Morgunblaðið - 05.10.2019, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Ég leyfi mér að efast um að
einhvern tíma, einhvers staðar í
heiminum, hafi verið stillt upp
landsliði í knattspyrnu þar sem
hver einasti leikmaðurinn hefur
spilað 50 landsleiki eða meira.
Grúskarar í fótboltafræðunum
geta svo sem lagst yfir þessa full-
yrðingu og hugsanlega hrakið
hana og þeir vita þá hvar þeir ná í
mig.
Erik Hamrén valdi í gær
landsliðið fyrir leikina gegn Frökk-
um og Andorra, sem sjá má á
næstu blaðsíðu, og núna gat hann
nánast fengið hvern þann leik-
mann sem hann vildi.
Nú gæti hann teflt fram liði
með hreint ótrúlegan leikjafjölda.
Í markinu væri Hannes (63). Í
vörninni Birkir Már (90), Kári
(79), Ragnar (90) og Ari (68). Á
miðjunni Aron (87), Birkir (80),
Jóhann Berg (74) og Gylfi (70).
Frammi þeir Alfreð (54) og Kol-
beinn (52). Og Emil (70) kæmi
fyrir Aron ef fyrirliðinn verður
ekki leikfær!
Glöggir lesendur átta sig vænt-
anlega á því að þarna eru tíu úr
ellefu manna byrjunarliðinu úr öll-
um leikjunum á EM í Frakklandi
fyrir rúmum þremur árum.
Þetta er hinsvegar alls ekki spá
mín um byrjunarliðið hjá Hamrén
gegn Frökkum næsta föstudags-
kvöld þótt það gæti vissulega al-
veg litið svona út.
Við megum vera stolt af
þessu öfluga og reynda landsliði
okkar sem hefur gert það gott á
undanförnum árum. Þetta eru
ennþá okkar bestu leikmenn og
verðskulda algjörlega að vera í
liðinu á meðan svo er.
En það veldur pínulitlum
áhyggjum að yngri leikmenn skuli
ekki hafa veitt þeim meiri sam-
keppni en raunin hefur orðið á
allra síðustu árum. Kynslóða-
skiptin nálgast og það væri æski-
legast að þau færu fram hægt og
hljótt þar sem einn og einn yngri
ýtir einum og einum eldri smám
saman út. Ekki þannig að þessir
tólf hverfi allir af sjónarsviðinu
um svipað leyti.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HANDBOLTI
Olísdeild kvenna
KA/Þór – HK ........................................ 26:25
Staðan:
Fram 2 2 0 0 70:46 4
Valur 2 2 0 0 59:41 4
Stjarnan 2 2 0 0 51:45 4
KA/Þór 3 1 0 2 78:89 2
ÍBV 2 1 0 1 32:45 2
HK 3 1 0 2 75:80 2
Haukar 2 0 0 2 45:52 0
Afturelding 2 0 0 2 31:43 0
Grill 66-deild karla
Þróttur – KA U..................................... 33:29
Grótta – Þór Ak .................................... 29:33
Haukar U – Fjölnir U .......................... 33:19
Grill 66-deild kvenna
Grótta – Valur U................................... 24:21
Danmörk
Aalborg – Lemvig................................ 30:27
Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá keppni vegna meiðsla. Arnór Atlason er
aðstoðarþjálfari liðsins.
Bjerringbro/Silkeborg – Mors-Thy.. 30:21
Þráinn Orri Jónsson skoraði tvö mörk
fyrir Bjerringbro/Silkeborg.
Frakkland
Limoges – Cesson-Rennes.................. 24:21
Geir Guðmundsson skoraði fimm mörk
fyrir Cesson-Rennes.
Toulon – París 92................................. 18:25
Mariam Eradze skoraði ekki fyrir Tou-
lon.
þrumaði boltanum hátt yfir markið.
Þetta var þannig leikur.
„Við þurfum að skilja þetta tap
eftir í Frakklandi,“ sagði Jón Þór við
Morgunblaðið strax eftir leik. Hann
var ósáttur með frammistöðuna en
vildi þó ekki dvelja við hana of lengi.
