Morgunblaðið - 05.10.2019, Síða 48
EM 2020
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Erik Hamrén bauð upp á ástríðu-
fulla ræðu um síðasta leik íslenska
karlalandsliðsins í fótbolta áður en
hann tilkynnti í gær hvaða leikmenn
hann hefði valið til að mæta heims-
meisturum Frakka og Andorra í
næstu leikjum í undankeppni EM.
Maður var í raun hálfundrandi yfir
eldmóðinum, vanari því að Svíinn sé
yfirvegaður og rólegur á blaða-
mannafundum. Val hans á 25 manna
leikmannahópi kom hins vegar ekk-
ert á óvart.
Hópurinn nú er umtalsvert sterk-
ari en sá sem vann Moldóvu og tap-
aði gegn Albaníu í síðasta mánuði.
Jóhann Berg Guðmundsson, Alfreð
Finnbogason og Arnór Sigurðsson
stækka verulega vopnabúrið fram á
við, og Sverrir Ingi Ingason og Birk-
ir Már Sævarsson efla varnar-
mannahópinn.
Að mínu mati veitti Hamrén frek-
ar þunn svör við því af hverju
ástæða þótti til að velja Birki Má aft-
ur núna, mánuði eftir að hann þótti
ekki nógu góður til að vera með
gegn Moldóvu og Albaníu. Það má
alveg vera ljóst að frammistaða
Hjartar Hermannssonar gegn Alb-
aníu á þar sinn þátt, en Hamrén
benti líka á að nú hefði hann valið 25
leikmenn í stað þess að velja strax
þá 23 sem verða svo í hópnum á leik-
dag. Hann sagði þó þetta við mig:
„Hjörtur fékk tækifærið í júní og
spilaði þrjá mjög góða leiki þar sem
við náðum þrennum mjög góðum úr-
slitum og fengum bara eitt mark á
okkur, úr föstu leikatriði. Í leiknum
við Albaníu gerði hann einhver mis-
tök en það gerðu aðrir leikmenn líka
og þannig er fótboltinn.“
Þarf ekki að óttast fordæmið
Hamrén kallaði ekki bara í 90
landsleikja bakvörðinn Birki Má,
sem veit allt um það hvernig á að
verjast stórþjóðum á Laugardals-
velli, heldur hélt hann reynslubolt-
unum Birki Bjarnasyni og Emil
Hallfreðssyni inni í hópnum þrátt
fyrir að þeir hafi verið án félags frá
því í sumar. Þeir hafa gæði og þeir
hafa reynslu, sagði Svíinn, sem
áfram treystir því á þá sem hafa
komið Íslandi á EM og HM til að
rata á þriðja stórmótið í röð, þó að
hann viðurkenndi að ákvörðunin
hefði vafist nokkuð fyrir sér. Ég er
sammála því að velja Birki og Emil í
25 manna hóp, aðrir myndu detta
fyrr út af mínum lista, og ég óttast
ekki að það setji slæmt fordæmi að
velja þá í landslið þó að þeir séu án
félags. Ég get ekki ímyndað mér að
þar með verði eftirsóknarvert fyrir
leikmenn að vera atvinnulausir.
„Fyrir sumum er þetta umdeilan-
legt val, og ég skil það alveg að sum-
ir hafi aðra skoðun en ég. Ég hef
hugsað mikið um þetta, enda er
þetta óvanaleg staða. Vissulega var
sama staða hérna fyrir mánuði en þá
töldum við að hún myndi leysast
fljótt. Ég hef því hugsað mikið og
rætt um hvað sé best að gera, en er
þess fullviss að best sé fyrir hópinn
að þeir séu með að þessu sinni. Þeir
hafa gæðin og reynsluna, njóta mik-
illar virðingar í liðinu og munu reyn-
ast liðinu vel hvort sem þeir spila
ekkert eða tvo 90 mínútna leiki. Þeir
gera allt sem þeir geta fyrir liðið,“
sagði Hamrén.
Hjörtur og Emil voru meðal
þeirra sem litu illa út á mynd-
böndum sem Hamrén sýndi fjöl-
miðlamönnum, úr tapinu gegn Alb-
aníu. Aron Einar fyrirliði, Hannes,
Rúnar Már og Jón Daði voru einnig
nefndir, enda þótt Hamrén benti á
að frammistaða Íslands hefði alls
ekki verið afleit. En óttast þjálfarinn
ekki viðbrögð leikmanna við því að
hann sýni öllum mistök einstakra
leikmanna og ræði svona?
Óvissa með Aron og Hörð
„Ég var ekki að gagnrýna ein-
staklinga. Við gerum þetta saman
sem lið. Ég vildi líka sýna að þetta
[tapið] var ekki einhverjum einum
leikmanni að kenna. Liðið ber
ábyrgð, hvort sem það vinnur eða
tapar. Eins og sást á myndbönd-
unum þá voru það alltaf 3-4 leik-
menn sem hefðu getað gert betur í
hverju tilviki. Og við erum heldur
ekki að einblína á mistökin, heldur
það að læra af þeim. Leikmennirnir
eru vanir því að fá gagnrýni, og frá
okkur Frey [Alexanderssyni] kemur
hún ekki til að kenna einhverjum um
heldur til þess að gera liðið betra.
Það kæmi mér á óvart ef þeir tækju
þessu með neikvæðum hætti, því ég
var ekki að benda fingri á einhverja
ákveðna leikmenn. Það var ekki
markmiðið, heldur að sýna að VIÐ
þurfum að gera betur.“
Albert Guðmundsson verður ekki
í landsliðshópnum á næstunni vegna
meiðsla og einhver óvissa er um
stöðuna á Herði Björgvini Magn-
ússyni vegna meiðsla. Aron Einar
Gunnarsson landsliðsfyrirliði meidd-
ist síðan í leik í gærkvöld og óvissa
er um stöðuna á honum. Ingvar
Jónsson leysir Rúnar Alex Rún-
arsson af hólmi fari svo að kærasta
Rúnars Alex verði ekki búin að eign-
ast barn þeirra um helgina.
Gamall hestur ratar best
Hamrén treystir á gæði og reynslu Birkis og Emils Birkir Már snýr aftur
Þjálfarinn segir gagnrýni í ástríðufullri ræðu ekki hleypa illu blóði í leikmenn
AFP
Þrjú gegn Frökkum Birkir Bjarnason hefur skorað í þremur leikjum á móti Frakklandi. Hann er í hópnum.
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Jóhann Berg Guðmundsson og Gylfi Þór
Sigurðsson gætu mæst í Burnley í dag kl. 14,
í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í
fótbolta. Þetta er jafnframt síðasta umferðin
fyrir landsleikjahlé og því síðasta tækifæri
Jóhanns til að spila áður en landsliðið kemur
saman, en hann hefur ekkert spilað síðan í
ágúst vegna kálfameiðsla. Enskir miðlar
telja líklegt að hann byrji inni á í dag, líkt og
Gylfi fyrir Everton sem er aðeins í 15. sæti
með sjö stig, tveimur stigum á eftir Burnley.
Stórleikur umferðarinnar er leikur Liver-
pool og Leicester á Anfield, sem einnig hefst
kl. 14 í dag og verður í beinni útsendingu á
mbl.is/enski. Liverpool hefur unnið alla sjö
leiki sína en Leicester er í 3.
sæti með 14 stig. Raunar
hafa aðeins Liverpool (49) og
Manchester City (41) fengið
fleiri stig en Leicester (31)
síðan Brendan Rodgers var
ráðinn stjóri Leicester í febr-
úar. Leicester er þar að auki
það lið í úrvalsdeildinni sem
síðast slapp við tap á Anfield,
í janúar. Rodgers snýr nú
aftur á sinn gamla heimavöll
og heilsar þar að auki upp á leigjanda sinn,
Jürgen Klopp, sem flutti inn í hús Rodgers þeg-
ar hann tók við af honum sem stjóri Liverpool
fyrir fjórum árum. Var það raunar að frumkvæði
Rodgers sem Klopp fékk að leigja húsið.
Liverpool verður áfram án Joel Matip vegna
meiðsla en vörn liðsins leit illa út án hans í Meist-
aradeildinni í vikunni. Mögulega mætir Alisson
hins vegar aftur í mark heimamanna í dag.
Manchester United er aðeins í 10. sæti og freist-
ar þess að komast aftur á sigurbraut þegar liðið
sækir Newcastle, næstneðsta lið deildarinnar,
heim á morgun kl. 15.30. Arsenal, Manchester
City og Chelsea verða öll á ferðinni kl. 13 á
morgun, gegn Bournemouth, Wolves og South-
ampton. Umferðin hefst hins vegar á leik
Brighton og Tottenham í hádeginu í dag.
sindris@mbl.is
Klopp mætir leigusalanum sínum á Anfield í dag
Jóhann Berg
Guðmundsson
MARKVERÐIR:
Hannes Þór Halldórsson, Val ....................................... 63/0
Ögmundur Kristinsson, Larissa................................... 15/0
Rúnar Alex Rúnarsson, Dijon......................................... 5/0
VARNARMENN:
Birkir Már Sævarsson, Val ........................................... 90/1
Ragnar Sigurðsson, Rostov .......................................... 90/5
Kári Árnason, Víkingi R ............................................... 79/6
Ari Freyr Skúlason, Oostende ..................................... 68/1
Sverrir Ingi Ingason, PAOK Saloniki ......................... 27/3
Hörður Björgvin Magnússon, CSKA Moskva............. 26/2
Jón Guðni Fjóluson, Krasnodar ................................... 15/1
Hjörtur Hermannsson, Bröndby.................................. 14/1
Samúel Kári Friðjónsson, Viking Stavanger ............... 7/0
MIÐJUMENN:
Aron Einar Gunnarsson, Al-Arabi............................. 87/2
Birkir Bjarnason, án félags ........................................ 80/12
Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley .................. 74/8
Gylfi Þór Sigurðsson, Everton.............................. 70/21
Emil Hallfreðsson, án félags ................................. 70/1
Arnór Ingvi Traustason, Malmö........................... 30/5
Rúnar Már Sigurjónsson, Astana ......................... 24/1
Guðlaugur Victor Pálsson, Darmstadt ................ 11/0
Arnór Sigurðsson, CSKA Moskva .......................... 4/0
SÓKNARMENN:
Alfreð Finnbogason, Augsburg............................ 54/15
Kolbeinn Sigþórsson, AIK..................................... 52/25
Jón Daði Böðvarsson, Millwall.............................. 44/3
Viðar Örn Kjartansson, Rubin Kazan.................. 23/3
Alfreð, Jóhann Berg, Sverrir Ingi, Arnór Sigurðs-
son og Birkir Már koma inn í hópinn frá síðasta
landsliðsverkefni, leikjunum gegn Moldóvu og Alban-
íu, en Albert Guðmundsson (meiðsli) og Daníel Leó
Grétarsson detta út.
