Morgunblaðið - 19.10.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
SKECHERS ENERGY VATNSFRÁHRINDANDI HERRASKÓR MEÐ MEMORY
FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 41-47,5. FÁST EINNIG LJÓSGRÁIR.
HERRASKÓR
14.995
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta hófst með því að þegar við
fluttum í Neskaupstað á árinu 2004
urðum við strax heilluð af umhverf-
inu, mannlífinu og fólkinu. Við urðum
hugfangin af útsýninu yfir Norð-
fjarðarflóa og til eyðifjarðanna
Hellisfjarðar og Viðfjarðar og yfir á
Barðsnes,“ segir Páll Björgvin Guð-
mundsson, fyrrverandi bæjarstjóri
Fjarðabyggðar. Hann er hugmynda-
smiður að útsýnispalli sem Sam-
vinnufélag útgerðarmanna (SÚN) er
að byrja að byggja við Norðfjarðar-
vita.
Páll Björgvin og Hildur Ýr Gísla-
dóttir, kona hans, ákváðu að byggja
sér hús úti á Bökkunum, austast í
Neskaupstað, þar sem útsýnið er
einna glæsilegast. Hann segir að
mikil umferð hafi verið í kringum vit-
ann sem er rétt austan við bæinn,
jafnt heimamenn og ferðamenn að
njóta útsýnisins. „Ég fékk þá hug-
mynd að koma þarna upp veitinga-
stað. Ég fékk stuðning frá SÚN til að
þróa hugmyndina en það gekk frekar
hægt að fjármagna framkvæmdina,“
segir Páll Björgvin. Hann tók svo við
annasömu starfi bæjarstjóra og hug-
myndin fékk hvíld í átta ár, á meðan
hann gegndi því starfi.
Þróar þjónustu á pallinum
„Í fyrrahaust, þegar um hægðist,
fór fólk að spyrja mig hvort ég ætlaði
ekki að klára þetta mál og fyrir
hvatningu þess fór ég aftur af stað.
Þá þróaðist hugmyndin þannig að
fyrst yrði gerður útsýnispallur sem
væri þannig úr garði gerður að hægt
væri að byggja hús ofan á hann síðar.
Ég fékk styrk til að þróa þetta áfram
og láta hanna mannvirkið og SÚN
ákvað að byggja útsýnispallinn,“
segir Páll Björgvin.
„Þetta var samfélagsleg hugsun
hjá mér, liður í því að efla byggðar-
lagið. Ég er óskaplega ánægður með
að Samvinnufélagið hafi ákveðið að
gera þetta fyrir staðinn. Það skapar
möguleika til að njóta útsýnisins við
betri aðstæður og verið er að íhuga
hvernig best er að nýta pallinn.
Þarna er hægt að borða nesti og
jafnvel hafa minni viðburði. Mér
finnst þetta vera góður staður til að
iðka jóga og íhugun og hugmyndin er
að koma þarna fyrir öflugum sjón-
auka.“
Páll Björgvin er fluttur í Garða-
bæinn og tekinn við starfi fram-
kvæmdastjóra Samtaka sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu. Hann
er þó enn með hugann við þetta verk-
efni og hvernig hægt er að þróa þjón-
ustu í kringum pallinn. Hann segir
vel hugsanlegt að veitingahús rísi
þar, þótt síðar verði.
Aðstaða í Fólkvangi lagfærð
Búið er að afla allra leyfa og semja
við verktaka og framkvæmdir við
byggingu pallsins og handriðs í kring
hefjast í næstu viku, að sögn Guð-
mundar R. Gíslasonar, fram-
kvæmdastjóra Samvinnufélags
útgerðarmanna. Pallurinn á að vera
tilbúinn næsta vor en gæti orðið það
mun fyrr ef hagstætt veður helst til
framkvæmda. Áætlað er að hann
kosti um 20 milljónir kr.
Austan við Norðfjarðarvita er
Fólkvangur Neskaupstaðar, sem
friðlýstur var á árinu 1972 og var sá
fyrsti sinnar tegundar á landinu.
Meðal vinsælla staða þar eru Urðir
og Páskahellir.
Fjarðabyggð fékk styrk úr Upp-
byggingarsjóði fermannastaða til að
bæta aðgengi ferðamanna að svæð-
inu og verja viðkvæma náttúru með
uppbyggingu innviða. Er meðal ann-
ars verið að koma upp bílastæði,
þjónustuhúsi með salernum og
göngustígum. Áningarstaðurinn er
skammt frá Norðfjarðarvita. Páll
Björgvin bendir á að hann rími vel
við þær framkvæmdir sem sveitar-
félagið vinnur að á staðnum.
Urðum hugfangin af útsýninu
Norðfjarðarviti Stórfenglegt útsýni er frá pallinum sem Ölver Þórarinsson hannaði. Í forgrunni sést í Vitapollinn á
bílastæðinu en hann er svo heilagur að þá sjaldan hann þornar upp kemur slökkviliðið og dælir í hann vatni.
Veitingahús Pallurinn er hannaður þannig að síðar verður hægt að reisa
hús fyrir veitingastarfsemi eða aðra starfsemi ofan á honum.
Fyrrverandi bæjarstjóri þróaði
hugmynd um útsýnisveitingahús við
Norðfjarðarvita SÚN er að hefja
framkvæmdir við útsýnispallinn
SÚN á hlut í Síldarvinnslunni og
nýtir stærstan hluta arðsins sem
eignin skilar til samfélagsverk-
efna á Norðfirði. Ráðist er í stök
verkefni og einnig er styrkjum
úthlutað til menningarmála og
íþróttastarfs tvisvar á ári.
Meðal annarra verkefna sem
unnið er að um þessar mundir
má nefna að félagið festi kaup á
aflögðu verslunarhúsi, Nes-
bakka, austast í byggðinni. Nú er
verið að hanna viðbyggingu og
umbreytingu á húsinu í klasa fyr-
ir fyrirtæki og stofnanir, aðallega
skrifstofur en einnig rann-
sóknarstofur og aðstöðu fyrir
nýsköpun. Segir Guðmundur
framkvæmdastjóri að fram-
kvæmdir hefjist fljótlega.
Klasi fyrir
fyrirtæki og
stofnanir
ARÐUR AF ÚTGERÐ
Fjölmenni var við setningu Reykja-
víkurþings Varðar, fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, í
Valhöll í gær og fullt úr úr dyrum.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins og ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, setti þingið.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, flutti ávarp
í kjölfarið. Sagði hann m.a. að sam-
göngurnar í borginni væru það erf-
iðar að meira að segja fólk í öllum
þeim flokkum sem eru við stjórn í
borginni í dag væri sammála um að
það ástand þessara mála sem þau
bjuggu til á væri komið í ógöngur.
Þetta er í annað sinn sem Reykja-
víkurþing Varðar er haldið. Því
verður haldið áfram í dag og gefst
sjálfstæðisfólki tækifæri til að ræða
málefni borgarinnar og setja mark
sitt á stefnu flokksins. Unnið verður
í fjórum málefnahópum í dag og
rætt sérstaklega um skóla- og frí-
stundamál, velferðarmál, umhverf-
is- og skipulagsmál og framtíðar-
borgina Reykjavík.
Ljósmynd/Håkon Broder Lund
Reykjavíkurþing Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, flutti ávarp.
Borgarmálin rædd
á Reykjavíkurþingi