Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er æsispennandi fjölskyldusýning sem
byggist á íslenska þjóðsagnaarfinum,“ segir
Agnes Wild, leikstjóri nýjustu sýningar leik-
hópsins Umskiptinga sem nefnist Galdragáttin
og þjóðsagan sem gleymdist sem frumsýnd
verður í Samkomuhúsinu á Akureyri í dag,
laugardag, kl. 13.
„Verkið fjallar um tvo krakka sem heita
Bjartur og Sóley. Fyrir algjöra slysni tekst
þeim að opna gátt inn í heim íslenskra þjóð-
sagna. Saklausum samnem-
anda þeirra, Jóni Árnasyni,
nafna þjóðsagnasafnarans,
er í kjölfarið rænt af Húm-
skollunni skelfilegu svo Sól-
ey og Bjartur leggja upp í
háskaför honum til bjargar.
Við tekur æsispennandi
atburðarás þar sem hinar
ýmsu kynjaverur íslenskra
þjóðsagna koma fyrir, svo
sem nykurinn, sem er dul-
arfull hestskepna með öf-
uga hófa sem á að lifa í vötnum. Þjóðsagan
segir að takist nykrinum að lokka menn á bak
hlaupi hann með þá í vatnið og reyni að
drekkja þeim. Svo hitta þau líka skoffín og
skuggabaldur, marbendil, drauga og álfinn
Blæ. Einnig koma við sögu Möðruskotta og
Vallamóri, sem brunnu inni á Möðruvöllum í
gamla daga. Umskiptingar, sem skrifuðu
handritið í samvinnu við mig, nota líka alls
kyns minni og hluti úr þjóðsagnaheiminum,“
segir Agnes og nefnir sem dæmi fjögurra laufa
smárann, flotsteina og fleiri galdrahluti. „Allt
eru þetta hlutir sem hjálpa krökkunum að
finna Jón,“ segir Agnes og tekur fram að allt
fari vel að lokum.
Spurð um titil verksins segir Agnes leikhóp-
inn vera að leika sér með þá hugmynd að Jón
Árnason þjóðsagnasafnari hafi á sínum tíma
gleymt einni sögu. „Í leikritinu hittum við fyrir
eina þjóðsagnapersónu sem er alls ekki ánægð
með það að hafa gleymst,“ segir Agnes og tek-
ur fram að hún vilji að öðru leyti ekki gefa of
mikið upp um framvindun. Segir hún sýn-
inguna, sem er um tveir tímar með hléi, hugs-
aða fyrir börn sex ára og eldri.
Aðspurð segist Agnes þekkja alla í leik-
hópnum vel. „Ég hef unnið með þeim í ýmsum
öðrum verkefnum, en þetta er í fyrsta sinn
sem ég leikstýri Umskiptingum og fæ tæki-
færi til að vinna með þeim öllum í einu,“ segir
Agnes, en atvinnuleikhópinn Umskiptinga
skipa Birna Pétursdóttir, Jenný Lára Arnórs-
dóttir, Margrét Sverrisdóttir, Sesselía Ólafs-
dóttir og Vilhjálmur B. Bragason. „Umskipt-
ingar fara með hlutverkin í sýningunni, ásamt
Hjalta Rúnari Jónssyni og Jóhanni Axel Ing-
ólfssyni,“ segir Agnes og tekur fram að Sess-
elía og Vilhjálmur, sem nefna sig Vandræða-
skáldin, hafi samið tónlistina sem Kristján
Edelstein útsetti. „Katrín Mist Haraldsdóttir
sér um dans- og sviðshreyfingar, Auður Ösp
Guðmundsdóttir annast leikmyndar- og
búningahönnun, Heiðar Sveinsson er ljósa-
hönnuður og Gunnar Sveinbjörnsson hljóð-
hönnuður.“
Agnes hefur á síðustu árum sett upp fjölda
sýninga sem vakið hafa verðskuldaða athygli.