Þótt það hafi kannski verið spenn-
andi tækifæri að máta sig við
Frakka í gær þá tekur við undan-
keppni Evrópumótsins. Þrátt fyrir
tapið og hina slöku frammistöðu er
óþarfi að mála skrattann á vegginn.
Þetta var fyrsta tap liðsins í átta
leikjum og Ísland er með fullt hús
stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í
undankeppninni. Liðið heimsækir
Lettland á þriðjudaginn og verður
sá leikur vonandi kjörið tækifæri til
að komast aftur á sigurbraut.
Frakkar einfaldlega betri
Fyrsta tapið í átta landsleikjum Afleit byrjun varð íslenska liðinu að falli í
Nimes Allt öðruvísi verkefni sem bíður landsliðsins í Lettlandi á þriðjudaginn
Morgunblaðið/Eggert
Ferðalag Jón Þór Hauksson og landsliðskonurnar íslensku eru á leið í allt öðruvísi leik gegn Lettum á þriðjudaginn.
LANDSLEIKUR
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Fyrst í París og nú í Nimes. Ís-
lensku landsliðin í knattspyrnu hafa
ekki gert góðar ferðir til Frakklands
á árinu. Kvennalandsliðið tapaði 4:0
gegn því franska í Nimes í gær-
kvöldi, rétt eins og karlaliðið gerði í
París í mars. Sem betur fer var um
váttulandsleik að ræða að þessu
sinni. Engu að síður var þetta, eins
og Jón Þór Hauksson landsliðsþjálf-
ari sagði við Morgunblaðið fyrir leik,
„tækifæri til að máta okkur við eina
af sterkustu þjóðum heims“. Til þess
að gera langa sögu stutta, þá pöss-
uðu skórnir ekki.
Byrjunarlið Íslands var skipað
mestmegnis þeim leikmönnum sem
spiluðu fyrstu tvo leikina okkar í
undankeppni EM, sigurleiki gegn
Ungverjalandi og Slóvakíu. Elín
Metta Jensen er orðin okkar sterk-
asta vopn í framlínunni og hún stóð
þar ein en henni helst til stuðnings í
sókninni voru Fanndís Friðriks-
dóttir og Hlín Eiríksdóttir, allar
þrjár spila þær með Íslandsmeist-
araliði Vals. Þær sáu þó boltann
manna minnst á Stade des Costiers í
gær, heimakonur sáu alfarið um
sóknartilburðina. Fyrirliðinn Eugé-
nie Le Sommer setti tóninn með því
að skora fyrsta markið strax á fjórðu
mínútu og hún bætti við marki á
þeirri 17. Eftir það gengu Frakkar
einfaldlega á lagið. Kantmaðurinn
Delphine Cascarino átti frábæran
leik fyrir Frakka og lék hún Ingi-
björgu Sigurðardóttur í hægri bak-
verði Íslands grátt. Frönsku sjón-
varpsmennirnir voru duglegir að
endursýna þegar Cascarino og Le
Sommer ötuðust í henni við hliðar-
línuna, léku boltanum snyrtilega sín
á milli áður en fyrirliðinn klobbaði
Ingibjörgu sem vissi ekki hvort hún
var að koma eða fara. Ísland átti
fyrstu og einu marktilraunina á 88.
mínútu þegar Sandra María Jessen
Katarska knattspyrnufélagið Al-
Arabi tilkynnti í gærkvöld að fyrsta
skoðun hefði leitt í ljós að Aron Ein-
ar Gunnarsson landsliðsfyrirliði Ís-
lands hefði ekki ökklabrotnað í
leiknum gegn Al Khor fyrr um
kvöldið eins og óttast var. Aron var
borinn af velli undir lok leiksins eft-
ir að brotið var illa á honum og
hætta var talin á að ökklinn hefði
brotnað. Það kemur síðan í ljós á
næstu sólarhringum hvort Aron
verður leikfær þegar Ísland mætir
Frakklandi og Andorra á Laugar-
dalsvellinum í undankeppni EM.
Telja Aron Einar
vera óbrotinn
Morgunblaðið/Eggert
Óvissa Aron Einar Gunnarsson
meiddist á ökkla í gærkvöld.
