Morgunblaðið - 05.10.2019, Page 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB
Það er annar taktur í lífinu íÁrneshreppi á Ströndumen gengur og gerist, ótrufl-aður af skarkala og ati
samtímans. Þeim fækkar jafnt og
þétt, sem eru tilbúnir að helga sig
búskap á þessum slóðum.
Í myndinni Síðasta haustið fylgj-
umst við með Úlfari Eyjólfssyni og
Oddnýju Þórðardóttur, bændum á
Krossnesi og þeirra daglega lífi. Þau
hafa ákveðið að bregða búi og eru að
undirbúa að sækja fé af fjalli í síð-
asta skipti.
Myndin hefst á svarthvítum
myndum af voldugum skýjabólstr-
um og hrjóstrugri náttúru og yfir er
lesið ljóð, sem vísar til upphafs alls
og hringrásar lífsins. Þetta upphaf
gæti verið tilvísun til þess að frá
upphafi vega hefur mannkynið verið
upp á náttúruna komið eða þá að á
þessum slóðum hefur verið búskap-
ur við erfið skilyrði svo öldum skipt-
ir.
Myndin er tekin á filmu í hlutföll-
unum 4:3 líkt og hún væri gerð fyrir
lampasjónvarp á liðinni öld. Hér er
hvorki háskerpa á ferðinni, né væng-
haf breiðtjaldsins, hvorki loftmyndir
úr drónum né aðrar æfingar og það
skilar sérstakri áferð og hófstillingu,
sem hentar efninu fullkomlega.
Náttúran verður ekki eins og á
póstkorti eða í kynningarmyndbandi
fyrir ferðamenn, heldur samtvinnuð
viðfangsefninu, hluti af hversdags-
tilverunni.
Frásögnin í Síðasta haustinu er
hæg, en um leið grípandi. Úlfar fer
niður í fjöru að sækja rekavið, sem
hann notar til að gera við fjárhúsin.
Hann rær til fiskjar. Oddný reiðir
fram siginn fisk í matinn og skyr
með bláberjum. Þegar leitir nálgast
koma barnabörnin í heimsókn og
una sér hið besta í sveitinni.
Helstu vísbendingarnar um ver-
öldina fyrir utan þeirra veröld eru
samtöl barnanna um lífið á félags-
miðlum netheima og Rás 1 í Ríkis-
útvarpinu, sem hljómar í eldhúsinu
og fjárhúsinu. Þar má heyra dánar-
tilkynningar og viðtöl þar sem einn
viðmælandi hefur meðal annars
áhyggjur af því að það geti orðið af-
drifaríkt fyrir íslenskuna haldi
enska áfram að ryðja sér til rúms í
daglegu tali, ekki síst í heimi netsins
og snjalltækjanna. Þessi innrás
enskunnar er víðs fjarri veruleik-
anum í eldhúsinu á Krossnesi.
Nokkur uppbrot eru í myndinni.
Þegar féð er sótt á fjöll verður
hraðaskipting. Tónlist er sparlega
notuð, en undir atriðum þar sem fé
rennur af fjalli og gangnamenn og
smalahundar stökkva fimlega á eftir
því yfir urð og grjót heyrist skruðn-
ingatónlist.
Einn helsti styrkleiki Síðasta
haustsins er að sagan er sögð án
þess að fara út fyrir efnið. Það er
ekkert farið út í virkjanamál, sem
örugglega hafa verið efst á baugi í
hreppnum á þessum tíma, enda hefði
þetta þá orðið allt önnur mynd.
Ferðamennskan mætir einnig af-
gangi þótt þarna sé í túnfætinum
Krossneslaug, sem dregur örugg-
lega að flesta ferðalanga á þessum
slóðum.
Fyrst og síðast sjá þó hjónin á
Krossnesi til þess að myndin gangi
upp. Þau ganga í sín daglegu störf
án þess að láta myndavélar og töku-
lið hafa minnstu áhrif á sig og sú til-
finning vaknar aldrei að þau séu að
leika fyrir myndavélina eða láti hana
hrekja sig inn í skel. Það er rétt eins
og þau hafi aldrei gert annað en að
koma fram á hvíta tjaldinu.
Í Síðasta haustinu segir frá heimi
á undanhaldi. Vorið áður en tökur
hófust fyrir þremur árum birtist
frétt í Morgunblaðinu um að bænd-
um í Árneshreppi myndi að fækka
um 30% við að bændur á þremur
bæjum, Bæ, Finnbogastöðum og
Krossnesi, myndu bregða búi þá um
haustið. Í fréttinni Sagði Pálína
Hjaltadóttir á Bæ að mikið þyrfti að
breytast ætti enn að vera heilsárs-
byggð í Árneshreppi eftir tíu ár. Síð-
asta haustið er fallegur og eftir-
minnilegur minnisvarði um líf á
hjara veraldar.
Óður til hverfandi tíma
Leitir Fé smalað af fjalli í heimildarmyndinni Síðasta haustið.
Bíó Paradís – RIFF
Síðasta haustið bbbbn
Leikstjóri: Yrsa Roca Fannberg. Handrit:
Elín Agla Briem og Yrsa Roca Fannberg.
