Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
F
inna má tugi örnefna í
Surtsey, bæði skráð en
önnur sem eru aðeins
til í munnmælum meðal
þeirra fáu útvöldu sem
heimsækja hafa mátt eyna. Sum
nafna þessara vísa til jarðfræðilegra
atburða sem urðu á tímum Surts-
eyjarelda á árunum 1963-1967 og
önnur til vísindamanna og annarra
þeirra sem áttu þess kost að fylgjast
með framvindu gossins þegar lands-
ins yngsta eyja myndaðist. Þetta
segir Birna Lárusdóttir, fornleifa-
fræðingur og sérfræðingur hjá
Stofnun Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum.
Nýtt land undir fótum
Í dag, laugardaginn 19. október
2019, verður Birna með fyrirlestur á
vegum Nafnfræðifélagsins sem hún
nefnir Land, land! Nýtt land undir
fótum. Samkoman verður í Odda,
húsi Háskóa Íslands og hefst kl.
13.15. Þar segir Birna frá leiðangri
líffræðinga til Surtseyjar sumarið
2019, en hún slóst með í hóp þeirra
ásamt öðrum fornleifafræðingi.
Surtsey er á heimsminjaskrá
UNESCO vegna einstakra skilyrða
til að skoða framgang lífs og land-
mótunar án áhrifa mannsins og helsti
tilgangur ferða út í Surtsey er að
fylgjast með þróun jarðmyndana,
gróðurfars og dýralífs.
„Maður og náttúra mætast í ör-
nefnunum. Síðan er alltaf mjög mis-
jafnt hvort einstaka staðarheiti fá
formlega viðurkenningu og komast á
skrá eða kort eða lifa aðeins í munn-
mælum og þröngum hópum,“ segir
Birna. – Því má bæta við að allt frá
fyrstu tíð hafa mannaferðum í Surts-
ey verið ströng skilyrði sett og þang-
að fá helst engir að fara nema vís-
indamenn. Þurfa þeir þá sérstakt
leyfi til eyjarferðar. Af þessu leiðir að
örnefni á staðnum eru gjarnan
sprottin af máli þeirra eða vísa jafn-
vel til einstaka manna sem í Surtsey
hafa verið.
Hellir flugstjórans
Meðal staðarheita í Surtsey sem
notuð hafa verið eru Desembergígur,
sem myndaðist rétt fyrir jól, og Ný-
árshraun sem rann fram í ársbyrjun.
Nöfnin vísa þannig til framgangs
gossins en hvorugt heitið virðist not-
að í dag. Brimið sverfur sífellt af
eynni og Þórólfshellir er meðal horf-
inna staða en hann var kenndur við
Þórólf Magnússon flugstjóra, sem
fór margar ferðir í eyna og lenti þar
við, á stundum, háskaleg skilyrði.
Enn eru síðan til gígurinn Ós-
valdur, kenndur við Ósvald Knudsen
kvikmyndagerðarmann og Sigurð;
urð sem kennd var við Sigurð Þór-
arinsson jarðfræðing. Hann var
meðal þeirra vísindamanna sem
mest og best fylgdust með Surts-
eyjargosinu, auk heldur sem hann
var mjög orðhagur og gott skáld.
Nafnið Surtsey, sem vísar til goða-
fræðinnar, er til dæmis talið komið
frá honum og Halldóri Halldórssyni
málfræðingi. Það var hins vegar
Sturla Friðriksson vistfræðingur
sem átti nafnið Jólnir, en svo hét
eyja sem myndaðist í gosi rétt sunn-
an við Surtsey um jólin 1965. Jólnir
brotnaði svo niður í brimi á fáum
mánuðum.
Risavaxin rannsóknarstofa
„Surtsey er í raun risavaxin
rannsóknarstofa og fræðafólk úr
mörgum greinum hefur farið þangað
út til að kynna sér aðstæður og stað-
hætti. Þar hafa jarðvísindamenn og
líffræðingar farið fremstir en nú var
einnig reynt að varpa ljósi á menn-
ingarsögu staðarins með því að
skoða örnefni.
Það er mjög fágætt að hægt sé
að rannsaka nafngiftir í nýju landi
allt frá upphafi; kanna tilurð þessara
heita sem mannfólkið gefur náttúr-
unni. Í Surtsey hefur hins vegar
fengist frábært tækifæri til slíks,
rannsóknir sem eru hluti af doktors-
verkefni mínu,“ segir Birna.
Nýárshraun og Sigurð
eru örnefni í Surtsey
Maður og náttúra mætast í örnefnum. Ýmsum stöðum í hinni leyndardómsfullu
Surtsey hafa verið gefin nöfn þar sem skemmtilegar sögur búa að baki. Birna
Lárusdóttir fornleifafræðingur hefur kannað málið og er með fyrirlestur í dag.
Ljósmynd/Birna Lárusdóttir
Útsýn Horft af Austurbunka til lands. Fremst Tanginn svonefndi sem stöðugt brotnar vegna ágangs sjávar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sögumaður Fágætt er að rannsaka nafngiftir í nýju landi, segir Birna
Lárusdóttir um örnefnin í Surtsey en skráningin er doktorsverkefni hennar.
Ljósmynd/Birna Lárusdóttir
Land Marga undrasmíð náttúrunnar er að finna í Surtsey, staði sem enn
hafa ekki fengið nöfn þó staðhættir geti gefið ímyndunaraflinu flug til slíks.
eiki, Parkinson, stam, talhö
ND, MS, lungnasjúklingar, s
rklasjúklingar, brjóstholssj
klingar, stómi, tourette, kæ
k, slagsjúklingar, mænuska
mi, þroskahamlaðir, blindir,
ÞÉR ER
BOÐIÐ!