Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ekkert varð úr þeim áformum að af-
greiðsla flugfarþega á Reykjavíkur-
flugvelli færðist úr núverandi flug-
stöð á nýja samgöngumiðstöð, sem til
stendur að reisa á reit Umferðar-
miðstöðvarinnar. Þess í stað verður
núverandi flugafgreiðsla endurgerð
og stækkuð, samkvæmt upplýs-
ingum Þórmundar Jónatanssonar,
upplýsingafulltrúa samgöngu-
ráðuneytisins.
Jón Gunnarsson, þáverandi sam-
gönguráðherra, skipaði verkefnahóp
til að skoða heppilega staðsetningu
fyrir nýja flugstöð á Reykjavíkur-
flugvelli.
U-reitur talinn áhugaverðastur
Hópurinn skilaði skýrslu í maí
2018 og kynnti þá niðurstöðu sína að
samgöngumiðstöð á BSÍ-reitnum við
Umferðarmiðstöðina væri áhuga-
verðasti kosturinn fyrir innanlands-
flug.
Það vakti athygli nýlega, þegar
kynnt voru áform Reykjavíkur-
borgar um að efna til alþjóðlegrar
samkeppni um samgöngumistöðina,
að ekki var minnst einu orði á flug-
stöð í skýrslunni.
Isavia, Mannvit og flugrekendur
fóru sameiginlega yfir tillögur um
flugafgreiðslu í nýrri umferðar-
miðstöð á nokkrum fundum, sam-
kvæmt upplýsingum Þórmundar.
Í framhaldinu ákvað samgöngu-
ráðuneytið að endurskoða þá hug-
mynd að hafa flugafgreiðslu í sam-
göngumiðstöð á U-reitnum.
Útfærslu hugmyndarinnar fylgdi
að byggja þyrfti ný flughlöð austan
við N-S-flugbrautina á nokkuð
þröngu svæði, segir Þórmundur.
Einnig þyrfti að útbúa undirgöng
undir Hringbraut. Þá fylgdi færslu
flugafgreiðslunnar óhagræði við að
koma farþegum og farangri frá flug-
afgreiðslu að flughlaði og um borð á
vélarnar. Þá höfðu Isavia og flugrek-
endur áhyggjur af því að ný flughlöð
austan við brautina myndu í skipu-
lagsferli mæta harðri andstöðu íbúa í
nýja Valshverfinu, einkum vegna
fyrirsjáanlegs hávaða frá þeim.
Samhliða vinnu Isavia og Mannvits
vann Air Iceland Connect að áætlun
um endurgerð og stækkun núverandi
flugafgreiðslu á Reykjavíkurflugvelli.
Reykjavíkurborg gaf út fram-
kvæmdaleyfi fyrir breytingunum.
Þessi kostur sé verulega ódýrari en
að færa flugafgreiðsluna í Umferðar-
miðstöðina og aðgengilegri í fram-
kvæmd.
Fullnægir þörfinni
Á fundi með Isavia og flugrek-
endum í ráðuneytinu lýstu flugrek-
endur þeim sjónarmiðum sínum að
endurnýjun núverandi flugstöðvar og
stækkun myndi fullnægja þörf fyrir
flugafgreiðsluna. Margir kostir
fylgdu núverandi flugstöð; stutt út í
vélar, hröð afgreiðsla og flugskýli
AIC rétt þar við.
Þá væri hægt að styrkja og bæta
tengingar við nýju Umferðar-
miðstöðina með betri og tíðari ferðum
þegar hún yrði tekin í notkun.
Margoft hafa verið kynnt áform um
nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli
en þau hafa aldrei náð fram að ganga.
Gamla flugstöðin verður endurgerð
Hætt við að færa flugafgreiðsluna á reit Umferðarmiðstöðvar Gamla stöðin jafnframt stækkuð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamla flugstöðin Byggingarnar eru að stofni til frá árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Mikil þrengsli eru þar oft.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Í Hlíðahverfi í Reykjavík, nánar til-
tekið á Lönguhlíð milli Miklubrautar
og Eskitorgs, má finna þrjár hálf-
kláraðar sebrabrautir ætlaðar gang-
andi vegfarendum. Vinna við verkið
hófst snemma í haust en lauk aldrei.
Ólafur Kr. Guðmundsson, sér-
fræðingur í umferðaröryggismálum,
segist aldrei hafa séð önnur eins
vinnubrögð. Sebrabrautum sé ætlað
að auka öryggi gangandi vegfarenda
sem þvera þurfa akbrautir. Í þessu
tilfelli sé aftur á móti um að ræða
„falskt öryggi“ í miðju íbúðahverfi.