Þeirra á meðal er Bunraku-brúðusýningin Á
eigin fótum með leikhópunum Miðnætti og
Lost Watch Theatre Company, gaman-
leikurinn Djákninn á Myrká með Miðnætti og
Ronja ræningjadóttir hjá Leikfélagi Mosfells-
bæjar sem árið 2015 var valin athyglisverðasta
áhugaleiksýning ársins af dómnefnd Þjóðleiks-
hússins.
Endar alltaf með barnaleikhús
„Einhvern veginn enda ég alltaf á því að búa
til barnaleikhús, líka þegar það hefur ekki ver-
ið ætlunin í upphafi,“ segir Agnes og hlær.
„Mér finnst svo æðislega gaman að búa til leik-
hús fyrir börn. Þau eru svo skemmtilegir og
hreinskilnir áhorfendur sem yndislegt er að
leika fyrir. Mér finnst svo skemmtilegt hvað
þau eru sönn, þau hlæja innilega ef eitthvað er
fyndið, eru hrædd ef eitthvað er hræðilegt og
hika ekki við að segjast vilja fara heim ef þeim
leiðist,“ segir Agnes og bendir á að næstu sýn-
ingar hennar í vetur séu líka barnasýningar.
Þar er um að ræða Bunraku-brúðusýningin
Geim-mér-ei sem Miðnætti frumsýnir í maí,
Tréð sem Agnes gerir í samvinnu við Söru
Marti Guðmundsdóttur og frumsýnd verður á
Listahátíð í Reykjavík og jólasýningin Jóla-
ævintýri Þorra og Þuru sem Agnes semur í
samvinnu við Sigrúnu Harðardóttur.
Spurð hvernig sér hafi líkað vistin á
Akureyri síðustu vikur segir Agnes dásamlegt
að vinna þar. „Mér finnst æðislegt að vera
hérna fyrir norðan. Þar sem ég bý alla jafna
fyrir sunnan er það að koma hingað norður
eins og að fara í vinnustofu þar sem ég get ein-
beitt mér 100% að verkefninu. Svo spillir ekki
fyrir að Samkomuhúsið er frábært leikhús
með góðan anda. Mér líður alltaf eins og ég sé
heima hjá mér í Samkomuhúsinu.“
„Gaman að búa til leikhús fyrir börn“
Ljósmynd/Daníel Starrason
Leiðangur Sóley (Margrét Sverrisdóttir), Blær (Vilhjálmur B. Bragason) og Bjartur (Jóhann
Axel Ingólfsson) í Galdragáttinni og þjóðsögunni sem gleymdist í uppfærslu Umskiptinga.
Umskiptingar frumsýna í Samkomuhúsinu á Akureyri leiksýninguna Galdragáttin og þjóðsagan
sem gleymdist „Þetta er æsispennandi fjölskyldusýning sem byggist á íslenska þjóðsagnaarfinum“
Agnes
Wild
Það verður líflegt í Listasafninu á
Akureyri í dag kl. 15 þegar fjórar
myndlistarsýningar verða opnaðar:
Fjölröddun Bjargar Eiríksdóttur,
Verkafólk Halldóru Helgadóttur,
sýning Knut Eckstein ég hefengan-
áhuga á nokkrusemerstærraen lífið
og samsýningin Síðasta Thule.
„Ég hef verið upptekin af hæfi-
leika okkar til að eiga í samskiptum
við umhverfið í gegnum skynjun,“ er
haft eftir Björgu í tilkynningu frá
safninu. „Skynjunin er ákveðið und-
ur sem opnar umhverfinu leið inn í
líkamann. Þannig höfum við mögu-
leika á að hrífast í náttúru og finna
fyrir tengingu við hana. Fyrir mér
er þessi upplifun eða merkingar-
bæra reynsla eins og marglaga
skynjun eða nokkurs konar pólíf-
ónía, þar sem hvert lagið vefst um
annað innra með mér,“ segir Björg.
Heiðrar minningu verkafólks
Um sýningu Halldóru segir m.a.
að á árunum eftir stríð hafi verið
mikill uppgangur í iðnaði á Akureyri
og flestir bæjarbúar tengdir verk-
smiðjunum á Gleráreyrum á ein-
hvern hátt en starfsemi verksmiðj-
anna lagðist af á tíunda áratugnum
og það eina sem eftir stendur af sögu
þeirra er að finna á söfnum bæjar-
ins.