KA/Þór krækti í sín fyrstu stig í úr-
valsdeild kvenna í handknattleik í
gærkvöld með því að sigra HK í
hörkuspennandi leik í KA-heimilinu á
Akureyri, 26:25. Bæði lið eru nú með
tvö stig eftir þrjá leiki. Martha Her-
mannsdóttir skoraði sjö mörk fyrir
KA/Þór, Rakel Sara Elvarsdóttir sex
og Ásdís Sigurðardóttir þrjú. Matea
Lonac varði 16 skot í marki liðsins.
Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði
sjö mörk fyrir HK, Sigríður Hauks-
dóttir fjögur og Valgerður Ýr Þor-
steinsdóttir fjögur. Sara Sif Helga-
dóttir varði 16 skot í marki liðsins.
Fyrstu stigin hjá
Akureyringum
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Færi Martina Corkovic úr KA/Þór
skýtur að marki HK í gærkvöld.
1:0 Eugénie Le Sommer 4.
2:0 Eugénie Le Sommer 17.
3:0 Delphine Cascarino 66.
4:0 Amel Majri 85.
I Gul spjöldAlexandra og Dagný.
Frakkland: Magnin – Torrent, Tounk-
ara (De Almeida 86), Renard,
Karchaoui – Cascarino, Geyoro, Bil-
bault, Dali (Majri 65), Le Sommer
(Asseyi 81) – Gauvin (Katoto 86)
Ísland: (4-5-1) Mark: Sandra Sigurð-
FRAKKLAND – ÍSLAND 4:0
ardóttir. Vörn: Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Sif Atladóttir (Guðný Árna-
dóttir 46), Glódís Perla Viggósdóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja:
Hlín Eiríksdóttir (Sandra María Jes-
sen 60), Alexandra Jóhannsdóttir,
Sara Björk Gunnarsdóttir (Margrét
Lára Viðarsdóttir 60), Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir (Dagný Brynjars-
dóttir 73), Fanndís Friðriksdóttir
(Svava Rós Guðmundsdóttir 60).
Sókn: Elín Metta Jensen (Berglind
Björg Þorvaldsdóttir 60).
Áhorfendur: Um 11.000.
Dalilah Muhammad frá Bandaríkj-
unum bætti í gærkvöld heimsmet
sitt í 400 metra grindahlaupi kvenna
þegar hún tryggði sér heimsmeist-
aratitilinn í greininni á HM í Doha í
Katar. Hún hljóp vegalengdina á
52,16 sekúndum en fyrra met henn-
ar var 52,20 sekúndur. Landa henn-
ar, Sydney McLaughlin, sem er að-
eins tvítug, veitti Muhammad harða
keppni og er orðin sú næstfljótasta í
greininni frá upphafi en tími hennar
var 52,23 sekúndur.
Heimamaðurinn Mutaz Essa
Barshim frá Katar, besti hástökkv-
ari heims um árabil, hreppti heims-
meistaratitilinn eftir harðan slag.
Hann var að lokum sá eini sem fór
yfir 2,37 metra en Mikhail Aki-
menko og Ilja Ivanjuk frá Rússlandi
sem fóru eins og Barshim yfir 2,35
metra felldu 2,37. Góð endurkoma
hjá Barshim eftir meiðsli og hann
náði að verja titilinn sem hann
hreppti einnig í London 2017.
Conseslus Kipruto frá Kenía
varð heimsmeistari í 3.000 metra
hindrunarhlaupi í annað skiptið í röð
eftir ótrúlega baráttu við Lamecha
Girma frá Eþíópíu á endasprett-
inum. Þeir komu hnífjafnir í mark en
niðurstaðan var að Kipruto hefði
verið 1/100 úr sekúndu á undan á
8:01,35 mínútum. Keníamaðurinn
hefur nú komist á verðlaunapall á
fjórum síðustu heimsmeistara-
mótum.
Steve Gardiner frá Bahamaeyj-
um vann öruggan sigur í 400 metra
hlaupi karla á 43,48 sekúndum. Ant-
hony José Zambrano frá Kólumbíu
varð annar á 44,15 sekúndum.
AFP
Best Dalilah Muhammad hafði ærna
ástæðu til að fagna í gærkvöld.
Bætti heimsmetið í Katar
Muhammad sú fljótasta Barshim vann á heimavelli