Morgunblaðið - 19.10.2019, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2019
Fasteignamiðlun
Síðumúli 13
108 Reykjavík
atvinnueign.is
HÚSEIGNIRMEÐTILBÚNUM
LEIGUEININGUMFJÁRFESTING
Sóleyjargata 25
Til sölu 428,5 fm einbýlishús þar af 17,7 fm bílskúr.
Eignin er skipt upp í sex íbúðir sem tilbúnar eru til útleigu.
Óskað er eftir tilboði í eignina.
Sóleyjargata 33
Til sölu 308,1fm einbýlishús. Eignin er skipt upp í fjórar íbúðir og
fimmherbergi sem tilbúnar eru til útleigu.
Óskað er eftir tilboði í eignina.
Hentar vel fyrir orlofsíbúðir og gististarfsemi.
Atvinnueignir eru okkar fag
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarið hafa fulltrúar Um-
hverfisstofnunar og Reykja-
víkurborgar unnið að gerð stjórn-
unar- og verndaráætlunar fyrir
friðlandið Akurey. Drög að áætl-
uninni hafa verið lögð fram til kynn-
ingar.
Akurey er lág og vel gróin eyja á
Kollafirði, um 6,5 hektarar af grónu
landi, og er norðaustan við Sel-
tjarnarnes, yst eyja í Kollafirði. Í
Akurey verpa ýmsir sjófuglar eins
og lundi, sílamáfur, æður, fýll og
teista og er lundi langalgengastur.
Búseta manna hefur aldrei verið í
Akurey svo kunnugt sé, að því er
fram kemur í áætluninni.
Lundinn er á válista
Sem fyrr segir er lundi algeng-
asta fuglategundin í Akurey og tel-
ur um 15 þúsund pör. Lundi er á
válista Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands árið 2018 sem tegund í bráðri
hættu og er Akurey flokkuð sem al-
þjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð
þar sem viðmiðið er tíu þúsund pör.
Teista er skráð á lista yfir tegundir í
hættu og æður á lista yfir tegundir í
nokkurri hættu. Óbirt gögn benda
til að Akurey sé einnig mikilvægur
náttstaður fyrir skarfa að vetri til
og er áætlað að um 400 fuglar nýti
sér hann. Talið er að 60-100 pör af
æðarfugli verpi í Akurey en æðurin
dreifir sér um nær alla eyna og
verpir lundinn innan um hana. Síla-
máfur verpir í eynni og fýll á brún-
um hennar. Samkvæmt upplýs-
ingum fuglafræðings ræna máfar
fæðu af lundanum en hafa látið ung-
ana eiga sig. Landdýr eru ekki í
eynni.
Akurey var friðlýst sem friðland
vorið 2019 og felst verndargildi
hennar fyrst og fremst í fuglalífi
eyjarinnar. Hún er fyrsta friðland
innan borgarmarka Reykjavíkur.
Stjórnunar- og verndaráætlun
fyrir Akurey er ætlað að vera
stefnumótandi skjal, unnið í sam-
vinnu við landeigendur, sveitarfélag
og hagsmunaaðila og er hugsað sem
stjórntæki til að móta framtíðarsýn
svæðisins. Markmiðið með gerð
hennar er að leggja fram stefnu um
verndun Akureyjar og hvernig við-
halda skuli verndargildi svæðisins
þannig að sem mest sátt ríki um. Í
áætluninni er lögð fram stefnu-
mótun til 10 ára, ásamt aðgerða-
áætlun til fimm ára.
Meðal annars verður farið í ár-
legar eftirlitsferðir út í Akurey og
niðurstöður rannsókna og vöktunar
verði aðgengilegar á svæði frið-
landsins á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar. Farið verður í skipulegar
aðgerðir til að hefta útbreiðslu æti-
hvannar. Óheft útbreiðsla hennar er
talin geta valdið gróður- og jarð-
vegseyðingu á svæðinu. Til að
vernda búsvæði fugla, ekki síst
lunda, þarf að koma í veg fyrir að
ætihvönn veiki jarðveg búsvæðisins.
Óskað verði eftir því við Náttúru-
fræðistofnun Íslands að gerð verði
rannsókn á áhrifum siglinga á dýra-
líf í friðlandinu Akurey. Nokkur
fyrirtæki í ferðaþjónustu bjóða upp
á skipulagðar siglingar að eynni yfir
sumartímann. Bannað er að sigla
hraðar en á fjögurra sjómílna hraða
við eyjuna. Flug dróna er bannað.
Frestur til að skila inn ábend-
ingum og athugasemdum varðandi
tillöguna er til og með 27. nóvember
næstkomandi. Hægt er að skila
ábendingum og athugasemdum á
heimasíðu Umhverfisstofnunar, með
tölvupósti á netfangið ust@ust.is. Á
heimasíðunni getur almenningur
kynnt sér áætlunina.
15 þúsund lundapör í Akurey
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Akurey kynnt Er talin alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akurey í Kollafirði Friðland fyrir fugla skammt fyrir utan Örfirisey. Hefur hún mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Morgunblaðið/Eggert
Lundabyggð Glæsilegur fugl lund-
inn sem ætíð vekur athygli fólks.