Íslensk. 78 mín. Heimildarmynd sýnd í
flokkinum Vitranir á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Sýnd í Bíó Paradís 6. okt. kl. 17.15.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Listahátíðin List án landamæra er
eini vettvangurinn á Íslandi sem ein-
beitir sér að því að koma list fatlaðra
listamanna á framfæri, að undan-
skildu Safnasafninu fyrir norðan.
Við erum aftar-
lega á merinni
miðað við hin nor-
rænu löndin, þar
eru bæði söfn og
gallerí sem sýna
reglulega verk
fatlaðra lista-
manna. List án
landamæra er því
gríðarlega mik-
ilvægur vett-
vangur fyrir fatlaða listamenn á Ís-
landi. Allur sýnileiki eykur jafn-
rétti,“ segir Ragnheiður Maísól
Sturludóttir, listrænn stjórnandi og
framkvæmdastjóri Listar án landa-
mæra 2019.
„Hátíðin verður sett í Gerðubergi
í dag og þar mun Bjöllukórinn koma
fram. Gjörningalistamennirnir Kol-
beinn Jón Tumason og Sigurður
Reynir Ármannsson ætla að flytja
gjörning. Flutt verður brot úr nýju
sviðsverki, Fegurð í mannlegri sam-
búð, en það er unnið í samstarfi við
ungt fatlað fólk. Forsetafrúin okkar,
Eliza Reid, ætlar að opna hátíðina
formlega og veita Atla Má Indriða-
syni viðurkenningu sem listamanni
Listar án landamæra 2019 en hann
er með verk á samsýningunni sem
verður opnuð í Gerðubergi samhliða
opnunarhátíðinni. Einnig verða
myndbandsverk sýnd á víð og dreif
um húsið,“ segir Ragnheiður og
bætir við að verk eftir Atla Má prýði
allt markaðsefni fyrir hátíðina.
„Það verður hægt að fá í sér-
útgáfu í stóru prenti mynd af plakat-
inu okkar með verki eftir hann. Við
gefum líka út lítið hefti með úrvali af
myndum af verkum hans, en Atli
Már gerir æðislegar skissubækur
þar sem hann teiknar sjálfan sig og
vini sína sem Drakúla og límir
myndirnar síðan saman.“
Gígja og Ísak Óli selja verk sín
Ýmislegt verður í boði á hátíðinni
dagana fimmtán sem hún stendur
yfir. „Í næstu viku verða aðallega
utandagskrárviðburðir, til dæmis
opin vinnustofa í Ási, og um næstu
helgi verður listaverkamarkaður í
Gerðubergi. Þar munu fatlaðir lista-
menn og handverksfólk selja verk
sín, til dæmis Gígja Guðfinna Thor-
oddsen og Ísak Óli og margir fleiri.
Við verðum með ritlistarsmiðju fyrir
fatlaða listamenn sem Guðrún Eva
Mínervudóttir leiðir í skapandi skrif-
um og þátttakendur ætla að lesa upp
úr verkum sínum á lokatónleikum
hátíðarinnar í Gerðubergi laugar-
daginn 19. okt. Bjöllukórinn sér um
tónlistina, en þau eru nýkomin úr
tónleikaferð í Noregi og ætla að
flytja dagskrá sína þaðan, sambland
af íslenskum lögum í þeirra einstöku
bjölluútfærslu. Á lokadeginum 20.
október verður utandagskrár-
viðburður í Iðnó með Tjarnarleik-
hópnum, en hann setur á svið verk
eftir Ólaf Hauk Símonarson, Köttur-
inn sem fer sínar eigin leiðir.“
Allur sýnileiki eykur jafnrétti
Ljósmyndir/Owen Fiene
Bjöllukórinn Flytur tónlist bæði á opnunarhátíð og á lokatónleikunum.
Listahátíðin
List án landa-
mæra hefst í dag
Atli Már Indriðason Listamaður
Listar án landamæra 2019.
Opnunarhátíð Listar án landa-
mæra verður í dag, laugardag 5.
október, í Gerðubergi kl. 15-17 og
allir eru velkomnir. Hátíðin stend-
ur til 20. okt. og ókeypis er á alla
viðburðina.
Ragnheiður
Maísól
Hljómsveitin Slagarasveitin kemur
fram á veitingastaðnum Sjávarborg
á Hvammstanga í kvöld kl. 20.30.
Stofnendur og meðlimir Slagara-
sveitarinnar frá því sveitin var stofn-
uð 1986 eru Geir Karlsson á bassa,
Ragnar Karl Ingason á gítar og
Skúli Þórðarson á trommur. Einnig
leika með Stefán Ólafsson á gítar og
söngvarinn Valdimar Gunnlaugsson.
Aðgangur er ókeypis.
Sveit Slagarasveitin hóf störf 1986.
Slagarasveitin á
Sjávarborg í kvöld
„Heyr oss himn-
um á“ er yfir-
skrift haust-
tónleika sem
haldnir verða í
Seltjarnarnes-
kirkju á morgun
kl. 16. Þar kemur
Björg Þórhalls-
dóttir sópran
fram ásamt
Söngfjelaginu
undir stjórn Hilmars Arnar Agn-
arssonar. „Á efnisskránni eru
trúarleg og andlega nærandi verk,
sem flutt voru á vel heppnaðri tón-
leikaferð þeirra um Slóvakíu sl.
vor,“ segir í tilkynningu.
Trúarleg og and-
lega nærandi verk
Björg
Þórhallsdóttir