Morgunblaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 10
er á milli Grindavíkur og Reykjanesbæjar.
Lagður er jarðstrengur út úr Hafnarfirði, um
1,4 km leið, og síðan loftlína þá 32 kílómetra
sem eftir eru.
Aukin umsvif á Suðurnesjum
Framkvæmdum við Suðurnesjalínu 2
seinkar um nokkur ár vegna andstöðu hluta
landeigenda. Sverrir Jan segir að fram-
kvæmdin sé jafn mikilvæg og áður og mikil-
vægari ef eitthvað er. „Þetta er ein mikilvæg-
asta framkvæmd Landsnets og ef til vill sú
mikilvægasta í raforkukerfinu í heild, bæði út
frá þeim miklum flutningum sem fara um lín-
una og afhendingaröryggi. Á Suðurnesjum
eru tvær stórar virkjanir sem áform eru um
að stækka, alþjóðaflugvöllur landsins og fjöl-
menn og vaxandi byggð,“ segir Sverrir.
Áform voru um að byggja línu fyrir 220
kílóvolta spennu en reka hana á 132 kV til að
byrja með. Nú er talin þörf á að reka hana
frá upphafi á 220 kV spennu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Við endurtekið umhverfismat á framkvæmd-
um við lagningu Suðurnesjalínu 2 var farið
vandlega yfir hugsanlegar línuleiðir, bæði í
lofti og jörðu, og niðurstaðan varð sú að loft-
lína samhliða núverandi Suðurnesjalínu væri
besti kosturinn. Aðalvalkosturinn er nokkurn
veginn sá sami og kom út úr mati á Suðvest-
urlínum á sínum tíma.
Þegar komið var að framkvæmdum á árinu
2016 ógilti Hæstiréttur eignarnám sem
Landsnet hafði fengið heimild til að gera hjá
þeim landeigendum sem neituðu samningum.
Ástæðan var ekki síst sú að jarðstrengja-
kostir þóttu ekki nógu vel rannsakaðir.
Í samræmi við aðalskipulag
Endurtekna umhverfismatið er mun ítar-
legra og fór í gegnum meira samráðsferli en
hið fyrra, að sögn Sverris Jans Norðfjörð,
framkvæmdastjóra þróunar- og tæknisviðs
Landsnet, og fleiri steinum var velt við.
Jarðstrengslausnir voru skoðaðar vel, með-
al annars jarðstrengur meðfram Reykjanes-
braut, loftlína á nýjum stað og blandaðar
lausnir þar sem hluti af línunni færi í jörðu.
Segir Sverrir Jan að áhrif kostanna á um-
hverfið séu áþekk en loftlína mun ódýrari en
jarðstrengur. Hann bendir á að jarðstrengur
meðfram Reykjanesbrautinni þyrfti að fara
um óraskað land að stórum hluta, þar sem
tengivirkin séu ekki við Reykjanesbrautina.
Loftlínan hefur hins vegar meiri áhrif á
ásýnd svæðisins og eykur hættu á áflugi
fugla.
Sverrir segir að aðalvalkostur Landsnets
sé í samræmi við aðalskipulag sveitarfélag-
anna og falli að stefnu stjórnvalda um val á
línukostum. Hann sé um svæði sem þegar er
raskað.
Strengurinn liggur frá tengivirkinu
Hamranesi í Hafnarfirði og að Rauðamel sem
Mikilvægasta framkvæmdin
Loftlína á sama stað er niðurstaðan af endurteknu umhverfismati fyrir Suðurnesjalínu 2 Jarð-
strengjakostir skoðaðir sérstaklega vegna dóms Hæstaréttar Loftlína mun ódýrari en jarðstrengur
Morgunblaðið/Eggert
Svartsengi Mikil raforkuframleiðsla er á Suðurnesjum og mikil orkuknotkun. Þá hafa komið fram áhyggjur af ótryggri tengingu alþjóðaflugvallarins. Áform eru um að stækka tvær virkjanir.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
www.volkswagen.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
www.hekla.is/volkswagensalur
Volkswagen T-Roc
Ef þú vilt áberandi hönnun, möguleika á sérsniðnu útliti og gæði niður í minnstu smáatriði þá er T-Roc málið.
Með T-Roc gefst þér tækifæri til að prófa nýstárlegan sportjeppa sem vekur eftirtekt með öflugu útliti.
Fæddur til að
skara framúr
Verð frá
4.390.000,-
Matsskýrsla umhverfismatsins er nú til
umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun. Þegar
álit hennar liggur fyrir verður gengið til
samninga við þá landeigendur á línuleið-
inni, þá sem ekki hefur þegar verið samið
við, og loks óskað eftir framkvæmdaleyfi
hjá sveitarfélögunum fjórum sem línan
liggur um. Framkvæmdir hefjast að loknu
þessu ferli, í fyrsta lagi á næsta ári.
Áætlað hefur verið að lagning Suður-
nesjalínu 2 myndi kosta 2,3 milljarða
króna.
Framkvæmt
á næsta ári?
EFTIR AÐ SEMJA