Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 9. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 246. tölublað 107. árgangur
AFREKSFÓLK
FYRR OG NÚ ÚR
RÖÐUM FATLAÐRA
MAMMA
KLIKK!
FRUMSÝND
GAFLARALEIKHÚSIÐ 46ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Í 40 ÁR
Anna Lilja Þórisdóttir
Guðni Einarsson
Viðhaldi verður að einhverju leyti
frestað, ítrasta aðhalds gætt við inn-
kaup, launafyrirkomulag endurskoð-
að og ekki verður ráðið í vissar stöður
sem losna. Þetta er meðal þeirra
sparnaðaraðgerða sem ráðist verður í
á Landspítala. Gangi þær eftir verður
kostnaður við rekstur spítalans skor-
inn niður um tæpan milljarð á þessu
ári og tvo og hálfan milljarð á árs-
grundvelli, þ.e. á næsta ári.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítala, skrifaði í pistli í gær að það
væri ekki létt verk að hagræða í
rekstri spítalans og ekki einfalt að ná
jafnvægi á milli þeirra krafna sem
gerðar væru til þjónustunnar og
þeirra fjárveitinga sem ríkisvaldið
ætlaði til hennar.
Willum Þór Þórsson, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, sagði að vel
hefði verið farið yfir rekstur spítalans
í september í tengslum við sex mán-
aða uppgjör hans. Þá voru kjara-
samningar farnir að vega þyngra í
rekstrinum. Aðgerðir til að bregðast
við mönnunarvanda í hjúkrun höfðu
einnig farið fram úr áætlun. Auk þess
hafði sjúkrahótelið ekki verið komið
fyllilega í gagnið. Willum sagði að
bráðum kæmi níu mánaða uppgjör og
vonandi sýndi það að menn hefðu náð
betur utan um rekstur spítalans. „Það
er mikilvægt að stofnanir haldi sig
innan fjárheimilda,“ sagði Willum.
„Um leið verðum við að vanda okkur
varðandi þessa mikilvægu stofnun.
Það eru unnin kraftaverk á Land-
spítalanum á hverjum degi.“
Skorið niður á Landspítala
Aðhald á öllum sviðum Spara á tæpan milljarð í rekstri á þessu ári Mikil-
vægt að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda, segir formaður fjárlaganefndar
MSparnaðaraðgerðir »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Good Good Sykurlausu sulturnar
fást í um 1.000 búðum í 11 löndum.
Íslenska fyrirtækið Good Good hefur
vaxið hratt. Það selur vörur sínar,
m.a. sultur, síróp, súkkulaðismjör og
stevíudropa, í ellefu löndum; víða í
Evrópu og í Bandaríkjunum, í um
eitt þúsund verslunum.
„Við gjörbreyttum fyrirtækinu.
Þetta var lítil stevíudropaframleiðsla
í Hafnarfirði sem við fluttum til Hol-
lands. Við breyttum strúktúrnum og
um leið víkkuðum við vörulínuna yfir
í sykurlausar matvörur án viðbætts
sykurs. Í dag erum við með þróun og
hönnun ásamt sölu- og gæðamálum
hér á Íslandi,“ segir Garðar Stefáns-
son hjá Good Good. „Hönnunin, upp-
skriftirnar og í raun allt hugvit er
hér á landi.“
Good Good vinnur með viður-
kenndum aðilum í Hollandi og Belg-
íu sem framleiða uppskriftir fyrir-
tækisins, sem gerir því kleift að
stækka hraðar en mögulegt hefði
verið með sína eigin framleiðslu hér
á landi.
Áætluð velta fyrirtækisins á þessu
ári er 250 milljónir króna, sem er
rúm sexföldun í veltu á tveimur ár-
um, og er stefnan sett á að tvöfalda
veltuna á næsta ári. »20
Selja sykurlausar sultur
Fyrirtækið Good Good gerir það gott víða um heim
Mótmælendur gerðu götuvirki úr færanlegum
girðingum þegar kom til átaka nálægt höfuð-
stöðvum lögreglunnar í Barcelona í gær. Að-
skilnaðarsinnar í Katalóníu höfðu hvatt til alls-
herjarverkfalls og fjöldamótmæla í borginni.
Þúsundir brugðust við hvatningunni og storm-
uðu út á göturnar. Fólkið flykktist í „frelsis-
göngur“ og fordæmdi fangelsisdóma yfir níu
leiðtogum aðskilnaðarsinna Katalóna.
Hörð mótmæli í Barcelona í gær
AFP
Eigi sjálfkeyrandi bílar að geta
ekið um Ísland í öllum veðrum er
nauðsynlegt að umferðarmerki séu
þannig búin að snjallbílar geti
skynjað umferðarmerkin án þess að
þurfa að geta „lesið“ á merkið. Ef
treysta þarf á myndgreiningu, eins
og nú er staðan, þarf ekki nema
smávegis snjó til að setja skynjun-
ina úr skorðum. Starfshópur um
endurskoðun umferðarmerkja hef-
ur verið skipaður og ber honum að
skila af sér í febrúar. »22
Geti skynjað
umferðarmerkin
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur
óskað eftir viðræðum við önnur
sveitarfélög í Vestur-Skaftafells-
sýslu og Rangárvallasýslu um kosti
og galla sameiningar sveitarfélag-
anna. Anton Kára Halldórssyni,
sveitarstjóra Rangárþings eystra,
líst vel á að hefja slíka könnun og tel-
ur hann að margir sveitarstjórnar-
menn á svæðinu séu sömu skoðunar.
Einar Freyr Elínarson, oddviti
Mýrdalshrepps, segir að þessi
sveitarfélög séu í ýmiss konar sam-
starfi, meðal annars um félags- og
skólaþjónustu, og héraðsnefndirnar
eigi saman Skóga undir Eyjafjöllum.
„Ég vona að allir séu tilbúnir að
skoða með opnum huga kosti og
galla sameiningar. Ég held að það
geti orðið spennandi verkefni,“ segir
Einar .
Hjalti Tómasson, varaoddviti í
Rangárþingi ytra, kvaðst hafa heyrt
af þessum hugmyndum. Hann sagði
að þær hefðu ekki verið ræddar
formlega á vettvangi sveitar-
stjórnar. „Ég held að það séu skiptar
skoðanir um þetta,“ sagði Hjalti.
Hann sagði að þetta snerist um hvað
væri hagkvæmast fyrir íbúana. »4
Vilja skoða samein-
ingu sveitarfélaga
„Ég tel að það sé
lítið sem út af
stendur en engu
að síður er það
alvarlegt að við
séum á þessum
lista og við mun-
um gera allt í
okkar valdi til að
fara af honum
sem fyrst,“ segir
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð-
herra.
„FATF fundar bæði í febrúar og í
júní á næsta ári og við bindum mikl-
ar vonir við það að fara af listanum í
kjölfar þeirra funda,“ bætti hún við.
Ljóst varð í gær að Ísland væri
komið á svokallaðan gráan lista
FATF, alþjóðlegs starfshóps um að-
gerðir gegn peningaþvætti og fjár-
mögnun hryðjuverka, eftir að
stjórnvöld náðu ekki að bregðast við
öllum athugasemdum FATF.
„Maður ber traust til stjórnvalda
og ráðuneytanna um að þau standi
vörð um þessi mál,“ sagði Ásta S.
Fjeldsted, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs Íslands. „Fyrstu við-
brögð eru auðvitað bara að vinna að
því hörðum höndum að koma okkur
af þessum lista.“ »11 og 22
Sem fyrst
af gráa
listanum
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Vonar að staðan
breytist á næsta ári