„Að menn skuli setja þarna niður
þrjár hálfar sebrabrautir er með
ólíkindum. Þetta sýnir ágætlega
hvernig umferðarmálum er háttað í
Reykjavík, menn geta ekki einu sinni
sett niður gangbraut án þess að
klúðra því,“ segir Ólafur í samtali við
Morgunblaðið, en gangbrautirnar
hafa staðið hálfkláraðar vikum sam-
an með tilheyrandi slysahættu.
Til að gangandi vegfarendur njóti
forgangs á sebrabrautum er nauð-
synlegt að við þær standi gang-
brautarskilti. Slíkt er þó ekki til stað-
ar við hálfu brautirnar í Hlíðunum.
„Þetta eru kolólöglegar gang-
brautir. Það er sebri þarna sem gef-
ur til kynna að óhætt sé að ganga yfir
en á sama tíma eru bílstjórar aldrei
varaðir við með skiltum,“ segir Ólaf-
ur og bætir við að gangbrautirnar
þrjár geti auðveldlega valdið ruglingi
hjá gangandi vegfarendum, einkum
börnum og sjónskertum, en frá þess-
um stað er stutt í Blindrafélagið,
samtök blindra og sjónskertra, tvo
skóla og leikskóla.
Þá segir Ólafur að við eina af þess-
um þremur gangbrautum megi finna
hraðahindrun á röngum stað.
„Það er líka „strætókoddi“ öfug-
um megin við eina af þessum gang-
brautum,“ segir hann.
Óásættanlegt fyrir fólk
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs,
segir verkið hafa tafist vegna mis-
taka. Var framkvæmdin aldrei aug-
lýst í Stjórnartíðindum í samræmi
við lög. „Verkið var stoppað tíma-
bundið. Vonandi fer þetta aftur af
stað á næstu vikum,“ segir hún.
„Okkur þykir þetta leitt enda er
þetta óásættanlegt fyrir öryggi
gangandi vegfarenda í þessu hverfi.“
Morgunblaðið/Eggert
Hættulegt Gangbrautirnar í Hlíðahverfi leiða vegfarendur einungis hálfa leið, með tilheyrandi slysahættu.
Gangandi veitt falskt
öryggi vikum saman
Þrjár hálfkláraðar sebrabrautir í Hlíðahverfi í Reykjavík
Karlmaður hefur verið dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi og til að
greiða rúmlega 1,7 milljónir í skaða-
bætur og um 5,5 milljónir í sakar-
kostnað fyrir héraðsdómi og Lands-
rétti fyrir kynferðisbrot gegn
barnabarni sínu.
Dómur héraðsdóms staðfestur
Landsréttur staðfesti í gær dóm
héraðsdóms í málinu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness
kemur fram að brotin hafi átt sér
stað á heimili mannsins þegar dreng-
urinn var níu til ellefu eða tólf ára
gamall. Snerti maðurinn kynfæri
drengsins og fróaði honum.
Fram kemur í dóminum að maður-
inn hafi jafnframt sýnt drengnum
myndir af kynfærum kvenna og rætt
við hann um kynferðisleg málefni.
Afinn neitaði sök fyrir dómi en
sagði að drengurinn hefði í eitt skipti
byrjað að fróa sér undir sæng þegar
hann var að lesa fyrir drenginn.
Hefði hann þá rætt við hann um
sjálfsfróun. Þá hefði hann lyft sæng-
inni og haft orð á því hversu stór lim-
ur drengsins hefði verið og spurt
hvort hann mætti snerta hann.
Braut á drengnum í að
minnsta kosti sjö skipti
Í niðurstöðu dómsins segir að
maðurinn hafi með þessu athæfi
gerst sekur um kynferðisbrot, auk
þess sem framburður drengsins er í
öðrum atriðum málsins talinn trú-
verðugur og var hann lagður til
grundvallar við úrlausn málsins.
Telur dómurinn ekki óvarlegt að slá
því föstu að fjöldi tilvika þar sem af-
inn braut á drengnum hafi verið að
minnsta kosti sjö.
Sem fyrr segir var afinn dæmdur í
þriggja ára og sex mánaða fangelsi
og til greiðslu bóta upp á 1,7 millj-
ónir og allan sakarkostnað.
Fangelsi fyrir
kynferðisbrot
Karlmaður braut gegn barnabarni
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB