Morgunblaðið - 05.10.2019, Qupperneq 50
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsti þáttur Pabbahelga, nýrrar
sjónvarpsþáttaraðar Nönnu Krist-
ínar Magnúsdóttur, verður sýndur á
RÚV annað kvöld, 6. október. Nanna
Kristín skrifaði handrit þáttanna,
framleiddi þá með Birgittu Björns-
dóttur, leikstýrði þeim ásamt Mar-
teini Þórssyni og fór jafnframt með
annað af tveimur aðalhlutverkum
þeirra, hlutverk Karenar sem kemst
að því að eiginmaður hennar, Mar-
teinn, heldur fram hjá henni. Karen
stendur þá á tímamótum þar sem
hinar svokölluðu pabbahelgar stríða
gegn hugmyndum hennar um hina
fullkomnu kjarnafjölskyldu.
Þættirnir eru tragíkómískir og
sýna veruleika sem margar íslenskar
fjölskyldur ættu að kannast við. Með
hlutverk Marteins, eða Matta, fer
Sveinn Ólafur Gunnarsson og hitti
blaðamaður þau Nönnu Kristínu á
kaffihúsi í vikunni.
Engar staðalímyndir
Nanna Kristín er lærð leikkona og
var fastráðin við Þjóðleikhúsið þegar
hún ákvað að venda kvæði sínu í
kross, segja starfinu lausu til að ein-
beita sér að kvikmyndagerð og í
framhaldi af því flutti hún til Kanada
og hóf nám í handritaskrifum. Nanna
Kristín hefur skrifað og leikstýrt
fjórum stuttmyndum og nýjasta leik-
stjórnarverkefni hennar er syrpan
Ráðherrann sem frumsýnd verður
næsta haust.
Nanna Kristín leggur áherslu á að
hún hafi viljað forðast stereótýpur,
staðalímyndir, við skrifin á Pabba-
helgum. „Það eru engar stereótýpur,
vondar eða góðar og þó að Karen,
söguhetjan okkar, sé stundum óþol-
andi réttlætir það ekki gjörðir
mannsins hennar,“ segir Nanna
Kristín. „Ég hef lært handritaskrif
og þar er ákveðinni formúlu fylgt,
það er byrjun, miðja, endir og brú og
mig langaði að brjóta þetta aðeins
upp. Þannig erum við t.d. að koma
inn í aðstæður, tímalínan er stundum
brotin upp og það skiptir ekki máli
hvort atburðir gerist á sama deginum
eða ekki. Þegar þú ert að skilja skipt-
ir tíminn ekki svo miklu máli, það er
allt í molum og mig langaði að leika
mér með formið í því. Það á vel við
þegar fjallað er um þetta efni og við
fylgjum þessari pælingu eftir í kvik-
myndatöku, klippi, leikstíl o.s.frv.,“
útskýrir Nanna Kristín.
Langaði að sýna allan skalann
Hún er spurð að því hvort einhver
kveikja hafi verið að þessari sögu.
„Flestir halda að það sé minn eigin
skilnaður en það er nú aðeins dýpra
en svo,“ svarar hún. Hugmyndin hafi
kviknað út frá kvenpersónu. „Mig
langaði að skrifa og leika kvenkar-
akter sem allar hliðar væru sýndar á.
Ekki svo að skilja að ég sé að finna
upp hjólið en það þarf oft að velja; er
sagan um móður, konu á framabraut,
fórnarlamb, hetju og svo framvegis.
Mig langaði að sýna allan skala kven-
persónunnar og íslenskan veruleika,
gera seríu sem væri drifin áfram af
persónum en ekki plotti.“
Nanna Kristín segist þekkja
hjónaskilnaði af eigin raun, bæði úr
æsku sinni, eigin skilnaði og annarra
sem hafa staðið henni nærri. „Ég
þurfti að finna drama í hversdagslíf-
inu,“ segir hún um þá ákvörðun sína
að taka fyrir hjónaskilnað.
Ný veröld
Sveinn segir að sér hafi þótt margt
erfitt við sitt hlutverk í þáttunum,
Matti sé breyskur maður sem hafi
gerst sekur um alvarleg mistök.
