands-
móti karla í körfubolta fór vel af stað í
gærkvöldi. KR fékk Grindavík í
heimsókn og vann öruggan 89:77-
sigur. KR náði yfirhöndinni snemma
og þrátt fyrir ágæt áhlaup Grindvík-
inga inn á milli var sigur KR aldrei í
hættu. Í hvert skipti sem Grindavík
skoraði nokkur stig í röð og hótaði að
gera leikinn spennandi skoruðu KR-
ingar nokkur stig á móti og varð
munurinn aldrei minni en sjö stig í
seinni hálfleik.
Lúxuslið KR-inga
Fyrir leik var ljóst að verkefni
Grindavíkur yrði erfitt þar sem eini
atvinnumaður liðsins, Jamal Olase-
were, var fjarri góðu gamni vegna
meiðsla í læri. Grindvíkingar reyndu
hvað þeir gátu en gæði og reynsla
KR-inga voru of mikil. KR er með
enn sterkara lið en oft áður með inn-
komu leikmanna eins og Jakobs Arn-
ar Sigurðarsonar, Michaels Craions,
Matthíasar Orra Sigurðarsonar og
Brynjars Þórs Björnssonar. Krist-
ófer Acox og Björn Kristjánsson léku
ekki með KR vegna meiðsla og
Brynjar lék aðeins þrjár mínútur, þar
sem hann er að stíga upp eftir
meiðsli. KR var því án þriggja
sterkra leikmanna langstærstan
hluta leiks, en þrátt fyrir það var leik-
mannahópurinn sá sterkasti í deild-
inni. KR-liðið er orðið lúxuslið og ætti
að vinna sinn sjöunda meistaratitil í
röð. Stigaskor KR-inga dreifðist vel
og allir lögðu í púkkið. Michael Crai-
on skoraði 23 stig og Helgi Már
Magnússon gerði 16.
Það er lítið út á frammistöðu
Grindavíkur að setja. Úrslitin eru al-
gjörlega eðlileg, sérstaklega í ljósi
þess að atvinnumaður liðsins var ekki
með. Grindavík er með sterka leik-
menn eins og Sigtrygg Arnar Björns-
son, Ingva Þór Guðmundsson, Ólaf
Ólafsson og Dag Kár Jónsson. Þeir
verða allir að eiga stjörnuleik til að
Grindavík geti unnið KR og svo þarf
atvinnumaður að leggja sitt af mörk-
um. Ingvi skoraði 22 stig og Sig-
tryggur 21, en Ólafur Ólafsson gerði
lítið fyrstu þrjá leikhlutana og Dagur
Kár Jónsson var ekki góður. Bekkur
Grindavíkur hafði lítið fram að færa;
einungis níu stig, á meðan KR skor-
aði 27 stig af bekknum. KR er með
betri leikmannahóp, meiri breidd,
meiri reynslu og meiri gæði. Grinda-
vík reyndi, en verkefnið var of
strembið.
Leitin að sjö-
unda titlinum í
röð byrjaði vel
KR sannfærandi gegn Grindavík
Morgunblaðið/Hari
Slagur Matthías Orri Sigurðarson og Sigtryggur Arnar Björnsson í kröpp-
um dansi í viðureign KR og Grindavíkur í gærkvöld.
Stjörnumenn hófu leik í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik með góðum úti-
sigri gegn Þór í Þorlákshöfn, 92:80, í
gærkvöld. Króatíski bakvörðurinn
Nikolas Tomsick skoraði 20 stig fyrir
Stjörnuna gegn sínum gömlu sam-
herjum í Þór en þar lék hann í fyrra og
sló í gegn. Jamar Bala Akho skoraði 18
stig og tók 14 fráköst, Kyle Johnson
skoraði 13 og þeir Ægir Þór Steinarsson
og Arnþór Freyr Guðmundsson 12 hvor.
Hjá Þór var Emil Karel Einarsson
með 19 stig, Halldór Garðar Hermanns-
son 16 og Vladimir Nemcok skoraði 13
stig.
Góður á gamla
heimavellinum
Morgunblaðið/Hari
Góður Nikolas Tomsick var
stigahæstur Stjörnumanna.
Martin Hermannsson og samherjar
hans í þýska liðinu Alba Berlín fóru
vel af stað í gærkvöld í Evrópu-
deildinni, sterkustu deild Evrópu,
þegar þeir unnu sannfærandi sigur
á rússneska liðinu Zenit Péturs-
borg, 85:65, í Berlín. Þetta var
fyrsti leikur Alba af 34 í þessari
umfangsmiklu deild í vetur. Martin
átti langflestar stoðsendingar í liði
Alba, níu talsins, en skoraði auk
þess sjö stig og tók tvö fráköst.
Stutt er á milli leikja hjá liðinu því
næsti leikur Alba í þýsku deildinni
fer fram á morgun. vs@mbl.is
Sigur í fyrsta
leiknum af 34
Ljósmynd/Alba Berlín
Áfangi Martin Hermannsson er
kominn á blað í Evrópudeildinni.
DHL-höllin, Dominos-deild karla, 1.
umferð, föstudag 4. október.
Gangur leiksins: 7:5, 15:11, 20:13,
28:17, 35:19, 42:24, 42:26, 46:34,
50:42, 58:45, 61:51, 65:58, 71:60,
77:66, 79:72, 89:77.
KR: Michael Craion 23/15 fráköst,
Helgi Már Magnússon 16/5 fráköst,
Jakob Örn Sigurðarson 13/7 fráköst,
Sigurður Á. Þorvaldsson 11, Matthías
Orri Sigurðarson 10/8 fráköst, Jón
Arnór Stefánsson 9/7 fráköst/8
stoðsendingar, Þorvaldur Orri Árna-
son 7.
KR – GRINDAVÍK 89:77
Fráköst: 32 í vörn, 12 í sókn.
Grindavík: Ingvi Þór Guðmundsson
22/5 fráköst, Sigtryggur Arnar
Björnsson 21/5 stoðsendingar, Ólaf-
ur Ólafsson 13/8 fráköst, Dagur Kár
Jónsson 8/5 fráköst, Björgvin Haf-
þór Ríkharðsson 6/5 fráköst, Jens
Valgeir Óskarsson 4, Nökkvi Már
Nökkvason 3.
Fráköst: 21 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Leifur S. Garðarsson, Davíð
Kristján Hreiðarsson.
Áhorfendur: 400.