Morgunblaðið - 19.10.2019, Síða 15
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Nýr Mitsubishi ASX hefur verið nútímavæddur, fínstilltur
og endurskilgreindur til að mæta þínum þörfum. Hann býður
upp á fjöldann allan af sjónrænum uppfærslum og er einstak-
lega þýður í akstri sem skilar sér vel á lengri ferðum. Svo
kemur hann einnig fjórhjóladrifinn sem eykur enn á öryggið.
Nýr ASX 2020 hefur allt sem þarf til að skapa þitt eigið
ævintýr. Komdu og hittu nýja andlit ævintýranna;
endurhannaðan ASX 2020.
SKAPAÐU ÞITT
EIGIÐ ÆVINTÝR
Á NÝJUM ASX
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
pf
yl
ltu
m
ák
væ
ðu
m
áb
yr
gð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
ASX2020
Verð frá 4.090.000 kr.
Skoðaðu úrvalið á
www.hekla.is/mitsubishisalur
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Frá því í júní 2018 hefur Kolbrún
Baldursdóttir, borgarfulltrúi
Flokks fólksins, lagt fram eða verið
aðili að 290 fyrirspurnum og til-
lögum í borgarstjórn, forsætis-
nefnd og borgarráði. Þar af eru 7
fyrirspurnir og 9
tillögur í for-
sætisnefnd, 14
tillögur í borgar-
stjórn og 129
fyrirspurnir og
131 tillaga í
borgarráði.
Á síðasta
borgarráðsfundi
var upplýst að nú
væri unnið að
Gagnsjá Reykja-
víkur, þar sem upplýsingar sem
þessar verði aðgengilegar öllum.
Helga Björk Laxdal, skrifstofu-
stjóri borgarstjórnar, hefur birt
svar við fyrirspurn Kolbrúnar frá í
júlí. Þar óskaði hún eftir að fá ná-
kvæman lista yfir öll mál flokksins
frá upphafi með upplýsingum um
hvernig þau voru afgreidd á sér-
stökum lista og hvaða mál eru óaf-
greidd og hvar þau eru þá stödd.
Í svarinu kemur fram að 31 mál,
10 tillögur og 21 fyrirspurn eru í
umsagnarferli, 94 fyrirspurnum
hefur verið svarað, 52 tillögur hafa
verið afgreiddar og 83 málum hefur
verið vísað annað til meðferðar, 69
tillögum og 14 fyrirspurnum.
Meðalafgreiðslu- eða svartími mála
er 36,5 dagar. Loks er í svarinu
birtur listi yfir mál fulltrúa Flokks
fólksins á kjörtímabilinu og af-
greiðslur þeirra þar sem það á við.
Í bókun þakkaði Kolbrún fyrir
listann og telur mikilvægt að yfirlit
eins og þetta sé til og það sé upp-
fært t.d. á sex mánaða fresti.
Ansi flókið verkefni
Í bókun fulltrúa meirihlutans
kemur fram að síðastliðið vor hafi
verið samþykkt að hefja undirbún-
ing Gagnsjár Reykjavíkur. Gagnsjá
verði hluti af lýðræðis- og sam-
skiptakerfum borgarinnar, stuðli
að gagnsæi, bættri þjónustu, upp-
lýsingagjöf og auðveldi borgar-
búum að falast eftir ítarlegri upp-
lýsingum.
Í Gagnsjá verði t.d. á einfaldan
hátt hægt að sjá stöðu mála og yf-
irlit yfir mál hvers kjörins fulltrúa
ásamt fylgigögnum og tengingu við
skyld mál. „ Verkefnið er ansi flók-
ið og gæti tekið tíma en þessi
breyting verður mikilvæg bót og
mun auka verulega aðgengi allra
borgarbúa að upplýsingum um
virkni borgarinnar,“ segir í bókun-
inni.
Morgunblaðið/Hari
Ráðhúsið Unnið er að gerð gagnsjár sem verður öllum aðgengileg.
Borgin lætur
útbúa gagnsjá
Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur
lagt fram 290 fyrirspurnir og tillögur
Kolbrún
Baldursdóttir
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
kveðst ekki hafa skýringar á því að
ekki hafi tekist að
ná heildarsam-
komulagi um
stjórnun makríl-
veiða milli allra
strandríkja í
samningalotu
sem lauk í Lond-
on á fimmtudag.
„Við mættum til
þessa fundar
bjartsýnir eftir
viðræður við
samningsaðila – ekki vegna þess að
við héldum að okkur tækist að semja
um skiptingu milli þjóðanna endilega
– heldur að öll strandríkin kæmu að
því að ræða og taka ákvörðun um
það hversu stóran hluta stofnsins við
ætlum að nýta. Öll strandríkin hafa
ábyrgð og skyldu til að leggja eitt-
hvað af mörkum í því og það voru
viðræður milli manna um það að við
kæmum að því borði. Svo bara á síð-
ustu metrunum vildu Norðmenn,
Evrópusambandið og Færeyingar
sitja einir að þeirri ákvörðun,“ segir
Kristján.
Ráðherrann segist ætla að ræða
við samningamennina í næstu viku.
„Það eru veruleg vonbrigði að þessar
nágrannaþjóðir okkar, Norðmenn og
Færeyingar ásamt Evrópusamband-
inu, hafi ekki hleypt Íslandi að því að
taka ákvörðun um hversu stóran
hluta stofnsins á að veiða.“
Ósanngjarnt
Spurður um þá gagnrýni sem Ís-
lendingar hafa hlotið vegna makríl-
deilunnar svo sem ásakanir um
græðgi og rányrkju, segir Kristján
hana ósanngjarna og ekki rétta.
„Við stöndum einfaldlega á okkar
rétti. Þetta er fiskur sem gengur inn
í okkar lögsögu og okkur ber skylda
til, og við eigum að sýna þá ábyrgð
Íslendingar, að taka þátt í ákvörð-
unum um það hvernig þessi stofn er
nýttur. Svo geta þjóðirnar rifist um
það hversu stóran hluta hver og ein á
að fá. En grundvallaratriðið er að
þær taki allar þátt í ákvarðanatök-
unni.“
Makrílviðræður
mikil vonbrigði
Útilokaðir á síðustu metrunum
Kristján Þór
Júlíusson