Hann segist hafa velt fyrir sér af
hverju Matti hafi haldið framhjá eig-
inkonu sinni. „Þetta er ekki normið
fyrir mér, framhjáhald og skilnaðir,
svolítið ný veröld,“ segir hann. „Þó
þetta sé orðið mjög algengt og norm-
alíserað, flatt út, þá er skilnaður rosa-
lega stór viðburður sem hefur ofboðs-
legar afleiðingar fyrir marga. Mér
finnst stundum gert litið úr því í al-
mennri umræðu.“
Sveinn bendir á að Matti og Karen
séu á „skilnaðaraldrinum“, á miðjum
aldri þegar komið er fram í hálfleik í
lífinu. Skilnaðir eru sérstaklega al-
gengir hjá fólki á þeim aldri og
ákveðnar spurningar fylgja honum.
„Á að halda áfram með sömu mann-
eskju í seinni hálfleik? Hefur fólk
gengið veginn til góðs eða er það orð-
ið leitt á þessu?“ nefnir Sveinn og að
kynlífið sé ef til vill líka orðið heldur
óspennandi og fátíðara. „Svo kemur
þessi miðaldra ótti um hvort lífið
standi undir þeim væntingum sem
gerðar voru til þess,“ bætir hann við.
Aldurstakmark 16 ár
Blaðamaður fékk að horfa á fyrstu
tvo þætti Pabbahelga fyrir viðtalið og
nefnir við Nönnu Kristínu og Svein
afar raunsætt kynlífsatriði í upphafi
fyrsta þáttar en í því sambandi má
nefna að þættirnir eru bannaðir
börnum undir 16 ára aldri.
Nanna Kristín segist ekki hafa ætl-
að sér að hneyksla neinn með kynlíf-
inu í Pabbahelgum, síður en svo. „Ég
sagði Marteini leikstjóra og Berg-
steini Björgúlfssyni tökumanni að ég
ætti til að vilja alltaf fara alla leið sem
leikkona þannig að þeir yrðu bara að
stoppa mig af,“ segir hún kímin. „En
ég vildi ekki neinn tepruskap, vildi
sýna líkama eins og þeir eru alla vega
hjá þessu fólki; fellingar, appels-
ínuhúð, háruga karllíkama, bumbur
og tilheyrandi. Það er líka hluti af
heildarmyndinni sem ég talaði um áð-
an, blákaldur hversdagsleikinn og
„no filter“. Ég vildi samt sem áður
ekki að þetta yrði gróteskt eða aðal-
atriðið því auðvitað snýst senan um
allt annað. Ég held að okkur hafi bara
tekist vel til með það,“ segir Nanna
Kristín og bætir við að kynlíf sé ekki
bara fagrir kroppar og rósablöð á
sængurverum heldur geti það líka
verið bara sveitt og slímugt.
Erfið krafan um að vera sexí
En fannst þeim óþægilegt að leika í
þessu tiltekna atriði? „Já, ég myndi
segja það,“ svarar Sveinn, glettinn á
svip. „Þetta eru ekki flóknar senur að
leika en þó ekki mínar uppáhalds-
senur. Að vera berrassaður innan um
tuttugu manns að þykjast vera að
gera þetta, það er til margt skemmti-
legra.“
Nanna Kristín tekur undir með
Sveini. „Það sem mér finnst reyndar
erfiðast í svona kynlífssenum er þeg-
ar gerð er krafa um að vera sexí eða
æsandi. Það á sem betur fer ekki við í
þessu tilviki,“ segir hún og hlær.
Nanna Kristín nálgast viðfangsefni
þáttanna á tragíkómískan hátt, sem
fyrr segir og Karen er ýktasta per-
sónan að hennar sögn.
„Það er líka af því að við upplifum
söguna mest í gegnum hana þó að við
förum auðvitað líka yfir til Matta,“
útskýrir hún. „Skilnaðir eru hræði-
legir og erfiðir, þú ert að ákveða að
framtíðin sem þú sást fyrir þér og allt
sem þú hefur byggt upp hafi ekki ver-
ið til neins, nema hvað að oftast
standa börnin eftir sem foreldrarnir
geta vonandi sammælst um að verði
að gæta en tekst þó misvel.