„Með því að rýna í gamlar ljós-
myndir og færa þær í lítillega
breyttri mynd upp á strigann, lang-
ar mig að heiðra minningu þess fólks
sem áður átti svo stóran þátt í að
byggja upp bæinn sem við búum í,“
segir Halldóra m.a. um verk sín.
Knut Eckstein „býður áhorfand-
anum upp á ákveðinn viðsnúning eða
ranghverfu – hvorki meira né minna
en skynhrifin, eða áhrifin af risa-
vöxnu, þrívíðu landslagsmálverki
sem hægt er að ganga inn í“, eins og
segir í tilkynningu.
Þegar komið er inn í rýmið munu
áhorfendur ekki sjá neitt kunnug-
legt til að styðjast við.
„Á dökkgrænu plasti sem þekur
allt gólfið munu ljósgrænar ræmur
af plastfilmu virðast fljóta yfir, á
meðan efsta lagið – gegnsætt segl –
er strekkt yfir allt yfirborðið og
tengir þannig þessa krafta sjónrænt
saman, samtímis því að skapa upp-
lifun af óendanlegri dýpt,“ segir m.a.
um sýninguna.
Nyrsti hluti hins kannaða heims
Á samsýningunni Síðasta Thule
eru verk listamanna sem tengjast
listrænum hluta International Com-
mittee for Christopher Columbus,
listamenn frá bæði gamla og nýja
heiminum, sem hafa lengi vonast eft-
ir að geta haldið listsýningu á Ís-
landi.
„Í endurminningum sínum minnt-
ist Kristófer Kólumbus á eyjuna
Thule og í bréfum Seneca er vitnað
til Ultima Thule sem nyrsta hluta
hins kannaða heims. Það er því í
anda landkönnuðanna sem ítalskir
listamenn leggja upp í för til Íslands
/ Ultima Thule með verk sín, til að
taka þátt í sýningunni í Listasafninu
á Akureyri og opna þannig leiðina til
nyrsta hluta hins nýja heims og sí-
heillandi dulúðar hans,“ segir í til-
kynningu.
Við opnun myndlistarsýninganna
mun sönghópurinn Arctic Opera
flytja tónlist frá endurreisnartíma-
bilinu og Bruno Aloi, formaður
ICCC, og Finnur Friðriksson, dós-
ent við Háskólann á Akureyri, flytja
erindi.
Fjölröddun, verkafólk,
viðsnúningur og Thule
Verkafólk Eitt verka Halldóru Helgadóttur af sýningunni Verkafólk.
Fjórar sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri
Söguhringur
kvenna býður
upp á danssmiðju
undir stjórn
Yuliana Palacios,
dansara frá
Mexíkó, á morg-
un, sunnudag, kl.
15 í Gerðubergi.
„Líkamar okk-
ar og vöðvaminni
verða helstu viðfangsefni nám-
skeiðsins. Kafað verður í þá visku-
brunna sem líkamar okkar eru í
áhugaverðri smiðju sem sameinar
dans, hreyfingu og allt þar á milli,“
segir í tilkynningu.
Allar konur eru velkomnar og
þátttaka er endurgjaldslaus.
Yuliana Palacios
með danssmiðju
Yuliana Palacios
Flautuleikararnir
Karen Erla Kar-
ólínudóttir og
Pamela De Sensi
og píanóleikarinn
Steingrímur Þór-
hallsson koma
fram á hádegis-
tónleikum í Lista-
safni Íslands í
dag kl. 12.10.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð
safnsins og Íslenska flautukórsins
sem hefur það markmið að gefa
fólki kost á að eiga nærandi stund
við samtal milli sjónlistar og tónlist-
ar. Á efnisskránni eru verk eftir
Ernesto Köhler, Hector Berlioz,
Jacques Ibert og Ian Clarke.
Flaututónar á
hádegistónleikum
Pamela De Sensi