Morgunblaðið - 19.10.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Fylgdu okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
TRAUST Í 80 ÁR
LAXDAL
FYRIR
KONUR
Á ÖLLUM
ALDRI
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég þykist vita að stjórnvöld og
einkageirinn allur vinni nú að því að
koma réttum skilaboðum út á við, en
það verður þó að segjast að þessi
staða er með ólíkindum,“ segir Ásta
S. Fjeldsted,
framkvæmda-
stjóri Viðskipta-
ráðs Íslands, í
samtali við Morg-
unblaðið og vísar í
máli sínu til
ákvörðunar
FATF, alþjóðlegs
fjármálaaðgerða-
hóps ríkja um að-
gerðir gegn pen-
ingaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka, að setja Ís-
land á svokallaðan „gráan lista“ yfir
ríki sem þykja ekki hafa gripið til full-
nægjandi aðgerða gegn peninga-
þvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Auk Íslands bættust Mongólía og
Simbabve við hóp ríkja á gráa listan-
um en Eþíópía, Srí Lanka og Túnis
komust aftur á móti af honum. Alls
var um að ræða 51 ágalla sem FAFT
nefndi og var búið að bregðast við
nær öllum. Þrjú atriði standa aftur á
móti út af, að mati FATF.
Aðspurð segir Ásta að hvorki sé
hægt né tímabært að segja til um
hvaða afleiðingar þetta muni hafa.
Skoða þurfi vandlega ferla og vinnu-
lag til að koma í veg fyrir að svona
geti gerst aftur.
„Maður ber traust til stjórnvalda
og ráðuneytanna um að þau standi
vörð um þessi mál. Fyrstu viðbrögð
eru auðvitað bara að vinna að því
hörðum höndum að koma okkur af
þessum lista,“ segir Ásta og bætir við
að sú ákvörðun að setja Ísland á
listann sé „ansi hörð“ enda eigi það
ekki heima þar.
„Þetta sýnir okkur samt hvernig
staðan er í alþjóðaumhverfinu og að
við verðum alltaf að vera vakandi og
bregðast fljótt við þeim kröfum sem á
okkur eru lagðar – og standast þær“.
„Við höfum undanfarin ár verið að
byggja upp traust út á við frá hruni
og sterka innviði. Ég trúi ekki öðru
en að okkar alþjóðlegu viðskiptavinir
séu vel meðvitaðir um það.“
Áhrifin verði óveruleg
„Stjórnvöld hafa ásamt erlendum
ráðgjöfum lagt mat á möguleg áhrif
af því að Ísland lendi á listanum. Það
er samdóma álit þeirra að áhrifin
verði óveruleg og er hvorki talið að
niðurstaða FATF hafi bein áhrif á al-
menning né fjármálastöðugleika á Ís-
landi,“ segir í tilkynningu sem birt er
á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins
vegna þessarar stöðu Íslands.
Í tilkynningunni er einnig bent á
þau þrjú atriði sem FATF telur þörf
á að bæta. Er um að ræða aðgang að
upplýsingum um raunverulega eig-
endur, upplýsingakerfi og starfs-
mannafjölda hjá skrifstofu fjármála-
greininga lögreglu og eftirlit með
eftirfylgni við þvingunaraðgerðir og
yfirsýn yfir starfsemi almannaheilla-
félaga. Samkvæmt upplýsingum frá
stjórnvöldum er þegar verið að
bregðast við þessum atriðum.
Þá segir í tilkynningu stjórnvalda
að á fundi aðildarríkja FATF, sem
fram fór í vikunni, hafi íslensk stjórn-
völd mótmælt tillögu um að setja Ís-
land á listann þar sem þau telja að
niðurstaðan endurspegli á engan hátt
stöðu landsins í vörnum gegn pen-
ingaþvætti og fjármögnun hryðju-
verka. Sú afstaða mætti skilningi
meðal nokkurs fjölda aðildarríkja.
Niðurstaðan byggist á stöðuskýrslu
sérfræðingahóps FATF sem lá fyrir
24. september síðastliðinn.
Mikilvæg að skoða
ferla og vinnulag
Ísland komið á „gráan lista“ ásamt Mongólíu og Simbabve
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórnarráðið Ísland er nú á lista yfir ríki sem þykja ekki hafa gripið til
fullnægjandi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ásta Sigríður
Fjeldsted
Allt um sjávarútveg
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í
gær Seðlabanka Íslands til að veita
Ara Brynjólfssyni, blaðamanni á
Fréttablaðinu, upplýsingar um
samning sem gerður var við Ingi-
björgu Guðbjartsdóttur, þáverandi
framkvæmdastjóra gjaldeyris-
eftirlits bankans, árið 2016.
Stefán Jóhann Stefánsson, rit-
stjóri Seðlabankans, sagði í samtali
við mbl.is að bankinn mundi gefa
sér tíma til að fara yfir dóminn áð-
ur en tekin yrði ákvörðun um áfrýj-
un. Spurður hve langan tíma það
gæti tekið neitaði Stefán að svara
því. Þá vildi hann ekki svara hvort
blaðamanni yrðu veittar umbeðnar
upplýsingar áður en ákvörðun
verður tekin um áfrýjun, þótt
dómsmálið yrði þá vitanlega mark-
laust. Í nóvember í fyrra sendi Ari
fyrirspurn á bankann þar sem ósk-
að var eftir upplýsingum um til-
högun námsleyfis Ingibjargar árin
2016-2017 er hún sótti MPA-nám í
Bandaríkjunum, en að námi loknu
sneri Ingibjörg ekki aftur til starfa
hjá bankanum. Seðlabankinn neit-
aði að veita upplýsingarnar.
Gert að
veita upp-
lýsingar
Dómstóll dæmdi
blaðamanni í vil