Í þáttunum skoðum við þetta út frá
ákveðnu sjónarhorni, hversu sjálf-
hverft fólk getur orðið á þessu tíma-
bili. Þú ferð í einhverja átt og sérð
heiminn í öðru ljósi. En það er gott að
hafa í huga að þetta eru ekki heimild-
arþættir og langt frá því að verið sé
að velta við hverjum steini og skoða
sjónarhorn allra sem skilnaðurinn
snertir.“
Ástfanginn af sjálfum sér
Nanna Kristín segir ástæður
framhjáhalds auðvitað margar og
ólíkar en segir að Matta þyki hann
einfaldlega skemmtilegri maður þeg-
ar hann er með viðhaldinu. „Þetta
snýst ekki um að nýja konan sé miklu
yngri, meiri kroppur eða eitthvað
svoleiðis heldur hvernig hann verður
ástfanginn af sjálfum sér,“ útskýrir
hún.
Sveinn bendir á að Matti stígi inn í
ákveðið hlutverk, fjölskyldufaðirinn
með allar sínar skyldur haldi að hann
geti kúplað sig út og orðið 25 ára á ný.
„Sem gerist samt ekki því hann getur
ekki hlaupið frá sjálfum sér. Hann er
enn sami maðurinn þó að komin sé ný
kona,“ segir Sveinn.
Konurnar líka breyskar
Blaðamaður nefnir að karlarnir í
þáttunum séu ekki mjög sympatískir,
að erfitt sé að hafa samúð með þeim
og Nanna Kristín spyr á móti hvort
honum þyki Karen sympatísk. Nei,
við nánari umhugsun er hún það
reyndar ekki. „Mér finnst sem leik-
konu alltaf gaman að búa til ósympat-
íska karaktera,“ segir Nanna, „og ég
vil einmitt ekki að áhorfendur fái alla
samúð með minni persónu því það er
svo spennandi. Ég var mjög meðvituð
um að skrifa karlmennina ekki sem
stereótýpur því það hefur verið gagn-
rýnt svo mikið að karlkyns höfundar
skrifi kvenhlutverk með þeim hætti.
Hvort það hefur tekist veit ég ekki en
konurnar eru líka breyskar.
Ég reyndi að setja saman pör sem
eru ekki dæmigerð. Yfirmaður
Matta, sem Halldór Gylfason leikur,
á t.d. eldri eiginkonu sem Sigrún
Waage leikur en oftast eru karlar
með völd látnir vera með sér yngri
konum. Sólveig Guðmundsdóttir og
Ólafur Steinn Ingunnarson leika ann-
að par, Pálu og Sigga, en Siggi er
kannski ekki hinn týpíski karlmaður
sem við erum vön að sjá í sjónvarpi
eða á sviði, hann er „Siggalingur“,“
segir Nanna Kristín kímin og vísar
þar í gælunafn Sigga í þáttunum.
Siggi er sjálfstætt starfandi iðnað-
armaður, ólíkt hinum körlunum í
vinahópnum sem starfa saman hjá
endurskoðunarfyrirtæki. „Mig lang-
aði að sýna gallerí af karlmönnum,
þessir menn eru rosalega ólíkir en
allir í sama vinahópi, það er líka mjög
íslenskt,“ bendir Nanna Kristín á.
Byrjuð á annarri og þriðju
Þáttaröðin Pabbahelgar mun að
öllum líkindum verða sýnd í fleiri
löndum. Nanna segir sölu- og dreif-
ingarfyrirtæki í Danmörku, REin-
vent, hafa tekið seríuna að sér og
nefnir að Frakkar og Portúgalar hafi
m.a. sýnt þáttunum áhuga. „Ég er
byrjuð að skrifa seríu tvö og þrjú,“
segir Nanna Kristín. Verður Sveinn í
þeim líka? „Það kemur bara í ljós,“
svarar hún og Sveinn hlær að þessu
blákalda svari.
Morgunblaðið/Eggert
Glettin Nanna Kristín og Sveinn á kaffihúsi í vikunni. Þau fara með hlutverk Karenar og Matta í Pabbahelgum.
Blákaldur hversdagsleiki
Tragíkómísk sýn á framhjáhald og skilnað í Pabbahelgum „Það eru engar stereótýpur, vondar
eða góðar,“ segir Nanna Kristín, handritshöfundur, framleiðandi, leikstjóri og aðalleikkona þáttanna
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel