Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
VERÐ FRÁ419.900 KR.
LÚXUS FERÐ FYRIR ALLA
VÍNUNNENDUR&MATGÆÐINGA
22. - 29. ÁGÚST 2020
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
BÚRGÚNDÍ
& PARÍSAR
Skemmtiferðaskipið Magellan var á Akureyri í gær og voru
1.300-1.400 farþegar um borð að sögn Péturs Ólafssonar
hafnarstjóra. „Við vorum með skip í gær og skip í dag. Þau
fengu bæði flotta daga. Hvíta tinda, bjart veður og logn,“
sagði Pétur í gær. Farþegarnir nýttu sér ýmsar skoðunar-
ferðir sem voru í boði. Pétur sagði að þessi vertíð skemmti-
ferðaskipa hefði slegið fyrri met. Á þessu ári hafa komið til
Akureyrar tæplega 150.000 farþegar með skemmtiferða-
skipum en voru mest um 123.000 áður. Unnið hefur verið að
því að lengja skemmtiferðaskipatímann og virðist það hafa
tekist vel. Von er á síðasta skemmtiferðaskipi ársins til Akur-
eyrar 21. október. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Metsumar í komum skemmtiferðaskipa til Akureyrar
Hann var ánægjulegur, afmælis-
dagurinn hjá Ágústu Elínu Ingþórs-
dóttur, áskrifanda Morgunblaðsins,
í gær. Ágústa var fyrr í vikunni
dregin út sem vinningshafi í
áskriftarleik Morgunblaðsins og í
gær var komið að því að sækja
vinninginn. Haraldur Johannessen,
ritstjóri Morgunblaðsins, afhenti
Ágústu lyklana að spánnýjum
Toyota Corolla í umboði Toyota í
Kauptúni.
„Maður er bara enn í losti,“ segir
Ágústa, en hún gat valið á milli
þriggja ólíkra tegunda af nýjum
Corolla. Ágústa er vel að verðlaun-
unum komin, en hún hefur verið
áskrifandi í yfir tvo áratugi, eða
nær allt frá því hún hleypti heim-
draganum. „Það er alveg nauðsyn-
legt að vera í áskrift ef maður ætlar
sér að fylgjast með því hvað er að
gerast,“ segir hún.
Tilviljun ein réð því að afhend-
ingardaginn bar upp á afmælisdag
Ágústu, en því til viðbótar voru í
gær átta ár, upp á dag, frá því að
hún keypti síðasta bíl sinn, Toyota-
jeppa. Spurð hvað verður um þann
bíl núna segir hún það óráðið en
mögulega muni hún halda í þann
bíl. „Þegar svona margir eru í
heimili er ekki vandamálið að halda
tveimur bílum í notkun.“ Undir það
tekur Páll Þorsteinsson, upplýs-
ingafulltrúi Toyota, og bætir við að
átta ára gamall Toyota sé eins og
nýr, sé honum vel við haldið.
Fékk nýja Toyotu í af-
mælisgjöf frá Mogganum
Ágústa var dregin út í áskrifendaleik Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lyklaskipti Haraldur Johannessen ritstjóri afhendir Ágústu lyklana.
Á Íslandi voru 37 manndráp framin
á árunum 1999-2018 samkvæmt
málaskrá lögreglu. Í 43% tilvika
voru náin tengsl eða fjölskyldu-
tengsl á milli geranda og brotaþola
eða gerandi tengdist maka þolanda
náið. Í 35% tilfella voru gerandi og
brotaþoli vinir eða kunningjar, en í
22% tilfella voru gerandi og brota-
þoli ókunnugir. 24 fórnarlömb voru
karlkyns en 13 kvenkyns.
Þetta kemur fram í svari dóms-
málaráðherra við fyrirspurn Andr-
ésar Inga Jónssonar, þingmanns
Vinstri grænna, um heimilisofbeldi.
Hann spurði m.a. um hvernig
skráningu heimilisofbeldis væri
háttað hjá lögregluembættum.
Einnig spurði hann hve mörg
manndráp hefðu verið framin á ár-
unum 1999-2018 hér á landi og
hversu mög þeirra féllu undir skil-
greiningu lögreglu á heimilisof-
beldi.
Markvissari skráning
Á árunum 2008-2014 voru heim-
ilisofbeldismál á bilinu 265-413 tals-
ins á ári hverju. Árið 2014 voru
verklagsreglur um heimilisofbeldi
endurskoðaðar og fjölgaði heimilis-
ofbeldismálum mikið í kjölfarið. Ár-
ið 2014 voru 413 mál skráð en árið
2015 voru málin 807. Má þessa gríð-
armiklu fjölgun helst rekja til
markvissari skráningar í kjölfar
endurskoðunar verklagsregla.
Á síðasta ári voru 866 heimilis-
ofbeldismál skráð á málaskrá lög-
reglu, þar af 702 hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Frá janúar
þessa árs fram í ágúst hafa 606 til-
vik heimilisofbeldis verið skráð á
málaskrá lögreglu. Verklagsreglur
um heimilisofbeldi voru uppfærðar
árið 2014 og hefur mikil áhersla
verið lögð á markvissari vinnu og
rétta skráningu.
37 manndráp 1999-2018
Fjöldi heimilisofbeldismála nær tvöfaldaðist þegar verk-
lagsreglum var breytt Markvissari vinna og rétt skráning
Bæði íbúðaverð og leiguverð íbúða-
húsnæðis hækkaði í september frá
fyrri mánuði. Þetta kemur fram á
heimasíðu Þjóðskrár Íslands
(skra.is).
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 632,9 stig í september
2019 og hækkaði um 0,6% á milli
mánaða. Vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs.
Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði
vísitalan um 1,3%, síðastliðna sex
mánuði hækkaði hún um 2,1% og
síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún
um 3,5%.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 199,6 stig í september
2019 og hækkaði um 0,8% frá fyrri
mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði
hækkaði vísitalan um 1,8% og síðast-
liðna tólf mánuði hækkaði hún um
5,3%. Vísitala leiguverðs á höfuð-
borgarsvæðinu sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs.
Þjóðskrá hefur tekið saman upp-
lýsingar um leiguverð eftir staðsetn-
ingu og stærðarflokkum fasteigna á
landinu í september 2019. Sam-
kvæmt töflu var hæsta leigan á fer-
metra í stúdíóíbúð í Reykjavík, vest-
an Kringlumýrarbrautar, og á
Seltjarnarnesi, eða 4.591 kr./fer-
metra. Lægsta leigan á fermetra var
ef leigð var 4-5 herbergja íbúð á
Norðurlandi utan Akureyrar, 1.140
krónur. gudni@mbl.is
Íbúðarhúsnæði
hækkaði í verði
Bæði leiga og fasteignaverð hækkaði
Morgunblaðið/Eggert
Húsnæði Verð á íbúðarhúsnæði
hækkaði í september 2019.