Íslenski hópurinn gegn Frökkum og Andorra
Birkir Heimisson, 19 ára gamall
knattspyrnumaður frá Akureyri, er
genginn til liðs við Valsmenn og hefur
samið við þá til þriggja ára. Birkir hef-
ur leikið með unglingaliðum Heeren-
veen í Hollandi undanfarin þrjú ár en
áður hafði hann spilað 16 ára gamall
með Þór í 1. deildinni. Birkir, sem er
miðjumaður, á að baki 24 leiki með
yngri landsliðum Íslands.
Megan Rapinoe, knattspyrnukona
ársins hjá FIFA 2019, lék á ný með
bandaríska landsliðinu í fyrrinótt þeg-
ar það vann Suður-Kóreu, 2:0, í vin-
áttulandsleik í Charlotte. Hún hefur
verið frá keppni vegna meiðsla í hásin.
Rapinoe lagði upp bæði mörk banda-
ríska liðsins, fyrir Allie Long og Mal-
lory Pugh. Þetta var 106. sigurleikur
liðsins undir stjórn Jill Ellis, sem kveð-
ur liðið á morgun þegar þjóðirnar
mætast aftur í Chicago. Ellis er þar
með orðin sigursælasti þjálfari banda-
ríska liðsins frá upphafi.
Valdís Þóra Jónsdóttir er úr leik á
Hero Women’s-golfmótinu á Indlandi
en hún komst ekki í gegnum niður-
skurðinn eftir annan hring mótsins í
gær. Hún lék á 74 höggum, tveimur yf-
ir pari, en hafði leikið fyrsta hringinn á
fimmtudag á 80 höggum. Hún endaði
því á tíu höggum yfir pari en leika
þurfti á sjö yfir pari til að komast
áfram á tvo síðari hringina. Mótið er
liður í Evrópumótaröðinni.
Óvíst er hvort sóknarmaðurinn öfl-
ugi Kylian Mbappé verður með Frökk-
um gegn Íslendingum á Laugardals-
vellinum í undankeppni EM á
föstudagskvöldið kemur. Hann hóf að
spila á ný með París SG um síðustu
helgi eftir mánaðarfjarveru vegna
meiðsla, og var aftur með gegn Gala-
tasaray í Meistaradeildinni í vikunni,
en getur hinsvegar ekki spilað með lið-
inu gegn Angers í dag. Þá er ljóst að
Paul Pogba verður ekki með á Laugar-
dalsvellinum vegna meiðsla.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
EHF-bikar karla, fyrri leikur:
Kaplakriki: FH – Arendal ...................... S17
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – Valur................... L16
Kórinn: HK – KA .................................... S16
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – Fram .................. L14
Ásvellir: Haukar – Valur........................ L18
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan ......... S14
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK U – ÍR ................................. S14
Vestmannaeyjar: ÍBV U – Stjarnan U . S16
Kaplakriki: FH – Víkingur................ S19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
TM-höllin: Stjarnan U – Víkingur......... S15
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM U19 kvenna:
Fylkisvöllur: Ísland – Kasakstan.......... L14
Víkingsvöllur: Spánn – Grikkland......... L14
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – Njarðvík............. L15
Hertz-hellirinn: ÍR – Keflavík b............ L16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Fjölnir ...... L18
SKYLMINGAR
Viking Cup 2019, alþjóðlegt mót í skylm-
ingum með höggsverði, fer fram í Skylm-
ingamiðstöðinni í Laugardal um helgina.
Konurnar keppa í dag og undanúrslit hefj-
ast kl. 13.45. Karlarnir keppa á morgun og
þá hefjast undanúrslit kl. 14.15.
Enski boltinn á Síminn Sport
Brighton – Tottenham ...................... L11.30
Liverpool – Leicester ............................. L14
West Ham – Crystal Palace.............. L16.30
Newcastle – Manchester United ...... S15.30
UM HELGINA!